Lögrétta

Ataaseq assigiiaat ilaat

Lögrétta - 05.04.1916, Qupperneq 3

Lögrétta - 05.04.1916, Qupperneq 3
LÖGRJETTA 59 Verslunarskóli Islands. Eins og auglýst hefur verið, verður inntökupróf til miðdeildar haldið 28. þ. m. fyrir þá, sem þess óska. En það verður einnig haldið á venju- legum tíma næstkomandi haust, í byrjun skólaársins. hag þjóðfjelagsins þótt fjölga'S væri þingmönnum þar. Hrapalleg mótsögn er það hjá hin- um háttv. herra, að hann kveðst ekki telja „heppilegt" aö auka tekjur land- sjóðs meS útflutningsgjaldi, en vill þó leggja skatt á jöröina, sem fram- leiddar eru á hinar útfluttu vörur. Vjer Islendingar komumst alls ekki hjá því, aö kaupa ýmsar nauðsynja- vörur frá útlöndum, og kaupeyrir sá, sem vjer höfum til viöskifta við er- lendar þjóðir, eru afurðir lands og sjávar. Væri nú lagöur skattur á land það, er vjer notum til framleiðslu kaupeyris vors, er skattur sá í raun rjettri útflutningsgjald á vörur þær, er vjer verslum með og að auki skatt- ur á þann hluta framleiðslunnar, er vjer neytum sjálfir. Kenningin um beinan jarðarskatt er því lokleysa ein, bygð á herfilegum misskilningi og hugsunarvillu. Fögur eru orð hins háttv. herra um samúð einstakra manna og einstakra stjetta landsins, og ber sist að efast um, að þau komi frá hjartanu. En ekki skil jeg vel, hvað hann er að fara, þar sem hann gefur i skyn, að almenningur við sjávarsíðuna muni verða að missa af fiskmeti, að lík- indum vegna dýrtíðarinnar. Mjer viröist lítt skiljanlegt að menn við sjávarsíðuna (þ. e. sjómenn) eigi ó- hægra með að leggja sjer fisk til niunns þótt hann sje í háu verði, og að minsta kosti ætti þeim ekki að vera það miklu erfiðara en bændum að neyta kjöts, sem líka er í háu verði móts við það sem vant er. Ef til vill er þetta síldin, sem maðurinn á við, með „fiskmeti“. En einkennilegt er það, að hann hefur alt í einu gert hana „miklu næringarmeiri" en kjöt- ið. Síld hefur í sjer 15 pct. eggja- hvítuefni og 9. pct. fitu, eða alls 24 pct. næringarefna, en kindakjöt 20 pct. eggjahvítu og 6 pct. fitu, eða alls 26 pct. næringarefna. (Niðurl.) Frjettir. Tíð og aflabrögð. Síðan norðan- garðinum lauk hefur verið óstilt veð- ur. Eftir miðja síðastl. viku snjóaði, en síðan kom austanveður, rokhvast, einkum fyrir sunnan land, og hleyptu þá þilskipin mörg inn hingað. Kom svo aftur norðanátt með frosti, en í dag er hláka og rigning. — í Norður- landi er tíð -vond og hagleysur, og latið illa yfir heybirgðum manna í Skagafirði og Húnavatnssýslu, ef þessu heldur lengi áfram. Þilskipin, sem inn hafa komið, hafa aflað vel, hæst „Ása“ (Duus) 15^ þúsund og „Sigríður“ (Th. Th.) 14 þús. Botnvörpungarnir hafa einnig aflað vel. B. Kr. og ísafold. Því er mótmælt í siðustu ísafold, að blaðið hafi „þegið eins eyris styrk“ frá B. Kr. banka- stjóra, og segist blaðið ekki telja það styrk til sin, þótt B. Kr., ásamt fleir- um, ætti að nokkru leyti að launa Sig- urði Hjörleifssyni meðan hann var við ritstjórn ísaf. En við þetta studdi Lögr. ummæli sín í síðasta tbl., því það var alkunnugt orðið af málaferl- unurn, sem út af því hafa risið. Fyrirlestur flutti Har. Níelsson pró- fessor síðastl. sunnudag um afstöðu sma til kirkjunnar. Taldi hann sig nær frumkristninni en presta nú al- ment, og voru það fróðlegar