Lögrétta - 16.04.1913, Síða 1
Afgreidslu- og innheimtum.:
ÞORARINN B. ÞORLÁKSSON.
■Veltiisuxidi 1.
Talsimi 359.
LOGRJETTA
Rlts t J o ri:
PORSTEINN GÍSLASON
Ringholtsstræti 17.
Talslml 178.
M ÍT'.
Reylíjavík 16. apríl 1913.
vm. árff.
I. O. O. F. 944189.
Lárus Fjeldsted,
YflrrjettarmálafsBrslumaOur.
Lækjargata 2.
Heima kl. 1 1 —12 og 4—7.
Bœkur,
innlendar og erlendar, pappír og allskyns
ritföng kaupa allir í
Bókaversl. Sigfúsar Eymundssonar.
Langardaginn þann 20. þ. m.,
kl. 12 á hád., verður opinbert
uppboð haldið í Melshúsum á
Seltjarnarnesi og þar og þá seldir
lausafjármunir allir tilheyrandi
dánarhúi Jóns Jónssonar í Mels-
húsum, yagnar, aktýgi, rúmfatn-
aður, rúmstæði, margskonar inn-
anstokksmunir og búsáhöld, svo
og 3 kýr, 1 hestur, loks gamla
barnaskólahúsið, mjólkurskúr o. fl.
Uppboðsskilmálar verða birtir á
uppboðsstaðnum.
Skrifstofu Gullbringu- og
Kjósarsýslu 14. apríl 1913.
Magnús Jönsson.
Nýi aðalverðlistinn okk-
ar, með 1000 myndum,
kom út 1. mars og verð-
ur sendur gefins hverj-
um, sem um biður. Besti, ódýrasti og áreið-
anlegasti innkaupsstaður fyrir reiðhjól, hjóla-
parta, úr, úrfestar, hljóðfæri, verkfæri, bús-
hluti o. fl. — »Hektor«-reiðhjól frá 44 kr.
»Stella«-reiðhjól frá 56 kr. Hjóladekk frá
2,25. Mörg hundruð meðmæli frá þekt-
um, velmetnum mönnum,
A/S »Candor« Kompagnistræde 20. Köbenhavn.
Varsla
bæjarlandsins.
Þeir, sem vilja hafa á
hendi vörslu bæjarlandsins
næsta sumar, og hestagæslu
utan Laugarnessgirðingar-
innar, sæki um það til borg-
arstjóra fyrir 20. þ. m. —
Skrifstofa borgarstjóra lætur
í tje allar upplvsingar. —
Gjafir og áheit
til kvenfjelagsins »Hringurinn«
1912.
Fröken Anna Nielsen . . . . kr. 2,00
Konsúll Kristján Þorgrímsson — 3,00
Prófessor Lárus H. Bjarnason — 12.00
Kaupmaður Ólafur .Ólaísson . — 46,84
Adjunkt Þorleifur H. Bjarnason — 24,00
Árið 1912 hefur fjelagið borgað með
sjúklingum kr. 952,40.
Kr. Y. Jakobsson.
Raflýsing og rafhitun
sveitabæja. Um þetta koma
innan skamms greinar í Lögrjettu,
eftir Jón Þorláksson landsverkfræðing,
og er það efni, sem öllum sveita-
mönnum hlýtur að vera mjög hug-
leikið að fá fræðslu um. Greinarnar
munu verða prentaðar neðanmáls í
blaðinu, en sjerprentaðar verða þær
ekki, svo að aðrir en kaupendur
Lögrjettu eiga ekki köst á að eign-
ast þær.
Að gefnu tilefni auglýsist hjer með,
að jeg undirritaður tek engann þátt í
firmanu Dines Petersen & Co. í Kaup-
mannahöín.
Kaupmannahöfn 31. mars 1913.
Dines Petersen.
Brun d v allarla gabr ey tingin
í Danmörku.
