Lögrétta - 28.10.1916, Síða 4
i86
LÖGRJETTA
kjarkmikil, þreklunduð og trúkona
mikil. Einlæga trúin hennar vermdi
og lýsti upp sálina og veitti henni
öruggleik, sem setti sigurljóma á líf
hennar og dauöa. Dauöinn var henni
ekki ægilegur heldur dýrlegur sigur
og ávinningur. — Óvenjulega góS,
fórnfús og elskuleg eiginkona og
móöir var hún. Ástin til eiginmanns
og barna var heitasta og þróttmesta
tilfinning hjarta hennar, og sú sólin,
sem skærast skein. — Ómetanleg guSs
gjöf er slík kona og móSir. — Minn-
ing slíkra mæSra ætti ekki einungis
aS vera börnunum dýrmæt og heilög,
heldur hafa göfgandi og bætandi á-
hrif á alt þeirra líf. Og er þaS dá-
samlega sannur og fagur vitnisburS-
ur um góSu mæöurnar, því „hvaö er
ástar og hróörar dís, og hvaö er
engill úr Paradís hjá góöri og göf-
ugri móöur?“
Frú Ingibjörg var stoö og ylgjafi
heimilis síns, elskuö og virt af öllum,
sem hana þektu. MannúS hennar og
hjartagæska var þó augljósust þar
sem fátækt og bágindi voru; og hygg
jeg, aö hún hafi átt sterk ítök í hjört-
um bágstaddra. Víst er þaS, aö marg-
ur fátækur og hryggur fór glaöari
og birgari frá Steinnesi, en hann
þangaö kom.
BlessuS veri hennar minning!
X.
Hinn 24. júní þ. á. andaSist aö
heimili sínu, Skoravík á Fellsströnd,
yngismaöur Gestur Gunnarsson. —
Hann var sonur þeirra hjóna Gunn-
ars hreppstjóra ÞórSarsonar og Svan-
hildar Ólafsdóttur, er búiö hafa all-
an sinn búskap í Skoravik, og var
hann þar fæddur 22. apríl 1886. Gest-
ur sál. varö því aö eins þrítugur aö
aldri; en þó aS lífiö hjer yrSi ekki
lengra, var hann þó búinn aS sýna
aö hann var mannsefni gott, og
mannkostum búinn á marga lund.
Sem verkmaöur var hann framúrskar-
andi aö dugnaSi og atorku, en jafn-
framt gætinn og fyrirhyggjusamur
um fram þaö sem ungum mönnum
er títt; en þó yfirlætislaus og ófram-
hleypinn.
Gestur sál. var hinn ræktarsamasti
sonur, og hefSu foreldar hans getaö
átt vísa von styrks og athvarfs hjá
honum á elliárunum, ef þau heföu
þurft; sömu ræktarsemi sýndi hann
og systkinum sínum, og reyndist
þeim besti bróöir. Gests sál. er því
sárt saknaS af vandamönnum og
vinum og sveitungum, enda er meS
honum falliö frá eitt hiS mesta
mannsefni þar um slóöir. Hann and-
aöist af afleiöingum mislinga.
Ó. Ó.
Gömul 0g ný
mannfjelagsmein.
Eftir SigurS Þórólfsson.
Frh.
Lög Spartverja urSu óvinsæl af
þeim, sem auöugir voru. Þeir fóru í
kring um þau og fótum tróSu, svo
brátt sótti í gamla horfiö. Eftir
Peloponnesófriöinn voru auömennirn-
ir, meö áhrifum gullsins, búnir aS
búa svo um hnútana, a& lögin voru
talin vargar í vjeum og þeir sem
reyndu aS halda þeim uppi voru
myrtir. Lögin voru þá afnumin. Og
Sparta varö um tíma auöugasta borg-
arríkiö á Grikklandi og hvergi ann-
arstaöar höfö í frammi eins mikil
óskammfeilni til þess aö græSa fje
og kúga aSra. MeSulin voru: mein-
særi, mútur, morö og fööurlandssvik.