skýring- ar, sem hann gaf í þvi sambandi á ýmsum stöðum í Nýjatestamentinu, en margir kaflar í fyrirlestrinum ljómandi fallegir. Húsið var fult, Bárusalurinn, og urðu margir frá að hverfa. En nú verður fyrirlesturinr, endurtekinn i kvöld. Símaslit. í fyrradag brotnuðu 25 símastaurar á Eyrarbakka í einni röð. Hafði hlaðist ísing á þræðina, en sið- an hvest, en þó ekki mikið. Sam- band er samt komið í lag, en stöðin í bráðina flutt að Litlahrauni. Slys á „Rán“. Botnvörpuskipið „Rán kom inn hingað síðastl. mánu- dagsmorgun með einn af skipverjum örendan. Hafði vörpuvírinn hrokkið upp úr skorðum sinum, er skipið var að veiðum á sunnudagskvöldið i sjó- gangi, lent á höfði mannsins og lost- i? hann til bana. Maðurinn hjet Bene- dikt Jóhannsson, frá Lindargötu 4 hjer í bæuum, ungur maður og efni- lcgur. Skipatjón vestanlands. Mrg.bl. seg- ii þá fregn frá Þingeyri 2. þ. m., að þar sje þa aftakaveður á norðaustan og hafi slupp-skipið „Christian“, eign Proppésbræðra, slitið upp og rekið í land, og sje líklegt talið, að það sje gerónýtt. Einnig hafi þilskipið „Tjalf- inn“ rekið í land á Bíldudal, en það kvað vera lítið skemt. Á Suðureyri við Tálknafjörð strandaði þilskipið „Sigurbjörg“, og „Talisman“, kútter frá Eyjafirði, rak í land á Bíldudal, cg er hann talinn mikið skemdur. Mannskaðinn í norðanveðrinu. — Mennirnir, sem druknuöu á Her- manni frá Vatnsleysu, voru þessir: Sigurður L. Jónsson, 38 ára, kvæntur og átti 3 börn, Helgi Jónasson, 33 ára, kvæntur, átti 2 börn, Jón, bróðir Helga, 23 ára, Jón Runólfsson, 23 ára, Sigurður Gíslason, kvæntur, 58 ára, frá Kletti í Borgarnesi, Svein- björn, sonur hans, 21 árs og Guð- brandur Árnason, 20 ára, frá Mið- dalskoti í Laugardal. — Einnig druknaði maður af vjelbátnum Sæ- borg frá Vatnsleysuströnd, Ögmund- ur að nafni, úr Barðastrandarsýslu. Skipakaup Eyfirðinga. Þess var nýlega getið hjer í blaðinu, að Ásg. Pjetursson kaupm. á Akureyri hefði keypt auk gufuskipsins „Kristjáns IX“ 4 vjelskip til sildveiða, en „Vis- ir“ segir, að hann hafi keypt 3 vjel- skip og einn botnvörpung, er kostaði 160 þús. kr., og sjeu fleiri í fjelagi með honum um hann. Áður átti Ás- geir 2 fiskigufuskip. Enn fremur seg- ir blaðið, að Höfðabræður hafi keypt tvö vjelskip og ætli að byggja bryggju á Kljáströnd og reka þaðan síldveiðar með hringnótum, og einnig hafi Böðvar Jónsson yfirdómslög- rnaður o. fl. keypt vjelskip til síld- veiða. Síðustu fregnir. Skeytin hingað sýna, að viðureign- in stendur enn hjá Verdun með full- um krafti. Síðasta fregnin er sú, að Þjóðverjar hafi tekið kastalann Vaux, sem lengi hefur verið barist um og áð- ur er frá sagt hjer í blaðinu. Áður kom sú fregn, að þeir hefðu í áhlaupi tekið 30 þús. fanga. Englendingar hafa mikið aukið her sinn í Norður- Frakklandi, til þess að Frakkar gætu sent sem mest af liði sínu til Verdun. 