Alþýðublaðið - 24.07.1963, Blaðsíða 16
MMUHMHMMMMMMMMHHtMMtMUUiMmUMaMHmMMMUMMHMUUMHWmHHV
ÞESSA póstkassa var verið
að setja upp i gær að Skúla-
götu 58. Nær kössunum stcnd
ur Kristján Jakobsson, póst-
maður, sem hefur umsjón
með því að kössunum sé
komið fyrir í öllum húsum
borgarinnar. Við hlið hans
er Björn Weistad frá Nýju-
blikksmiðjunni, en hann
setti upp kassana.
Póstkassar í öll
hús borgarinnar
I lögum frá 1954 er póstmeist-
ara heimilað að láta koma fyrir
jaóstkössum í húsum borgarinnar.
Matthías Guðmundson póstmeist-
ari beitti sér fyrir því að koma á
umbótum í þessu efni og fól hann
Kristjáni Jakobssyni póstmanni
að vinna að því, að póstkassar verði
settir upp í öllum húsum borgar-
ánqr. Hefur Kristján unnið að
þessu verki síðan í byrjun nóv-
NJÓSNARAR
DÆMDIR
KARLSRUHE 23.7 (NTB-DPA).
Hinir þrír, vestur-þýzku „íví
njósnarar" sem hófu njósnaferil
sinn á tímum Hitlers, voru í dag
dæmdir til langvarandi betrunar
Síússvistar, fyrir að hafa fátið Rúss
um í té upplýsingar á meðan þeir
vK^u; sta^fanjíi í leyhiþjé>iustu
• W'esturUÞýzkalands.
' Aðalmaðurinn, Heinz Felfe fékk
í4 ár, Hans Clemens fékk 10 ár og
•Erwin Tiebel, sem aðeins hafði
utariáð sem sendiboði hinna fékk
3 ár. lOómarnir voru kveðnir upp
af Hæstarétti Vestur-Þýzkalands I
í Karlsruhe. Þetta er mesta njósna
mál, sem upp hefur komið í Vest-
ur-Þýzkafandi. Réttarhöldin hóf-
ust 8. júlí og fóru mestmegnis
fram fyrir luktum dyrum.
ember og átti Alþýðublaðið við
hann stutt símtal' í 'gær um þetta
verk hans.
■ Kristján sagði að óglæsilegt
hefði verið að byrja á þessu, því
að allt hafi vantað til alls, póst-
kassana sjálfa og jafnvel plássið
fyrir þá í húsunum. Jafnvel í stór
um íbúðasamstæðum hefði gleymst
að ætla nokkurt pláss fyrir póst
kassa, sem tekið gæti á móti bréf-
um til íbúanna.
í fyrstu voru póstkassarnir flutt
ir inn, aðallega frá Frakklandi og
Noregi, en þeir voru nokkuð dýrir
kostuðu t.d. 689 kr. þeir norsku
Stundum stóð á innflutningi kass
anna, eða lásanna fyrir þá, og tafði
það mjög verkið.
Nýlega hefur svo Nýja bliku-
smiðjan Höfðatúni 6 hafið fram-
leiðslu á íslenzkum póstkössum
Eru hinir íslenzku póstkassar hin
ir hentugustu. Þar er til dæmis
ætlað rúm fyrir nöfn allrar fjól-
skyldunnar, sem notar viðkomanu:
kassa, en það reyndist oft of líLð
á hinum erlendu póstkössum.
Auk þess er þessi íslenzki póst-
Framh. á 2. síðu
44. árg. — Miðvikudagur 24. júlí 1963 — 159. tbl.
VR mó tma ilir vöi 'U-
söli á sunr ludögi im
l»eir, sem hafa kvöldsölisSeyfi hyggjast stofna sér félag.
ALÞYÐUBLAÐIÐ hefur nú frétt, |
að Verzlunarmannafélag Reykja-
víkur hafi sent Kaupmannasam-
tökuuum mótmæli vegna sölu á i
ýmsum varningi í verzlunum á !
sunnudögum. Mun VR sérslaklega
hafa mótmælt sölu þriggja verzl-
ana, sem félagið tilgreindi og
MÆLDI
ÖSKJUVATN
Reynihlíð í gær.
