Lögrétta

Útgáva

Lögrétta - 12.07.1916, Síða 1

Lögrétta - 12.07.1916, Síða 1
Ritstjóri: ÞORST. GÍSLASON. Þingholtsstræti 17. Talsími 178. LOGRJ i TTA AfgreiSslu- og innheimtum.: ÞÓR. B. ÞORLAKSSON, Bankastræti 11. Talsími 359. Nr. 33. Klæðaverslun H. Andersen & Sön. Aðalstr. 16. Stofnsett 1888. Sími 32. Þar eru fötin saumuð flest. Þar eru fataefnin best. Bækur, innlendar og erlendar, pappír og alls- konar ritföng, kaupa allir i Bókavnlon Siolósar Eymundssonar. Lárus Fjeldsted, Y f irr jettarmálaf ærslumaður. LÆKJARGATA 2. Venjulega heima kl. 4—7 sítSd. Landskosningarnar. Eitt af meinum alþingis á undan- förnum árum hefur verið þaS los, sem komiS var á flokkaskipunina þar, sífeldar myndanir smáflokka, sem skriðiö hafa saman um stund, en sundrast svo aftur. Reynslan hef- ur sýnt, aö þessi margskifting þings- ins er mjög svo óheppileg og lamar starfsemi þess og landsstjórnarinnar. Hjer i blaöinu hefur því á«ur verið haldið fram, að kjósendur landsins ættu að keppa að þvi við kosning- arnar nú í ár, að eyða þessum glund- roða í þinginu, og reyna að skapa sterkan meirihluta samhentra manna, sem tekið geti að sjer fulla ábyrgð á stjórn landsins og framkvæmdum á komandi árum og sje myndaður með samvinnu milli allra stjetta landsins, en ekki þannig, að þær rísi upp hver á móti annari. Líka hefur verið sýnt fram á það áður, að Heimastjórnarflokkurinn er eini grundvöllurinn á stjórnmálasviði okk- ar nú sem stendur, er hægt sje að reisa á sterkan stjórnmálaflokk. En þetta tvent, sem hjer er bent á, ætti að vera Heimastjórnarmönnum sterk hvöt til þess að halda fast sam- an við kosningarnar i ár, bæði um landslista sinn og svo við kjördæma- kosningarnar á næsta hausti. Blöðin eru nú einkum að ræða landskosningarnar, og ýms af þeim hafa gert að umræðuefni grein Lögr. um þær frá 19. júní. ,„Landið“, málgagn þversummanna, er mjög svo reikult i skoðunum á því, hvað skifta eigi kjósendum við kosningarnar. 16. júní sagði það, að ekki gæti kömið til greina önfiúr skifting en í tvo flokka: höfðingja- valdsflokk og alþýðuvaldsflokk. í höfðingjavaldsflokknum áttu að vera embættismenn, einkum reykvíkskir, og svo eitthvað af kaupmönnum, að því er mönnum skildist. En allir aðr- ir áttu að vera í hinum flokknum, abir bændur, sjómenn, iðnaðarmenn, verkamenn o. s. frv., — og þarna ætluðu þeir svo að hola sjer niður þversummanna-höfðingjarnir, i þess- nm ekki óálitlega meirihluta, og ganga svo milli bols og höfuðs á l'.öfðingjavaldsflokknum, sem í áttu að vera, eftir þeirra eigin kenningu, 1 mesta lagi nokkrir tugir manna. Svona var nú hugmyndaflugið hjá þeim 16. júnt. En mönnum gatst ekki sem best að greininni, að minsta kosti ekki hjerna í nágrenninu við höfund- ana, því þar er það kunnugt, að flokksstjórn þversummanna og útgef- endur „Landsins" eru hópur meira og minna hálaunaðra embættismanna og kaupmanna í Reykjavík. Greinar af sama tægi og þessi „Lands“-grein voru mjög á flakki í bloðum Sjálfstæðisflokksins fyrir kosmngarnar i9II, þegar fjokkurinn Reykjavík, 12. júli 1916, Myndin er af Shackleton heimskautafara og skipi hans, „Endurance“, sem hann misti í ísnum eins og áður hefur verið frá sagt hjer i blaðinu. beið mestan ósigurinn, svo að þær virðast ekki vera sjerlega sigurvæn- lcgar, ’ eftir reynslunni þaðan að dæma. Enda virðist „Landið“ hafa áttað sig á þessu síðan, því 7. þ. m. hefur það alveg kastað fyrir borð kenningum sínum frá 16. júní. Það segir nú, að skoðanirnar um sambandið út á við eigi að skifta rnönnum við kosningarnar, alveg