Lögrétta

Tölublað

Lögrétta - 24.05.1916, Blaðsíða 1

Lögrétta - 24.05.1916, Blaðsíða 1
Ritstjóri: ÞORST. GÍSLASON. Þingholtsstræti 17. Talsími 178. LOGRJETTA Afgreiðslu- og innheimtum.: ÞÓR. B. ÞORLÁKSSON, Bankastræti 11. Talsími 359. Nr. 25. t Skúli Thoroddsen, alþingismaður. Hann andaSist á heimili sinu hjer í bænum síöastl. sunnudag, 21. þ. m., nálægt miöjúm degi. Haföi veriö sjúkur aö undanförnu eitthvaö mán- aöartíma, stundum þungt haldinn, en var talinn á batavegi nokkrum dögum áöur en dauöann bar aö. Banamein- ið var heilablóöfall. Skúli var fæddur 6. janúar 1859 1 Haga á Barðaströnd og bjuggu þá foreldrar hans þar, Jón skáld Thor- oddsen, sýslumaöur Barðstrendinga, og kona hans Kristín Þorvaldsdóttir Sívertsens umboösmanns í Hrappsey. Var Skúli næstyngstur af fjórum sonum Jóns Thoroddsens, en aldurs- munur þeirra lítill. Hann varö stúdent 1879 lögfræöisprófi viö Khafnarháskóla 19. jan. 1884 meö besta vitnisburði. Eftir það var hann stutta stúnd málaflutningsmaöur í Reykjavík, en var settur sýslumaður í ísafjarðarsýsju 25. ág. 1884 og fjekk veitingu fyrir embættinu rúmu ári síðar, 6. nóv. 1885. Var hann sýslu- maöur ísfirðinga nær 11 ár, en var leystur frá embætti 31. maí 1895, aö loknum málaferlum þeim, sem lands- stjórnin haföi átt í viö hann á undan- förnum árum og mikið var um talað á þeim tímum. Hafði Skúli unnið mál- iö fyrir hæstarjetti. Var honum boö- in önnur sýsla, en hann neitaði þeim skiftum, og var þá leystur frá em- bættinu með eftirlaunum. Dvaldi svo á ísafirði nokkur ár áfram, og fjekst við kaupfjelagsskap og verslun, en keypti síðan Bessastaði og fluttist þangað voriö 1901. Á Bessastöðum bjó hann til 1908, en settist þá að hjer í Reykjavík. Þegar Skúli var orðinn sýslumaður á ísafirði, hófust brátt afskifti hans af almennum málum. Gekst hann fyr- ir því með fleirum, að Isfirðingar fengu sjer prentsmiðju og stofnuðu blaðið „Þjóöviljann", er Skúli ritaði í og rjeð mestu um frá upphafi. Varö hann síöar eigandi prentSmiöjunnar, og ritstjóri blaösins frá 1891; en prentsmiðjuna flutti hann með sjer, fyrst aö Bessastöðum og síöan til Reykjavíkur, og gaf „Þjóöviljann" út til sjðustú áramóta, og einnig ýmsar bækur ööru hvoru. Frá 1891 hefur Skúli átt sæti á al- þingi. Var hann fyrst kosinn þing- maöur af Eyfirðingum, 1890, en var fulltrúi þeirra aö eins á einu þingi; bauð sig svo fram í ísafjarðarsýslu og varð þingmaður hennar 1893, og þaö hefur hann verið jafnan síöan, frá 1903 þingmaður Noröur-ísfirö- inEia- Jafnan hefur Skúli staöiö fram- arlega í flokki á alþingi. Hann hafði þingmenskuhæfileika góða, og af löngu stai fi var hann orðinn þing- málum þaulkunnugur. En skiftar eru skoöanirnar um framkomu hans í aö- almálunum,einkum gerðir hans í sam- bandslaganefndinni 1908. Tóku aðrir sjer þær til afnota og fóru ef til vill með á annan veg en hann hefði óskað, enda fór margt í flokki hans úr þessu, eins og kunnugt er, öfugt viö vilja hans óg fyrirætlanir , og mun hann hafa tekið sjer það nærri. Hann var framari af ákafur fylgismaður Bene- dikts heitins Svéinssonar í endurskoö- unarbaráttunni, en eftir 1897 fylgdi hann valtýsku stefnunni, frá 1904 Þjóöræöisflokknum svo nefnda og siðan Sjálfstæðisflokknum, þangaö til á alþírigi 1915. Þá sagði Tiarin sig úr honum og var eftir það útari flokka. Á einu þingi að riiinsta kosti var Skúli forseti sameinaðs þings, ög í fjárlaganefnd hafði hann lengi átt' fast sæti. Annars ljet