Lögrétta - 02.07.1913, Blaðsíða 1
Afgreiðslu- og innheimtum.:
ÞORARINN B. ÞORLÁKSSON.
"Veltusundi 1.
Tiilsíinf 359
LOGRJETTA
Ritstjori:
f’ORSTEINN 6ÍSLAS0N
Pingholtsstræti 17.
Talslmi 178.
M 30.
Reykjavík 3. jdlí 1013.
VIII. árg.
25 ára afmæli.
í gærdag voru 25. ár
liðin frá því að Þorvaldur
Björnsson tók við lögreglu-
þjónsstarfi hjer í bænum.
Það var 1. júlí 1888.
Kl. 9 um morguninn
heimsóttu þeir hann bæjar-
fógeti Jón Magnússon og
Sveinn Björnsson yfirdóms-
lögmaður og færðu honum
silfurbikar með þessari á-
skrift:
„Þorvaldur Björnsson.
1888 — 1. júlí — 1913.
Frá nokkrum vinum í
Reykjavík í viðurkenning-
arskyni."
í bikarnum voru 620 kr.
í gulli.
Það er allra rómur nú,
að Þorvaldur hafi gegnt
lögregluþjónsstarfinu með
mesta dugnaði og röggsemi
og eigi þökk skilið fyrir
af bæjarbúum. Hann hef-
ur verið yfirlögregluþjónn
£»orvaldur BjiSnissön lössreeluþjóiUl. sfgari árin HálfsjÖtUgUr
er hann nú, en heldur sjer fádæma vel. Myndin, sem hjer fylgir, er tekin
af honum sextugum.
I. O. O. F. 94749-
Lárus Fjeldsted*
YflrrJottarm*laf*Brslum*Our.
Lækjargata 2.
Hoima kl. 1 1 —12 og 4—7.
Bækur,
innlendar og erlendar, pappír og allskyris
ritföng kaupa allir 1
Bókaversl. Sigfúsar Eymundssonar.
Alþingi.
I.
Pingsetning
fór fram í gær og hófst með guðs-
guðsþjónustu í kirkjunni og prjedik-
aði síra Kristinn Daníelsson.
Forseti sameinaðs þings var kos-
inn Jón Magnússon með 20 atkv.,
en Lárus H. Bjarnason fjekk 18; 2
seðlar voru auðir. Varaforseti Sig-
urður Stefánsson með 20 atkv. Ei-
ríkur Briem fjekk 7 og Lárus H.
Bjarnason 2, en 10 seðlar voru auðir.
Skrifarar Jóhannes Jóhannesson (með
25 atkv.) og Ólafur Briem (með 19
atkv.). Til efri deildar var kosinn í
stað Jens sál. Pálssonar Hákon Kristó-
fersson með 19 atkv. Magnús Krist-
jánsson fjekk 18. Þar var kosinn for-
seti Stefán Stefánsson skólameistari
með 11 atkv., Júl. Havsteen hlaut
2, og 1. varaforseti Guðjón Guðlaugs-
son (með 7 atkv.) og 2. varaforseti
síra Einar Jónsson (með 8 atkv.).
Skrifarar Steingrímur Jónsson og
Björn Þorláksson.
í neðri deild var Magnús Andrjes-
son kosinn forseti með 15 atkv. Jón
Ólafsson fjekk 8 og 3 seðlar auðir.
1. varaforseti Jón Ólafsson (með 14
atkv.) og 2. varaforseti Valtýr Guð-
mundsson (með 12 atkv.). Skrifarar
Eggert Pálsson og Jón Jónsson, með
hlutkesti milli hans og Jóh. Jóhannes-
sonar.
í kjörbrjefanefnd voru kosnir í
sameinuðu þingi Kristján Jónsson og
Ólafur Briem með 18 atkv. hvor, og
Björn Þorláksson, Guðjón Guðlaugs-
son og Jóh. Jóhannesson með 17
atkv. hver.
Skrifstofustjóri er Halldór Daníels-
son yfirdómari, en á skrifstofunni auk
hans: Einar Þorkelsson skjalaritari,
Guðm. Magnússon skáld og Pjetur
Magnússon stud júr.
Áður en þing var .sett kom Sam-
bandsflokkurinn saman og var sam-
þykt þar með alimiklum meiri hluta
atkv., að honum skyldi haldið áfram
á þinginu. Út úr þessu varð þó
klofningur, því sumir vildu rjúfa
flokkinn. Eru nú nokkrir gengnir
úr honum, en hinir halda honum
áfram. Greining sú, sem þarna var
orðin, kom að nokkru leyti fram við
forsetakosningarnar.
L. H. Bjarnason prófessor, sem er
potturinn og pannan í klofningnum,
vildi verða forseti sam. þings og
fjekk til þess fylgi þeirra, sem
óánægðir urðu í Sambandsflokknum.
