Lögrétta - 08.03.1916, Page 2
42
LÖGRJETTÁ
Fundur i ,Fram(
næstk. laugardagskvöld n. þ. m. í
Templarahúsinu og byrjar kl.
Fundarefni: i. Landskosningin. 2.
Tr. Gunnarsson segir sögu.
Eggert Claessen
yfirrjettarmálaflutningsmaður.
Pósthússtræti 17. Venjulega heima
kl. 10—11 og 4—5. Talsími 16.
„Hólar“ stranda. Mrg.bl. flytur þá
fregn eftir færeyska blaðinu „Dimma-
lætting“, aS „Hólar“ hafi strandað
á leiö hingað frá Leith hjá Rattray-
head, skamt frá Peterhead í Skot-
landi. Menn komust af og líkur tald-
ar til að skipiö náist á flot aftur.
Sæsíminn. „Geir“ kom aftur úr
leiöangri sínum til Færeyja út af
símaslitunum síðastl. mánudagsmorg-
un. Haföi hann komið til Færeyja 2.
þ. m., en verið stöövaður á leiðinni
af ensku herskipi og slept, er skjöl
skipsins höfðu verið nákvæmlega
rannsökuð. í Þórshöfn fengu þeir
símamennirnir aö vita, að siminn
væri slitinn 11 sjómílur þaðan, fyrir
framan svokallað Mjovenes, milli
eyjanna. Þar var þeim og sagt, aö
viðgerðaskip Stóra norræna símafjel.
hefði verið komið á leið til þess að
bæta slitin í miðjum febrúar, en hefði
orðið að hleypa undan stormi inn til
Mandal í Noregi. Áður það færi það-
an aftur, hafði það fengið skipun um
að gera við sæsíma, sem slitnað hafði
í Norðursjónum, og við það var það
enn. En símskeyti hafði komið til
Færeyja frá fjelaginu, er tilkynti, að
viðgerðaskipið ætti að koma þangað
1. mars. Símstjóri sendi þá fjelaginu
símskeyti og sagði því af ferðum sín-
um. Fór svo daginn eftir þangað, sem
símslitin voru, en þar var þá ekkert
hægt að gera fyrir stormi, og lá Geir
inni á vík þar skamt frá um nóttina.
Straumur er þarna mjög harður og
viðgerðin því erfið.
Þegar þeir svo síðar fóru að fást
við það á „Geir“ að slæða upp sím-
ann, kom til þeirra vjelbátur frá Þórs-
höfn með svohljóðandi skeyti frá
símafjelaginu: „Viðgerðarskipið hef-
ur tafist vegna óviðráðanlegra at-
vika. Búumst við að það komi til
Færeyja á mánudaginn (6. þ. m.).
Oss þykir það leitt að verða að taka
fyrir, að þjer gerið við símann; það
er gagnstætt samningi og vjer vörum
við aðgerð á símanum, þar eð bilunin
er á mjög slæmum stað.“
Þar sem símastjóri frjetti þannig,
að viðgerðaskipið mundi koma innan
skams, hætti hann við að fást við
símann, en hjelt heimleiðis. 150 sím-
skeyti, sem fyrir lágu í Færeyjum,
tók hann þar og flutti hingað. Hann
segir, að ekki sje vegna straumsins
hægt að fást við aðgerðir á símanum
nema svo sem 2 kl.tíma á dag, en
viðgerðin mundi hafa tekið 2-3 daga.
Síminn er enn ekki kominn í lag.
Kirkjusamsöngur var haldinn hjer
síðastl. sunnudagskvöld af hr. Páli Is-
ólfssyni frá Stokkseyri, er stundað
hefur söngnám undanfarin ár hjá Fr.
Straube í Leipzig, og var hvert sæti
í kirkjunni skipað. Hr. Pjetur Hall-
dórsson söng þar einnig nokkur lög.
Söngfræðingar bæjarins láta mjögj
vel af orgel-spili P. í. og telja hann
mikinn efnismann í sinni list.
Landlisti Heimastjórnamanna. Sú
breyting hefur verið gerð á nafna-
röð á honum, að nafn Ágústs Flygen-
rings verður síðast, eða 12. nafn, og
er þetta gert eftir ósk hans. Sigur-
jón Friðjónsson verður þá sá 5 í röð-
inni. o. s. frv.