Þegar komiö var fram á 3. öld, seg-
ir hinn mikli ættjaröarvinur Forn-
Gi ikkja, Demosþenis: ,Ríkiö er orSiS
fátækt, en fáeinir menn eiga allan
þjóöarauSinn. Þeir hafa meS auövaldi
sínu hrifsaö undir sig þjóöarauöinn
og eiga mest alt landiö. Þeir byggja
stórar skrauthallir og lifa hvern dag
í svalli og ofnautnum, en allur þorri
mann veit eigi hvaö hann á aö hafa
til næsta máls, lifir mest á þurru
brauöi.“ —
Annar rithöfundur, Arisal, segir:
Jöröin er komin í hendur fárra
manna, og flest eru þaö auöugar kon-
ur. Þær og þeir eigi feikna auölegö,
en allur þorri manna sje blásnauöur.
Sparta sýnir hina sorglegustu mót-
setningu milli auös og örbirgSar. —
ÞriSji rithöfundurinn forni, Plutark,
segir aö í Spörturíki sjeu aö eins 100
ættir, sem eignir eigi, hinar allar fá-
tækar, og margir svo fátækir aö eigi
geti þeir borgaö til sammáltíSa
sinna og tapi þar meö pólitískum
rjettindum sínum.
LítiS var ástandiS betra í Aþenu,
menningarborginni frægu. „Engin
rós er án þyrna“ — þar var mikil ör-
birgS og meiri hluti manna ófrjálsir
! menn. ÁriS eftir dauSa Alexanders
1 mikla voru þau lög sett í Aþenu aö
þeir einir hjeldu borgarlegum rjett-
indum, sem ættu mint 1500 kr. viröi.
Kom þá í ljós, þegar virt var hjá
mönnum, aö 12 þúsundir frjálsra
borgara mistu öll pólitísk rjettindi
sín, en 9 þúsund hjeldu þeim. Plató
lýsir peningagræSgi og auöveldi ein-
stakra manna í Samræöum sínum,
sem hann lætur fara fram milli Sókra-
tesar og Alkibiadesar.
2. Gull og auöur miöald-
a n 11 a. Riku höföingjaættir forn-
mentaþjóöanna liöu undir lok, og
gull þeirra tvístraöist út um löndin.
— Alt er fallvalt í heiminum. GulliS
glataöist í flutningum þess úr einu
landi í annaö. Einnig slitnar þaS mik-
iö á löngum tíma. Sumir grófu líka
gull sitt í jöröu, eöa ljetu þaS fylgja
sjer í gröfina, til þess aS njóta þess
eftir dauöann. Af hinu mikla fornald-
argulli er nú sama sem ekkert til í
heiminum, aö eins fáeinir gripir á
stórsöfnum, og fariö meö þá sem
helga dóma.
Á síöari hluta keisaratímans voru
flestar fornu góömálma námurnar
tæmdar, og varö þá peningaskortur
í Róm, svo naumast varS haldiö viS
nauösynlegasta gjaldeyri. Úr því rætt-
ist nokkuö síSar, því nýjar gullnám-
ur fundust, og var alt af aS ööru-
hvoru tekiö gull úr þeim á miööld-
unum. En þær reyndust arSlitlar og
mistækar.
Arabar, og frændur þeirra, Már-
arnir á Spáni, voru lengi fram eftir
öldum mestu gullkongar. Hjá þeim
var verslun, iönaöur og visindi í
blóma, meöan vanþekking og atorku-
leysi þjáöi aSrar þjóöir. Sú litla versl-
un, sem á fyrri hluta miSaldanna var
í Noröurálfunni, var einkum i hönd-
um Gyöinga. Þeir voru verslunar- og
gróöamenn aS náttúrufari og höföu
lag á aS eignast peninga. En oft
höföu þeir hvergi friö fyrir ofsókn-
um kristinna manna, nema þá helst,
þegar þjóShöföingjar þurftu aS lána
hjá þeim peninga. Þá voru þeir þarf-
ir menn og friöhelgir. En dýr voru
lán þeirra, því 12—50 pct. heimtuöu
þeir í vexti. —
Til NorSurlanda fluttu víkingar all-
mikiö gull og silfur. Þeir rændu því
einkum úr klaustrum og kirkjum,
hvar sem þeir komu. Norrænir höfö-
ingjar höföu miklar mætur á gull-
skrauti. Þeir höföu gullrekin spjót
og gullhjöltuö sverS, og hlaöbúnar
skikkjur í skaut niSur. Á skipinu var
oft drekahöfuS og sporöur gullbúiö.