eins og áður, — það eigi að ráða, hvort menn sjeu „dönsku stjórnarinnar megin í stjórnmálabaráttu landsins", eða ekki. En sömu mennirnir sem þetta segja nú, hafa áður sent út feit- letruð ávörp til landsmannameð þeirri yfirlýsingu efst á blaði, að stjórnar- baráttuna við Dani vildu þeir alveg fella niður og snúa sjer að innan- landsmálunum. Nei. Þessi síðari skýring „Lands- ins“ á flokkaskiftingunni dugar ekki tii frambúðar, fremur en sú fyrri. Það verður að fitja upp enn að nýju og búa til þá þriðju. Gamla flokkaskiftingin á ekki rjett á sjer lengur. Það finna allir. Þvi gömlú flokkadeilumálin liggja ekki fyrir nú og engin líkindi til að þau komi upp aftur fyrst um sinn. Allar breytingar á sambandinu út á við eru nú í nýju stjórnarskránni bundnar við þjóðaratkvæði, svo að þær horfa líka af þeirri ástæðu öðruvísi við þingi og þingkosningum en áður. En þar sem talað hefur verið frá hálfu Heimastjórnarflokksins hjer í blað- inu um tilveruþörf hans og samheldn- isþörf innan flokksins, þá hefur ver- iö bent á stefnu hans og framkvæmd- ir i innanlandsmálunum það tímabil, sem hann hafði ráðin og var í meiri hluta á þingi. Samt er það enn ó- breytt og föst skoðun Heimastjórn- armanna, að þeir hafi haft rjett fyrir sjer í sambandsmálsdeilunni frá upp- hafi, en hinir rangt, og hitt er víst, að það, sem áunnist hefur, er eink- um þeirra verk. „Dagsbrún“, verkmannamálgagn- inu, hefur orðið allskrafdrjúgt um landskosningagrein Lögr. frá 19. þ. m.Hún er engan veginn ánægð með það, að Lögr. viðurkenni rjett verk- manna til þess að eiga fulltrúa á alþingi, þar sem verkmannafulltrú- inn á lista Heimastjórnarmanna sje settur í 7. sætið þar, og hefur blaðið bæði nú og oft áður talað um þetta af litlum skilningi. Er því ekki úr vegi að minnast á það með nokkrum orðum. Og „Dagsbrún" er þá fyrst og fremst það að segja, að Heima- stjórnarflokkurinn er ekki og ætlar sjer ekki að verða verkmannaflokk- ur. Hann er ekki og vill ekki vera flokkur einnar stjettar í landinu fremur en annarar. En hann er verk- mannaflokknum og verkmannahreyf- ingunni á engan hátt mótfallinn og viðurkennir rjett verkmanna til þess að eignast talsmenn í þinginu i hlut- falli við fjölmenni þeirra. Af þeirri ástæðu hefur hann tekið fulltrúa ur verkmanna flokki á landslista sinn. Sjeu verkmenn í Heimastj.flokknunr svo margir, að þeir eigi rjett á að ná fulltrúa við landskosningarnar, þá geta þeir það með því að setja eitt tölumerki við nafn þessa manns á Hstanum, hvar sem það stendur á hon- um, svo að með þessu hefur Heima- stjórnarflokkurinn gert skyldu sína í þessu efni gagnvart þeim hópi kjós- enda sinna, sem telst til verkmanna. Hann hefur gefið honum tækifæri til þess að neyta þess fjölmennis, sem hann hefur á að skipa, til þess að koma að manni úr sinni stjett, ef hann vill. En þetta hefur enginn hinna flokkanna fjögra, sem að landslist- unum standa, gert, og er merkilegt, að einmitt þetta skuli hvað eftir ann- að hafa orðið „Dagsbrún“ að árása- efni á Heimastjórnarflokkinn. Lögr. benti á það áður, að verk- menn væru betur settir í þinginu til þess að vinna áhugamálum sínum gagn, ef þeir ættu talsmenn innan einhvers sterkari flokks þar, t. d. Heimastjórnarflokksins nú, heldur en þótt þeir'hjeldu þar uppi sjerstökum flokki, óvinveittum öðrum flokkum þingsins, en svo fámennum að hann gæti þar engu fram komið. Höf. „Dagsbrúnar“-greinarinnar, sem hjer er um að ræða, kveðst vera sömu skoðunar um þetta, að „svo framar- lega sem þess hefði verið nokkur kostur, þá hefði