Tíðin hefur verið hin besta hjer
um Suðurland nú að undanförnu,
þýðviðri daga og nætur síðan um
helgi.
Aflabrögð hafa verið með besta
móti hjer suður með flóanum. Sama
er sagt af Vestfjörðum og útgerðar-
stöðunum við Breiðafjörð. Botnvörp-
ungarnir hafa og aflað mjög vel, og
eins er sagt um þau af þilskipunum,
sem frjettir hafa komið af.
Rafmagn í Reykjavík. Það er nú
farið að tala um það í bæjarstjórn-
inni hjer, að koma upp rafmagnsstöð
handa bænum, og er þar um nauð-
synjamál að ræða, sem nánar mun
verða minst á síðar hjer í blaðinu.
Vjelbáturinn Snygg kom hingað
4. þ. m. frá Siglufirði eftir 58 klukku-
stunda siglingu. Hafði ágætt veður á
leiðinni. Báturinn er eign Helga Haf-
liðasonar og á hann að stunda fiski-
veiðar hjeðan frá Reykjavík um ver-
tíðina. Aflann kaupir Helgi kaupm.
Zoega. Formaður bátsins er Þórður
Þórðarson. Sjö menn voru með hon-
um á bátnum frá Siglufirði. Þórður
sagði lítil tiðindi frá Siglufirði. Blind-
hríð hafði verið þar undanfarna þrjá
daga og snjór væri þar afskaplega
mikill. Mrg.bl.
Snjór í Norðurlandi. Eftir hríðarn-
ar í febrúar er svo mikill snjór i Eyja-
fiði, Skagafirði og austurhluta Húna-
vatnssýslu, að menn muna varla ann-
an eins, segir maður, sem nýkominn
er hingað úr Skagafirði. Þar voru öll
hross á gjöf, er hann fór þaðan. En
vestan til í Húnavatnssýslu var snjór-
inn minni.
Gaskolin. Gasstöðin hjer hefur
lengi átt von á kolafarmi frá Eng-
landi, og hafði fengið leyfi þar til
útflutnings á honum og skip til að
flytja hann hingað. En með „Geir“
kom sú frjett, að skipið hefði lask-
ast og sett kolin í land i Færeyjum.
Bíða þau nú þar ferðar hingað, en
gasstöðin hjer er mjög þrotin að kol-
um, og kemur því þetta sjer illa.
„Mjölnir“, skip Thorefjelagsins,
sem lengi hefur verið í förum hjer
við land, hefur nú Thor Jensen kaup-
maður keypt.
Ferð um Suðurnes.
Eftir G. Hjaltason.
Jeg fór þriggja vikna ferð um Suð-
urnes í janúar þ. á. og hjelt 15 fyrir-
lestra. Bestu viðtökur, aðsókn og at-
hygli, og alstaðar drengilega greidd
gata mín í öllu. Efnið var oftast, eins
og von var: „Hugleiðingar um heims-
stríðið“.
I. Keflavík.
Þar hef jeg áður komið og haldið
þar átta fyrirlestra og þeim vel tekið.
Nú hjelt jeg þrjá, kvöld eftir kvöld,
og alt af fult hús, hátt á annað hundr-
að manns.
Hreppstjóri Ágúst Jónsson og fleiri
málsmetandi menn útveguðu mjer alt
ókeypis, bæði fundahús, uppljómun
þess, auglýsingar og svo dvalarstað.
Fjekk jeg svo alla inngangspening-
ana, er voru 10 aurar á mann. En öll
ófermd börn Ijet jeg hafa ókeypis að-
göngu. Enda geri jeg þetta alt af,
þar sem jeg kemst að svona góðum
kjörum. I Keflavík eru ýmsar fram-
íarir, t. d. í byggingum. Þar er mik-
ið skólahús, Goodtemplarahús og al-
veg ný kirkja. Tún og garðrækt er
að aukast, en grýttur er jarðvegurinn
þar, eins og í grendinni, mest melar
og holt, og dálítið af flögóttum mó-
um. Hagar fyrir kýr sárlitlir, aftur
skárri fyrir sauðfje. Heldur mun þar
litið um skepnur enn þá. Er það sjáv-
araflinn, sem er og verður þar aðal-
atvinnugreinin.
