Lögrétta - 27.08.1913, Qupperneq 2
144
L0GRJETTA
ALAFOSS
(klœðaverksmiðjan)
kembir, spinnur og tvinnar ull, vefur, þæfir, lósker, litar, reytir, 4®
pressar og afdampar dúka fyrir almenning.
§
Spyrjið um verð á afgreiðslu verksmiðjunnar ^
Laugaveg nr. 32 ^
Reykjavik. ^
Talsími 404. ®
Um brú á jöknlsá á
Silheimasanði.
Vart mun nokkur sá maður fara
yfir Jökulsá á Sólheimasandi, að ekki
standi honum ótti af henni, þegar
hún er í fullum vexti, en það er hún
helst um þann tíma ársins, sem mest
er ferðast yfir hana, sem sje frá því
í maí og til októberloka. Eftir þann
tfma fer hún vanalega að smáþverra,
nema altaf eiga menn víst, að í hana
komi „hlaup", sem kallað er, og
vex hún þá mjög brátt og getur
verið ófær til yfirferðar í fleiri daga.
Það er engum vafa bundið, að
ekkert eitt einasta mál, sem alþingi
nú væntanlega hefur með höndum,
er eins viðkvæmt þeim, sem búa í
austurhluta Rangárvallasýslu og vest-
ur-Skaftfellingum, og það, að fá brú
á Jökulsá á Sólheimasandi. Fyrst og
fremst af því, að hún er einn hinn
allra skæðasti morðvargur landsins,
og svo af því, að hún hindrar ferðir
manna, auk þess sem hún veldur
eignatjóni, bæði með því, að menn
missa oft af klyfjahestum í hana og
svo sauðfjé úr rekstrum, og alls ekki
dæmalaust að menn missi hesta sína
f hana.
A síðastliðnu hausti lágu við Jök-
ulsá fimm fjárrekstrar úr V.-Skafta-
fellssýslu, með nær 3000 fjár, frá 5
—9 daga. Hvað svona tilfelli valda
mönnum, sem hlut eiga að máli,
miklu eignatjóni, bæði beinlínis og
óbeinlínis, er ekki þægilegt að reikna
út, en það, sem fljótlega verður sjeð,
er það, að eftir íslenskum mæli-
kvarða er það stórfje, sem þarna
hefur verið offrað, einmitt vegna
þess, að áin er brúarlaus.
Eftir því, sem sögur fara af, hefur
Jökulsá orðið 40 mönnum að bana.
Býður nokkur beturf Getur nokkur
íslendingur bent á vatnsfall á voru
landi, sem enn er óbrúað, en hefur
orðið 40 mönnum að bana? Talan
getur verið roiklu hærri, því nú á
sfðastliðnum 30 árum hafa fimm
menn druknað í henni; það er sem
svarar eitt mannslíf fyrir hver 6 ár.
Það er þung móðgun við þá, sem
búa næst ánni og mest tjón líða af
völdum hennar, að sjá í öðrum hjer-
uðum landsins saklausar ár og læki
brúaða, en sjá Jökulsá veltast fram
kolmórauða og syngja sinn dimma
og drungalega sigursöng yfir því, að
vera hið Iangskæðasta vatnsfall á ís-
landi. Þetta má ekki iengur svo til
ganga.
Það er gamalla manna mál, að Jök-
ulsá á Sólheimasandi og Dufþekja í
Vestmannaeyjum sætu á seiðhjallin-
um og mettust hvor við aðra um að
verða sem flestum mönnum að bana.
Nú upp á síðkastið er svo að sjá sem
Dufþekja hafi gerst undirlægja Jök-
ulsár, hafi sjeð að hún hafði ekki
bolmagn móti slíku ofurefli, enda
hefur hún slakað til upp á síðkastið,
því á síðastliðnum 30 árum mun
Dufþekja ekki hafa orðið nema ein-
um manni að bana.
Jeg minnist þess í sambandi við
druknanir manna í Jökulsá, að á sfð-
astliðnum vetri kom fram uppástunga
um, að koma á björgunarbát við ís-
land, eða öllu heldur við Faxaflóa,
sjerstaklega með tilliti til slyssins
mikla við Viðeyjartanga 7. apríl 1906.
Þetta var falleg hugsun og mjög
mannúðleg, og væri náttúrlega sjálf-
sögð, ef hún gæti komið að tilætl-
uðum notum. En eftir umsögn Hjalta
skipstjóra Jónssonar á ekki slfkt til-
felli sem þetta — á Viðeyjartanga —
að eiga sjer stað, nema sem svaraði
einu sinni á hverjum þúsund árum.
