Lögrétta

Issue

Lögrétta - 20.09.1916, Page 1

Lögrétta - 20.09.1916, Page 1
Ritstjóri: ÞORST. GÍSLASON. Þingholtsstræti 17. Talsími 178. LOGRJETTA AfgreiSslu- og innheimtum.: ÞÓR. B. ÞORLÁKSSON, Bankastræti 11. Talsími 359. Nr. 44. Reykjavik, 20. september 1916, XI. árg. Klæðaverslun H. Andersen & Sön. Aðalstr. 16. Stofnsett 1888. Sími 32. Þar eru fötin saumuð fiest. Þareru fataefnin best. innlendar og erlendar, pappír og alls- konar ritföng, kaupa allir í Lárus Fjeldsted, Yfirrjettarmálafærslumaður. LÆKJARGATA 3. Venjulega heima kl. 4—7 síðd. Nýja Bókbandsvinnustofan tekur að sjer alla vinnu, sem að bók- bandi lýtur og reynir að fullnægja kröfum viSskiftavina sinna. Bókavin- ir, lestrarfjelög og aðrir ættu því að koma þangaö. — Útvegar allar bækur er fáanlegar eru. Þingholtsstræti 6 (Gutenberg). Brynj. Magnússon. Landskosningarnar. Landskosningarnar hafa leitt það í ljós, að Heimastjórnarflokkurinn er nú langsamlega sterkasti og fylgis- rikasti stjórnmálaflokkurinn i land- inu. Engum kom það á óvart aS þetta mundi koma fram við landskosning- arnar. BæSi Heimastjórnarmenn og aðrir bjuggust við þvi, töldu það víst. Yfir höfuð fóru menn nærri um það fyrirfram, hvernig atkvæbin mundu falla á landslistana. Þeir þrír listarn- ir, sem fulltrúana fengu, voru taldir sjálfsagðir að fá þá. Að eins voru skoðanirnar litillega mismunandi um það, hvernig hlutfallð mundi verða milli þeirra. Aftur á móti var það íyrirfram talið víst, að verkmanna- listinn og þingbændalistinn kæmu engum að. Um langsummanna-list- ann voru menn helst í vafa. Sumir ætluðu honum 1 fulltrúa, aðrir eng- an. Mönnum var ekki vel ljóst um fjölmenni klofninga gamla Sjálfstæð- isflokksins. Nú er það komið fram við atkvæða- talninguna, að þversmn-menn hafa fengið meira en þeir bjuggust við, en langsum-menn minna. Þversum-menn bjuggust við einum fulltrúa, en fengu tvo. En svo jöfn var atkvæðatala þversum-listans og Þjórsárbrúar- listans, að það má telja hendingu eina, að þversum-listinn varð til þess að ná tvemur, en ekki Þjórsárbrúar-list- inn. Langsum-menn gerðu sjer vonir um einn fulltrúa, en þær voru alt af daufar. Þó er atkvæðatala þess lista töluvert lægri en nokkur af aðstand- endum hans ætlaði fyrirfram að verða mundi. En það er alls ekki hið upphaflega deiluefni flokksbrotanna um stjórn- arskrá og fána, sem veldur atkvæða- muninum á listum þeirra. Það deilu- efni er nú alveg úr sögunni, nema hvað einhver gremjuslæðingur er eft- ir í hugum sumra þversum-manna- forkólfanna, svo sem Sigurðar Egg- erz sýslumanns, út af þeirri meðferð, sem hann varð fyrir innan flokksins. Þó var sú meðferð ekki nema rjett- mæt og sjálfsögð, eftir alla þá vit- leysu, sem hann hafi ratað út í. En mönnum fanst nú samt, að hann vera hart leikinn í flokknum, af því að allur flokkurinn hafði um eitt skeið gert sig samsekan honum, og því er samhugur sá, sem Sig Eggerz hefur, grundvallaður a vorkunnsemi og engu Hjer sjest yfir höfnina í Pireus, hafnarbæ Aþenuborgar, sem er 7 kíló- metra þaðan. Bandamenn hjeldu nýlega enskum og frönskum herflota þangað inn á höfnina og lögðust herskip þeirra þar fast að herskipum Grikkja. Varð þetta til þess, að Grikkjastjórn sá sjer ekki annað fært en að láta að kröfum bandamanna. öðru. Hún endist meðan verið er að setja á hann sárabæturnar, en