Gullbaugar gengu manna á milli alt
aö þrem mörkum aS þyngd. En þaS
svarar til 1800 kr., eöa vel þaS. Mörk
af gulli var í motur þeim, sem Kjart-
an gaf Hrefnu og hefur hann því ver-
iS dýrt höfuöfat.
Þegar Haraldur kongur Sigurösson
kom úr utanför sinni til Noregs haföi
hann svo mikiö gull meS sjer, aö
menn þóttust aldrei sjeS hafa meira
gull í einu. Því mun hann hafa mest
rænt og ruplaö frá Aröbum. Annar-
staöar var þá ekki mikiö gull aS hafa.
OrSlagSir voru arabiskir höföingjar
fyrir þaS hvaö margt þeir skreyttu
gulli og dýrindis steinum. Kalífarn-
ir í Bagdad sköruöu þó fram úr í
þessu. Einn þeirra, Harún al Rachid
— kunnur úr „Þúsund og ein nótt“ —
haföi gulltrje fyrir hásæti sínu meö
18 greinum og 600 kvistum. Á þeim
vögguöu sjer fjöldi tilbúinna fugla,
úr gulli og silfri. Tiu þúsund skemti-
garöa átti hann og fjögur þúsund
skrautlegir gosbrunnar voru í þeim.
Svona var þaS hvaö eftir ööru, viS-
hafnarmikiö og stórfenglegt. — En
sá sem alt þetta átti og horföi á,
fann enga hamingju í því nje sálar-
fró. Á grafarbarminum leit hann til
baka yfir líf sitt, og þótti honum sem
fáa daga hefSi hann lifaö glaSur og
ánægöur til kvölds. — Hann skorti
þó hvorki völd eSa viröingu.
Þegar gulliö hjá Aröbum gekk til
þuröar, datt einum sjervitring og of-
látung þaö í hug, aö búa mætti til
gull og silfur úr óekta málmum. Hug-
arburSur þessi var pestnæmur, því aS
gullgjörSarmenn spruttu upp úr
hverri þúfu. Þetta var eins konar
sýki. — Fyrsti vísir til gullgeröar-
tilrauna kom upp á Egiftalandi á 4.
öld e. Kr., en á 8. öld fara Arabar aS
iöka þessa list og hjeldu því fram um
300 ár. Þaöan fluttist hún meS kross-
íarendum til NorSurálfunnar og náSi
þar hámarki sínu á 13. og 14. öld.
Mennirnir drógu sjálfan sig og aöra
á tálar og margt ilt hlaust af þessu
gullgerSarbraski þeirra: svik, f jár-
glæfrar, geötruflun og morö. — ÞjóS-
höföingjana vantaöi lengi peninga,
þótt af ööru ættu þeir nóg, og höföu
því gullgerSarmenn viö hirS sína i
hávegum og heimtuöu gull af þeim.
Og þó aö enginn sæi ávöxt af iöju
gullgerSarmanna, þá ólu menn samt
þá von í brjósti, aö fyr eöa síöar
kæmi gulliö í ríkum mæli. Þó þaS
ekki kæmi í dag, mátti vænta þess á
morgun.
Gebar hinn arabiski' kendi mönn-
um aö leita aö „hinu mikla seyöi“
eSa „fjörgjafavökva", sem gæti breytt
eöli hlutanna. Þegar hann var fund-
irm, taldi hann aö sjóöa mætti gull úr
blýmálmi. En aldrei kom gulliS, og
aldrei fanst „viskusteinninn“, sem
átti aö gera menn alvitra, nje heldur
„ódáinsvökvinn“, sem gat læknaö
alla sjúkdóma og lengt líf manna um
leiS og þeir köstuöu „ellibelg".