II. Garður.
Jeg fór svo út í Garð og hjelt þar
2 fyrirlestra. Voru þeir líka vel sótt-
ir. En þá var komið verra veður
seinna kvöldið, hlákumyrkur og
bleyta, svo ill gangfært var nema með
ljóskeri.
Guðmundur kaupmaður Þórðarson
og fleiri greiddu þar veg minn likt
og þeir í Keflavík.
Skólahús mikið er i Garðinum og
eins Goodtemplarahús og byggingar
yfirleitt allgóðar. Heldur er þar grös-
ugra og betra um túnstæði en í Kefla-
vík. En aftur er þar votlendara, og
sjórinn flæðir sumstaðar inn á milli
húsa og inn á túnin.
Útsýni þaðan er eitt hið mesta hjer
á landi; allur fjallahringur Faxaflóa
sjest vel. Fjöllin upp af Mýrum eru
tekin að lækka, en aftur sýnist mjer
jökullinn hærri þaðan en af Innnesj-
um, t. d. Álftanesi. Það launar ómak-
ið að fara suður í Garð og helst þá
að ganga nokkuð upp á hæðir heið-
arinnar þar og líta svo vel fagra
hringinn í fjarlægð þegar bjart er.
III. Miðnes.
Frá Garðinum fór jeg suður á Mið-
nes og hjelt þar tvo fyrirlestra, ann-
an i Sandgerði, hinn í Hvalsness-
skóla. Einnig vel sótt á þessum stöð-
um. Verslunarmennirnir í Sandgerði
og Hákon bóndi Tómasson í Nýlendu
voru mjer til aðstoðar líkt og þeir í
Garði og Keflavík. Jeg var þar 3
nætur og seinustu nóttina hjá Vil-
hjálmi bónda Hákonarsyni á Stafnesi.
lfann var mörg ár vestur við Kyrra-
hafið og kyntist þar mörgum þjóðum
mikið, t. d. Japönum, og hafði frá
mörgu að segja, og þótti mjer fróð-
legt og skemtilegt, enda er heimilið,
þótt fáment sje, eitt af þeim ánægju-
legustu, sem jeg hef komið á.
Steinkirkja falleg er á Hvalsnesi,
bygð 1887. Stendur fremur hátt, sjest
þaðan víða.
Því miður var snjór svo mikill, að
jeg sá lítið til gróðurs á Miðnesi. En
likt sýndist mjer það og í Garðinum.
Er þar líka fjara mikil og skerjagarð-
ar heldur meiri en Faxaflóamegin,
þegar undan eru skilin skerin fram
undan Garðskaganum.
Heiðin milli Miðness og Keflavík-
ur er ein af þessum flötu, villugjörnu
heiðum. Menn hafa orðið þar úti, eins
og víðar á Reykjanesskaga.
IV. Hafnir.
í Höfnum hjelt jeg nokkra fyrir-
lestra vel sótta. Þeir bræður Ketill í
Kotvogi og Ólafur á Kalmannstjörn
voru þar bestu aðstoðarmenn mínir.
Kona Ketils er sonardóttir Bjarna
Thórarensens. Finst mjer alt af mik-
ið um að hitta afkomendur míns
uppáhaldsskálds. Ketill faðir þeirra
bræðra var einn af mestu sjógörp-
um og skörungum Hafnarmanna.
Eins Vilhjálmur^ Hákonarson í
Kirkjuvogi og fleiri. Voru þeir
mestu dugnaðarmenn og bestu dreng-
ir og vel fjáðir. Fer alt þetta þrent
fremur sjaldan saman. Dáð og dreng-
skapur afkomenda þeirra og annara
ættmanna lifir góðu lífi. En heldur
munu efni vera minni í Höfnum nú
en var, og veldur því aflaleysi síðan
útlendingar fóru að skemma fiski-
miðin fyrir alvöru. Samt held jeg að
að líðan manna þar sje allgóð; þar
eru, eins og annarstaðar á Suðurnesj-
um, allmiklar framfarir í bygging-
um og vænt skólahús er þar líka. Tún
sæmileg, en sjávarrót skemdi þau ný-
lega, en þau lagast nú smátt og smátt.
Fjörubeit er þar góð, eins og víðar
þarna syðra. Og landbeit er þar betri
en á Garðskaganum. Og fje stund-
um allvænt. Sauður 3 vetra var skor-
inn á Kalmanstjörn 1915 með 60 pd.
kjöts og 19 pd. mörs, lagði sig á 47
kr., og sama ár komst kýr á bæ í
Höfnum í 22 merkur í mál 0g hjelt
því lengi á sjer, aðrar komust þar í
14 merkur.
