Lögrétta - 19.03.1913, Blaðsíða 1
Afgreiðslu- og innheimtum,:
Þorarinn b. ÞORLÁKSSON.
Veltnaandi 1.
Talsimi 359.
Ritstjorl:
RORSTEINN GÍSLASON
Pingholtsstræti 17.
Talslml 178.
M 13.
Reykjayík 19. Mars 1913.
yrn. árg.
cffleð „<2offíníu“
kom nú mikið og glœsilegt úrval af
TbcmuRápum og Sjöíum i
Brauns verslun „Hamborg-“.
1. O. O. F. 943149-
Þjóðmenjasafnið opið á sunnud., þriðjud
og fimtud. kl. 12—2.
Laekning ók. i læknask. þrd. og fsd. 12—1.
Tannlækning ók. (í Pólthússtr. 14) I. og 3.
md. í mán. 11—I.
Landakotsspítali opinn f. sjúkravitj. 11—I
alla daga.
Islands banki opinn 10—21/* og 5*/»—7-
Landsbankinn io'/s—2T/s. Bnkstj. við 12—1.
Landsbókasafnið opið hv. virkan dag kl.
12—3 og 5—8.
Ókeypis lagaleiðbeiningar á háskólanum a
hverjum laugard. kl. 7—8 síðd.
Heilsuhælið opið til heimsókna 12—I.
Lárus Fjeldstod,
Y flrrj ettarmálaf serslum»Our.
Lækjargata 2.
Helma kl. 11 — 12 og 4—7.
Bækur,
innlendar og erlendar, pappír og allskyDs
ritföng kaupa allir í
Bokaversl. Sigfúsar Eymundssonar.
Gujuskipajjelagið.
Eins og menn sjá á öðrum stað í
blaðinu, hefur nú verið sent út boðs-
brjef til almennings um þáttöku í
stofnun íslensks gufuskipafjelags.
Mál þetta hefur fengið allrækileg-
an undirbúning hjer í Reykjavík,
verið unnið að því í nefndum og á
fundum nú síðustu mánuðina; meðal
annars hefur það verið borið undir
fundi, sem boðaðir hafa verið til
allir alþingismenn í bænum, blaða-
menn og kaupmenn, og hafa aliir
viðstaddir á þeim fundum einróma
mælt með því að tilraun yrði gerð
til þess að stofna fynrtækið.
Allir íslendingar hljóta að óska
þess, að verslun landsins verði sem
innlendust. Mikið hefur áunnist í
því efni síðan við fengum verslunar-
frelsið. Góð verslun er í því fólgin, að
kaupa útlendan varning þar, sem
best kaup fast á hverri tegund hans
fyrir sig, flytja til landsins og hafa
jafnan fynrhggjandi nægar birgðir af
honum nanda notendum, enkaupa aftur
innlendan varnmg og senda þangað,
sem bestur er markaður fyrir hann,
og selja hann þar.
Til þess að gera verslunina al-
innlenda hefur hingað til einkum
skort tvent: nægilegt fjármagn í
bönkum landsins, til þess að futl-
nægja hinni miklu þörf á lánsfje,
sem verslunin útheimtir, og innlend
skip, sem landsmenn hefðu sjálfir
umráð yfir, til þess að sækja út-
lendan varning beint til þeirra staða,
sem hentugast er að kaupa á, og
flytja innlendar afurðir þangað, sem
bestur er markaður fyrir þær.
Það var gerð virðingarverð tilraun
til að bæta úr hinum fyrnefnda skorti,
skortinum á innlendu veltufje til
verslunarinnar, þegar íslandsbanki
var stofnaður fyrir nokkrum árum.