9 loftför þýsk höfðu gert árás á England um síðastl. mánaðamót og lenti eitt þeirra niður í Themsá og í höndum Englendinga. En nokkru fyrir mánaðamótin höfðu Englend- ingar gert loftskipaárás á Norður- Sljesvík og Þjóðverjar tekið 1 eða 2 skip, sem í henni voru. Herskip höfðu fylgt þessum loftförum Englendinga og lenti þeim saman við þýska tund- , urbáta vestan við Jótland, en fregnir af því ógreinilegar. — Að austan er sagt að Rússar haldi uppi sókn á ýmsum stöðum, en frásagnir um það óljósar. Á hafinu. Eftir því sem írjettirnar segja, hef- ur skipatjónið verið meira en nokkru sinni áður í ófriðnum eftir að Þjóð- verjar hófu að nýju kafbátahernað- inn 1. mars síðastl. Þeir höfðu nokkru áður sent hlutlausum þjóðum tilkynn- ingu um, að vopnuð kaupskip óvina- þjóðanna yrðu eftir 1. mars þ. á. skoð- uð af þeim sem herskip. Tilkynningin um þetta var birt í aðalmálgagni þýsku stjórnarinnar, „Nordd. Allgem. Zeit.“ 10. febr. Þar er fyrst og fremst gerð sú grein fyrir þessu, að enska stjórnin hafi þegar fyrir byrjun stríðsins gefið enskum útgerðar- mönnum tækifæri til þess að vopna lcaupför sín. 26. mars 1913 hafi þáverandi flotamálaráðherra Englendinga, Churchill, skýrt frá því í þinginu, að flotamálastjórnin hefði hvatt útgerðarmenn hinna stærstu línuskipa til að vopna þau, og 'legði stjórnin til vopn og skotfæri og menn til að stjórna þeim, og væri þetta gert til verndar skipunum. Útgerðar- mennirnir hefðu orðið við þessum til- mælum, og þegar í maí 1913 hefði formaður eins af stærstu útgerðar- fjelögunum tilkynt hluthöfum þess, að stærri gufuskip fjelagsins væru vopnuö. í janúar 1914 hefði flota- málastjórnin enska birt lista yfir 29 flutningaskip ýmsra enskra fjelaga, sem væru vopnuð. Þýsk herskip hefðu þegar i byrjun stríðsins orðið jæss vör, að línuskipin ensku væru vopnuð. Af hálfu ensku stjórnarinnar hefði því vcrið haldið fram, að skip þessi yrðu skoðuð sem hver önnur frið- söm flutningaskip meðan þessi vopn væru að eins notuð til varnar sjálf- um skipunum. Hefði þvi verið lýst skýrt yfir í skjali til Bandaríkja- stjórnar 25. ág. 1914, að ensku línu- skipin hefðu verið vopnuð að eins til varnar sjer, en ekki til árásar á önn- ur skip, og að þau þar af leiðandi mundu aldrei skjóta að fyrra bragði, en að eins svara, er á þau hefði verið skotið. Um vopnuð skip, sem bæru annara þjóða flögg, hefði enska stjórnin aftur á móti gefið út þá reglu, að farið skyldi með þau sem herskip. Nú segir í tilkynningunni, að þýska stjórnin sje í engum efa um, að vopn- uð flutningaskip beri að skoða sem herskip, hvort sem þau sjeu vopnuð til varnar sjer að eins eða jafnframt til árása. Hún gerir því þær kröfur, að þessi skip sjeu látin hlýða sömu lögum og herskip í höfnum hlut- lausra þjóða, en segir, að sumstaðar hafi menn áður aðhylst ensku kenn- inguna um, að hjer væri ekki um her- skip að ræða, en annarstaðar hafi þessi skip orðið að lúta sömu lögum og herskip. Eftir að stríðið hófst, voru fleiri og fleiri ensk flutningaskip vopnuð, seg- ir í tilkynningunni, og hafi þau eigi að eins beitt vopnum til mótstöðu gegn þýskum herskipum, heldur einn- ig gert árásir á þau að fyrra bragði og notaði þá oft fölsk flögg. Skrá sje til yfir slík tilfelli, og hafi skip bandamanna Englendinga tekið þetta eftir þeim. Á skipum af þessu tægi, sem lent hafa í höndum Þjóðverja, hafi fundist fyrirsagnir um vopna- notkunina frá ensku flotamálastjórn- inni, svo sem nákvæmar reglur um árásir flutningaskipa á þýska kaf- báta, og sje þar beint tekið fram, að ekki þurfi að bíða þess, að kafbát- urinn byrji viðureignina. Þessum reglum sje eigi að eins ætlað að gilda á hernaðarsvæðinu kringum England, heldur hvervetna. í tilkynningunni