Öll hraun eru þar að gróa upp og
lyngið að færast nær bæjunum. Eins
ei inn með flóanum, t. d. á Strönd-
inni. Er það því að þakka, að nú er
hætt að rífa lyng og kvisti, sem bet-
ur fer.
V. Gamall sjógarpur.
Bjarni Guðmúnd^son bróðursonur
Vilhjálms heitins í Kirkjuvogi er einn
af þessum eldri sjóskörungum Hafna-
manna. Hann hefur verið formaður
í 49 ár, allar vertíðir á hverju ári.
38—40 ár formaður á teinæring, en
hin árin á 6 og 8 æring. Hann hefur
aldrei mist nokkurn mann af sjer eða
látið verða fyrir slysi. Hann er nú 65
ára gamall, orðinn alblindur á öðru
auga og sjer illa með hinu, er bláfá-
tækur maður, á engin nákomin skyld-
menni. Svona menn hafa gert þjóð-
fjelaginu meira gagn en flestir aðrir
nýtir menn. Og er hörmung að vita
til þess, ef aðrir eins menn fengju
það í laun fyrir duglegt og dygðugt
æfistarf, að verða sviftir rjettindum
og enda virðingu, eins og á sjer stað
þegar leitað er fátækrastyrks. Svona
menn ættu því ekki að þurfa að fara
á sveitina, heldur ætti, til dæmis,
Bjarni þessi að fá árlegan styrk úr
sjómannasjóði og líka vænan elli-
styrk.
VI. Vigfús Grænlandsfari.
Hann er vitavörður, og fylgdi hann
mjer austur í Grindavík og gisti jeg
hjá honum á heimleiðinni. Sá kunni
frá mörgu fróðlegu að segja. Enda
eru jökulöræfi Grænlands næsta til-
breytileg, hann mjög duglegur og
eftirtektarsamur ferðamaður, og för
hans er þjóðinni til sóma, því hún
sýnir útlendingum, að enn þá lifir
áræðið og þrekið forna, þó að hægra
hafi um sig en áður. Ættu menn að
kynna sjer ferðasögu Vigfúsar og
sækja fyrirlestra hans.
Vitinn stendur uppi á felli og bær-
inn undir því. Er mikið útsýni frá
T
vitanum yfir landið í kring og Snæ-
fellsjökull sjest vel þaðan. En til aust-
urjökla sá jeg ekki fyrir þoku.
Þegnskylduvinnan.
Það er talsvert fjör farið að færast
í umræður um þetta mál. Er það og
eðlilegt, þar sem þjóðin á við næstu
kosningar að skera úr því, hvort hún
vill fá þegnskylduvinnu eða ekki.
Tilgangur þegnskylduvinnunnar er
sá, að manna og menta þjóðina, lyfta
henni á hærra menningarstig. Hug-
sjónin er fögur. En er nokkur von um
að lögboðin vinna sje hentugri til
þess en þær mentastofnanir, sem vjer
nú höfum, eða kunnum að öðlast ? Því
er ekki auðsvarað, svo ábyggilegt sje.
Kostir þeir, sem þegskylduvinnu
eru aðallega taldir til gildis, eru eink-
um: verkleg æfing, stundvísi, reglu-
semi, stjórnsemi, gleggri skilningur á
samvinnu, viðkynning og ódýr vinna
fyrir landssjóð.
Um verklega námið er það að segja,
að vel má vera, að efnilegum mönn-
um, sem sýnt er um vinnu, kæmi að
talsverðum notum þriggja mánaða
góð leiðbeining, en þó tæplega svo, að
handtök yrðu mun betri, er til ann-
arar vinnu kæmi en þeir ynnu í
þegnskylduvinnunni, því sennilega
snertu margir menn aldrei á þeirri
vinnu framar á æfinni, er þeir hefðu
þar unnið að.
Þá er reglusemin. Reglubundin
vinna hefur farið mjög í vöxt á seinni
árum. Þó er henni enn mjög ábóta-
vant. En það er líka til reglusemi á
öðru sviði, t. d. í viðskiftum og í
hversdagslífinu, bæði utan húss og
innan, sem öllum er nauðsynleg, en
önnur öfl virðast betur löguð til að
glæða þá reglusemi en lögboðin
vinna.
