Lögrétta - 28.06.1916, Síða 1
Ritstjóri:
ÞORST. GÍSLASON.
Þingholtsstræti 17.
Talsimi 178.
LOGRJETTA
Afgreiðslu- og innheimtum.:
ÞÓR. B. ÞORLÁKSSON,
Bankastræti II.
Talsimi 359.
Nr. 31.
Reykjavik, 28. júni 1916.
XI. árg.
Kosninga-leiðbeining'ar
við landskosningar 5. ágúst 1916.
Ivjörseðillinn lítur þannig út:
A-listi B-Iisti C-listi D-listi E-listi F-listl
Hannes Hafstein 0. s. frv. Sigurður Eggerz 0. s. frv. Erlingur Friðjónsson 0. s. frv. Sigurður Jónsson 0. s. frv. Einar Arnórsson 0. s. frv. Jósef Björnsson 0. s. frv.
Kosning fer fram á þann hátt, að kjósandi markar kross, rjettan kross eða skákross, framan við bókstaf þess lista á
kjörseðlinum, sem hann vill gefa atkvæði, þannig t. d.
X A-listi B-listi C-lísti D-listi E-listi F-llsti
Hannes Hafstein 0. s. frv. Sigurður Eggerz 0. s. frv. Erlingur Friðjónsson 0. s. frv. Sigurður Jónsson 0. s. frv. Einar Arnórsson 0. s. frv. Jósef Björnsson 0. s. frv.
ef A-listinn er sá listi, sem kjósandi ætlar að kjósa. Vilji hann breyta nafnaröðinni á lista sinum, skal hann setja töluna 1
fyrir framan það nafn, sem hann vill hafa efst, töluna 2 fyrir framan það nafn, sem hann vill láta vera annað i röðinni,
o. s. frv. — Leggur kjósandi svo seðilinn saman í þau brot, sem hann var i, og stingur honum niður í atkv. kassann.
Nota skal blýant, sem á að liggja á borði því i kjörklefanum, sem kjósendum er ætlað að skrifa við.
Kjörseðill verður ógildur, ef bert verður við talning atkvæða, að kjósandi hefur:
1. Sett kross við fleiri eri einn listabókstaf, eða tölumerkt nöfn á fleiri listum en einum, 2. bætt nafni eða nöfnum við
á lista, 3. skrifað nafn sitt á seðilinn, 4. sett á hann strik eða rispu eða önnur slík einkenni, er ætla má að gert sje til þess
að gera seðilinn þekkjanlegan, 5. notað annan seðil en kjörstjórnin hefur afhent honum.
Haíi kjósandi í ógáti merkt seðil rangt, má hann skila þeim seðli til kjörstjórnar og fá hjá henni nýjan seðil.
F’lest meðmæli, bæði karla og kvenna, fylg-ja. A-listanum.
Klæðaverslun
H. Andersen & Sön.
Aðalstr. 16.
Stofnsett 1888. Sími 32.
Þar eru fötin saumuð flest.
Þar eru fataefnin best.
L- — J
innlendar og erlendar, pappír og alls-
konar ritföng, kaupa allir í
fiökaverslun Slgfúsar Eymundssonar.
Lárus Fjeldsted,
Y firr jettarmálaf ærslumaður.
LÆKJARGATA 2.
Venjulega heima kl. 4—7 síöd.
Aðalfundur
r
Eimskipafjelags Islands.
Fundargerð og fundarskjöl.
Ár 1916, föstudaginn 23. júnímán.,
var haldinn aöalfundur Eimskipafje-
lags fslands samkvæmt auglýsingu
útgefinni af stjórn h.f. Eimskipafje-
lags íslands 23. des. f. á. Var fund-
urinn haldinn í IönatSarmannahúsinu
í Reykjavík og settur kl. 12 á hád.
af formanni stjórnarinnar, Sveini
Björnssyni yfirdómslögmanni. Stakk
hann upp á fundarstjóra Eggert yfir-
dómara Briem og var fundurinn því
samþykkur. Tók hann þá viö fund-
arstjórn og kvaddi til fundarskrifara
Gísla Sveinsson yfirdómslögmann.