þær eru kosningin á landslistanum. Að því loknu er úti um það mál. Það mun sannast, að honum er ekki til neins að mælast til frekari bóta hjá flokkn- um en þeirra, sem hann nú hefur fengið. Þannig er varið þeim atkvæðum, sem þversum-listinn hefur fengið vegna hins upphaflega deilumáls, sem klauf Sjálfstæðisflokkinn. En svo er það annað, sem á síðustu stundu hef- ur ýtt atkvæðum yfir til hans, en burt frá langsum-listanum, og það eru ensku samningarnir. Enginn efi er á þvi, að ýmsir hafa látið óánægju sína út af þeim koma fram á þann hátt, að gefa þeim listanum atkvæði, sem stjórninni var andstæðastur. Því fer fjarri, að „þjóðin“ hafi með landskosningunum verið að skera úr ágreiningnum milli klofninga Sjálf- stæðisflokksins, eins og málgagn þversum-manna segir. Og því siður er það rjett, að telja „þjóðina" hafa skorið úr honum þeim í vil. Það er að eins örlítið brot kjósenda, sem hefur látið sig þann ágreining nokkru skifta við kosningarnar, og þær sýna það skýlaust, að sá málstaður, sem forkólfar þversum-manna hafa reynt að fylkja liði utan um, hefur ekki fylgi. Ef blaðið hefði sagt, að Sjálfstæð- isflokkurinn hefði með atkvæða- greiðslunni skorið úr þeim ágreiningi, sem upp hafði komið innan flokksins, og gert það þversum-mönnum í vil, þá hefði það þó verið nær lagi. En það er ekki heldur hægt að segja, að svo sje, eins og áður er sýnt. Sjeu landskosningarnar skoðaðar sem þjóðardómur um hiú eldri á- greiningsmál, þ. e. staðfesting stjórn- arskrár og fána, þá ætti að telja atkvæði þversum-listans öðrumegin, þ. e. móti málunum, en atkvæði allra hinna listanna hinumegin, þ. e. með þeim málum, og er þá síður en svo að útkoman verði þannig, að þvers- um-mönnum farist að hælast um yfir henni. Heimastjórnarmenn hjer sunnan- lands bjuggust við þremur fulltrúum á sinn lista og fengu þá. Norðanlands bjuggust Heimastjórnarmenn við tveimur á Þjórsárbrúar-listann, en ef- uðust um, að Heimastjórnarlistinn fengi nema tvo. Höfðu Heimastjórn- aibændur norðanlands mjög kosið Þjórsárbrúar-listann, til þess að tryggja kosningu Sigurðar í Ysta- felli, sem er bæði gamall og nýr Heimastjórnarmaður, enda var og mikið um það talað siðastl. vetur, meðan verið var að semja landslist- ana, að setja hann ofarlega á lista Heimastjórnarmanna, þótt hitt yrði að lokum ofan á. Sum blöðin hjer eru að tala um breytingarnar, sem orðið hafa við kosningarnar á hinni upphaflegu röð- un nafna á Heimastjórnarlistanum, eins og hjer sje um einhver undarleg fyrirbrigði að ræða. En slíkt hjal nær engri átt. Hitt ætti að virðast miklu undarlegra, að kjósendur skili frá sjer lista með óbreyttri nafnaröð. Lögin ætlast til þess, að kjósendur raði sjálf- ir á listana — og þvi skyldu þeir þá ekki gera það? Breytingar á nafnaröðun listanna voru meiri og minni á þeim öllum, einna minstar þó á lista þversum- manna. Á þremur listunum, sem enga fulltrúa fengu, voru breytingarnar ekki taldar nje athugaðar nákvæm- lega. Á Þjórsárbrúar-listanum var mikið um ýmsar breytingar og rugl- uðu þær röðinni um eitt sæti. Á Heimastjórnarlistanum rugluðu þær röðinni um tvö sæti. En það bar mest á breytingunum þar af þeirri ástæðu, aðsá listinn fjekk langhæsta atkvæða- tölu, en þar af leiðandi urðu einnig breyttu atkvæðin þar miklu fleiri en annarstaðar. Ef kjósandi óskar