Stundvísin er náskyld reglusem-
inni, og er einn þáttur hennar. Hún
er eitt af þvi, sem þessa þjóð vantar
tilfinnanlega. Það er oft harla baga-
legt og óviðfeldið að þurfa að bíða
jafnvel 2—3 tíma eftir að fundir
byrji, þó búið hafi verið að ákveða
tímann fyrir fram. Á þetta sjer þó
stað í fjölda mörgum tilfellum. Allir
sjá hversu miklu óhagræði og tíma-
töf slíkt veldur, og getur jafnvel oft
stafað hætta af um hávetur.
Stjórnsemi er eitt af því, sem þegn-
skylduvinnunni er ætlað að koma í
betra horf með þjóð vorri. Má og
vera, að þess gerist full þörf. Ekki er
óhugsandi að þegnskylduvinnan kæmi
þar að liði, ef verkstjórar hennar
væru vel hæfir til starfs síns. Annars
hefur þjóðin litlar upplýsingar fengið
um, hvaða skilyrði helst þurfi til þess
að vera góður húsbóndi. Þar þarf
stjórnsemi og mannhylli að fara sam-
an. Af óreglu og óstundvísi leiðir
margs konar stjórnleysi, og tímatöf á
margan hátt.
Þá er samvinnan. Enginn þarf að
fara í þegnskylduvinnu til þess að
sjá hve nauðsynleg hún er, þó að hún
ef til vill sannfærði menn enn betur
um nauðsyn hennar. Þó hýgg jeg að
flestir geti sjeð og sannfærst um
þetta í sínum eigin átthögum. Annars
er með mörgu því er nefnt hefur ver-
ið margt sameiginlegt. Oft og mörg-
um sinnum hefur þetta verið brýnt
fyrir þjóðinni og allir viðurkenna
sannleiksgildi þeirra kenninga. En
því er þá ekki tekin upp sú regla
að fylgja þeim? Er ekki meðvitund
og viðurkenning einstaklinganna
fyrsta sporið ? Og geti þetta litlu á-.
orkað, er lítil von imi, að lögboðin
vinna geti það fremur.
Þá kem jeg að því atriði, sem verst
er undirbúið af fylgismönnum þessa
máls. Það er kostnaðar- eða fjárhags-
hliðin. Þess er getið til, að í land-
sjóðsþarfir ynnu þeir einir, sem í
Jiegnskylduvinnu yrðu, en samt er
Jiað ágiskun ein. Nóg er til að starfa
í landinu, svo að það gæti vel tekið
á móti margfalt meiri vinnu en nú
er. Mætti Jiví vel hugsa sjer, að nýir
skattar yrðu að leggjast á til þess að
standast Jiann kostnað, er af Jiví
leiddi, og Jiað væri í sjálfu sjer gott,
ef landsmenn treystu sjer til að bera
l>á.
Þá er og talið sjálfsagt, að land-
stjórnin leggi til ferða- og fæðispen-
inga þegnskylduvinnumanna. Samt
er ekkert ákveðið um Jiað, Jió miklar
líkur sjeu til þess að svo yrði.
Enn er ótalin öll sú tímatöf, er
vinnan mundi valda, 0g hún hlyti að
verða mikil með þeim samgöngutækj-
um, sem vjer eigum við að búa. Upp
í þá töf fengi landið að vísu nokkur
aagsverk frá Jieim, sem að jafnaði
ekki stunda líkamlega vinnu, en með
því einu móti væri það hagnaður, að
þeir menn hefðu lítið fyrir stafni þann
tímann, sem þegnskylduvinnan stæði,
en þeir munu tiltölulega fáir.
Þá eru líkur til að allmikið fje
þyrfti til undirbúnings á mörgum
heimilum, þó að burtverutíminn væri
eigi lengri en 8 mánuðir. Engir for-
eldrar myndu kjósa, að sonur þeirra
eða synir yrðu lakast að heiman bún-
ir, er í önnur hjeruð ætti að halda.
Þá eru forstöðumenn vinnunnar.
Hafa flytjendur málsins, það jeg til
veit, litið látið uppi um það, hvort
íslendingar myndu færir til þess, eða
hvar þeir ættu að búa sig undir starf-
ið. Aðallega kæmu þeir örðugleikar
þyngst niður fyrst, en miklu um veld-
ur að „undirstaðan rjett sje fundin“.