Þó stofnun hans hafi engan veginn
reynst einhlít tii þess að fullnægja
öllum þörfum kaupmanna, vegna
þess að starfsfje var þegar í fyrstu
mjög takmarkað, og hefur ekki auk-
ist sfðan eftir því sem þarfirnar hafa
aukist, þá er þó vonandi að báðum
bönkunum, Landsbankanum og hon-
um, vaxi smám saman svo fiskur
um hrygg, að þeir auk þess að full-
nægja lánsþörfinni til framleiðslu
fyrirtækja á sjó og landi geti smám
saman veitt innlendum mönnum þá
stoð, sem nauðsynleg er til þess að
geta tekið við verslunarstörfunum af
hinum erlendu verslunarhúsum, sem
hafa rekið og reka verslun hjer.
Hjer er nú í fyrsta sinn beint al-
varlegri áskorun til þjóðarinnar um
að hefjast handa og stíga fyrsta
sPorið til þess |að nota einn-
hinn þátt verslunarfrelsisins, taka
1 sínar hendur vöruflutningana og
samgöngurnar milli landsins og út-
landa. Forgöngumenn fyrirtækisins
hafa litið svo á, sem tíminn til þess
væri nú kominn, þjóðin sje komin
á það stig efnalega, að henni sje
það kleift, e/ hún vill, og að svo
mikill hluti verslunarinnar sje kominn
alveg á innlendar hendur, að eðlilegt
sje að sú innlenda verslun ráði einn-
ig fyrir vöruflutningum sínum. Það
er ekki einungis holt og sjálfsagt
metnaðaratriði, að vilja ekki vera
upp á aðra komnir með framkvæmd
slíkra verka, eins og samgangnanna
við útlönd, sem er blátt og beint
lífsskilyrði fyrir hvern einasta mann
á landinu, heldur er það líka stór-
kostlegt hagsmunaatriði fyrir alla þá,
sem vörur þurfa að kaupa og
selja, að flutningum til landsins og
frá því sje hagað og haldið uppi
með þarfir landsmanna eingöngu fyrir
augum, þannig að verslunarstjettinni
sje í raun og veru unt að kaupa
erlendan varning þar sem best kaup
fást, og selja innlendar afurðir þar
sem þær eru í hæstu verði.
Það er ekki rúm til að orðlengja
meira um gagn og nauðsyn fyrir-
tækisins Áhætta virðist ekki vera nein
aðgerasthluthafi fþví. Þ'yrst°gfremst
bera hluthafar alls enga ábyrgð á
skuldbindingum slíks fjelags umfram
hluti sína í þvl. Og í öðru lagi eru
nú fargjöld og flutningsgjöld svo há,
að það er vitaniega haskalaust að
leggja peninga í skip. Landsjóðs-
styrk gera forgöngumennirnir sjer von
um að fá til fyrirtækisins, aðallega í
notum þess, að hafa viðkomur á
þeim höfnum erlendis, svo sem Ham-
borg, sem hagvænlegt er að skifta
við, en nú er litt kleift vegna vant-
andi skipagangna. Með góðum fram-
kvæmdarstjóra ætti því framtíð fyrir-
tækisins að vera óhult, ef aðeins
hlutafjeð fæst, og mun óhætt að taka
orð forgóngumanna trúanleg um
það, að til þess þýðmgarmikla starfs
hafa þeir trygt sjer sjerstaklega hæf-
af mann, sem hefur fullkomna þeKk-
ingu á þeim efnum. Nafni hans er
ekki hægt að sKýra fra fyr en full-
sjeð er, að fynrtæKið komist í fram-
kvæmd, en til þess að fyrirbyggja
allan miskilning í því efni, hafa for-
göngumenmrmr beðið Lögr. að geta
þess, að sá maður er enginn þeirra,
er hafa undirskrifað hlutaútboðs-
skjalið.