Ef að gengið væri nú út frá því, að
bátur væri bygður sjerstaklega með
tilliti til þessa áminsta slyss, og með
tilliti til umsagnar Hjalta skipstjóra,
þá væri báturinn bygður fyrir sem
svaraði rúmlega eitt mannslíf á hverj-
um fimtfu árum. Mundi þá ekki öll
sanngirni mæla með því, að byggja
brú á Jökulsá fyrir eitt mannslíf á
hverjum sex árum, þó ekki væri tek-
ið tillit til annars en aðeins Iífshætt-
unnar? Þessu liggur þeim næst að
svara, sem andstæðir eru brúnni.
Heyrt hef jeg einstöku menn, sem
andstæðir eru brúnni, slá því fram,
að brú mundi ekki geta haldist við
á ánni vegna straumhörkunnar. Þetta
er fjarstæða, sem ekki getur komið
til nokkurra mála, enda mun okkar
gætni og góði landsverkfræðingur,
Jón Þorláksson, ekki telja nein vand-
kvæði á því; vil jeg því, sem kunn-
ugur er öllum staðháttum, lýsa af-
stöðu árinnar.
Upptökin eru þannig, að hún kem-
ur undan Mýrdalsjökli milli Skóga-
fjalls og Hvítmögufells. Fyrir fram-
an upptökin er stórt gljúfur, en fyrir
framan það er annar jökull, afsprengi
Mýrdalsjökuls, nefndur fremri jökull.
Þessi jökull liggur þversum yfir gljúfr-
ið, fyrir framan Skógafjall og Hvít-
mögufell, og leggur þannig hatt á
fulla framrás alls þess vatns, sem
kernur undan inri jöklinum. Mynd-
ast því með köflum afarmikil uppi-
staða fyrir innan fremri jökulinn, en
sá jökull er skriðjökull, og er þvf
háður afarmiklum breytingum og fer
sem annar víkingur ekki að neinum
lögum, stoppar ána um lengri eða
skemri tíma, og veitir henni fulla
framrás með köflum, og koma þá
hin svonefndu hlaup í ána. Þessi
hlaup eru ókunnugir hræddir við að
geti grandað brú á ánni, en það þarf
ekki að óttast, eins og jeg hef áður
drepið á.
Væri það hlutverk Jökulsár á Sól-
heimasandi að skera í sundur Kjós-
ar- og Gullbringusýslu frá Árnessýslu,
mundi hún hafa orðið með fyrstu
vatnsföllum þessa lands, sem brúuð
hefðu verið, en af því hún liggur
svona langt út til sveita, er hún látin
sitja á hakanum.
Að síðustu vil jeg beina þeirri al-
varlegu ósk til hinna háttvirtu þjóð-
fulltrúa, sem nú um þessar mundir
eru að meta og vega í sundur hvar
þessar og þessar þúsundirnar, sem
þeir hafa til miðlunur úr forðabúri
landsjóðsins, eigi að lenda, að þeir
minnist þess, að Jökulsá á Sólheima-
sandi er allra skæðasta vatnsfallið á
íslandi, sem enn er óbrúað, sem tek-
ur eitt mannslíf til jafnaðar á hverj-
um 6 árum, sem hindrar ferðir manna
um langan tíma, og sfðast og ekki
síst, að Eyfellingar eiga að vitja
læknis, hvernig sem á stendur, yfir
þetta voða-vatnsfall.
í einu orði sagt: það er þjóðar-
smán, að hata Jökulsá á Sólheima-
sandi óbrúaða.
3'/7 13- X.
„Trygg-vasenna44
var fyrirsögn á grein, sem „Verk-
mannablaðið" hjer f Rvík flutti í
sumar eftir Ö. Þ., og átti að vera
svar upp á grein Tr. G. f „Lögr.“
7. maí í vor um fsl. atvinnnvegi
og verkakaup. Tr. G. hefur gengið
framhjá greininni, án þess að svara
henni. En „verkamaður" á Eyrar-
bakka hefur tekið til máls út af
greininni í „Suðurl." 2. ág. og segir
þar meðal annars:
„ .... Það er nú í sjálfu sjer ekk-
ert athugavert við það, þó andmælt
sje greinum. Slíkt er heilbrigt. En
þjóðin á heimting á því, finst mjer,
að það sje gert á sómasamlegan
hátt. Þessi „Tryggvasenna" er þrung-
in af svo stækri fyrirlitningu og blátt
áfram ókurteisi í garð þessa aldur-
hnigna mikilmennis, að slíkt er hreint
dæmalaust. Og þó Tryggva kunni
eitthvað að greina á við verkamenn
í Reykjavfk, þá ætti öllum að vera
það ljóst, að hann vill verkamönn-
um landsins alt hið besta, eins og
hann vill landinu alt hið besta. Tvo
menn getur greint á um leiðir, þó
báðir vilji vel. Svo er um Tryggva
og verkmannafjelagið „Dagsbrún".