segir þar næst, að þar sem málið horfi þannig við, sje það bert, að óvinaskip, sem vopnuð sjeu, með stórskotatækjum, eigi engan rjett til þess, að með þau sje farið sem friðsamleg herskip. Þjóðverjar muni þvi, er ákveðinn frestur sje liðinn frá birtingu tilkynningarinnar, þ. e. eftir 1. mars, fara að við slík skip svo sem væru þau herskip, og gefi þýska stjórnin hlutlausum þjóð- um þetta til kynna til þess að þær geti varast mannflutninga og vöru- flutninga með þeim skipum. Nú virðist svo sem Þjóðverjar hafi fylgt þessu fram í kafbátahernaði sín- um eftir 1. mars, og er enn komin upp deila um þetta út af því milli þeirra og Bandaríkjastjórnar. En kaf- skip Þjóðverja eru nú sögð miklu stærri og betur búin en í fyrra. Ný- lega höfðu þýskir kafbátar komist inn á höfnina í Havre og sökt þar skipum. Hafa ýms skip frá hlutlaus- um þjóðum farist í þessari nýju rimmu, sem hafin er á sjónum, þar á meðal skip frá Sam. gufuskipafjel., „Christianssund", er fórst á tundur- dufli í Ermarsundi. En Englendingar herða jafnframt mjög á eftirlitinu með skipaferðum hlutlausra þjóða og hugsa sjer nú að taka gersamlega fyrir alla vöru- flutninga til miðveldanna. Er frásögn um það,að því er flutninga tilNorður- landa snertir, x grein E. Briems hjer í blaðinu. Lærisveinn Har. Níelssonar. Kandidat Ásgeir Ásgeirsson hefur farið á stúfana í síðustu Lögrjettu, til þess að bera blak af læriföður sínum, að því er virðist. Bjóst jeg hálft um hálft við því, að hann mundi ekki geta setið á sér, eftir orðum hans að dæma við mig áður. Sjálfur læri- meistarinn dregur sig nú í hlje, en heyrt hef jeg, að hann hafi í sunnu- dags-prjedikun sinni síðustu (í Frí- kirkjunni) boðað söfnuði sínum, að hann mundi hefja ieiðangur gegn mjer á öðrum vettvangi en i dálkum Lögi'jettu !* * Efndirnar á þessu þykist hann víst hafa byrjað með fyrirlestri sínum i Báru- búð 2. þ. m., um „kirkjuna og ódauðleika- sannanirnar". Af tilviljun gat jeg ekki hlustað á hann: Jeg bjóst við því sem sjálf- sögðu, að H. N. sýndi þá algengustu kur- teisi og sendi fnjer aðgöngumiða, I eða 2, að fyrirlestrinum, en það varð ekki og Tek jeg ekki til þess, þótt hr. Ás- geir vilji láta ljós sitt skína, en æski- legra hefði verið, málefnis þess vegna, sem að umræðu hefur verið, að „ljósið“ hefði verið dálítið skýrara, skrif hans ákveðnara og meira snert- andi aðalatriði málsins held- ur en raun ber vitni um. Jeg get ekki bundist þess, að láta það hjer í ljósi, hvað ýmsum finnast sumir af stúdent- um allra síðustu tíma óákveðnir og reikulir í hugsun, eftir þeim kynnum, sem þeir hafa haft af þeim (eða því, sem þeir hafa látið til sin heyra). Þótt gáfur sjeu í góðu lagi, eins og talið er vera um kand. Á. Á., er eins og d ó m g r e i n d þeirra sje ærið ábóta- vant, sem ekki getur komið af öðru en einhverjum skorti á rjettri æfingu. Þetta má og heyra af munni kunn- ugra manna, er meiri mök hafa við þá en jeg. Og ef þessi grundvöllur hefur ekki verið lagður áður, svo að lialdi geti komið, má nú nærri geta, að guðfræðin ein hefur ekki getað bætt þar úr skák. Nýja guðfræðin, með sinu reikanda ráði, virðist ekki sjerlega líkleg til þess — og ekki mun andatrúin, sem blandað er hjer saman við guðfræðina, hafa greind- aukandi áhrif á nemendurna. Er hjer nú