Alþýðublaðið - 24.07.1963, Blaðsíða 2
e»Mjerar: G<Jli J. Asipörssor (éb? os Benedlkt Grönöal.—AOstoOarrltstJón
•ijeravlti Guömui.clsspD Fráttastjórl: Sigvaldl Hjálmarsson. - Blnutr
HtOO 14 iOl - 14 003. Auglýsingasíml: 14 906 — Aösetur: Alþýöuhúslö
Pren amlíja AlWöublaös. ns, Hverfisgötu 8-10 — Askrlftargjald kr. 65.00
4 aumuflk 1 laLsaaulu kr. 4 00 eint. Otgefandi- Albýöuflokkurtn*
Lítil breyting
j FYRIR NOKKRUM ÁRUM kom út á íslenzku
gömul bók um för Friðriks áttunda og danskra ríkis
þingsmanna til Færeyja og Íslands 1907. Þessi fróð
lega frásögn sýnir meðal annars, að íslendingar
voru um aldamót engir eftirbátar í stássi og veizlu
höldum, frekar en þeir eru í dag.
Þegar höfundar hinnar konunglegu ferðasögu
: lýsa komu sinni til Reykjavíkur, farast þeim svo
orð: „Frá höfninni er Reykjavík væn á að líta, í
fögru umhverfi, skemmtilega marglit og mishæð-
■ótt. Þegar inn í bæinn er komið, ljókkar hann held-
ur betur. Húsin erú lítil og lágreist. Að vísu sjást
á víð og dreif snyrtileg timburhús, en bárujáfns-
kumbaldárnir, sem mjög ber á, þóttu oss h rein-
asta andstyggð. Götur eru langar og beinar, lenda
( hornrétt hver á aðra, samkvæmt amerískri fyrir-
: mynd, en hvorki steinlagðar né malbikaðar. Vor og
j haust myndast mikil forarleðja á götunum, en á
: sumrin þyrlast ryk framan í vegfarendur, þegar til
; efni gefst. Sjaldan heyrist vagnskrölt á strætum, en
. það bætir upp hressandi hófadynur lítilla hesta“.
Þessi lýsing Reykjavíkur 1907 er að einu leyti
afhyglisverð: Hún gæti að mestu eins vel átt við
Reykjavík í dag, 1963! Vagnskröltið er að vísu
komið. Það eru einstaka snotur steinhús 1 gamla
bænum, annars allt fullt af litlum og lágreistum
húsum, bárujárnskumböldum og kofarusli. Og um
nálega öll nýrri hverfin gildir enn lýsingin á forar
leðju og ryki.
íhaldsstjórn
AF HVERJU getur lýsing á Reykjavík frá
1907 í aðalatrioum eins átt við 1963? Af hverju hef
ur gamli bærinn ekki verið byggður upp? Af
hverju er gatnagerðin langt á eftir tímanum?
Svarið við þessum spurningum er á þá lund,
að íhalds- og sérhagsmunasjónarmið hafa verið of
rík í stjórn bæjarins. Einkalóðir gamla bæjarins í
Reykjavík hafa fengið að hækka ár frá ári og gera
eigendur að milljónamæringum, án þess að þeir
hreyfðu fingur. Ef tekið hefði verið fyrir þetta í
tíma og lóðaverðið haft skaplegt, væri löngu búið
að byggja miðbæinn upp á glæsilegan hátt.
Á sama hátt er augljóst, að fasteignir bæjarins
verða að bera meginþunga gatnagerðar. En í ára-
tugi hefur ekki verið lagt á gjald til þess að tryggja
mannsæmandi gatnagerð, fyrr en nú allra síðustu
ár. Þama hefur komið fram hlífð við eignamenn
þjóðfélagsins, sem þó kemur þeim í koll eins og öðr
um bæjarbúum.
HANNESÁ
ÞEGAK EG OK nýlega meðfram
Þingvallavatni, þótti mér mikif um
bót hafa á orðið. Vegurinn hefur
verið rykbundinn, en þarna hefur
verið moldar'kaf í stiírmum ogr
þurrviðri svo lengi, sem ég man
eftir og ekki verið líft í skóginum
meðfram veginum, a.m.k. þegar
vindur hefur staðið af vatninu.
Það brá við þegar við komum á
Mosfellsheiðarveginn, stormur var
allmikiir og þar var allt í kafi.
