Lögrétta

Útgáva

Lögrétta - 15.10.1913, Síða 4

Lögrétta - 15.10.1913, Síða 4
176 L0GRJETTA Kamelíufrúin verður leikin annað kvöld, fimtudag 16. okt. kl. 872 í sídasta; HÍnn. mosagróður og fjallablóma og svo dálítið stargresi, lyng og víðir; eng- inn á. Svo kemur maður fyrst í Fossfjörð. Margar ár með smáfoss- um mynda aðalána, sem mesti foss- inn er í. — Dalurinn upp af firðinum er stutt- ur og breiður, og er í honum tals- verður skógur og 2 bæir vel hýstir. Austur af Fossfirði er Reykjarfjörður, þar eru 2 bæir og I hver. Aust- ur af Reykjarfirði er Trostansfjörður, þar er i bær, en meiri skógur en í Reykjarfirði. Og austast er Geir- þjófsfjörður. Þar er mestur skógur og 3 bæir. En vestan við Fossfjörð er Otrar- dalur; þar var lengi prestssetur. En nú er það á Bíldudal, sem er við vík, og er hún fimti og vestasti Suðurfjörðurinn. Bídudalur er laglegur kaupstaður, en stendur neðan við skriður og urðir og örðugt er þar að rækta nema lengra frá. Eru, minnir mig, 300— 400 manns þar. Ekki fjölgar þar; var líka kvartað um atvinnuleysi, eins og svo víða í kaupstöðum vorum. VIII. Arnarfjar ðardalir. Frá Bíldudal fór jeg vestur í Sel- árdal og sá því alla Arnarfjarðar- dali. Sveit þessi er einkennileg og tilkomumikil. Bæirnir eru í 6 dölum, sem ganga suður í fjöllin, og eru feiknahamrar á milli þeirra og kring- um þá. Sauðfje fer oft upp í hamra þessa, þvf þar eru víða gróðurtopp- ar. Er afarhættulegt að ná því þar. Og lá mjer við sundli, þegar þeir sýndu mjer hengiflugin þar sem fólk- ið verður að klifra eftir fjenu. En þar eru ágætir klettamenn líkt og undir Eyjafjöllum. En Arnarfjarð- arhamrarnir eru þó ennþá hærri en Eyjafjallahamrarnir. Flestir eru bæ- irnir í Selárdal, einir 7, en í 3 hinum dölunum 3—$ bæir í hverjum, og í 2 dölunum 1 bær f hverjum. Veiði- stöð er í Selárdal og fjekk prestur meðal annars 800 steinbíta í vertolla. Nú gjaldast ekki nema 80 steinbftar, énda er veiði sú minna stunduð, því þorskúrinn borgar sig betur, þótt mínkað hafi þar sem annarstaðar sfðan botnvörpungarnir komu. Sögðu þó Rauðasandsmenn, að nógur væri stein- bíturinn ennþá þarna kringum vestur- skaga sýslunnar. — Brattir og tæpir þóttu mjer vegirnir við Arnarfjörð, eins og víðar í sýslunni. En furðan- lega mikið hefur þó verið gert við þá, er þó langt á milli bæja og fólkið fátt. Allmikill menningarbragur er annars að koma þarna og víðar f sýslunni. Húsakynni eru altaf að batna; 5 steinhús, 2 hlaðin, en 3 steypt, eru nýbygð í Dalahreppi. Híbýlaprýði er þar líka í framför. Á einum bæn- um sá jeg 8 myndir stórar og falleg- ar í einni lítilli stofu; þar var Rrists- mynd með blóðugt hjarta þyrnikrans- að, logaði upp úr því og úr loganum reis kross; þar var Maríumynd með blómkransað hjarta, Mósesarmynd, Adams- og Evu-myndir 3, og ein enn. Svipaða myndaprýði hef jeg sjeð á mörgum betri bæjum í sveitum, en sjaldan svona merkilega. Það er lær- dómsríkt að taka vel eftir því, hvernig tnenn prýða heimili sín. Myndir hafa meiri áhrif á menning þeirra en marg- Ur hyggur. Hinumegin við Arnarfjörð eru líkir dalir, en smærri og hamrarnir minni, einkum þegar inn með firðínum dreg- ur. í austri, bak við Arnarfjörð og Suðurfirði, eru 4 stórir, fallegir hnúkar, sem „Hornatær” nefnast. En í aust- norðri er Rafnseyri. Allfagur er þessi sjónarhringur Jóns Sigurðssonar. (Niðurl.) Gjafir til Heilsuhælisins. 