Fundarstjóri lagöi fram þrjú eint.
af Lögbirtingablaöinu með fundar-
auglýsingu, sömuleiöis eitt eintak af
blööunum Vestra og Suðurlandi, enn-
fremur vottorö frá bæjarfógetunum
á Akureyri og Seyðisfirði (símvott-
orö) um aö fundurinn hefði veriö
birtur í blöðunum á þeim stööum, og
eitt eint. af blaðinu Heimskringlu
meö birtingu fundarboös. Skjöl
þessi voru merkt nr. 1—7.
Fundarstjóri lýsti fundinn löglega
boðaðan með tilliti til framlagöra
skjala og samkv. 8. gr. fjelagslag-
anna. —: Lagði fram skýrslu ritara
stjórnarinnar um afhenta aögöngu-
miöa að fundinum, sem uröu fyrir
hlutafje alls kr. 698,675.00 eöa at-
kvæöi 14338. Skýrslan merkist nr. 8.
Hún er svohljóðandi :*
„Skýrsla um afhending aögöngumiða og
atkvæðaseðla til aðalfundar H.f. Eim-
skipafjelags íslands 23. júní 1916:
I. Landssjóður: hlutafje 4000,000, atkv.
4099. II. Vestur-íslendingar: hlutafje
67,700, atkv. 1000. III. a. Hluthafar sam-
kvæmt upphafl. útboði kr. 212,825; b. Hlut-
hafar samkv. hlutaútboði 4. sept. 1915 kr.
18,150 — kr. 230,975, atkv. 9239. Samtals
hlutafje kr. 698,675, atkv. 14338. — Reykja-
vik 23. júní 1916. O. Friðgeirsson, p. t.
ritari."
Lýsti fundarstjóri fundinn lögmæt-
an samkv. 7. gr. fjelagslaganna, einn-
ig til lagabreytinga samkv. 15. gr.,
þar sem svo bæri að skilja lögin, aö
* Skjölum fundarins, svo sem þessu og
fleirum siðar, er skotið hjer inn í fundar-
gerðina.
miöa ætti við afhenta aögöngumiöa,
en eigi mætt atkvæöi, og meira en
nægilegt væri afhent af miöum.
Var þá gengið til dagskrár fund-
arins og tekinn fyrir 1. liður, svo
hljóöandi:
Stjórn fjelagsins skýrir frá hag
þess og framkvæmdum á liðnu starfs-
ári, og frá starfstilhöguninni á yfir-
standandi ári, og ástæðum fyrir
lienni, og leggur fram til úrskurðar
endurskoðaða rekstursreikinga til
31. des. f. á. og efnahagsreikning með
athugasemdum endurskoðenda, svör-
um stjórnarinnar og tillögum til úr-
skurðar frá endurskoðendum.
Tók þá til máls formaður stjórnar-
innar Sveinn Björnsson yfirdómslög-
maður.
Las upp og lagði fram brjef frá
Vestur-íslendingum (um tilnefning í
stjórnarnefnd og útnefnda umboðs-
menn m. m.), svo og símskeyti vest-
an um haf um innkomið hlutafje;
voru skjölin merkt nr. 9—10. Þau
eru svohljóöandi:
„Winnipeg, 15. maí 1916. Herra Sveinn
Björnsson, formaður Eimskipafjelags ís-
lands, Reykjavík, Iceland. — Háttvirti
herra. Vestur-íslenska hlutasölunefndin
hefur á fundi dags. 11. þ. m. falið mjer
að tilkynna yður og stjórnarnefnd fjelags-
ins, 1. á kjörfundi þeim, sem vestur-ís-
lenskir hluthafar hjeldu hjer í Winnipeg
þsnn 16. febr. s. 1. voru eftirfylgjandi
fjórir menn kosnir til setu í stjórnarnefnd
Eimskipaf jel. íslands: Árni Eggertsson
með 3172 atkv., B. L. Baldvinsson með
2734 atkv., John J. Bíldfell með 2642 atkv.
og Ásmundur P. Jóhannsson með 1242
atkv. Töldust þá kosnir þeir tveir menn,
sem flest atkvæði hlutu, hinir til vara.