eitt lifandi dæmið. Annars var Ásgeir einn af þeim, sem stóðu undir hinu merkilega „vott- orði“, er próf. H. N. birti í Lögrjettu og getið hefur verið um áður, svo að verið getur, að þessi grein hans eigi að þýða það, að hann vilji að því leyti „gera grein fyrir sjer“. Ef allir hinir korna á eftir, má eiga von á uppbyggilegum samræðum. í síðustu grein minni gleymdi jeg að geta þess, að mjer finst það óviðeigandi, úr því guðfræðiskennarinn, presturinn H. N., þóttist þurfa að fá sjer v o 11- o r ð nokkurra manna um það, að hann hefði talað urn Krist „eins og kristnum presti sæmir“(!) — þakka skyldi honum, að hann fer ekki að skamma Krist —, að setja þá alt kvenfólkið hjá, sem þó mun vera í ekki litlum rneiri hluta í „söfnuði" hans. Hr. Á. Á telur mig vera að „lasta“ Har. Níelsson — og sjálfur virðist H. N. álíta, að jeg beri honum það á brýn, sem ekki sje kristnum presti sæmilegt. Einmitt það. Eins og hver getur sjeð (nema líklega þessir „skýru“ menn) hef jeg á engan veg veitst að H. N. persónulega, auð- vitað ekki, heldur að eins talað um kenningar hans og afstöðu þeirra til ákveðinna atriða, og verður það mál ekki hrakið. En þ a ð kalla þeir ,,last“ o. s. frv., eins og geðofsamönnum er títt, aðgætandi ekki, að með því gefa þ e i r til kynna, að sjálfar þess- a r k e 11 n i n g a r sjeu ekki sem sæmilegastar, er þær eru krufðar til mergjar. Eins og gefur að skilja, enda í samræmi við það, sem jeg ein- att hef látið í ljósi, þá er það mín skoðun, að þeir eins og aðrir megi hafa hvaða trú, sem þeir vilja, ef þeir að eins fara með hana svo sem hlýðir. Það er annars eftirtektarvert, hversu þeim er orðið illa við, andatrúar- mönnum og þeirra velunnurum, að nefna orðið a n d a t r ú, þeir kalla það bara „spiritisma“, það útlenda orð er finna og hátíðlegra fyrir fólkið. Jeg get nú ekki gert þeim það til geðs, fremur en annað, að feta í þessi fótspor þeirra. Góðum ís- lenskum orðum held jeg og nota þau, er við á. En líklega er þeim verst við heitið af því, að nú eru þeir alt af að burðast við að heimfæra þetta undir v í s i n d i n (það er svo sem ekki ólukkans „trxx“ eða neitt þess konar, ööru nær!), þótt langt sje fór jeg því ekki á staS til þess að afla þeirra fyr en orðið var um seinan og „alt uppselt" (því að fólkinu finst þetta „spenn- andi“). Þar sem hann notaði þessa „deilu“ okkar að tilefni og hún er farin að verða honum að fjeþúfu, og þar sem þetta átti að vera s v a r til min, hefði ekki verið ósanngjarnt, að mjer hefði verið trygður aðgangur! — Annars gefst mönnum sjálf- sagt tækifæri til að athuga þessa vörn pró- fessorsins nánar,.því að gera má ráð fyrir, að hann muni láta prenta hana. frá, að þetta andahjal þeirra eigi nokkuð skylt við sönn vísindi, því að rjettar sálfræðilegar tilraunir hafa ekki leitt neitt í ljós um anda fram- liðinna. Á. Á. játar nú, að hann hafi ekki kynt sjer andatrúna, og segir hann það víst satt, þvi að orð hans ber þess ljósan vottinn, að hann hefir litla hugmynd um, i hverju hún er fólgin. Samt leyfir hann sjer að segja, að j e g muni henni „litlu kunnugri“, sem hann að sjálfsögðu getur ekkert vitað um (nema þá eftir reglunni, að margir eru gjarnir á að álita aðra sjer jafnfávísa), og sýnir þetta sam- viskusemi hans. Jeg get nú frætt hann