Og þá ríður á, að hvorirtveggja kunni
að virða mennina, hugsjónina sam-
eiginlegu, sem á bak við stendur hjá
báðum.
Hver hefir stuðlað fremur að þvf
á síðari hluta fyrri aldar, og það
sem af er þessari, að íslenskir verka-
menn fengju vinnu, en Tryggvi Gunn-
arsson? Hefur hann ekki verið lífið
og sálin í ýmsum stórtækum at-
vinnufyrirtækjum til lands og sjávar?
Hversu oft hafa ekki fátækir verka-
menn í Reykjavík fengið atvinnu
fyrir tillögur hans og framkvæmdir
í bæjarstjórninni? Studdi hann ekki
fátæka prentara, sem voru að koma
sjer upp sjálfstæðri vinnustofu í
Reykjavík?
Þessar og fleiri lfkar spurningar
mætti leggja fyrir verkamenn í Reykja-
víkurbæ og úti um alt land.
Eru þetta launin, sem Tryggvi fær
hjá verkalýðnum?
Jeg sje að „Verkmannablað"ið er
að raupa af því, að það sje mikið
keypt í Reykjavík.
Jæja, verkamenn góðir! Þá hafið
þið í höndum ykkar greinina „ T rygg va-
senna". Athugið hana vel og and-
ann, sem hún er skrifuð f. Rennið
svo augunum yfir lífsstarf þessa ald-
urhnigna manns, sjáið hvað fyrir
hans dugnað er framkvæmt í þessu
landi og í bæjarfjelagi Reykjavfkur,
og jeg er sannfærður um, að þið fáið
megnasta ógeð á „Tryggvasennu"
og þvf, að nokkurt blað, sem gerir
kröfu til þess að heita heiðarlegt
blað, skuli flytja svo óhræsislega
skrifuð mótmæli.
Tryggvi Gunnarsson er einn af
þeim fáu fyrirliðum þessarar þjóðar,
sem hefur starfað, ekki aðeins í orði,
heldur og í verki. Og á hann það
mannasíst skilið, hvorki sem „Tryggvi
Gunnarsson" nje heldur sem „bæjar-
fulltrúi" Reykjavíkar, að hann sje
svo óhræsislega óvirtur sem gert er
í tjeðri „Tryggvasennu". —
En þegar þakklæti er ljelegasta
dygðin, þá er vanþakklætið auðvitað
mesta dygðin. Eða hvað? —
Verkamadur".
Stórt gjaldþrot í Málmey. Ný-
lega varð þar miljónaverslunin P.
Stáhle & Sön gjaldþrota og er tap-
ið talið 5—6 miljónir. Þetta er
gömul timburverslun.
Frá Mexíkó. Stjórn Bandaríkj-
anna kallaði snemma f ágúst sendi-
herra sinn heim frá Mexikó og var
sagt að hún hefði jafnframt sett
Huerta forseta tvo kosti, annaðhvort
að leggja þegar niður embætti, eða
hún snerist móti honum og styddi
Maderósflokkinn aftur til valda.
Járnbrautargöng undir Ermar-
sund í undirbúningi. Snemma f
ágúst kom á fund Asquits yfirráð-
herra nefnd manna frá öllum stjórn-
málaflokkum neðri málstofunnar með
tillögu um, að stjórnin beittist fyrir
því, að gerð verði járnbrautargöng
undir sundið milli Frakklands og
Englands. Yfirráðherrann tók vel f
málið, sagði, að það yrði tekið til
nákvæmrar yfirvegunar og mintist
vináttunnar, sem nú væri milli Eng-
lendinga og Frakka.
Castro fyrv. forseti í Venezuelu
er nú kominn þangað aftur í broddi
fyrir allmiklu liði og farinn að leggja
undir sig landið, segir í útl. blöðum
frá byrjun ágústmánaðar. Lands-
fólkið tekur honum að sögn vel, og
margar af strandborgunum eru þeg-
ar á hans valdi. í Coro hefur hann
látið drepa embættismennina og sett
aðra í þeirra stað, segja frjettirnar.
Merkilegar fornmenjar hafa ný-
lega fundist við Kögeflóann í Dan-
mörku. Það eru beinagrindur af 20
mönnum og konum, er allar liggja í
röð, með höfuðin til norðvesturs.