UM HELGINA fór hópur vega-
gerðarmanna til Öskju. Er ætlun
in að laga veginn þangað og
verður hægt að aka alla leið að
gígnum. Verkstjóri vegagerðar-
manna er Pétur Jónsson, Reyni-
hlíð.
Sigurjón Rist, vatnsmælinga-
maður fór með bát á Öskjuvatn
fyrir helgi og mældi dýpt vatns-
ins. Ekki hefur tekizt að afla
fregna um hve djúpt vatnið er ná-
kvæmlega, en í ljós mun hafa
komið, að það sé dýpsta vatn
landsins.
mun hafa staðið að verki. Er
þarna aðallega um að ræða sölu
á kjöti og annarri matvöru.
Telur VR að þarna sé bæði ver
ið að brjóta landslög og samninga
atvinnuveitenda við VR. Lands-
lög sén brotin með því að selja
þennan varning á helgidögum, og
samningar við VR með því að láta
afgreiðslufólkið vinna á sunnudög
um.
Ekkert nýtt hefur komið fram í
máli því, sem hefur spunnist vegna
lokunartíma sölubúða. Þó munu
kaupmenn eem kvöldsölu-
leyfi hafa, hafa boðað til fundar og
hafa þeir í hyggju að stofna sér-
stakt félag þeirra manna, sem
slík leyfi hafa.
AÐALFUNDUR Félags Bifreiða-
innflytjenda var haldinn 26. júni
siðastl.
Stjórnin var endurkosin en
hana skipa: Gunnar Ásgeirsson
formaður, Geir Þorsteinsson og
Friðrik Kristjánsson meðstjórn-
endur. í varastjórn Egill Vil-
hjálmsson.
Nýr framkvæmda
stjóri flsigöryggis
þjónustunnar
Nýr maður hefur nú tekið við
embætti framkvæmdastjóra
flugöryggisþjónustunnar. Er
það Leifur Magnússon, verk
fræðingur, sem hefur verið
ráðinn í stað Björns Jónsson- •
ar, sem nú starfar í París.
Leifur hefur verið verkfræð
ingur hjá Flugmálastjórn-
inni síðan í október 1960.
Ilann tók við hinu nýja starfi
í byrjun apríl sl.
KIRKJAN LOKUÐ OG LYK
ILLINN FYRIR SUNNAN
MARGT fólk, sem kom austur að
Skálholti á mánudaginn, og ætl-
aði að skoða hina nývígðu Skál-
holtskirkju, varð að snúa frá
luktum kirkjudyrum, þvi að
lykillinn að kirkjunni „var fyrir
sunnan”. Kirkjuvörður mun
hafa huggað ferðamenn með því,
að hann hefði þegar hringt eft-
ir lyklinum og væri hann vænt-
anlegur á hverri stundu. En blað-
inu er kunnugt um að lykillinn
var ókominn austur um klukkan
17 á mánudag.
Þetta eru mjög leið mistök
því að marga mun hafa fýst að
skoða hið nývígða guðshús, sem
svo mjög hafði verið í umtali
vegna vígsluhátíðarinnar daginn
áður. Veðrið var líka gott á mánu
daginn og hafa vafalaust margir
ætlað að nota góða veðrið og
skreppa austur og skoða kirltj-
una. En fyrir marga varð það
fýluför. Meðal annarra sem frá
urðu að hverfa án þess að fá að
skoða kirkjuna, voru útlending-
ar, og er ekki víst, að þeim gef-
izt annað tækifæri til þess a®
skoða Skálholtskirkju. Er von-
andi, að þess verði vel gætt, að
slíkur atburður sem þessi, end-
urtaki sig ekki.
Múrarar semja
- trésmiðir á fundi
Múrarafélag Reykjavíkur, ogisveina um 17%, ákvæðisvinna
Múrarameistarafélag Reykjavíkur [ hækkar um 13% og verkfærapen
samþykktu á fundum sínum í gær ; ingar hækka úr kr. 0.75 í kr. 1.06.
kvöldi samninga þá um kaup og Kaup þetta gildir frá 15. júlí til
kjör múrara, sem undirritaðir
voru með fyrirvara í síðustu viku.
Samkvæmt hinum nýju samn-
ingum hækkar tímakaup múrara-