Málið svæft í þinginu.
Þegar frumvarpið um breytingar á
grudvallarlögunum kom til 2. um-
ræðu í Landsþinginu, bar Frijs greifi
þar upp tillögu um að taka málið
út af dagskrá og fá það síðan í hend-
ur nýrri nefnd til meðferðar.
í tillögunni segir hann, að þar
sem álitsskjal það, sem nefndin hafi
birt, sýni, að meirihluti hennar og
minnihluti geti ekki orðið ásáttir um
að byggja á öðruhvoru því frumvarpi,
sem fyrir liggi, eins og grundvelli
fyrir umræðum til samkomulags um
fyrirkomulag Landsþingsins, þá telji
þingið nauðsynlegt, að málið fái
vlðtækari undirbúning en það hafi
fengið til þessa, áður en vænta megi
að gagn geti orðið af frekari samn-
ingum um það milli þinganna.
„Þingið ákveður því að taka fyrir
næsta mál á dagskránni, en bendir
jafnframt stjórninni á, að ef svo
vildi verkast gæti það komið til
mála að fá ágreiningsmálið íhugað
af nefnd, sem skipuð yrði með lögum
og í sæti bæði þingmenn og utan-
þingsmenn, er bæði hefðu stjórn-
málaþekkingu og lagaþekkingu".
Eftir allmiklar umræður var til-
lagan samþykt með 33 atv. gegn
31 að viðhöfðu nafnakalli.
Frijs greifi hjelt langa ræðu fyrir
tillögu sinni og beindist að stjórn-
inni, kvað hana hafa brugðist von
sinni um samningafúsleik við hægri-
menn um málið. Yfirráðherrann
hefði jafnvel talið frumvarp þeirra
afturför frá núverandi ástandi. Hann
kvaðst hafa gert sjer far um að
kynnast afstöðu almennings til stjórn-
arfrumvarpsins og sagði fylgi þess
valt, jafnvel innan stjórnarflokksins.
Yfirráðherrann mótmælti tillögunni
og sagði, að ef hún yrði samþykt,
þá væri það eðlilegast, að málinu
yrði skotið undir atkvæði kjósenda,
en þó mundi, vegna annara mála,
verða beðið til næstu kosninga, sem
nú væru fyrir dyrum. Færu þær
eins og hann óskaði og vonaði, þá
kæmi til þess að stjórnin afrjeði,
hvað gera skyldi, og gæti þá kom-
ið til mála að rjúfa Landsþingið.
Þingkosningar f Danmörku fara
fram nú í vor.
Ráögert aö breyta golf-
straumnum. Verkfræðingur í
Atneríku hefur komið fram með þá
uppástungu, að byggja stóran öldu-
brjót í Atlandshafinu, á grynningun-
um við Newfoundland, til þess að
breyta stefnum bæði golfstraumsins
og Labradorstraumsins, fá þá til að
blandast saman og bræða á þann
hátt ísjakana, sem að norðan berast
með Labradorstraumnum suður með
Amerfku. Við þetta er ráðgert, að
loftslag verði að mun hlýrra á
Grænlandi.
Útlend blöð segja að verslunarráð-
ið í New-York mæli með uppástung-
unni og ensk, þýsk og amerísk
gufuskipafjelög vilji styðja verkið.
Þing Bandaríkjanna kvað hafa skip-
að nefnd til þess að athuga uppá-
stunguna.
Reykjavík.
Sporvagn í Reykjavík. Hr.
Indriði Reinholt sækir nú til bæjar-
stjórnarinnar um leyfi til að leggja
sporbraut um bafinn og halda uppi
á henni vagnferðum. Ætlar hann
sjálfur að kosta tyrirtækið og reka
það. Hugsar til að brautin nái frá
Laugarnesi og út á Seltjarnarnes.
Enginn efi getur á því verið, að
leyfið fáist.