hann mörg mál til sín taka, sem of langt yrði hjer upp aö telja. En sjerstáklega má nefna kvenrjettindamálin, því í þeim var hann frummælandi ýmsra umbóta bæði á alþingi og í blaði sínu. Meðan Skúli var sýsluriiaður á ísa- firði, hafði hann mjög forustu fyrir Vestfirðingum í hjeraðsmálum og kom þar á ýmsum umbótum, í sam- göngumálum, verslunarmálum 0. fl. og var hann alla tíð vinsæll þar vestra eftir það. Verslun rak hann á ísafirði lengi eftir aö hann fluttist suður, en mun hafa selt hana á síðastl. ári. Á Bessastöðum bygði hann mikið, eða gerði við þær byggingar, sem þar eru, á fyrri árum sínum þar. Á síðari árum naut Skúli sín eng- an veginn til fulls vegna heilsúleysis. Hann kom litið eða ekki á manna- mót, utan þingfundanna þau árin, sem alþingi var háð, en Sat að jafnaði heima. Hann var einrænn maöur i skapi og kappsfullur, en hversdags- gæfur og fáskjftinn. Aldurinn færðist snemma yfir hann. En þaö var eins og liann yngdist i hvert sinn, er al- þingi kom saman. Skúli var kvæntur Theodóru Guð- mundsdóttur prófasts Einarssonar á Breiðabólstað á Skógaströnd, merkis- konu. Lifir hún mann sinn ásamt 12 börnum þeirra, en eitt höfðu þau mist. Börriin • eru: Unnur, gift Halldóri lækni Stefánssyni á Flateyri, Guö- mundur læknir á Húsavík, Skúli cand. jur., Þorvaldur, nú í Ameríku, Krist- ín hjúkrunarkona í Danmörkú, Kat- rin stud. med., Jón, Ragnhildur, Bolli, Sigurður, Sverrir og María, og eru þau yngstu enn á ungum aldri. Skúli hefur komiö nijög við mál landsins um undanfarið 30 ára skeið, og hvernig sem dómarnir falla, þá er það víst, að jnikilhæfum manni og einkennilegum eigum við á bak að sjá við fráfall hans. Reykjavík, 24. maí 1916, Klæðaverslun H. Andersen & Sön. Aðalstr. 16. Stofnsett 1888. Sími 32. Þar eru fötin saumuð flest. Þar eru fataefnin best. I ~---------J Bækur, innlendar og erlendar, pappír og alls- konar ritföng, kaupa allir í Bokaverslun Slgfúsar fyndssonar. Lárus Fjeldsted, Y f irr jettarmálaf ærslumaður. LÆKJARGATA 2. Venjulega heima kl. 4—7 síöd. Túnamælingarnar. Nokkrar bendingar. Þá er svo komiö, að með lögum er ákveðið, að full vitneskja skuli vera fengin árið 1920 um það, hve mikill hluti lands vors sje ræktaður. Um nauðsyn þessa hirði jeg ekki aö ræða hjer, hún er svo augljós; fer hjer að eins nokkrum orðum um fá- ein atriði viðvíkjandi framkvæmd verks þessa. Svo er til ætlast, að jafnframt því sem flatarmál túnanna er reiknað, sjeu gerðir tveir ummáls uppdrættir af túnunum. Annan uppdráttinn fær stjórnarráðið, en hinn jarðeigandi. Á- ætlað er, að verkið kosti 52,000 kr. Árangrinum af öllu því erfiði og fje, er þetta kostar, mætti skifta í tvent. Að fá vitneskju um, hve stórt ræktaða landið er nú, og fá ábyggi- legan grundvöll fyrir síðari mælirig- ar — svo hægt verði t. d. á 20 ára fresti að fá ábyggilega vitneskju um stærð hins ræktaða lands, án þess að mæla annað en aukana frá síðustU mælingu. Virðist mjer sem þeim, sem úm mál þetta hafa talað, hafi verið þetta ljóst, en síður hvað til þess þarf að verkið verði'nægilega ábyggilegt. Við allar landmælingar gildir sú meginregla, að til þess að mæling- arnar sjeu teknar góðar og gildar, verði í þeim að felast trygging á ein- hvern hátt fyrir því, að þær sjeu ékki stórgallaðar. — Við keðjumælingar t. d. þarf að mæla svofeldar aukalínur, að sjeð verði, að mælingin sje í raun og veru rjett, eins og kunnugt er. Þar eð mælingunum á að vera lokið eftir ein fjögur