að einn maður á listanum öðrum fremur nái kosningu, þá er það ekki nema sjálfsagt, að hann færi hann svo langt upp sem auðið er, setji við hann merk- ið 1. Það er sú aðferð, sem lögin ætlast til að kjósendur hafi við kosn- ingarnar, og því að eins hefur verið gert ráð fyrir henni í lögunum, að ekki hefur þótt ólíklegt nje óskyn- samlegt, að kjósendur beittu henni. En eitt blaðið hjerna, verkmannamál- gagnið „Dagsbrún", er svo gáfað, að það telur það „flokks-svik“,að breyta nafnaröð á lista. í slikri og þvílíkri heimsku kemur fram gremja blaðs- ins yfir úrslitum kosninganna, og er slíkt hjal langt fyrir neðan það, að vera svara vert. Ef verkmannalistinn hefði komist svo hátt, að þurft hefði að athuga atkvæðagreiðslurnar á honum, þá hefði ritstjóri „Dagsbrún- ar“ fengið að sjá, að í hinum fámenna kjósendahópi verkmannalistans var ekki lítið um „flokkssvikin“ af þessu tægi, og er langt frá því, að Lögr. lái verkmannakjósendunum þau „svik“. En komið er nú fram það, sem Lögr. oft áður sagði „Dagsbrún" fyr- ir kosningarnar, að sigurvænlegra hefði það verið fyrir verkamenn að eiga fulltrúa á Heimastjórnarlistan- um og fylgja honum, en hitt, að setja sjálfir upp lista út af fyrir sig. Um þingbændaflokkinn er það að segja, að landskosningarnar hafa staðfest þann dóm yfir honum, sem oft hefur komið fram áður hjer í blaðinu. Landskosninga-úrslitin ættu að vera livöt til þess fyrir Heima- stjórnarflokkinn að halda fast sam- an um sína menn við kjördæmakosn- ingarnar, sem nú fara í hönd. Ekki er það þó svo að skilja, að Lögr. telji hina gömlu flokkaskiftingu eiga rjett á sjer lengur, eins og sjá má á þvi, sem sagt er hjer að framan, heldur er það hitt, sem margtekið er fram áður hjer í blaðinu, að hún telur Heimastjórnarflokkinn núeina grund- völlinn, sem hægt sje að reisa á fram- tíðarstjórnmálaflokk í landinu, og að eina vonin til leiðrjettingar á því ó- lagi, ringulreið og smáflokkakrit, sem verið hefur á alþingi á síðari árum, sJe sú, að Heimastjórnarflokkurinn verði í algerðum meirihluta nú við Jeg hef áformað að hætta sjávarútveg við Eyjafjörð og hef því eftir- greindar eignir til sölu: 1. Tvö geymsluhús á Oddeyrartanga með hafskipabryggju, sem er 55x56 feral. að stærð og lóð 5810 feral. að stærð. 2. Tvö fiskiskip — annað með 30 hesta Heinvjel, tveggja ára í haust. 3. Allskonar veiðarfæri svo sem herpinót, kastnætur, stauranót, síldar- nót, ásamt ýmsu fleira sem til skipaútgerðar heyrir. Oddeyri 10. ágúst 1916. Chr. Havsteen. V. B. K. Vandaðar vörur. Ódýrar vörur. Ljereft, bl. og óbl. — Tvisttau. — Lakaljereft. — Rekkjuvoðir, Kjólatau. — Cheviot. — Alldæði. — Cachemire. Flauel, Silki, Ull og Bómull. Gardínutau. — Fatatau. — Prjónavörur allskonar. Regnkápur. — Gólfteppi. Pappír og ritföng. Sólaleður og skósmíðavörur. Verslunin Björn Kristjánsson, Reykjavík. kosningarnar. Um annan flokk í land- nu, er tekið geti það hlutverk að sjer, að leiðrjetta þetta, er alls ekki að tala nú. Þörfin á vinnuvísindum. Alþýðufræðsluerindi flutt á búnaðar- námskeiði á Hvanneyri, febrúar 1916. Lífið er starf. Allir verða eitthvað að hafa fyrir stafni. Þeir sem ekki þurfa að starfa til að lifa, þeir neyð- ast þó til að finna sjer eitthvað að dunda við, til að deyja ekki úr leið- indum. Þeir hæfileikar sem mönnun- um eru gefnir leita sjer