Fyrirtæki þetta er alveg ópólitiskt,
ekki á neinn hátt bendlað við neina
stjórnmálastefnu, hvorki við stjórn-
málastefnur í innanlands malum nje
út á við. Sjerstaklega er rjett að
að taka það fram, að Lögr. er kunn-
ugt um að forgöngumenmrmr llti svo
á, sem hjer sje ekki um að ræða
fyrirtæki, er á nokkurn hátt sje ætl-
að til þess að styggja Dani eða
geti orðið til þess. Það er alkunn-
ugt, að sjerhvert framfaraspor, sem
vjer stígum, vekur ánægju hjá hin-
um mörgu vinum lands vors í Dan-
mörku, og svo mun einnig verða um
þetta fyrirtæki, ef það kemst í fram-
kvæmd. Eins og Danir með stofn-
un íslandsbanka stuðluðu að þvf,
að verslunin gæti komist á hjerlend-
ar hendur, eins má telja vfst að þeir
muni síður en ekki vilja spilla þessu
fyrirtæki, ef þjóðin og sjerstaklega
verslunarstjettin sýnir að hún hefur
vilja og mátt til þess að koma því
í framkvæmd.
Á það verður nú reynt, og skorar
Lögr. fastlega á landsmenn að styðja
fyrirtækið svo, að þegar í sumar
megi taka ákvörðun um að kaupa
bœði skipin.
AJti í Mor©gi. 8. þ. m. var
aflinn við Noreg orðinn 11 milj.
þorska, en á sama tíma í fyrra var
hann 21 milj.
Grikkjáompr myrtur.
Simað er frá Ivhöfn igærkvöld
kl. 11 að Grikkjakonungur hafi
verið myrtur i Salonikí þá um
kvöldið. En nánari er fregnin
ekki.
NtríðiA. Símað er frá Khöfn
í gærkvöld: »Engar úrslitaorustur.
Sífeld skeytaskifti milli stórveld-
anna um milligöngu. Vaxandi
misklíð milli Balkanþjóðannact.
í siðustu útl. blöðum, sem hing-
að hafa komið, er sagt, að Adria-
nópel geti ekki varist lengi áfram.
Þar sje orðinn vistaskortur; setu-
lið Tyrkja þar hafi slátrað hestum
sínum til matar sjer. En frá því
að þær fregnir bárust um, eru nú
liðnir 10 dagar og Adríanópel verst
enn. Og sama er um Skútarí, þótt
sagt væri fyrir viku, að þar stæði
til úrslitaorusta.
111, alþjóða kvenrjctt-
indaþingið á að haldast 15.—
20. júní í sumar í Budapest. Þang-
að koma fulltrúar kvenrjettinda-
málsins frá öllum álfum heims og
hefur forstöðunefndin útvegað þeirn,
sem þingið sækja, afslátt á far-
gjöldum bæði á landi og sjó. Ræð-
ur á þinginu má halda á ensku,
frönsku og þýsku. Nefnd er sett
til þess að taka á móti þeini, sem
þingið sækja og leiðbeina þeim, og
skemtanir eru fyrirhuguðar í sam-
bandi við þingfundahöldin.
Síðasta þingið var haldið í Stokk-
hólmi 1911, og síðan það var hald-
ið hafa konur fengið kosningarjett
í Portúgal, Kína og G ríkjum Banda-
ríkjanna (Cansas, Washington, Cali-
forníu, Arizona, Michigan og Ore-
gon), en á leiðinni til að veita
konum kosningarjett er Danmörk,
England, Svíþjóð, Holland, Ung-
verjaland og ísland, segir í boðs-
brjefinu til Budapests-þingsins.
Tliomas krag dáinn. Lát
hans er simað frá Khöfn 14. þ. m.
og dó hann kvöldið fyrir. Hann var
eitt helsta sagnaskáld Norðmanna á
sfðustu árum og liggur eftir hann
fjöldi af skáldsögum og sumar þeirra
stór verk. „Gunvor Kjeld" er talin
helst af skaldsögum hans. Th. Krag
var aðeins hallfimtugur að aldri,
fæddur 1868.
Frá Spitsbergen. Þar hafa
þýskir landkönnunarmenn lent í mikl-
um raunum nú í vetur. Þeir lögðu
á stað í þessa för síðastl. sumar á
skipinu „Herzog Ernst". Formaður
fararinnar heitir Schröder-Stranz.