MIKIL UMBÓT hefur orðið í
vegamálum okkar á þessu sumri,
rykmökikui-inn hefur hopað, en
ekki nógu víða. Við getum vitan-
lega ekki ætlazt til að þessi nýjung
í umferðamálunum, nái um allt
land á einu sumri, en munum hins
vegar fagna hverjum spotta, sem
rykbundinn er. Þetta er vitanlega
dýrt og krefst mikillar vinnu, og
svb lengi erum við búin að búa
við vandræðin á vegunum, að við
getum þolað það, þó að nokkuð
dragist að rykbinda allar leiðir.
BIFREIÐUM FER sífellt fjiiig-
andi og nauðsyn að sinna vega-
málunum enn meir. Fyrir síðustu
kosningar hafði ég veður af þvi,
að nýtt frumvarp væri á leiðinni
um hækkun benzíns og einhver
aukin útgjöld fyrir bifreiðaeigend-
ur og átti að vera bundið í lög-
unum að hver eyrir færi til auk
innar og bættrar vegagerðar. Sagt
var, að með þessu móti yrði hægt
að verja 125 milljónum kr. til við-
bótar við það sem nú er varið til
þessara mála.
ÉG VAR ÁNÆGÐUR með þetta
— og þó er þetta skattur á alla
bifreiðaeigendur, en því aðeins
V- Umbót í vegamálum á þessu sumri.
ic Rykbindingin gefst vel, en er enn ekki kominn víða.
ir 125 milljónum meira til vegabóta.
ic Raugamölin er mikið skaðræSi.
var ég ánægður með hugmyndina,
að staðið væri við það að verja
öllu fénu til bættra vega, því að
vegirnir, eins og þeir hafa verið,
hafa stórskemmt farartækin og
það er dýrt að kaupa varahluti og
gera við þau. En því miður varð
ekkert úr þessari fyrirætlun.
MIG GRUNAR að um einhvers
konar kosningahræðslu hafi verið
að ræða. Þetta var illa farið, en
mörg góð mál drukkna í kosninga-
briminu. Vonandi verður frumvarp
! ið lagt fram á næsta Alþingi og
I gert að lögum. Ef svo verður, þá
getum við átt von á því, að enn
verði miklar framfarir í þessum
nauðsyniamálum þegar á næsta
sumri. En til þess að svo geti
orðið þarf frumvarpið að vcrða
að lögum fyrir áramót.
OG FYRST ÉG er farinn að tala
um rykbindinguna, nýjustu umbót
ina í vegamálunum, er rétt ið ég
beri fram kröftug mótmæli gegn
helvískri rauðamölinni, sem borg-
aryfirvöldin eru nú að dreifa um
borgina. Þau láta setja hana á ieik
velli, einn er svona útleikinn fyrir
utan gluggann minn. Rauðamölin
drepur tré og allan gróður í nær-
liggjandi görðum, rauðamölin sáldr
ast inn í íbúðirnar og er þar hinn
mesti vágestur, það má ekki opna
glugga hennar vegna og loks berst
rauðamölin inn í íbúðimar á fót
um barna og fullorðinna og skemm
ir dúka og teppi. Rauðamölin er
óhæf. Hins vegar eru baroaleik-
vellirnir ekki malbikaðir eins eg
gert er víðast hvar erlendis, a.m.k.
þar sem ég þekki til. Rauðamölia
er alveg óhæf.
100 millj. kr. sjóður
Póstkassar
Framhald af 16. síðu.
kassi miklu ódýrari, en þeir er-
íendu, kotar aðeins 290 kr. Hefur
Nýja blikksmiðjan þegar framleitt
á annað hundrað póstkassa.
Á tímabilinu frá 1. janúar til 1.
júlí sl. voru settir upp í Reykjavík
um 2000 póstkassar. Póstkassarnir
eru settir á neðstu hæð húsanna
og sparar það póstmönnum margt
sporið.
Það liggur í augum uppi, að með
tiltoomu póstkassanna verða
miklu minni möguleikar á því að
bréf til íbúa borgarinnar misfarist
í póstinum og glatist.
Að lokum birtist hér lagagre'n-
in, sem þessar umbætur póstþjón
ustunnar í Reykjavík byggjast á:
„I Reykjavík og annars staðar
á landinu, þar sem daglegur bréfa
útburður fer fram og slíkt þykir
lienta, getur póstmeistari með sam
þykki póst- og símamálastjórnar,
eftir nánari ákvæðum í reglugerð
sem póst- og símamálaráðherra
se'jj gert1 hú,:seignndum skyý
að setja upp bréfakassa í eða v'o
hús sín, á þeim stað, sem póst-
meistari samþykkir, undir þann
póst, sem í húsið á að fara. Skai
gerð kassanna háð samþykki póst
meistara og er húseigendum skylt
að halda þeim við.