Ún á hina hliðina hafði hann gert
samband við Björn Kristjánsson og
L?indvarnarmenn og fengið loforð
fyrir stuðningi þeirra, auðvitað fyrir
einhver loforð í móti. Má ganga að
því vísu, að ýmsir góðir menn í
klofningnum.sem frá Sambandsflokkn-
um var að skiljast, hefðu ekki viljað
líta við neinu af þessu makki við
B. Kr, Skúla et. Co., ef þeir hefðu
ekki verið gersamlega duldir þess,
að það ætti sjer stað. En L. H. B.
hefur átt í þessu makki við B. Kr.
og Landvarnarmenn lengi, þótt hann
hafi reynt að fara afarleynt með það
og aldrei viljað við það kannast. í
þessu bandalagi tók Lárus að sjer
að koma á klofningi innan meiri-
hlutans, en B. Kr. tók að sjer að
ná landvarnarliðinu undir Lárus.
Þetta makk var alt um garð gengið
áður en Sambandsflokkurinn kom
saman og farið var að tala um fram-
tíð hans. Verst hafði gengið að fá
Bjarna' frá Vogi til að heita Lárusi
fylgb en þó hafðist það með ein-
hverju móti, og veittu Landvarnar
menn og banka-Bjarnarmenn Lár-
usi óskift og eindregið fylgi og
þeir, sem þessir menn áttu einhver
ítök í. Það er þessi undirbúningur,
sem klofningsmennirnir frá Sambands-
flokknum höfðu enga vitneskju um,
og er frá þeirra hálfu ekkert banda
lag við Landvarnarmenn og banka-
Bjarnarmenn, — nema það, að Lárus
stendur með sinn fótinn hjá hvorum
og kyssir til beggja hliða.
En það má heita óðs manns æði,
að hugsa sjer að gera bandalag á
þingi milli þeirra, sem óánægðir urðu
í Sambandsflokknum, og svo Land-
varnarmanna og banka-Bjarnarmanna.
Slíkur skollaleikur getur tkki haldist
uppi til lengdar.
Eiinikipafjelagið. Utdrátt-
ur úr brjefi frá B. B. Olson, Gimli,
til kunningja síns hjer f Reykjavík:
. . Þú biður mig að segja þjer
eitthvað um eimskipafjelagið ykkar
þar heima, og hvernig oss Vest-
mönnum lítist á það. Um þetta mál
hafa bæði blöðin íslensku ritað og
býst jeg við að þú fáir að sjá það
einhvern tíma, ef þú ert ekki búinn
að þvf nú þegar. Það eitt má jeg
segja, að um það mál eru þau sam-
taka og sammála, að styðja og styrkja
það á allan hátt. Nefnd er nú kosin
til að íhuga og undirbúa til frekari
framkvæmda, og eru nú á leið heim
til íslands sumir af þessum mönnum,
sem í nefndinni eru, þar á meðal
Sveinn Thorvaldsson, svili minn frá
íslendingafljóti. Jeg held jeg megi
óhætt fullyrða að allir Vestur-íslend-
ingar sjeu einhuga í þessu máli og
verði viljugir að taka hluti í þessu
fyrirtæki ykkar, þegar til verklegra
framkvæmda og starfa er tekið.
Vonandi er að þjóðin heima láti
ekkert standa þessu velferðamáli fyrir
þrifum heldur sjái hag og sóma sinn
í þvf að leggja nú alt fram, sem til
þarf á þessum tíma, sem er fyrst
traust á sjálfri sjer, trú á fyrirtækið
og sameinaður góður vilji. Jeg efast
ekki um að nægilegt fje fengist hjá
íslendingum eingöngu, bæði heima
og hjer vestra, ef ekkert vantar af
því, sem áður er minst á hjer að
ofan. Jeg óska og vona að ekkert
komi fyrir, er sundri nú samhug og
samvinnu í þessu máli. ..."
Þingmálafundir.
í Eyjaflrði. Tillögur á þessa leið
voru samþyktar nær í einu hljóði á
öllum fundunum þar:
1. Fundurinn lítur svo á, að heppi-
legast sje að samningatilraunum um
samband íslands við Danmerkurríki
sje frestað fyrst um sinn.
2. Fundurinn álítur rjett að stjórn-
arskrárbreytingu sje frestað fyrst um
sinn samhliða sambandsmálinu.
3. Fundurinn lítur svo á, að sýslu-
mannsembættið í Eyjafjarðarsýslu og
bæjarfógetaembættið á Akureyri sje
orðið svo umfangsmikið, að ofætlun
sje einum manni að þjóna, og skor-
ar því á alþing að skifta því, eða
finna aðra heppilegri leið í málinu.