ár, og jafnvel gert ráð fyrir, aö menn þeir, sem verkið hafa með höndum, liafi mælingarn- ar í hjáverkum sínum, við hliðina á venjulegum jarðabótamælingum, og því vafstri, sem þeim fylgir, þá er það augljóst, að næsta margir verða þeir er fást við þessar mælingar. Leið- ii þaö af sjálfu sjer, að full þörf er á, að trygging fáist á einhvern hátt fyr- ir því, að þær verði rjettar mæling- arnar, sem eiga að kosta 52,000 kr. — Næsta örðugt yrði þaö viðfangs, að setja yfirumsjón með mæling- unum; láta menn ferðast um til þess að líta eftir, hvernig mælingarnar vderu framkvæmdar. En fyrst er á það að lita, hvernig á að mæla túnin, hvaða mælinga-aðferð á að nota? Kenslan í landmælingum við búnaðarskólana hefur náð yfir bæði borðmælingar og keðjumæling- ar. Þó mun keöjumælingum hafa ver- iö meiri sómi sýndur, og telja má það víst, að flestir þeir, sem í skólunum hafa verið, geti int þær af hendi svo í lagi fari. Öðru máli er að gegna með borðmælingar. Til þess að geta mælt með borði, svo í lagi sje, og reiknað flatarmál hins mælda lands, þarf mun meiri æfingu, og tel jeg vafa á, að búfræðingar alment geti valdið þeirri XI. árg. Tilkynniug’ Nýjar vörubirgðir er nú komar til V. B. K. af flestum nú fáanlegum — Vefnaðarvörum —■ í fjölbreyttu úrvali. Yegna tímanlegra innkaupa getur verslunin boðið viðskifta- mönnum sínum þau bcstu kaup, sem völ verður á í ár. Ennfremur hefur verslunin: Fappír cg ritföng’, Sólaleður og’ skósmídavörur. Vandaðar vörur. Qdýrar vörur. Verslunin Björn Kristjánsson, Reykjavík. aðferð. — Að mæla túnin með stiku að eins, verður eigi talið annað en verkleysa, sem ekki er takandi í mál. Þó örðugt sje mjög víða að koma keðjumælingunni við, vegna halla og mishæða, þá verður ekki annað sjeð, en að það verði aðalaðferðin sökum þess að almenna kunnáttu vantar i öðrum aðferðum, Get jeg ekki stilt mig um að minn- ast hjer á eitt atriði viövíkjandi land- mælingum, sem jeg hef oft heyrt menn bollaleggja um í mestu alvöru, þó öllum, sem bera nokkurt skyn á landmælingar, þyki slíkar rökræður næsta hjákátlegar: Á að mæla lárjett- an flöt landsms, eða yfirborösflötinn, þ. e. mæla eftir brekkum og mis- hæðum, láta mælinguna fylgja yfir- borðinu, eða mæla lárjett hversu mik- iö sem yfirborðið hallast? — Lögin mæla svo fyrir, að gera skuli upp- drætti af ummáli túnanna. Þar eð mælingin á að vera svo fullkomin, að eftir henni sje hægt að gera um- málsdrátt, þ. e. draga upp mynd af flatarmáli túnanna, þá liggur það í hlutarins eðli að ekki er hægt að draga upp mynd á lárjettan flöt, ef mælt er eftir mishæðum, Fjölyrði ekki frekar um þetta. Lítum þá frekar á ákv. laganna um ummálsuppdráttinn. Svo er til ætlast að hann sje til þess, að bæta megi við mælingu túnanna er Jiau stækka, án þess að mæla það, sem mæít liefur verið áður, svo og að fá tryggingu fyrir þvi, aö túnin sjeu i raun og veru mæld. En ekki er minst einu orði á, að mælingamenn eigi að leggja fram mælingabækur þær, er innihalda mæl- ingarnar á landinu. Þegar Búnaðar- fjelag íslands ljet gera tilraunamæl- ingarnar haustið 1914, var ekki held- ur minst á, að láta mælingabækur fylgja mælingunum. Má vera, aö slíkt ákvæöi þyki frekar eiga heima í reglugerð þeirri, er semja skal um nánari tilhögun mælinganna. En við- vaningum mun þykja það næsta ó- nauðsynlegt, að láta þær bækur fylgja, ef að eins uppdrátturinn er gerður. Það var líka almenn venja fyrir einum 60—70 árum, að gera uppdrættina