Þetta átti að vera byrjunin á stórum
leiðangri til þess að ransaka íshafið
norðan við Asíu. Aðalleiðangurinn
átti ekki að hefjast fyr en næsta
sumar. En Schröder-Stranz fór á
undan, ætlaði að komast norður fyrir
Spitsbergen á skipinu og síðan á
sleðum yfir landið. Síðan átti skipið
að taka við þeim aftur á vestur-
ströndinni. En ísalog voru öðruvísi
þar norður frá síðastl. sumar en gert
hafði verið ráð fyrir, svo að skipið
komst ekki þá leið, sem því var ætl-
uð, en varð fast 1 ísnum. 15. ágúst
fór Schröder-Stranz við fjórða mann
frá skipinu í hina fyrirhuguðu sleða-
ferð og síðan hefur ekki til þeirra
spurst. En 9. sept. hjeldu þeir, sem
eftir urðu á skipinu, á stað þaðan
og ætluðu að ná fótgangandi til
Advent-flóans. Þangað náði aðeins
einn þeirra, Ritzel kafteinn, 27. des-
ember. Hinir höfðu orðið eftir í
tvennu lagi á leiðinni. Um sleða-
mennina ætla menn það, að þeir hafi
komist til Crosz-flóans og að þeim
sje borgið. En frá Advent-flóanum
voru sendir menn í janúar til þess
að leita eftir hinum, en sneru aftur
án þess að finna þá, og höfðu lent
í miklum hrakningum. Þeir komu
til baka 12. febrúar. Var þá gert
út skip frá Noregi norður með öllum
útbúnaði til þess að reyna að bjarga
mönnunum. A því voru Norð-
menn og 3 Lappar með 20 hreindýr
og 10 hunda til þess að beita fyrir
sleða.
Formaður fararinnar heitir Straxrud,
kapteinn. Skipið heitir „Hertha“ og
hafði Abrussa-hertoginn áður haft
það í einni af Norðurferðum sínum.
Eitthvað af Norðmönnum var með
Þjóðverjunum á "Herzog Ernst".
Loftskeytastöðin á Spitsbergen er
við Advent-flóann og frá henni komu
fregnirnar um slysin.
Þing'inenskuframbod. Auk
Björns í Grafarholti hefur nú sr.
Kristinn Daníelsson á Útskálum
boðið sig fram í Gullbr.- og Kjós-
arsýslu. Enginn efi getur á því
leikið meðal kunnugra manna,
að Björn í Grafarholti hefur
marga og mikla þingmannskosti
fram yfir sr. Kristinn, að sr. K.
D. að öðru leyti alveg ólöstuðum
þó. Samt er svo að heyra á
»ísaf.« eins og það ætti að vera
sjálfsagt, að sr. K. D. verði kos-
inn. Er það at því að hann er
embættismaður, en hinn bóndi?
Eða máske einkum af því, að
hálaunaður embættismaður og
peningavaldur hjer í bænum, sem
»ísaf.« þekkir, mun leggja sig
mjög fram um að koma K. D.
að, en bægja Birni frá? — Lögr.
sýnist, þvert á móti því sem »ísaf.«
segir, að það ætti að vera sjálf-
sagt, að Björn yrði kosinn, sem
er einn af greindustu og ment-
uðustu bændum landsins, eins og
alkunnugt er.
Bæjarstjórnarkosning i
K.höfn fór fram 11. þ. m. Jafn-
aðarmenn fengu 27 sæti, radikali
flokkurinn 5, borgaralistinn 22 og
kvennalistinn 1.
I. C. Peostion er nýlega orð-
inn hirðráð (Hofrat), fyrir bók-
mentaverðleika, en var áður stjón-
arráð (Regierungsrat).
Kristján \. konungur og
drotning hans hafa verið í heim-
sókn hjá Þýskalandskeisara í Ber-
lín, og hefur verið tekið þar með
mikilli viðhöfn. Sum dönsku
blöðin láta illa yfir þeim vinsemd-
armerkjum, sem þar fóru fram
milli þjóðhöfðingjana.