4 Tillaga um að alþing í sumar
afnemi bannlögin var samþykt með
miklum meirihluta atkv. á Grund,
Staðartungu og Hjalteyri, en ekki
tekin til umræðu í Dalvík.
Auk þess voru ýms hjeraðsmál
rædd á fundunum og ályktanir sam-
þyktar, t. d. um breytingu á skipu-
lagsskrá gjafasjóðs Jóns Sigurðsson-
ar, um vátrygging og bygging sveita-
bæja, um berklaveiki í nautgripum,
ýms vegamál, síldveiði í landhelgi
o. fl.
í Strandasýslu hjelt þingm. kjörd.,
Guðjón Guðlaugsson, fundi í Árnesi
14. júní, í Hólmavík 21. júní, og á
Borðeyri 25. júní. Fundarstj. í Ár-
nesi var C. F. Jensen kaupm. og
skrifari sfra Böðvar Eyjólfsson; í
Hólmavík fndstj. H. Kr. Júlíusson
sýslum. og skrifari sr. Guðl. Guð-
mundsson; á Borðeyri fndstj. Jósef á
Melum og skritari Bjarni Jósefsson.
Þetta var samþykt á fundunum:
1. Að fresta sambandsmálinu.
Samþ. á öllum fundunum.
2. Hólmavíkurfundurinn og Borð-
eyrarfundurinn vildu einnig fresta
stjórnarskrármálinu. En ef það yrði
samt sem áður tekið fyrir, þá vildi
Hólmav.fnd. láta í ljósi, að hann
væri með öllu mótfallinn fjölgun ráð-
herra og taldi hina snöggu og miklu
útfærslu kosningarrjettarins mjög var-
hugaverða. En Borðeyrarfnd. taldi
nauðsynlegasta breyting á kjöri kon-
ungkj. þingm. og rýmkun kosningar-
rjettarins til kvenna, er standa fyrir
búi, eða reka slíka sjálfstæða atvinnu.
„Aðrar þær breytingar á stjórnar-
skránni, sem fram hafa komið á síð-
ustu árum, telur fundurinn miður
nauðsynlegar og sumar hverjar alveg
óhafandi".
Arnesfnd. óskaði að stj.skráin yrði
afgreidd í frumvarpsformi og lagði
áherslu á þessi atriði: „að ríkisráðs-
ákvæðið sje felt í burtu; alnám kon-
ungkj. þingmanna; rýmkun kosning-
arrjettar og jafnrjetti karla og kvenna
í því efni; að ráðherrum verði ekki
fjölgað og landritaraembættið verði
lagt niður; að stj.skráin nefni hvergi
eftirlaun og alþing afnemi þau með
öllu".
3. Á öllum fnd. samþ. samhlj.
áskorun til þingsins um „að styðja
hið nýja eimskipafjelag íslands eftir
megni, án þess að það verði á kostn-
að strandferðanna, sem fnd. telur
óhjákvæmil. að landsjóður kosti, og
vill hann að þingið hlutist til um, að
þær verði auknar og haganlegri en
þær nú eru. Telur æskil. að lands-
menn geti tekið að sjer strandferð-
irnar sem fyrst".
4. Ennfremur samþ. af öllum fnd.
yfirlýsing um, að þeir „sjeu alger-
lega mótfallnir því, að járnbraut verði
lögð á kostnað landsjóðs, en telji
æskil., ef einstakir menn vilja leggja
hana og reka á sinn kostnað, að
þingið veiti leyfi, með hæfilegum
kjörum og til hæfilegs tíma, og telja
sjálfsagt, að láta járnbraut norður
um land ganga fyrir".
5. Tveir fnd. vildu fá nýja atkv.gr.
um aðfl.bannið, eða láta nema það
úr gildi. En á Borðeyrarf. var til-
laga um afnámið feld.
6. Hólmav. og Borðeyrarf. tjáðu
sig mótfallna öllum hækkunum á
launum embættism., nema ef vera
kynni sumra kennaranna við Menta-
skólann.
7. Tveir fundirnir skora á þingið,
að það geri ítarlegar tilraunir til að
tryggja búpening landsmanna á ein-
hvern hátt fyrir harðindum og hor-
felli. — Árnesfund. tjáði sig hlyntan
heyásetningamálinu og stofnun forða-
búra.
8. A öllum fnd. samþ. mótmæli
gegn flaggtöku varðskipsins hjer á
höfninni 12. f. m.
9. Árn. og Borðeyrar.-fnd. skora á
þingið að endursk. vörutollslögin,
einkum að vörurnar verði betur
sundurliðaðar og lækkað gjaldið á
ýmsum nauðsynjahlutum, sem nú er
hár tollur á vegna þyngdarinnar.
10. Borðeyrarf. vildi fá nýtt læknis-
hjerað í Hrútafirði.