GullgerSarsýkin var sprottin af ó-
slökkvandi gróöafýsn manna. Hún
var þá eins rík í manneSlinu eins og
hún er nú á dögum. Yfirleitt lifSu
miSaldamenn miklu einfaldara og
sparneytnara lífi, en fornmentaþjóS-
irnar, og minni var munurinn á fá-
tækt og auöi. Kirkjan kendi mönnum
þaö, aö alt gullsafn væri frá þeim
vonda, ein af tálsnörum hans til aö
veiöa í sálir mannanna. Ríkir menn
komust ekki i himnaríki nema þeir
gæfu kirkjunni vel fyrir sálu sinni.
En jafnframt var kirkjan skjól og
skjöldur margra bágstaddra manna.
En henni voru mislagöar hendur i
þessu, sem ýmsu ööru. Hún reytti
suma inn aö skyrtunni, sem voru
henni óhlýönir í einhverju og henni
þótti einhver slægur i. Þetta sagöi nú
kirkjan aö væri þeim til sáluhjálp-
ar. Og þaö sem látiö var i „guöskist-
una“ var heilagur sjóöur, hvernig svo
sem honum var safnaö.
En þaS fór eigi alt í guöskistuna,
fjeS, sem frá leikmönnum var tekiö
eö^ þeir af fúsum vilja gáfu. Kirkju-
þjónarnir voru engu síöur þyrstir í
gull og auöæfi en veraldlegir höfS-
ingjar. Og þeir liföu dýrlegu lífi, t. d.
allir stórklerkar: páfar, kardinálar,
kórsbræöur, erkibiskupar, ábótar og
lýSbiskupar. Föt þeirra voru meira og
minna gullbúin og jafnvel gimstein-
um sett. Þegar þeir riöu um hjeruö
fylgdu þeim 20—200 sveinar, og alt
var eftir þessu. En bændunum sögSu
þeir, aö einfeldnin og fátæktin væri
sáluhjálparvegur og „sulturinn engla-
fæöa“. Förumannalýöurinn fjell úr
hungri árlega, en kirkjuþjónarnir
voru akspikaöir hvernig sem áraSi.
Sem dæmi má nefna Thómas Wal-
sey, enskan erkibiskup og ráöherra
Hinriks 8. Hann var mjög holdlega
sinnaöur og rakaSi saman ódæma-
auSi. Hann var aö visu mikilhæfur
og dagfarsgóöur en óvenju metoröa-
gjarn og hjegómlegur. Honum fylgdu
hvert sem hann fór 500 þjónustu-
sveinar og voru þaS einkum aSals-
manna synir. Skórnir hans, hvaö þá
annaS, voru gullbúnir. — „ÞaS er
maöur þó hann láti minna“ (H. P.).
Þegar blóöhundurinn mikli sneri
viS honum bakinu og heimtaöi helst
lif hans, fann Walsey fyrst hve lífiö
er stutt, og fallvaltur er unaöur þess
og gæSi. Og hann óskaöi þess þá, aS
hann heföi betur þjónaö guSi almátt-
ugum, en hinum rangláta og vanþakk-
láta konungi. „Enginn veit sína
æfina fyr en öll er.“
Á síöari hluta miSaldanna myndaS-
ist auöug borgarastjett í sjóverslun-
arbæjunum, einkum á ítalíu og Hol-
landi. AöalsmannaauSurinn var þá
minni en áöur haföi veriö. Borgarar
og þjóöhöföingjar höföu sumstaSar
tekiS höndum saman til þess aS lægja
í þeim ofmetnaö, dramb og yfir-
gang. Um tíma höföu þeir veriS kon-
ungum og keisurum ofjarlar. Nú var
öldin önnur. Kaupmenn margir uröu
nú ríkustu menn þjóöanna, t. d. Jacues
C'oeur, franskur kaupmaöur, sem gat
lánaS í einu Karli 7. 24 miljónir kr.
til herbúnaSar gegn Englendingum.
Ifn ríkari var hin sögufræga Medi-
ci-ætt á ítalíu. MeS auöi sínum
studdi hún listir og vísindi og efldi
framför Flórensborgarmanna. Og
ekki skorti þá auöinn „Fuggana" á
Þýskalandi nje góöan vilja til þess
aö gera gagn meö honum. Þetta var
á 14. og 15. öld.