Það getur verið ómetanlega mikið
í það varið að fá heim hingað frá
Ameríku menn eins og hr. Indriða
Reinholt, dugnaðarmenn með verk-
legri þekkingu, sem vilja láta koma
hjer að gagni þá reynslu, sem þeir
hafa þar fengið.
Slys á botnvörpnskipi. í fyrra
dag kom „Jón forseti" inn og hafði
orðið það slys á honum að maður
hafði orðið fyrir dráttarstreng og
mist báða fætur. Tveim tímum eftir
að slysið vildi til var maðurinn and-
aður. Hann hjet Jakob Sigurbjarn-
arson, fra Vik í Faskrúðsfirði, og átti
nú heima á Bessastöðum á Álftanesi,
kvæntur maður.
Strandferðabátarnir, „Hólar" og
„Skálkolt", fóru hjeðan í gærmorgun
í fyrstu ferðirnar á þessu ári.
Karl Nikulásson verslunarstjóri
er orðinn deildarstjóri steinolíufje-
lagsins D. D. P. A. á Akureyri, og
fór norður þangað með »Hólum« í
gær.
Vilh. Knudsen verslunarmaður er
nýfarinn til Akureyrar og verður
þar í sumar, meðal annars við sýnis-
hornabúð, er umboðsverslun þeirra
Nathans & Olsens setur þar upp.
Sjónleikar »Hringsins«. Kven-
fjel. „Hringurinn" leikur í kvöld og
annað kvöld „Hinn dularfulla arf“,
eftir frú Emmu Gad. Menn skemta
sjer alt af við leiki „Hringsins", og
ágóðinn á, eins og áður, að fara til
styrktar berklasjúklingum.
Höfnin á brjefspjöldum. Það eru
nýkomin út brjefspjöld með mynd-
um af höfninni hjer, eins og hún á
að verða fullgerð. Þau eru þrenn.
Á einu eru myndir af innsiglingar-
opinu með bylgjubrjótunum báðu-
megin, á öðru flatarmynd af höfn-
inni, og svo er hið þriðja með öllu
umhverfi hafnarinnar. Þessi brjef-
spjöld fást í bókaverslun Sigf. Éy-
mundssonar og víðar.
Ranghermi er það í „Ingólfi" í
gær, aðþeir Jón Laxdal kaupm. og R.
Anderson klæðskeri hafi nokkru
sinni gert með sjer verslunarfjelag.
Var því ekki hægt að slíta því, eins
og blaðið segir að gert hafi, þar
sem það hefur aldrei til verið.
Jatho prestur dáinn. Þýski prest-
urinn, sem svo mikið umtal varð um
fyrir eitthvað tveimur árum fyrir það,
að hann var dæmdur frá vegna
kenninga sinna af stólnum, er nýlega
dáinn. Hann var prestur í Köln og
afsetningin vakti mikla gremju meðal
frjálslyndra manna í trúarefnum, er
meðal annars kom fram í mjög al-
mennri fjársöfnun til þess að styrkja
hann og aðra presta, er líkt kæmi
fyrir.
Frá fikUm til fisWa.
Bátur fórst f Vestmanneyjum 8.
þ. m. og á honum 4 menn. Þeir
voru við veiðar hjá Bjarnarey og
fórust á siglingu heim þaðan.
Garðaprestakall er veitt sr. Þor-
steini Briem samkvæmt kosningu
safnaðar.
Fríkirkjusöfnuður er að mynd-
ast í Hafnarfirði; sagt, að 400
manns hafi þegar heitið að ganga í
hann. Þeir vilja fá sr. Ól. Ólafsson
fríkirkjuprest hjer til þess að gegna
hjá sjer prestsverkum.
Kosningin í Suðurmúlasýslu.
„Rvfk“ skýrir frá því á laugard. að
hr. Björn Stefánsson, er þar ætlaði
að bjóða sig fram til þingmensku,
hafi hætt við framboð sitt, en styðji
til kosningar Guðm. Eggers sýslu-
mann, er boðið hefur sig þar fram
og líklegur er til að ná kosningu.