1. Frá Sigurði Júlíusi Jóhannes- syni lækni 81 kr. 95 a. og var það á- góði af fyrirlestri þeim, er hann hjelt hjer. 2. Frá Einari Jochumssyni 80 kr., og er það heitfje, sem hann hjet Heilsuhælinu í vor, sem leið, ef „Ljósið" hans seldist vel. Sjest þar enn sem fyr, að gott er að heita á hælið. 3. Frá Stórkaupmanni Tönnes Wathne í Stavanger 200 kr. með þeim ummælum, að verja skuli til hjálpar einhverjum fátækum sjúkling- um. Mun yfirstjórn hælisins úthluta þessu fje eftir tillögum læknisins þar. Fyrir þessar fallegu gjafir kann jeg gefendum bestu þakkir. G. Bjórnsson. Reykjavík. Bílferðir. Hr. Sveinn Oddsson, eigandi annars bílsins, sem hjer er í förum, biður þess getið, að það, sem segir um ógætilegt ferðalag á bílum í síðasta tbl., geti ekki átt við sinn bíl. Hann hafi aldrei farið á 15 mínútum milli Reykjavíkur og Hafnarfjarðar. Læbningastofa háskólans er nú í prestaskólahúsinu gamla í Austur- stræti og þar ókeypis læknishjálp veitt öllum, sem hennar Ieita, á viss- um tímum, eins og auglýst var í sfðasta tbl. Lögr. Einn af læknun- um hefur vakið máls á því við Lögr., að hún skyldi hvetja menn til þess að nota þessa ókeypis læknishjálp meira en gert hefur verið. Hann sagði, að hún væri alt of lítið notuð, og hlyti það að stafa af athugaleysi almennings. Geti sjúklingar ekki komið, mega þeir gera boð þangað eftir lækni, sagði hann, og verður því sint, og læknishjálpin eins fyrir það látin í tje ókeypis. Tíðin hefur verið ágæt um all- langan tíma að undanförnu, stilt veð- ur, bjart og hlýtt. Brjef frá Páli Melsteð til Jóns Sigurðsson eru nýkomin, frá Fræða- fjelaginu í Khöfn, 133 bls., fróðleg og skemtileg bók. Fyrirspurn. Hvernig stendur á því að stjórnarráðið birtir aldrei neitt af þeim fróðlegu skýrslum, sem jeg þykist nú vita að viðskiftaráðanaut- urinn okkar gefi því altaf öðru hvoru um starfsemi sínaf Mjer sýnist að þær og annar slfkur fróðleikur gæti vel átt heima f auðu dálkunum í Lögbirtingablaðinu. Dalakarl. Lögr. vísar þessari fyrirspurn til stjórnarráðsins. Hvað Lárns hefnr geft. X-ið, sem í næstsíðasta tbl. Lögr. telur upp fjárfeng L. H. B. úr landssjóði, auk embættislauna, gleymir úr að minsta kosti 2500 kr. Styrkurinn til laganámsins var veittur í tvö ár, 2,500 kr. hvort árið. Ofan á þetta bætist svo bankaráðsbitlingurinn, sem honum var veittur á þingi í sumar og nemur á næstu 3 árum eitthvað nálægt 5000 kr.' Y. »Flora« kom norðan um land í morgun full af vörum og með yfir 200 farþega, þar á meðal voru Jón Þorláksson landsverkfr., V. Knudsen verslunarm., Ó. G. Eyjólfsson skóla- stj., 0. Björnsson prentsmiðjueigandi frá Akureyri, frú Smith. frá Noregi, móðir Smiths símastjóra. »Kamelíufrúin« var leikin hjer í tvö kvöld um sfðastl. helgi. Aðal- hlutverkin höfðu frú Stefanía Guð- mundsdóttir og Jens Waage, og Ijeku bæði vel. Hr. J. W. ætlar nú að leika í vetur og er það mikill ávinn- ingur fyrir leiksviðið. Sveinn Oddsson, sem hingað kom f sumar frá Ameríku, fer vestur aftur á morgun, en kemur næsta vor með 5 nýja bíla að minsta kosti. Hey frá Noregi er nú flutt hing- að til bæjarins, og er sagt, að tölu- vert liggi á Akureyri af norsku heyi, sem hingað á að fara. Alþingistíðindin. Af þeim er komið út 3. hefti af umr. í n. d. og var sent út með síðasta pósti. Háskólinn. í guðfræðisdeild eru nú 11 stúdentar, fimm