En ekki verður Hansastaöa-kaup-
Til lánardrottna minna.
Um leiö og jeg þakka lánardrottnum mínum nær og fjær, sem hafa
hjálpaö mjer á neyöarstund meSan mestallar eignir mínar hafa staöiS ó-
skiftar í dánarbúinu og úrskurSaSur framrærslueyrir barna minna hefur
ýmist veriS borgaöur mjer í „skjaldaskríflum og baugabrotum“ og oft alls
ekki tímum saman, og meSan lífsábyrgö mannsins míns sál. í lífsábyrgö-
arfjelaginu „Hafnía“ (no. 33009), er nafn mitt stóS á og var sjereign rnín,
hefur veriö haldiö ránsvaldi fyrir mjer af Eiríki sýslumanni Einarssyni
frá Hæli — þá leyfi jeg mjer aö tilkynna þeim aö mjer hefur nú loks meö
hjálp annara tekist aS ná lífsábyrgöinni og komiS henni á framfæri til inn-
köllunar. Vona jeg því aö jeg geti bráölega borgaS skuldir mínar.
Reykjavík 9. okt. 1916.
Viröingarfylst
r
Margrjet Arnason.
rz-------------------------------------------------^
Asg. G. Gunnlaugsson & Co.
Austurstræti 1, Reykjavík,
s c I j a:
Vefnaðarvörur. — Smávörur.
Karlmanna og unglinga ytri- og innrifatnaði.
Regnkápur. — Sjáfet. — Ferðaföt.
Prjónaverur.
Netagarn. — Línur. — öngla. — Manilla.
Smurningsolíu.
Vandaðar vörur. Sanngjarnt verð.
Pöntunum utan af landi svarað um hael.
er best
Schannong
Monument-Atelier,
Ö. Farimagsg. 42.
Köbenhavn.
mannafjelaginu borinn svona góöur
vitnisburöur. Hansarnir náöu undir
sig mest allri verslun i löndunum
kringum Eystrasalt og víöar. Þá var
argasta einokunarverslun á Noröur-
löndum, því auövald og yfirgangur
Hansakaupmanna var hóflaust. Vald
þeirra leiö undir lok skömmu á eftir
aS sjóleiöin fanst til Ameríku. Þá
fengu þeir svo harSa keppinauta, aS
þeim reiö þaö aö fullu.
Verslun og viSskifti þjóöanna
breyttist mjög til hagnaSar þegar
gullnámurnar miklu fundust í Brasi-
líu. Þaöan fluttu Spánverjar og
Portúgalsmenn hvern sjófarminn af
gulli eftir annan. Og þessar námur
entust til 1848, aS hinar stóru gull-
námur fundust í Kaliforníu. En
nokkru síöar bættust viö enn arö-
meiri námur í Ástralíu og Síberíu.
Spánverjar uröu á skömmum tíma
gullauöugasta þjóS heimsins. Þjóöin
varö um tíma gullær. Hún hætti aS
framleiöa lífsnauSsynjar af jöröinni,
°g þegar fram liSu stundir og gulliS,
samkvæmt eölilegu viöskiftalögmáli,
fluttist til annara þjóða, hnignaöi
henni fjárhagslega. Spánverjar súpa
enn þá seyðiö af gullgræögi feðra
sinna. GulliS varS þeim hefndargjöf,
af því þeir trúöu of mikiö á almætti
þess og kunnu ekki meö þaS aS fara.
Katalog gratis.
Söðlasmíða-
og aktýja-vinnustofa
Grattisgötu 44 A.
Tekið á móti pöntunum á reiötýgj-
um og aktýgjum og fl. tilheyrandi.
Aðgeröir fljótt og vel af hendi leystar.
EGGERT KRISTJÁNSSON.
Nokkrar hásoignir
á góöum stöðum í bænum fást keypt-
ar nú þegar. Mj*g géðir borgunar-
skilmálar. Væntanlegir kaupendur
snúj sjer til SVEINS JÓNSSONAR.
Til viötals í veggfóöursverslun Sv.
Jónssonar & Co., Kirkjustræti 8, kl.
3—6 líðáegis.
PrentsmiSjan Rún.