En verkstjórarnir þyrftu einnig að
vera færir um að vera andlegir leið-
togar æskulýðsins, svo að hinar ungu
sálir gætu orðið snortnar af Jieim
dygðum, sem ætlast er til að þróist
og dafni í skjóli Jiegnskylduvinnunn-
ar. Margt fleira mætti eflaust um
þetta segja, en að svo stöddu er eigi
tækifæri til Jiess Að endingu ætla jeg
að leyfa mjer að benda á, að mjer
virðist heppilegast, eins og málinu er
nú komið, að stjórnin skipaði nú þeg-
ar nefnd, er tæki J>etta mál til ræki-
legrar yfirvegunar. Gerði áætlun um,
hve margir menn mundu vinna árlega
að þegnskylduvinnunni, og hve mikið
útheimtist til þess að koma henni á
fót, og til að starfrækja hana fyrsta
árið. Best væri og, að nefndin sendi
uppkast að lögum um vinnuna, ef hún
kæmist að þeirri niðurstöðu, að hún
væri til þjóðþrifa. En hverjar sem
ályktanir nefndarinnar yrðu, ætti
hún J>ó að gefa út álitsskjal, er hefði
inni að halda J>ær upplýsingar, sem
unt væri að fá. Þetta þyrfti helst að
komast til framkvæmda svo fljótt, að
mönnum gæfist kostur á að átta sig
á því fyrir kosningar á komandi
hausti. Þá hefðu kjósendur þó nokk-
ura glætu til að átta sig á. Nokkurt
fje hlyti Jietta að kosta, en því tel jeg
ekki illa varið, því nái málið fram
að ganga, gætu verk nefndarinnar
komið Jiingmönnum að góðu liði. En
fjelli það, gæfi það óbornum kynslóð-
um nokkrar leiðbeiningar, sem ef til
vill færu að vekja það upp á ný.
Sumum kann að virðast að litla
þýðingu hefði, þó að nefnd væri skip-
uð til að fjalla um málið, þar sem
þingið tæki það síðar til meðferðar.
En benda má á, að sú aðferð hefur
stundum verið höfð, er um nýmæli
hefur verið að ræða; má Jiar benda
á fræðslulögin. Og ekki virðist ólik-
legt, ef í nefnd þessari sætu menn,
er þingið bæri gott traust til og
reyndir væru að gætni og framsýni,
að þingið ljeti lögin frá sjer fara án
stórvægilegra breytinga.
Að svo stöddu skal enginn dómur
lagður á, hvort þegnskylduvinnan sje
æskileg fyrir þjóðina eða ekki. En
fullyrða má að hún sje ekki Jiess
megnug að bera eins blessunarríka
ávexti og sumir fylgismenn hennar
gera sjer vonir um. Og eins og málið
er enn undirbúið, eru litlar horfur á,
að það beri sigur úr býtum á kom-
andi hausti. En það er þó þess vert,
að Jiað sje rannsakað sem unt er, svo
að atkvæðagreiðslan verði á einhverj-
um rökum bygð. Hvert það mál, sem
fyrir þjóðina er lagt til úrslita, Jjarf
að vera svo greinilega upplýst, að
hver sem vill af alhuga mynda sjer
sjálfstæða skoðun um það, geti það.
Þá fyrst, en ekki fyr, er von um að
kjósendur noti kosningarrjettinn sem
vera ber.
Annars fæ jeg ekki skilið tilgang
þeirra þingmanna, sem fleyttu tillög-
unni út úr þinginu með atkvæði sínu.
Það lýtur helst út fyrir að þeir hafi
gert sjer vonir um að kjósendur væru
svo andlega stefnulausir, að þeir sam-
Jiyktu hvert }>að mál, er fyrir lægi,
án Jiess að vita nokkuð upp eða niður
í því. J.
Nokkrar húseignir
á góðum stöðum í bænum fást keypt
ar nú þegar. Mjög góðir borgunar-
skilmálar. Væntanlegir kaupendur
snúi sjer til SVEINS JÓNSSONAR.
Til viðtals í veggfóðursverslun Sv.
Jónssonar & Co., Kirkjustræti 8, kL
3—6 síðdegis.
Prentsmiðjan Rún.