verið langbest að vinna með öðrum flokki að þessu sinni“. En hann segir afstöðu verk- mannaflokksins til hinna flokkanna þannig, að þetta sje ómögulegt, og að mörg dæmi væri hægt að nefna því til sönnunar. Er það næsta undarlegt, ef satt væri, í landi þar sem stjett- arfjelagsskapur meðal verkmanna getur varla talist eldri en svo sem ársgamall. Höf. er líka fátækur að dæmurn rnáli sínu til sönnunar. Hann skýrir frá, að neðri deild alþingis hafi á síðasta þingi samþykt áskorun til stjórnarinnar um undirbúning ýmsan til verkmannalöggjafar, en er óá- nægður yfir því, að ekki hafi jafn- framt verið skorað á stjórnina að semja lagafrumvörpin. En til hvers er að heimta af stjórnini að hún viði að sjer upplýsingar til undirbúnings, ef jafnframt er heimtað af henni, að hún semji lögin, hvort sem hún þyk- ist nægilega undirbúin til þess eða ekki ? Hitt, sem höf. færir fram, er nauða-ómerkilegt, og flest af því snertir ekkert verkmannamálefnin sjerstaklega. Alt eru það ýfingar við Heimastjórnarflokkinn og H. Haf- stein, og sýnir það eitt, að höf. er í raun og veru annara um Sjálfstæðis- flokkinn gamla en um verkmanna- fiokkinn núverandi. Eins og kunnugt er, hafa verk- menn að undanförnu skiftst á milli gömlu flokkanna, og Lögr. veit ekki til, að þeir hafi fremur hallast að öðrum þeim flokki en hinum, enda hafa verkmannamál aldrei verið deilu- mál milli þessara flokka, en verk- mennirnir'hafa auðvitað, eins og aðr- ir, skiftst milli þeirra eftir skoðun- um á þeim málum, sem um var deilt. En út af þeirri grein í „Dagsbrún", sem hjer er um að ræða, mætti minna blaðið á eitt. Það talar mikið um landsverslun, eða „landseinkaversl- un“, sem það nefnir svo, og telur það eitt af mestu áhugamálum flokks síns, að koma á landseinkasölu á ein- XI. árg. Tilkynning’ Nýjar vörúbirgðir er nú komar til V. B. K. af flestum nú fáanlegum — Vefnadarvörum —r í fjölbreyttu úrvali. Vegna tímanlegra innkaupa getur verslunin boðið viðskifta- mönnum sínum þau bestu kaup, sem völ verður á í ár. Ennfremur hefur verslunin: Pappír cg ritföng, Sólaleður og skósmíðavörur. Vandaðar vörur. Odvrar vörur. Verslunin Björn Kristjánsson, Reykjavík. stökum vörutegundum. En einmitt fyrir þessari sömu hugmynd barðist H. Hafstein mikið fyrir nokkrum ár- um, er hann var ráðherra, þótt hún strandaði þá á óviðráðanlegum atvik- um. Og G. Björnson landlæknir hef- ur einnig í ritgerðum haldið á lofti líkum skoðunum á þessu og koma fram í „Dagsbrún“. Af þessu geta menn sjeð, að stefnuskrá sú, sem „Dagsbrún" flaggar með í nafni verk- mannaflokksins, er í sumum höfuðat- riðunum engin sjereign þess flokks og getur því ekki greint hann frá öðrum flokkum. Þegar t. d. er um að ræða það mál, sem nefnt er hjer á undan, þá kemur að eins til greina í fylginu við það, hvorum menn treysti betur sem talsmönnum mál- staðar síns, t. d. þeim H. Hafstein og G. Björnson eða þeim Erlingi Friðjónssyni og Otto N. Þorlákssyni. Lögr. skilur það ekki, að afstaða veikmanna sje hjer þannig til annara flokka í landinu, að ekki sje hægt fyrir þá að vinna með þeim, eins og höf. „Dagsbrúnar“-greinarinnar seg- ir, enda þótt hann viðurkenni, að „samvinna með öðrurn flokki að þessu sinni“ hefði verið lang-æski- legust. Það má vel vera, að verkmanna- flokkurinn komi að manni á lands- lista. En örugt er það varla. Þar á móti er enginn efi á því, að verk- menn hefðu getað komið að manni á lista Heimastjórnarmanna, ef þeir hefðu viljað, án tillits til þess, hvar nafn mannsins er í röðinni á listan- um. Ef samvinna hefði verið um þetta milli stjórna flokkanna, þá hefði það auðvitað verið samningamál, hvar verkmannafulltrúinn ætti að vera í röð á listanum. En, eins og „Dags- brún“ veit, var engin samvinna um þetta, og hennar var ekki leitað, hvorugu megin frá. KVEÐJA OG ÞÖKK. 1 ...............