2 Vegna fjárhagslegra og annara ófyrir-
sjáanlegra örðuleika hjer, stafandi af Ev-
rópustríðinu, getur enginn þeirra, sem kosn-
ir voru, sótt ársfund fjelagsins á þessu
ári. 3. Það hefur því orðið að ráði, að
vestur-íslenskir hluthafar kjósa til þess
fyrir sína hönd að mæta á ársfundi fje-
lagsins í næsta mánuði þá herra Þórhall
Bjarnarson biskup og Magnús Sigurðsson
lögfræðing, báða búsetta í Reykjavík, og
verður biskupi sent umboðsbrjef þeirra og
kjörseðlar samtimis sendingu þessa brjefs
til yðar. Jeg þarf tæpast að taka það fram,
hve sárt oss samverkamönnum yðar hjer
vestra fellur það, að geta ekki sent yður
hjeðan málsvara á ársfundinn til þess
bæði að kynnast ítarlega starfrækslu og
hag fjelagsins og framtíðarhorfum þess,
og þó ekki síður að votta með nærveru
vorri þar hlýhug vorn til fjelagsins og með
bróðurlegri samvinnu að leggja vorn skerf
úrlausnar þeirra vanda og velferðar-
mála þess, sem framtíð þess verður að
byggjast á og sem væntanlega verða
leidd til lykta á fundinum. — En jafn-
framt vil jeg þó líka taka fram, að
vjer hjer berum hið fylsta traust til
stjórnenda fjelagsins og vitum að þeir, af
allri einlægni beita sínum miklu og góðu
hæfileikum til þess, við ljós þeirrar reynslu
sem þeir þegar hafa aflað sjer við starf-
rækslu þess, að tryggja svo stofnun þessa,
að hún megi halda áfram að þroskast og
eflast til varanlegra heilla fyrir þjóðar-
heildina, alt eins og þá, sem lagt hafa fje
td hlutakaupa í henni. — Með einlægri
v.irðingu. B. L. Baldvinsson, ritari. —
Lesið og samþykt. Árni Eggertsson, for-
seti.“
„Sveinn Björnsson, Rvík. Ten thousand
eighty dollars on hand Completes two
hundred thousand Kroner rate three eighty.
Thorsteinsson."
Meö atkvæöi Vestmanna fara hjer
á fundinum biskup Þórh. Bjarnarson
og Magnús iögm. Sigurðsson. Land-
ritari fer meö atkvæöi landssjóÖ6.
Formaður lagöi fram skýrslu stjórn-
arinnar prentaða um hag fjelagsins og
framkvæmdir frá stofnun 17.-22. jan.
1914 til ársloka 1915 og starfstilhög-
unina á starfsárinu 1. jan. til 31. des.
1916. Skýrslan var merkt nr. 11.
Fór formaður i ræöu sinni yfir aö-
alkafla hennar. Endaði hann ræöu
sína með þakklæti til gjaldkera fje-
lagsstjórnarinnar fyrir lán, ókeypis, á
fundarstað handa stjórn fjelagsins,
þakkaði einnig öörum, er hlynt heföu
að fjelaginu á margvíslegan hátt.
Þá tók til máls gjaldkeri fjelags-
stjórnarinnar, Eggert Claessen yfir-
dómslögmaður. Lagöi fram reikn-
inga fjelagsins og fór um þá nokkr-
um orðum. Hinir framlögöu reikn-
ingar merktir nr. 12. Kvaðst gjald-
keri skilja svo tillögur endurskoð-
enda í hinum framlögðu reikningum
á bls. 41, um vaxtareikninginn, að
ekki þyrfti að geta hins athugaða at-
riðis á aðalreikningum fjelagsins,
heldur í bókum þess, * en við þær
ættu endurskoðendur einungis.
Til máls tók þá af hluthöfum
kaupm. B. H. Bjarnason, þakkaöi
hann stjórninni fyrir starf hennar
og glögga reikninga, og lagöi til aö
reikningarnir yröu þegar samþyktir.
Endurskoöandi Ó. G. Eyjólfsson
kaupmaður skýrði frá, áð skilningur
gjaldkera á tillögu endurskoðenda
um vaxtareikninginn sje rjettur.
Þá bar fundarstjóri upp reikninga
fjelagsins ásamt tillogum endurskoð-
enda til úrskurðar fundarins og lýsti
því, aö enginn ágreiningur væri um
þá milli stjórnar og endurskoðenda
fjelagsins. Voru reikningarnir sam-
þyktir í einu hljóði.
Þá borin upp tillaga um að þakka
stjórn fjelagsins fyrir framkvæmdir
bennar. Samþykt í einu hljóöi og meö
lófaklappi á eftir.