Sveinn Ólafsson f Firði kvað einnig
bjóða sig þar fram, af hálfu Land-
varnarmanna. Hafði þó lýst því yfir
í „Austra", að hann færi ekki á stað
nema hann fengi svo og svo margar
áskoranir. En lítið kvað hafa orðið
um þær, enda fylgi hans nú sagt
minna en áður hefur verið, og hefur
líka ýmislegt af því, sem hann hefur
látið frá sjer í „Austra" í vetur, verið
vel lagað til þess að rýra trú manna
á þingmannskostum hans.
Tvær frakkneskar fiskiskútur
íórust nýlega skamt frá Papey;
höfðu rekist á og skemst svo mikið
að þær sukku baðar, en mennimir
björguðust allir á bátum til lands.
Hjeldu þeir svo til Fáskrúðsfjarðar.
Húsbruni. Nýlega brann í Bol-
ungarvík verslunarhús Jónasar Jónas-
sonar kaupmanns. Húsið var vátrygt
og eins vörur, sem í því voru.
Stórstúkuþing Templara verður
í ár á ísafirði og hefst 11. juní.
Til íslensku þjóðarimar.
Eftir að Hjálpræðisherinn hefur starf-
að um 20 ár hjer á Islandi með trú-
mensku og sjálfsafneitun, höfum vjer,
eins og mörgum er kunnugt, mikla þörf
á nýju húsi í höfuðstað landsins, sem
rúmað gæti: aðalstöð, gistihæli, vinnu-
stofu og samkomusal o. m. fl. Oss hefur
lengi verið ljóst, að gamli kastalinn
hefur endað þjónustu sína, en samt höf-
um vjer komist af, með þvi að setja bót
á bót ofan. — En það getur ekki gengið
lengur á þennan hátt. — Það er brýn
nauðsyn á að byggja nýjan kastala, sem
getur nokkurn veginn hæft miðhluta
borgarinnar. Þess vegna skrifum vjer
þessar línur, sem hvöt og bæn til ís-
lendinga um stuðning.
11. maí 1915 eru 20 ár liðin slðan
Hjálpræðisherinn byrjaði starfsemi sína
hjer á Islandi, og dirfumst vjer aðsegja,
að þessi ár höfum vjer haft það takmark
fyrir augum, að vinna þjóðina og landið
fyrir Krist, undir margbreyttum kringum-
stæðum, í heiðri og vanvirðu, vondu og
góðu umtali — að visu fátækir, en höf-
um þó gert marga ríka; ætíð höfum vjer
leitast við að mýkja og draga úr sorg,
neyð og söknuði af öllum tegundum.
Það mundi vera oss fagnaðarefni, ef
unt væri að hafa lokið byggingunni og
geta vígt hana á fyrnefndum hátíðis-
degi, en til þess verðum vjer að minsta
kosti að fá 5000 krónur að gjöf frá lands-
búum, auk þeirrar fjárhæðar, sem von
er á frá öðrum hjálparlindum. Ymsar
áætlanir höfum vjer gert um þessar
5000 krónur, sem vjer munum gera al-
menningi kunnar þegar fram llða stund-
ir, og treystum vjer hluttekningu og
hjálpsemi landstjórnarinnar, lögreglunnar
og annara leiðandi valdhafa, og vonum
vjer þá að geta gert ráð fyrir styrk, sam-
vinnu og áhuga manna af öllum stjett-
um og á öllum aldri.
Fyrir hönd Hjálpræðishersins.
Reykjavík í apríl 1913.
Virðingarfylst
N. Edelbo,
leiðtogi Hjálpræðishersins á íslandi.
$
* *
Framanritað ávarp vænlum vjer að
njóti stuðnings almennings 1 kauptúnum
og sveitum.