11. Sami fnd. var algerl. mótfall-
in því, að landssjóðsstyrkur til bún-
aðarfjel. sje bundinn því skilyrði að
fjelögin hafi gengið inn í eitthvert
búnaðarsamband.
12. Árn.fnd. vildi láta efla Lands-
bankann og fela honum ávöxtinn
opinberra sjóða. Ennfr. taka lff-
tryggingamálið til rækil. íhugunar,
helst stofna innl. lífsáb.fjel., eða þá
láta þau fjelög, sem hjer starfa,
dæmast af innl. dómstólum og setja
tryggingarfje fyrir viðskiftum sínum.
Balkanmálin.
Stríð milli sambandsþjóðanna.
Símað er frá Khöfn í gærkvöld
að Búlgarar hafi byrjað ófrið gegn
Serbum og Grikkjum fyrirvaralaust.
Snarpar orustur hafi staðið nálægt
Yskyb.
Eins og áður er getið, hafði Rússa-
keisari tekið að sjer að miðla mál-
um milli Búlgara og Serba, enda
var líka ákveðið í samningunuin,
sem stjórnir Búlgaríu og Serbíu
gerðu með sjer áður en Balkanstríð-
ið hófst, að svo skyldi vera. Rússa-
keisari ritaði nýlega báðum konung-
ungunum, Ferdínand og Pjetri, og
varaði þá alvarlega við ófriði, kvaðst
mundu taka í taumana gegn því
ríki, sem til þess yrði að byrja
hann, og samþyktu þá stjórnir
beggja, að honum skyldi falið að
gera út um þrætumálið. Eftir samn-
Ingunum áttu Búlgarar að fá mikinn
hluta Makedóníu, en Serbar Albaníu.
Nú hefur Albanía verið tekin af
sambandsþjóðunum, og fyrir það
vilja nú Serbar fá vesturhluta Make-
dóníu, er þeir hafa tekið í stríðinu.
Búlgarar hafa líka fengið mikinn
hluta af Þrakíu, sem ekki var ráð
fyrir gert í samningnum, að hjá
þeim lenti. Búlgarar og Grikkir
gera báðir kröfu til Salóníkí, en
Serbar hafa lagt til, að sú borg
verði einhvers konar sameign þeirra
þriggja-
Síðustu útl, blöð segja, að stjórn-
arskifti standi til hjá Búlgurum, Serb-
um og Grikkjum. í Montenegró eru
þau nýlega afstaðin, fóru fram er
konungurinn afsalaði sjer Skútarí. I
Búlgaríu myndar Danev, áður for--
maður þingsins, nýja ráðaneytið.
Hann hefur verið mjög starfandi að
þeim samningum, sem nú eru komnir
á, og er sagt að hann láti uppi, að
hann vilji ekki gefa neitt eftir fyrir
hönd Búlgaríu, enda hefur hann verið í
samvinnu við fyrirrennara sinn, Ges-
chov. Eggjanaskvaldrinu til fram-
haldandi ófriðar hefur annars mest
verið haldið uppi í Búlgaríu af hers-
höfðingja, sem Savoff heitir, og var
hann undir opinberri ákæru, er stríðið
hófst í haust, en þá var hún feld
niður.
Frí |áÉíi tl iiia.
Reyðarfjavðarlæknislijerað. Þar
er Sig. Hjörleifsson settur læknir frá
1. þ. m.
Umsækjendur um Garðapresta-
kall á Álftanesi eru: sr. Árni á
Sauðarkróki, sr. Guðmundur í Ólafs-
vík, sr. Sigurbj. Á. Gíslason og sr.
Hafsteinn Pjetursson í Khöfn.
Marconí-málið í enska þinginu.
Nefndin, sem skipuð var í enska
þinginu til þess að rannsaka sakar-
giftirnar gegn nokkrum að ráðherr-
unum, þar á meðal Lloyd George,
fyrir hlutdrægni Marconífjelaginu í
vil’ vegna þess að þeir væru sjálfir
hlutaeigendur, lagði fram langt álits-
skjal um miðjan síðastl. mánuð og
ber allar sakir af þeim.
Kaupendur Lögr. í Húnavatnssýslu
eru beðnir að afsaka vanskil á blað-
inu með apríl-póstferð. Blaðið var af-
hent á pósthúsið hjer á rjettum tíma, 12.
apríl, en Húnavatns- og Strandasýslu-
blöðin voru ekki send með póstunum
næsta dag, heldur send til Borðeyrar
með Skálkolti hjeðan 15. apríl og náðu
þá vitanlega ekki í póstinn norður frá
Stað. Pósthúsið hefur Iofað, að þetta
skuli ekki koma fyrir oftar. Áríðandi
að menn segi til vanskila sem fyrst, svo
að rannsakað verði hvernig í þeim liggur.