Ennfremur ýms áhöld úr leir, silfur-
myndir og gullgripir með fornnor-
rænni gerð. Fræðimenn hafa getið
til, að þetta væri frá 2. öld eftir
Krist.
SuíTragetturnar ensku. Snemma
í ágúst rjeðust 40 kvenrjettindakon-
ur inn í St. Paulskirkjuna í Lund-
únum um messutíma og fóru að
syngja þar hersöngva kvenrjettinda-
fjelaganna. Guðsþjónustunni varð
að fresta og láta konurnar út með
valdi.
Ný ensk flotastöð er nú sögð
ráðgerð við Bermudas-eyjarnar með
því markmiði að gæta enskra skipa,
sem fara um Panamaskurðinn. Þetta
kvað vekja mikla eftirtekt í Banda-
ríkjunum.
»Titanic«. Frjett hefur gengið um
það í útl. blöðum, að flakið af stór-
skipinu „Titanic", sem fórst 19. apríl
1912, hafi sjest með forstefnið uppi á
blindskeri, er valdið hafi strandinu,
en áður hefur verið fullyrt, að skipið
hafi brotnað af árekstri við ísjaka.
Ólíklegt þykir þó, að frjett þessi sje
sönn.
Albaníufursti. Það er nú talað
um það í útl. blöðum, að ráðgert sje
að Morits prins af Schaumburg-Lippe
verði Albaníufursti, en hann er bróð-
ir Adolfs fursta af Schaumburg-Lippe,
29 ára gamall, og er nú sem stend-
ur foringi í prússneska hernum.
Vesuvius gýs. Útl. blöð frá 7.
þ. m. segja að hann sje að gjósa
og að búist sje við að meira verði
úr því síðar.
Kruppsmálin þýsku. Nýlega er
fallinn dómur í málunum, sem risu
síðastl. vor út af ásökunum þeim,
sem bornar voru fram í þýska þing-
inu gegn forstjórum hinnar miklu
Krupps-vopnaverksmiðju. Málin hafa
ekki gengið mjög í móti verksmiðj-
unni, þótt sannast hafi að hún hafi
beitt ýmsum brögðum í samkepn-
inni við aðrar þýskar verk-
smiðjur og haft í því skyni úti
launaða leyniþjóna til þess að kom-
ast eftir leyndarráðum hermálastjórn-
arinnar. En nokkrir þýskir herfor-
ingjar, sem staðið hafa í sambandi
við umboðsmenn verksmiðjunnar og
útvegað þeim upplýsingar frá her-
málastjórninni, sem ekki máttu birt-
ast, hafa verið dæmdir til hegning-
ingar, fangelsisvistar og embættis-
missis. Málið hefur vakið mikið
umtal.
Herskyldan í Frakklandi. Laga-
frumvarpið um 3ja ára herþjónustu-
skyldu var samþykt í sumar í full-
trúaþinginu með 358 atkv. gegn 204.
Áköf þræta stóð í þinginu um frum-
varpið, og við síðustu umræðuna
varð hitinn svo mikill, að einn þing-
manna gaf öðrum kjaftshögg meðan
á henni stóð.
Flotaaukning Breta er afarmikil
nú, altaf bygð ný og ný herskip,
smærri og stærri. Fjöldi af þessum
nýju herskipum notar olíu í stað
kola. Flotamálaráðherrann skýrði frá
því í þinginu í sumar, að meðal
annars væru nú í smíðum 100 tund-
urbátadólgar, er allir væru olíuskip.
Heiniastjórn írlands. Frum-
varpið um heimastjórn írlands fjell
enn í efri málstofunni I5.júlíísum-
ar með 302 atkv. gegn 64. Jafn-
framt var þar þá samþykt þingsá-
lyktunartillaga frá Lansdowne um, að
efri málsstofan neitaði að samþykkja
frumv. fyr en þjóðin hefði lýst yfir,
að hún vildi hafa það. En nú verð-
ur frumvarpið að lögum, er neðri
málstofan hefur samþykt það einu
sinni til, hvað sem efri málstofan
segir.
Prestur myrtur. Það kom fyrir
í Svíþjóð í sumar, að prestur einn,
Nyström að nafni, var settur frá
embætti fyrir drykkjuskap. Kendi
hann um þetta prófasti sínum, sem
hjet Ástrand og átti heima í Kalmar.
Nokkru eftir afsetninguna kom Ny-
ström inn á skrifstofu prófastsins og
skaut hann. Gekk svo rólegur
burtu og fór í bað þar í grendinni,
og þar var hann tekinn fastur.
Panamaskurðurinn. Það er sagt
að Atlantshafsfloti Bandaríkjanna
eigi í apríl næsta ár að fara vestur
í gegn um Panamaskurðinn.