um það, að jeg er henni alls ekki ókunnugur (og hef ritað unx hana áður m. a. í „Ingólf“ 1913), þótt lítt hafi jeg tekið þátt í anda- særingunum, sem hjer og á ýmsum öðrum stöðum hafa átt sjer stað. En ekki vantar bókmentirnar, með og mót, og ætti herra Ásgeir að geta átt- að sig á því, enda hafa sjálfir anda- trúarmenn hjer visku sína mest það- an, eins og sjá má af skrifum þeirra. Grunnhygnin er svo mögnuð, að hann fullyrðir ósmeikur, að trúa beri (bet- ur) frásögnum H. N., sem skoðanir sínar byggi á „eigin reynslu og rann- sókn“. Jú, sá hefur nú ekki litla „eig- in rannsókn“ að byggja á! Hjálpi okkur hamingjan. Ef trúa ætti öllu, sem trúgjarn maður þykist sannfærð- ur um, þá býð jeg ekki mikið í skyn- stmina. — Á. Á. hefur þau orð eftir mjer, að jeg segi, að „ókleift“ sje að boða andakuklið sem „sannleik". Þótt lítið sje, þá er hjer úr lagi fært —jeg taldi það „ó 1 e y f i 1 e g t“, þvi vitanlega eru lítil takmörk fyrir því, hvað einhliða æsingamenn sjá sjer „kleift“ að bera fram. Þótt bert sje, ef til vill að vonum, að hr. Á. Á. veit í raun rjettri ekkert um andatrúna, þá er þó enn neyðar- ltgra, að hann virðist, guðfræðing- urinn, líka vaða talsverðan reyk í sjálfum ti'úarlærdómunum, ef það eru þá ekki látalæti ein hjá honum, til þess að geta farið i kringum kjarna málsins. Hann heldur, að kenning- um kirkjunnar og kristninnar um a n n a ð 1 í f sje að öllu fullnægt með þvi, ef það „sannaðist" hjá andatrúar- mönnurn, að þeir næðu sambandi við framliðna menn, og að þannig sje líf til eftir dauðann. Hann hlýtur þó að vita, nema ö 11 u sje nú umhverft orð- ið í lærdómi þeim, sem þulinn er prestaefnum hjer við háskólann ísl., að hin kristna kirkja gerir sjer vissar hugmyndir um lífið eftir dauðann, hið eilífa lífið, himnaríki o. s. frv., sem rnjög er frábrugðið því og a 11 a n n- a ð en það (margt mjög svo hlægi- lega), sem birtist úr heimi „andanna" hjá andatrúarmönnum. Og jeg endur- tek það, sem jeg sagði í fyrstu grein minni, að ekki verður betur sjeð en að það, sem fram kemur „úr hinu lifinu“ á andafundunum, k o 11- v a r p i alveg, e f satt væri, hug- myndum kirkjunnar um eilífðina. — Geta má þess og, sem hr. Á. Á. hlýtur að vita, að í mörgum öðrum trúarbrögðum en kristninni er gert ráð fyrir lífi eftir dauðann, og gætu þá „andasannanirnar" eins stutt þau. En það sjá allir, að enginn gróði getur það verið kristinni trú s e m s 1 í k r i, þótt eitthvað kæmi fram, sem hlæði jafnt undir heiðnar hug- myndir og annarlegar. í annan stað er það nú víst, og ó- mótmælanlegt með rjettum rökum, að s’j e eitthvað orðið þekkjngaratriði einvörðungu, þá getur það ekki leng- ur verið hent til þess að byggja á „átrúnað“ eða „trúarbrögð“, enda verður raunveruleg þekking og trú aldrei sameinað, með þvi að þau hugtök eru gagnstæður. Stoðar þar lítið að vitna í Pál postula. Er Páls er minst, sem hr. Ásg. gef- ur tilefnið til, er rjett að skjóta því inn í, að það sýnir ofboð vel, hverjar hugmyndir nýguðf ræðingar gera sjer um Krist, að Ásg. leggur þýðingu upprisu hans, sem sönnun fyrir framhaldi lífsins, að líku við „sannanir“ þær, sem andatrúarmenn þykjast fá af sambandi sínu við fram- liðna, og vitnar jafnvel um þetta til

x

Lögrétta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.