Ólafur Björnsson, Þórh. Bjarnarson,
ritsjóri Isaf. biskup.
Kristjdn Jónsson, Kristj. Þorgrímsson,
- háyfirdómari. svensk. v. konsúll.
Bjórn Kristjdnsson, Þorst. Gíslason,
bankastjóri. ritstjóri.
Sighv. Bjarnason, Asgeir Sigurdsson,
bankastjóri. kaupm.
Magnús Blöndahl, Tr. Gunnarsson,
kaupm. fv. bankastj.
J. Havsteen, Jóhann Þorkelsson,
fv. amtm. dómkirkjuprestur.
J. Jónsson, Jes Zimsen,
docent. kaupm.
Oddur Gíslason, Magnús Stephensen,
yfird.lögm. fv. landshöfðingi.
Bríet Bjarnhjedinsdóttir, 01. Olafsson,
ritstjóri. prestur.
Morten Hansen, Ludvig Kaaber,
skólastjóri. konsúll.
Jón Jensson, Gudmundur Helgason,
yfirdómari. Búnaðarfjel.form.
A. V. Tulinius, Ol, Johnson,
yfird.lögm. konsúll.
A. Oþenhanpt, Fr. Friðriksson,
umboðssali. form. K.F.U.M.
Borgpór Jósefsson, Magnús Jónsson,
bæjargjaldkeri. sýslum.
Hannes Hafliðason, Jón Hj. Sigatðsson,
skipstjóri, hjeraðslæknir.
Sveinn Björnsson, Benedikt Sveinsson,
yfird.lögm. ritstjóri.
Jóh. Jóhannesson, Magnús Helgason,
kaupm. skólastjóri.
Einar Þorgilsson, Aug. Flygenring,
kaupm. kaupm.
S. Bergmann,
kaupm.
Rudyard Kipling er frægasta
söguskáld Englendinga. Hann fjekk
Nóbelsverðlaunin fyrir fáum árum slðan.
Hann segir sjálfur frá því fyrir nokkru,
hvernig á þvl stóð, að hann varð alger
bindindismaður.
Hann var á ferð 1 Ameríku, kom inn
í veitingahús í borginni Buffalo og fjekk
sjer þar sæti.
Hann tók þá eftir því, að þar sátu
við annað borð 2 ungir menn og 2
ungar stúlkur. Þessir ungu menn kost-
uðu bersýnilega mjög kaps um, að fá
þessar 2 ungu stúlkur til að drekka svo
mikið, að þær yrðu druknar, og þeim
tókst það. Síðan fóru þeir með þær út,
fengu sjer vagn og óku með þær burt.
»Síðan jeg var vottur að þessu at-
ferlic, skrifar Kipling, »hafa augu mln
opnast, ogjeg llt nú öðruvísi á drykkju-
siðina en jeg áður gerði. Jeg er slðan
orðinn bindindismaður sjálfur.
Heldur á maður að gera sig ánægðan
með ljelegasta áfengislausan drykk, held-
ur en að verða meðsekur í því, að ung-
ar stúlkur eins og þær í Buffalo, sjeu
leiddar út í freistni og spillingu. Jeg
skil það n ú f y r s t, hvers vegna prest-
arnir í Englandi og Amerfku berjast
svo alvarlega gegn drykkjusiðunum. Jeg
hef áður álitið svo og haldið þvf fram,
að áfengi, brúkað í hófi, gæti engan
skaða gert. En nú sje jeg, að öldrykkja
mín hjálpaði til að verða þess valdandi,
að þessar ungu stúlkur voru teymdar út
á dimma veginn, og guð einn má vita,
hvernig endar fyrir þeim.
Ef vjer brúkum áfenga drykki, þá er
það skylda vor, að gera oss far um
að íhuga afleiðingarnar og offra þá
nautninni, sem áfengið veitir oss, þegar
augu vor opnast fyrir því, að það er
nauðsynlegt.