Nicaragúa og Bandaríkin. Stjóm
Bandaríkjanna vill nú taka sjer vernd-
arrjett yfir þjóðveldinu Nicaragúa í
Miðameríku, fá umsjón fjármála þess
og anriara mála út á við, rjett til
að grafa skipgengan skurð þar um
landið og gera þar flotastöð í einni
af höfnum þess. Einnig er sagt, að
til standi lík afskifti frá Bandaríkj-
anna hálfu af öðrum ríkjum í Mið-
ameríku.
Rit Tolstois. í Moskvu eru í
sumar að koma út ritverk L. Tolstois.
Af þeirri útgáfu voru 3 fyrstu bind-
in gerð upptæk af því að í þeim var
meðal annars þýðing hinna fjögra
guðspjalla með skýringum eftir
Tolstoi.
Enskt stórfyrirtæki í Noregi.
Norska stórþingið samþykti í sumar
með 86 atkv. gegn 34 leyfi handa
ensku fjelagi til þess að nota vatns-
afl í 3 ám í Raumdalsamti til fram-
leiðslu loftáburðar. Stjórnin bar
málið fram. Höfuðstóll fjelagsins er
36 milj. kr. Það á að borga til
ríkisins þegar í stað 400 þús. kr.
og síðan 200 þús. kr. árlega, og
jafnmikið til sveitasjóðanna í Raums
dals amti. Eftir 65 ár eiga verk-
smiðjur fjelagsins að verða eign rík-
isins. Vatnsaflið, sem fjelagið fær
til afnota, er talið 200 þús. hestöfl.
— Danska blaðið „Pólitiken", er
segir frá því 23. júlí f sumar, að at-
kvæðagreiðsla standi til í Stórþing-
þinginu um þetta mál, bætir því við,
að neiti þingið um leyfið, þá snúi
fjelagið sjer að Dettifossi á íslandi,
er það hafi vissu fyrir að geta feng-
ið, en þar sje krafturinn 400 þús.
hestöfl.
Maxim Gorki, rússneska skáldið,
hefur dvalið erlendis, mest á Ítalíu,
síðustu árin, og ekki mátt heim
koma. En síðastliðið vor voru sakar-
giftirnar gegn honum látnar niður
falla og honum leyfð heimkoma. En
síðustu fregnir segja hann hafa kom-
ið dauðveikan suður til Ítalíu.
Rússneskir Norðurlieimskauts-
farar, sem lögðu á stað frá Archan-
gelsk fyrir i«/a ári og ekki hefur
spurst til síðan, eru nú taldir frá.
Norskt skip fann í sumar lík 5
manna á ísjaka norður í höfum og
er þess getið til, að þar muni vera
hinir rússnesku norðurfarar.
Fólksfjöldi í Danmörku. Eftir
nýútkomnum skýrslum, sem byggja
á manntali frá 1. febr. 1911, er íbúa-
tala Danmerkur þá 2,757,000, eða
vel 23/4 milj. Fjölgunin frá 1906 er
168,000 eða 1,27% árlega. 1801
voru íbúar innan núv. takmarka
Danmerkur 929,000, svo að þeir
hafa nærri þrefaldast síðan. 1901
voru þeir 2,450,000.
Ráðherrar og þingmenn í Nor-
egi. Sú breyting á stjórnarskrá
Norðmanna var gerð í sumar, að
ráðherrarnir mættu jafnframt vera
þingmenn, því hingað til hefur hver
þingmaður, sem komist hefur í ráða-
neytið, orðið að leggja niður þing-
mensku fyrir kjördæmi sitt. Ráð-
herrarnir hafa átt sæti í þinginu frá
1. júlí 1884 og staðið þar fyrir mál-
um sínum, en ekki haft þar atkvæð-
isrjett fyr en nú. Breytingin hafði
alment fylgi í þinginu.
Sabroc, þingmaðurinn danski,
sem fórst við járnbrautarslysið hjá
Esbjerg nýlega, fær mjög lofsamleg
eftirmæli í dönskum blöðum. Hann
hafði varið öllum kröftum sínum,
tíma og fje, til þess að rjetta hluta
þeirra, sem bágast áttu f mannfje-
laginu, fátækra ekna og barna. Nú
er ráðgert að reisa honum minnis-
merki á einhverjum fjölförnum vegi
í Khöfn, og á minnismerkið jafn-
framt að vera samskotasafnari handa
fátækum börnum. Uppkast hefur ver-
ið gert af minnismerkinu, og á það
að vera fátæklega klædd kona, sem
heldur á ungu barni.