- Að aflokinni messugjöð í Garpsdal 14. f. m., er jeg kvaddi söfnuðinn þar, færði hreppsnefndaroddviti Geir- dælinga, hr. Guðjón Jónsson á Litlu-Brekku, mjer, í nafni sóknar- manna, einkar veglegan og dýran göngustaf, sem gjöf frá sóknarmönn- um. Fyrir þessa veglegu gjöf og þau hlýju og vinsamlegu orð, er gjöfinni fylgdu, þakka jeg hjer með mínum kæru sóknarbörnum í Garpsdalssókn, sem og fyrir alla vinsemd og vel- vild mjer og mínum sýnda þann 7 ára tíma, er jeg gegndi prestsverk- um þar .í sókninni, og jeg óska af heilum huga þessum mínum kæru vinum allra heilla og blessuna í fram- tíðinni. Árnesi 16. júní 1916. Sveinn Guðmundsson. England og Þýskaland. Hjer fer á eftir útdráttur úr grein eftir Chr. Collin prófessor við háskól- ann í Kristjaníu. Fjórum sinnum á 3—4 síðastliðn- um öldum hefur eitt einstakt ríki í Norðurálfunni orðið svo voldugt og umsvifamikið, að það hefur reynt að ná yfirráðum í álfunni og þar með heimsveldi. Svo var um Spán á dög- um Filippusar 2., Frakkland á dög- um Lúðvígs 14. og aftur á dögum Napóleons mikla, og loks Þýskaland nú. Fjórum sinnum hafa hin ríkin, sem ekki voru eins hersterk, gert bandalag til þess að koma í veg fyrir myndun nýs Rómaríkis í álfunni. Hjer um bil 100 ár eru milli hinna miklu stríða, sem út af þessu hafa ris- ið og sett hafa merki í sögu álfunn- ar. Flest hafa ríkin hvað eftir ann- að skift afstöðu til þessa máls. En eitt af þeim hefur þó jafnan verið í varnarsambandinu. Það er England. Bretsku eyjarnar hafa vegna hag- kvæmrar legu í álfunni verið þar eins og jafnvægishjól. í hvert skifti hefur England i þessu máli þjónað eigin hagsmunum. En jafnfamt hefur það, sjálfrátt eða ó- sjálfrátt, einnig þjónað hagsmunum Norðurálfuþjóðanna í heild sinni. Það hefur, sjer og öðrum til gagns, haldið opinni leiðinni til myndunar heimsveldis með fyrirkomulagi, sem er hagfeldara en nokkurt einveldis- fyrirkomulag. Höf. vitnar svo í ummæli skotska heimspekingsins Hume’s um nauð- synina á frjálsri samkepni menning- arþjóða álfunnar, og einnig i ummæli eftir Edvard Meyer, einn af helstu sagnariturum Þjóðverja, þar sem hann talar um, að Rómverjar hafi eftir sigurinn yfir Hannibal eyðilagt valdajafnvægið í menningarheimi þeirra tíma og þar með valdið, fyrst kyrstöðu og síðan afturför í menn- ingarstarfseminni. Eitt voldugt menn- ingarríki kemur fram, þar sem út er skafinn allur þjóðernismunur, en því fylgir það, að samkepnin í þjóðfje- lagsmálunum hverfur og þar með lífs- skilyrði menningarstarfseminnar. Ger- ir svo höf. grein fyrir hugmyndinni um frjáls þjóðasambönd í mótsetn- ing við það heimsveldi, sem eitt sigr- andi ríki skapar. Vist er um það, segir höf., að til eru i Þýskalandi margir frjálslyndir menn, sem mundu fremur kjósa bandalag milli frjálsra þjóða en heimsríki undir stjórn „alþýskrar" drotnandi þjóðar. Og í Englandí, Frakklandi,og þó einkum í Rússlandi eru margir menn, sem mundu helst kjósa, að land sitt næði sem mestu drottinvaldi út á við og færði það yfir aðrar þjóðir. En ástæðurnar eru nú þannig, að ef Þýskaland og banda- þjóðir þess sigra nú í ófriðnum, þá er stórt spor stigið í áttina til mynd- unar nýs Rómaveldis, með einni

x

Lögrétta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.