Alþýðublaðið - 20.08.1963, Síða 1

Alþýðublaðið - 20.08.1963, Síða 1
milljóna iðnaöarlán ÁRH) 1962 námu lánveitingar Iðnlánasjóðs tæpum 14 milljónum króna, og var það talsverð aukn- ing, ef miðað er við lánveiting- ar á árinu 1951» en það ár námu Jiaer 9.7 milljónum. Þessa útlánaaúkningu er fyrst og fremst að rekja til lána Fram- kvæmdabanka íslands, sem veitt er af PL-480 fé og tekið var á ár- inu 1961. Kom lán þetta hins veg- ar að mestu til ráðstöfunar á ár- inu 1962, og nam lánsupphæðin 15.0 milljónum króna. í árslok 1962 var staða útlána Iðnlánasjóðs 27.3 milljónir króna. Eigið fé sjóðsins nam á sama tíma 18.0 milljónum króna. Á síðasta Alþingi voru sam- þykkt ný lög um Iðnlánasjóð, og mun sjóðurinn hafa mun meira fé til útlána í framtíðinni. Iðnaðarmálaráðherra hefur skipað nýja stjórn fyrir sjóðinn, og er hún þannig skipuð: Tómas Vigfússon, formaður, Helgi Herm. Eiriksson og Pétur Sæmundsen. Sáttafundur í farmannadeilu Sáttasemjari ríkisins boð- aði ful'ltrúa sjómanna og at- vsnnurekentla til fundar í Alþingishúsinu í gær til þess að ræða deiluna um kjör farmanna. Eins og Alþýðu- blaðið hefur áður skýrt frá hefur staðið í samningum undanfarið um kaup og kjör liáseta og yfirmanna (að skipstjó'rum undanteknium), á farskipum. Ekki hefur verið boðuð nein vinnustöðv un enn. Er Alþýðublaðið fór 'if P-^entun á m)(Vnætti sl. hafði ekki náðst neitt sam- komuiag á sáttafundinum í HJNUM miklu húsnæfSisvandræð- um í Reykjavík á undanförnum árum og áratugum hafa margar fjölskyld ur gripið til þess neySarúrræðis aS byggja sér hús í óleyfi, þ. e. án þess aS fá lóS úthlutaS hjá bænum fyr- ir hús sín. Mörg þessara húsa eru ) í Múlahverfi cg önnur inni í Blesu gróf. Nú hafa margar þessar fjöl- skyldna fengið tilkyningu um þaS, aS húsin þeirra verSi aS hverfa, þar eS búiS sé aS úthluta öSrum lóSum j þar sem hin „ólöglegu“ hús standa. Eiga því fjölmargar fjölskyldur á hættu sS missa húsin sín á næst unni og húsnæSisleysi blasir viS hjá þessu fólki, pf borgaryfirvöldunum tekst ekki aS útvega því annaS hús- næði. Blaðam. frá Alþbl. brá sér í gær inn í Múlahverfi og að Háaleiti þar sem mikið er nú unnið að ný- byggingum. Mátti þar viða sjá, að búið var að grafa alveg að húsum, sem eiga að fara. Hafa margar fjöl skyldur þarna fengið tilkynningu með mjög stuttum fyrirvara þess efnis, að hús þeirra yrðu að fara á brott, þar eð byrja ætti að grafa fyrir nýjum húsum. Að Sogavegi 23 býr Kristinn Guðmundsson verkamaður ásamt fiölskyldu sinni. Reisti hann þar ásamt öðrum myndarlegt einbýl- ishús fyrir 5 árum. En því miður fékkst aldrei lóðarsamningur og því telja borgaryfirvöldin húsið ó- löglegt og nú er búið að úthluta þ.arna öðrum byggingarlóð, þann- ig að húsið verður að fara mjög bráðlega. Enda þótt húsið sé mynd I arlegt á að líta og virðist vel byggt ' tjáði Kristinn Alþýðublaðinu, að tilgangslaust væri að flytja það. Gólfin myndu ekki þola flutning og það yrði alltof kostnaðarsamt að flytja húsið og gera það íbúð- arhæft á ný. Kristinn kvaðst hafa eytt í það öllum tómstundum sín- um í mörg ár að koma húsinu upp og nú kvað hann það blasa við, að mikil verðmæti yrðu að engu eða litlu gerð. Hann kvað Einar Pétursson fulltrúa hjá Reykjavík- urborg hafa látið svo ummælt, að sennilega mundi borgin kaupa hús ið eftir mati en ekki kvað hann neinar endanlegar upplýsingar hafa fengizt um það mál. Kvaðst Kristinn óttast, að ekki mundi fást fyrir húsið nema brot þess, er það hefði raunverulega kost- að. Alþýðublaðið heimsótti einnig í gær aðra fjölskyldu, sem býr að Háaleitisveg. Hús- böndinn þar heitir Egill Svein- bjömsson og keypti liúsið fyrir 15 árum. Byggði hann síðan sjálf- ur við það en fékk aldrei lóðar- Borgaryfirvöldin verða að veita fólfeinu aðstoð. Isamning. Er Alþýðublaðið kom í heimsókn var Egill rúmfastur enda hefur hann verið heilsuveill undanfarin ár og hefur það feng- ið mjög á hann, að sjá nú fram á algert öryggisleysi, hvað húsnæði snertir. Tengdamóðir hans tók á móti blaðamanni Alþýðublaðsins. Það er nú búið að grafa alveg að húsi Egils og hafa verið þar mikl- ar sprengingar undanfarið og unn ið með stórvirkum vinnuvélum þar allt í kring. Þriggja húsa í- búðarblokk á að koma í gegn þar sem hús Egils stendur og var hon um tilkynnt fyrir nokkrum vikum, að ætlunin væri að byrja að grafa strax þar sem hús hans er. Varð fjölskyldunni að sjólfsögðu mikið Á myndinni sjást tvö hús anna sem eiga að fara. Hið efra er við Sogaveg- 23, en hið neðra er hús Egils við Háaleitisveg og sem sjá má er búið að grafa alveg að því. BORGARYFIRVÖLDUNUM ber ef til vill ekki lagaleg skylda til að liðsinna fólki, sem býr í ólögleg- um húsum, sem standa fyrir nýju skipulagi, en þeim ber giðferðis- leg skylda til þess. Fólkið hefur eytt miklum tíma og verðmætum í að koma sér upp þaki yfir höfuðið. í neyð sinni liefur það gripið til þess að stað- setja hús sín á éskipulögðum svæð um. Nú verður að rífa þessi hús og fólkið verffur skyndilega hús- næðislaust. Þar með skapast vanda mál, sem borgaryfirvöldin geta ekkf látSff afskiptafsupt. Borgin verður að leysa það mál og virff ist eðlilegast, aff borgin kaupi hús in af fólkinu, ef ekki er unnt að flytja þau, og greiffi á þann veg og amian fyrir því, aff fólkiff kom ist í riýtt húsnæði.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.