eru nýir, Þorsteinn Kristjánsson, Kjartan Jóns- son, Sigurgeir Sigurðsson, Ragnar Hjörleifsson og Halldór Gunnlaugs- son. í lagadeild eru 16 stúdentar, 2 nýir, Kjartan og Ólafur Thors. í Iæknadeild eru 26 stúdentar, 6 nýir, Tryggvi Hjörleifsson, Kristján Arinbjarnarson, Gunnar A. Jóhann- esson, Karl Magnússon, Kristmundur Guðjónsson og Jón Bjarnason. í heimspekisdeild 2 stúdentar, 1 nýr, Geir Einarsson. Ókomnir eru 3 nýir stúdentar, sem víst er um að stunda ætla nám við háskólann, 2 guðfr. og 1 lækn- isfræðingur. Mentaskólinn. Þar eru nú nem- endur 140. Heimspekisdeild háskólans. Af því að fleiri en stúdentar háskólans hafa að undanförnu sótt ýmsa fyrir- lestra í heimspekisdeildinni, skal hjer tekið fram, hvað þar er kent á hinu nýbyrjaða námsskeiði, frá 1. okt. til 15. febr. Prófessör dr. phil. B. M. Ólsen: 1. Heldur áfram fyrirlestrum sínum um bókmentasögu íslendinga þriðju- daga og laugardaga kl. 5—6. — 2. Æfingar út af Eddukvæðum (eða skáldakvæðum, ef nemendur kynnu að óska þess heldur) fimtudaga kl. 5—6 og laugardaga kl. 6—7. — 3. Fyrir takmarkaða tölu nemenda: æf- ingar í lestri íslenskra rita í sundur- lausu máli með sjerstöku tilliti til íslenskrar málfræði, 1—2 stundir á viku, eftir samkomulagi. Prófessor dr. phil. Ágúst H. Bjarnason: 1. Fyrirlestrar og yfir- heyrsla í forspjallsvísindum mánu- daga, þriðjudaga, fimtudaga og föstudaga kl. 4—5 síðd. — 2. Við- ræður um helstu viðfangsefni heim- spekinnar fyrir takmarkaða tölu stú- denta á laugardögum kl. 5—6 síðd. (Russel: Problems of Philosophy lögð til grundvallar). — 3. Fyrirlestrar fyrir almenning um heimsmynd vís- indanna á miðvikudagskvöldum kl. 7-8- cyijjtí! Díýtt! DTýtf! Svissnesku blúsurnar úr silki og ull eru aftur bomnar í Brauns verslun, Rvík. ^áíryyyié eigur yéar (Rús, Rúsgöyn oy vörur) í örunaöotafjaí. „&!etieraí“, stofnsett 1885. Aðaluruboðsmaður fyrir ísland: Sig. Thoroddsen adjunkt, Frí- kirkjuveg 3. Heima ki. 3—5. Sími 227. Umboðsmaður fyrir Norður-ísafjarðarsýslu: Jón Hróbjartsson verslunarstjóri. Umboðsmaður fyrir Vestmannaeyjar: Jóhann Þ. Jósefsson kaup- maður. Duglegir umboðsmenn óskast á Eyrarbakka, Akranesi, Þingeyri, Stykkishólmi og víðar. Námsskeið í bifvjelafræði. Hinn 15. nóvember byrjar námsskeið í bifvjelafræði við stýrimanna- skólann í Reykjavík, er stendur yfir í minst 4 vikur. Kenslan fer fram í fyrirlestrum og verklegri tilsögn. Þeir, sem óska að ganga á námsskeiðið, gefi sig fram við undirritað- an forstöðumann stýrimannaskólans fyrir nefndan dag.. Dócent Jón Jónsson: 1. Heldur áfram fyrirlestrum um sögu íslands (tímabilið 1262—1550) þriðjudaga og laugardaga kl. 7—8 síðd. — 2. Heldur áfram fyrirlestrum um sögu- og fornfræðaiðkanir íslendinga eftir siðaskiftin fimtudaga kl. 7—8 síðd. Reykjavík 14. október 1913. Ir*áll Halldórsson. „Siim Consum Ghocolade Island -erlendis. er áreiðanlega nr. 1. Úr ensknra blöðnm. „The Daily Mirror", hið alkunna myndablað í Lundúnum, hafði hjer mann síðastl. sumar, sem ferðaðist um og tók myndir handa því. Lögr. hefur sjeð nokkrar þeirra. Ein er af gíg frá Heklugosinu í sumar. Önnur frá Geysi. Þriðja af Gullfossi. Hestar eru sýndir undir heybandi og mjalta- kona á hestsbaki. Ásta málari er sýnd uppi í stiga að mála nafnspjald á húsi. Kvenfólk er sýnt við fisk- verkun. Fuglaveiðar eru sýndar, mað- ur í sigi í bjargi