Nú lætur húseigandi undir höf
uð leggjast að sinna fyrirmælum
póstmeistara og varðar það sektum
samkvæmt 22. gr. og heimilast þá
póstmeistara, ef svo ber undir, að
útvega, setja upp og halda Við
bréfakössum á kostnað -húseig-
anda. Kostnað þennan má krefja
með lögtaki."
Framh. af 1. síðu
g-reiða gamlar skuldir ríkisins við
Seðlabankann. Verða þá 21 millj-
ón eftir, færðar milli ára.
JÖFNUNARSJÓÐUR
LÍFGAÐUR VEÐ
Það er óvenjulegt við þessa ráð-
stöfun á tekjuafgangi ríkisins, að
þrjátíu ára gömul lög eru vakin
upp og 100 milljónir lagðar í
Jöfnunarsjóð, sem aldrei hefur
vdrið nema lagabókstafur — þótt
lögin séu enn í gildi. Er þetta
gert sökum þess, að ríkisstjórnin
telur varhugavert fyrir efnahag
þjóðarbúsins að leggja 100 millj-
ónir til viðbótar í framkvæmdir,
eins og ástandið er í landinu í
dag. Hins vegar er talið skynsam-
Iegt að geyma nokkuð fé til erfið-
ari tíma, sem vissulega geta alltaf
komið.
Jón Baldvinsson og aðrir AI-
þýðuflokksmenn vöktu fyrst máls
á stofnun slíks sjóðs um 1930.
Fluttu þeir á alþingi frumvörp um
Jöfnunarsjóð ríkisins þrjú ár í
röð. í þessu frumvarpi var fytir-
skipað að leggja skyldi vissan
hluta af umframtekjum ríkisins í
sjóðinn og nota hann eingöngu til
atvinnuaukningar, þegar illa ár-
aði. Hins vegar komu sjálfstæðis-
menn og framsóknarmenn sér
saman um að láta Jöfnunarsjóð
einnig greiða greiðslulialla ríkis-
ins og jafnvel lækka skuldir þess
Þannig var málið afgreitt 1932.
Jón Baldvinsson sagði um þessa
hugmynd sína: „Á þennan hátt,
sem hér er lagt til, verður þetta
til öryggis fyrir atvinnuvegina í
landinu og ríkissjóðinn líka á erf-
iðum tímum. Ef slíkur sjóður er
til, sparar liann lántökur til at-
vinnubóta á slíkum tímum. Sé ég
eigi, að hann geti orðið þjóðinnl
til meira gagns á annan hátt”.
I í fyrstu grein laganna um Jöfn-
unarsjóð segir, að fari tekjur rík-
issjóðs á rekstrarreikningi fram
úr lögboðnum og óhjákvæmileg-
um greiðslum sem nemur 4 millj-
ónum, skuli leggja það, sem um-
fram er, í sjóðinn Sjóðinn skal
ávaxta í banka og má ekki vcita
úr honum lán.
Sjóðnum má verja til að jafna
greiðsluhalla hjá ríkissjóði við til-
greindar aðstæður. Elnnig má
verja úr sjóðnum til ólögbundinna
framkvæmda ríkisins, ef tekjur
ríkissjóðs hrökkva ekki til að
framkvæmdir nem> meðaltali síð-
ustu 5 ára. Ef meira fé er í sjóðn-
um en þarf til þessara tveggja
atriða er f jármálaráðherra skylt að
verja því til aukaafborgana af
skuldum ríkisins.
Framhald af xb'. síðu.
15. október n.k. og fellur þá úr,
gildi án uppsagnar.
Trésmiðir á fundum:
í gærkvöldi voru haldnir fund
ir í Trésmiðafélagi Reykjavíkur
og Meistarafélagi húsasmiða til
þess að ræða og taka afstöðu til
samninga um kaup og kjör húsa
smiða, sem undirritaðir voru með
fyrirvara í vikunni sem leið. Blað
ið mun skýra frá samningunum
í einstökum atriðum í fyrramálið.
RÚMAR ALLA
FJÖLSKYLDUNA
KYNNIÐ YÐUR
MODEL 1963
vS^h^B3örNSSOn & co. p.a
Simi 24204
BOX 1384 • REYKlAVfK
g 24. júlí 1963 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