Tígin við Khöfn. »Altaf er
verið að safna fje til að fullgera
viggirðingar Khafnar og varnir
landsins ylirlcitt«, segir í brjefi frá
Khöín. »Það er merkilegt, að ýmsir
merkir menn, sem áður hafa stað-
ið i ílokki varnaróvina, eru nú
ákafir með samskotunum. Að vísu
reyna einstöku »radikal«- og »so-
cialista«-blöð að mæla á móti
þessu, en enginn vafi er á því, að
meginhluti þjóðarinnar er því
hlyntur«.
Reykjavík.
Smíðavjelastofur Jónatans Por-
steinssonar. Jónatan Þorsteinsson
kaupmaður hefur nú reist stóra stein-
steypubyggingu norðan við hús sitt
á Laugaveginum og eru í þeirri bygg-
ingu ýmsar verkstofur með nýjum
vjelum og ágætum útbúnaði. Þar er
trjesmíðaverkstofa, söðlasmíðaverk-
stofa o. fl. uppi og járnsmiðja niðri.
Hreyfivjel er þar, með 12 h. a.,
sem snýr fjölda vjela, sem notaðar
eru við smíðarnar. Þar eru vjelar,
sem saga, hefla, bora, skerpa sagir,
brýna járn, fægja trje o. s. frv. Á
verkstofunum eru smíðuð allskonar
húsgögn, vagnar og allskonar reið-
skapur. Þar eru nú milli 20 og 30
menn í vinnu. Timburverslun er nú
einnig rekin þar.
»Völundur« hjelt aðallund 8. þ.
m. Fundarstjóri P. Gunnarsson hótel-
stjóri. Ástæður fjelagsins heldur
betri en árið áður, en þó enginn arð-
ur greiddur. Stjórn kosin: Hjörtur
Hjartarson, Sveinn Jónsson (endur-
kosnir) og Pjetur Gunnarsson, í stað
Árna Jónssonar, er gekk úr stjórn-
inni. Endurskoðunarmenn kosnir:
Guðm. Loftsson bankaritari og Lár-
us Fjeldsted yfirdómslögmaður. Fund-
urinn stóð yfir í 4 kl.st. og voru
fundarmenn sammala um, að fje-
lagsmenn þyrftu að halda betur en
áður höndum saman um fjelagið og
reyna að verða því að sem bestu
liði í framtíðinni. Stjórnin skýrði
frá nokkrum breytingum, sem hún
ætlaði að gera á vinnutilhögun o fl.
á yfirstandandi ári.
Snjór kom hjer óvenjulega mikill
seinni hluta síðastl. viku. Síðan um
helgina hefur verið bjart veður, norð-
anátt og nokkurt frost.
ísafoldar-málið. Þau voru fyrir
sáttanefnd í gærinorgun Sig. Hjör-
leifsson og ísaf. Sigurður hafði kraf-
ist, að samningar, sem við hann
höfðu verið gerðir, yrðu haldnir, en
þó boðist til að gefa þá eftir, efsjer
yrðu borgaðar út 8565 kr. Sáttatil-
raunin stóð yfir f 2 kl.st., en þá var
henni frestað til næsta þriðjudags.
Alt er það rjett, sem Lögr. hefur
áður sagt frá þvf máli.
»Bergenshus« heitir skipið, sem
kemur hingað í stað „Vestu" norð-
an um land.
Frá útlöndum eru nýkomin Jón
Laxdal kaupm. og frú hans, Tofte
bankastjóri o. fl.
Aflabrögð. Þrír botnvörpungar
komu inn f gær og höfðu aflað vel.
„Skúli fógeti" fullur, „Bragi" með
30 þús. og „Great Admiral" með
millli 20 og 30 þús. Þeir höfðu
verið sunnan við land.
Um síðastl. helgi var róið frá Þor-
lákshöfn og Eyrarbakka og aflaðist
töluvert.
Málverkasýning opnar Ásgrímur
malari hjer á morgun, eins og aug-
lýst er á öðrum stað í blaðinu.