viðfangsefn- is. Og leiðindi eiga rót sína i þvi að menn njóta sin ekki. Þau spretta langoftast af meira eða minna óljósri meðvitund um það, að pund vort á- vaxtast illa. Hverjum manni leiðist að vinna það verk, sem hann finnur að hann kann ekki og ekki nær til- gangi sínum. Grikkir hafa vel skilið hvílík þraut það er að vinna árang- urslaust. Það sýna sögur þeirra um hegningar í undirheimum. Danaos- dætur urðu um aldir alda að ausa vatni i botnlaust ílát úr götóttri ausu. Og Sisyfos velti alt af sama steininum upp sömu brekkuna, en alt af valt hann niður aftur. Og ef vjer litum nær oss, þá hefur varla Sæmundur fróði í annan tíma þótst ná sjer bet- ur niður á Kölska en þegar hann ljet hann bera vatn í hripum. Vinnan er hagnýting þess stofn- fjár sem hver maður fær í heiman- mund frá náttúrunni. Það er eina stofnfjeð, sem aldrei verður frá manni tekið meðan maður er heill heilsu, hve margsinnis sem rnenn verða annars gjaldþrota. Þetta stofn- fje er hæfileikar manns, andlegir og líkamlegir. Sálar- og líkamsorkan er pundið, sem oss er ætlað að ávaxta í viðskiftum hvor við annan og við náttúruna. Nú skyldu menn ætla, að fyrsta á- hugamál mannanna væri það, að hag- nýta krafta sjálfra sín sem best, hag- nýta þá þannig, að þeir afköstuðu sem mestu og bestu verki, en um leið styrktust og temdust, svo að notkun þeirra yrði til æ meira yndis og á- nægju fyrir verkamanninn sjálfan. Jeg þekti í æsku mann, sem ekki bar neitt skyn á tölur eða reikning. Hann ætl- aði einu sinni að kaupa sjer yfir- frakka á Vopnafirði. Frakkinn átti að kosta 40 kr. Það þótti honum of dýrt og vildi raga hann niður i 5okr.Menn hlæja ósjálfrátt að slíku. En jeg hef aldrei heyrt menn hlæja að því, þótt maður vildi heldur vinna verk á 5 tímum, sem hann gæti hæglega lokið á 4, ef hann legði niður fyrir sjer, hve mörg og hvernig löguð handtök þyrfti til þess. Og þó er það dæmi al- veg eins lagað og liitt. Náttúran hef- ur sitt verðlag á hlutunum. Öll gæði kosta einhverja áreynslu. Jafnvel loft- iö, sem vjer öndum að oss. Og það má draga andann mismunandi hagan- lega. í viðskiftum vorum við náttúr- una getum vjer oft unnið sama verk- ið með mjög mismunandi áreynslu, eftir þvi hve hagkvæmlega vjer beit- um kröftunum. Minsta áreynslan sem hrekkur til, ef rjett er að öllu farið, er verðið sem verkið í raun og veru kostar. En ef vjer viljum borga meiri áreynslu fyrir það, þá fáum vjer það líka. Vjer erum þá eins og eyðslu- seggurinn, sem eys fje á báðar hend- ur og hirðir ekki hvað hlutirnir kosta i raun og veru. Því segja Orðskvið- irnir, 18,9: „Sá sem er tómlátur í verki sinu er skilgetinn bróðir eyðslu- seggsins." Því meira sem maður hugsar um það, þvi undarlegra virðist það, hve lítil stund hefur verið lögð á það að finna bestu aðferð við hvert verk og gera hana að almenningseign. Gætum að hvernig ástandið er. Vinnulagið á hverjum tíma sem er, er ýmist arfur frá eldri kynslóðum eða uppfunding einstakra samtíðarmanna. Menn sjá fyrir sjer verklag þeirra sem þeir eru með. Þeir vinna verkið svona, annað- hvort af þvi að þeir hafa sjeð það unnið þannig, eða að þeir hafa af til- viljun eða fyrir umhugsun og við- leitni sjálfra sín dottið niður á þaö vinnqlag, sem þeir hafa. Lífið er alt

x

Lögrétta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.