Var þá næst tekinn fyrir 2. liöur
á dagskránni þannig hljóöandi:
Tekin ákvörðun um tillögu stjórn-
arinnar um skifting ársarðsins.
Tók fyrstur til máls Eggert Claes-
sen yfirdómslögmaöur og mælti með
tillögu stjórnarinnar. Hún er svo-
hljóðandi:
„Tillaga um skifting ársarðsins: Frá fje-
lagsstjórninni: Hreinum arði eftir árs-
reikningi kr. 101,718.16 að frádregnum neð-
angreindum kr. 43,194.21 — kr. 58,523.95,
— skal skift þannig: a. í endurnýjunar- og
varasjóð leggist ,kr. 25,580,54, b. stjórn-
endum fjelagsins sje greitt í ómakslaun
alls kr. 3,500.00, c. endurskoðendum fje-
lagsins greiðist í ómakslaun alls kr. 1,000.00
og d. hluthöfum fjelagsins greiðist í arð
4 pct. af hlutafje því, er rjett hefur til
arðs kr. 711,085,17, kr. 28,443,41, — Sam-
tals kr. 58,523.95. — Aths.: Fjelagsstjórnin
hefur samkvæmt 22. gr. fjelagslaganna á-
kveðið að verja ofangreindum kr. 43,194.21
til frádráttar af bókuðu eignaverði fje-
lagsins sem hjer segir: a. Á e. s. Gullfossi
kr. 22,000.00, b. á e.s. Goðafossi kr. 18,000.00
og á stofnkostnaði kr. 3,194.21. — sam-
tals kr. 43,194.21.“
Kaupmaöur B. H. Bjarnason lagöi
til aö enginn aröur yrði nú útborg-
aður hluthöfum, en þóknun yrði
greidd framkvæmdarstjóra fyrir vel
unniö starf. Þá talaði Sveinn Björns-
son með tillögum stjórnarinnar. Enn-
fremur töluöu Pjetur ólafsson kon-
súll, L. H. Bjarnason prófessor (af
hálfu endurskoöenda), Ragnar Ólafs-
son konsúll frá Akureyri, Bjarni
Jónsson frá Vogi og Pjetur Pjeturs-
son frá Akureyri. Þessir ræðumenn
töluðu einnig meö þóknunargreiðslu
til framkvæmdarstjórans.
Fundarstjóri gat þess, aö fjelagS-
lögin banni aö greiða framkvæmdar-
stjóra sjerstakan arö (tantiéme),
heldur yröi að beina tillögu um þaö
til stjórnar fjelagsins, aö honum yrði
þóknun greidd.
Þá var tillaga frá B. H. B. um aö
útborga hluthöfum engan arö aö
þessu sinni, borin undir atkvæöi
fundarmanna og var feld með öllum
þorra atkvæða.
Tillögur stjórnarinnar hjer aö lút-
andi er að finna i framlögðum, og
merktum nr. 13 a—e, tillögum frá
stjórn og öörum (aðaltillögum) með
viðfestri dagskrá fundarins; hafa
þessi skjöl veriö lögö fram á skrif-
stofu fjelagsins og áteiknuö um þaö
og stimpluð..
Stjórnartillögurnar á 13 a, um
skiftingu ársarðsins, voru þá bornar
Hlutafjelagið ,Völundur‘
íslands fullkonmasta trjesmíðaverksmiðja og timburverslun
Reykj a vík
liefur venjulega fyrirliggjandi miklar birgðir af sænsku timbri, strikuðum
innihurðum af algengum stærðum og ýmislegum listum.
Smíðar fljótt og vel hurðir og glugga og annað, er að húsabyggingum
lýtur.
| Tilkynnmg
Nýjar vörubirgðir er nú komar til
V. B. K.
af flestum nú fáanlegum
— Vefnadarvörum —-
í fjölbreyttu úrvali.
Vegna tímanlegra innkaupa getur verslunin boðið viðskifta-
mönnum sínum þau bestu kaup, sem völ verður á í ár.
Ennfremur hefur verslunin:
Pappír cg ritföng,
Sólaleður og skósmídavörur.
Vandaðar vörur. Odvrar vörur.
Verslunin Björn Kristjánsson, Reykjavík.