eftir mælingabókunum 1 og hirða ekki um þær siðan. — En síðustu 50 árin hefur það verið algild regla við landmælingar, að taka mæl- ingabækurnar sem aðalheimildir fyr- ir mælingunum, en telja uppdrættina aukaatriði. Ætti þaö að vera öllum auðskilið. Mælingarnar standa skýr- úm stöfum i bókunum, og eftir þeim tölum, sem þar standa, er aðallega reiknuð stærð landsins. Hve nákvæm- lega og snyrtilega uppdrættir lands- ins eru gerðir, er aukaatriði, þegar mælt er aðallega til þess aö fá vit- neskju um stærð landsins. Á meðan bækurnar eru til, má draga mæling- arnar upp eins nákvæmlega og eins oft og vera vill. Sú krafa er gerð til allra þeirra er við landmælingar fást, að þeir skili mælingabókum þannig úr garði gerð- um, að hver og einn, sem landmæl- ingar kann, geti með þeim einum gert uppdrátt af landinu, án þess að hann hafi landið fyrir sjer. Til hægðarauka fyrir liann er þó gert ráð fyrir aö handriss af landinu fylgi bóki^ini, er sýni á hvern hátt mælingalínurn- ar eru lagðar um landið. Allmjög er það óskyld vinna, að mæla lánd jog gera uppdrætti eða reikna flatarmál þess. Álít jeg það muni hjer hagkvæmast, að öðrum verði falið að gera uppdrættina og reikna flatarmálið, en þeim er mæla. Að mælingarnar (þ. e. mælingabækur með handrissum) yrðu sendar lands- stjórninni að haustinu til, og sjeð yrði um að dregin væru upp túnin og stærð þeirra reiknuð að vetrinum. Þær áf mælingunum, sem ekki þættu hæfar til að gera uppdrætti eftir, ýrðu svo áf sjálfu sjer dæmdar ógildar og mæl- ingamaður yrði að mæla þaú tún næsta sumar kauplaust. Á þennan hátt fæst trygging fyrir. því, að verkið yrði almennilega af hendi leyst, yrði í raun og veru á- byggilegt, trygging gegn því, að stór- villur væru í mælingunum; sje mæl- ingin á annað borð fullkomin, þá geta villur ekki farið fram hjá þeim, sem dregur upp; og þá hljóta mælinga- menn að gera sjer far um að inna verkið vel af hendi. Á ummálsreikn- ingunum einum er algerlega ómögu- legt að sjá, hvort mælingunum hefur verið hroðað af, að eins einhver mynd verið á þær sett; en bækurnar bera með sjer fremur öllu ööru, hvé ná- kvæmlega verkið hefur verið af hendi leyst, þar standa gallar og hroð- virlfni berskjölduð fyrir allra augúrn. Auðsætt er aö miklum mun verður það kostnaðarminna að vanir menn í Reykjavík geri uppdrætti túnanna og reikni flatarmál þeirra. Hægt verður þá að nota fullkomnari verkfæri, er trauðlega verða notuö af mæl- ingamönnum víðsvegar úti um land. Við útreikning flatarmálsins yrði notaður reikningskvarði (Regne- stok) og flatarmælir (Planimeter) er ljetti vinnuna að mun, jafnframt því sem reikningurinn yrði rjettari. — Augljóst er og, að ummálsteikning- arnar einar yröu næsta ónógar þeim, er eiga að mæla túnaukana seinna meir. Setjum okkur í spör manns, sem stendur með 20 ára gamlan uppdrátt af túni og á að mæla aukana. Hann getur átt örðugt með að sjá, hvar lin- urnar á pappírnum eiga heima á land- inu, ef ekki eru tilfærðir ákveönir staðir á uppdrættinum, sem eiga heima á ákveðnum stööum á landinu. Þar kæmi handrissið í góðar þarfir. Á því er hægt að sýna, hvernig á- kveöin lina í túninu liggur á milli tveggja ákveöinna staöa. Til þessa mætti velja bæjarhorn eða bæjar- bustir, jarðfasta steina, fjárhús- horn 0. s. frv. Geti mælingamaður- inn ákveðið hvar mælingalína lá i túninu, þá er fyrst hægöarleikur að mæla aukana.

x

Lögrétta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.