og fuglaungarnir, sem eftir er sótst, í hreiðri. Kven- fólk er sýnt við þvott í laugunum o. s. frv. Stuttar skýringar fylgja mynd- unum í blaðinu. — Við og við eru í ýmsum enskum blöðum smáfrjettir hjeðan um fiskiveiðar og verslun, — og svo botnvörpungaströndin. Frá flaggmálinu 12. júní í sumar hefur líka verið sagt þar. Fuglafræðing- urinn enski, Edmund Selous, sem ferðaðist hjer í fyrra sumar, hefur aftur verið hjer f sumar sem leið og ritað um það meðal annars í „The Saturday Rewiew" frá 20. sept. „Gestur eineygði“. Khafnarblað- ið „Riget" frá 22. sept. flytur mjög lofsamlegan ritdóm um síðustu sögu Gunnars Gunnarssonar, sem út kom í haust hjá Gyldendals bókaverslun og heitir „Gestur eineygði". Greinar- höf. segir, að sagan sje „mikilfeng- legt verk, skrifað af skáldi". Þar sjeu Bett fram „stór örlög í stórfeldri náttúru, málið hreint, og næm tilfinn- ing". Hann hvetur menn til að lesa bókina og lesa hana vel. Hann sjer hinn „lifandi kristindóm" uppmálaðan, þar sem Gestur eineygði er, og lofar mikið, hve höf. takist vel að koma fram þeirri hugsun. Honum þykir bókin frumleg, en telur hana helst fara í líka átt og rit Selmu Lagerlöf. Knuð Berlin pröfcssor hefur í »Ugens Tilskuer* frá 19. sept. ritað langa grein um hið nýútkomna rit Einars prófessors Arnórssonar um Rjettarstöðu íslands, sem Þjóðvina- fjelagið hefur gefið út í sumar. Bein- Gætið þess að vörumerki okkar sje á pakkanum. ist hann þar einnig að ritum Jóns Sigurðssonar um sama efni og Iætur ekki lítið yfir framgöngu sinni gegn ýmsum kenningum J. S., er áður hafi verið taldar óhrekjanlegar, en hann kveðst fyrstur manna hafa fundið höggstað á. í blaðinu »Hovedstaden« hafa þeir K. B. og Holger Wiehe átt í deilum um íslensk mál, og tek- ur H. W. þar, eins og jafnan, mál- stað ísland. En ekki hefur Lögr. sjeð þær greinar. í »Köbenhavn« hefur K. B. einnig ritað um mála- afstöðuna hjer á alþingi. Þar legg- ur hann af sjer eina fyndni, sem hittir allvel. Hann er að tala um fánamálið og segir, að í einu tilfelli hafi íslendingar aldrei ímugust á »dannebrog«, og það sje þegar þeim sjeu boðnir »dannebrogs«-krossar. Þeir Skúli og Lárus, sem ekki vilji sjá »dannebrogs«flagg ástöngíland- inu, gangi báðir með »dannebrogs«- krossa á brjóstunum. Nærfatnaður, mikið og gott úrval. Sturla Jónsson. Oddur Gíslason yfirrjettarmálaflutnlngsmaður, Laufásveg 22. Venjul. heima kl. 11—12 og 4—5. góða og- ódýra nýliomiÖ. Sturla tSónsson. S. C. Xraul8 A Forsendelseshus V ,y/ (útsendingahús) Horsons sendir ókoypis öllum skrautverðskrá sína. 'X'alsími 801. Forfulg't, eller en spændende Kamp paa Liv og Död, 226 Sider, 50 Öre. Sola: Som man saar — Kr. 1,25 ib. i Pragt- bind; en af den berömte Forfatters mest læste Böger. Begge Böger sen- des portofrit mod Indsendelse af 2 Kr. pr. Postanvisning. Samtidig med- fölger ny udkommen Bogfortegnelse over ca 200 nye Böger. Önskes Kata- log over Hygiene, Sygepleje og Bar- berartikler, jnedsendes den gratis. A.Brandi,Prinsessegade,KbhvD C. afarmikið úrval, langódýrastir. Sfurla c7onsson. verður haldinn á „Hótel Reykjavík" mánud. 20. þ. m. kl. 9 síðd. Venjuleg mál á dagskrá. Fjelagsstjórnin. mikið úrval. Sfurla clcnsson. Massagelæknlr Guðniundur PJetursson. Iloinia kl. 6—7 0. m. Spítalastíg 9 (niðri). Sími 391,

x

Lögrétta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.