Lögrétta - 23.01.1918, Page 3
LÖGRJETTA
15
Þessi mynd er úr þýsku skopblaSi
og á aö tákna Ameríku og hlutlausu
þjóSirnar. Wilson lítur yfir girðing-
una og segir: „Ef þið látið rakka-
skömmina þýsku ná einum bita af
því ,sem jeg fleygi til ykkar, þá fáið
þið ekkert framar.
Yngri fregn segir, að Maximalistar
hafi sundrað þinginu með aðstoð
vopnaðra sjóliðsmanna. í Sevastopol
á Krím er sagt frá uppþoti meðal
rússneskra sjóliðsmanna, og höfðu
verið drepnir þar 70 foringjar.
Síðustu fregnir x Morgunbl. segja
að samkomulag sje orðið um friðar-
grundvöll. Þar er og sagt að blóð-
ugar orustur sjeu í Petrograd, lik-
lega framhald af róstunum út af
þinginu, og að Kúhlmann vilji að
Svíar taki þátt í samningunum um
það, hvað verða eigi um Álandseyjar,
en margir af íbúunum þar eru sænsk-
ir og hefur áður heyrst að eyjamenn
kjósi helst að sameinast Svíþjóð.
Samningafulltrúar Þjóðverja i
Brest Litovsk höfðu krafist þess, að
rússnesku keisarafrúnni og frænd-
mennum Vilhjálms keisara, s^em i
P.ússlandi væru, yrði leyfð burtför
þaðan til Þýskalands. Ein fregnin
sagði stjórn Rússa hafa neitað þessu,
en önnur segir, að keisarafjölskyld-
unni rússnesku hafi verið stefnt fyrir
herrjett, en keisaradrotningunni þó
leyfð heimför til Þýskalands, eftir
kröfu Þjóðverja. I útlendum blöðum
hefur staðið sú fregn, að ein af dætr-
um fyrv. Rússakeisara, Tatiana, sje
komin til Ameríku og ætli að stunda
þar danskenslu.
Caillaux (frb. Kajó)- málið er nú
aftur mjög rætt i Frakklandi og tal-
að um að birta öll skjöl, senx að
því lúta. Honum hefur m. a. verið
gefið að sök, að hann hafi viljað
koma á samningum við Þjóðverja og
hafi verið í ráðabruggi um þetta við
sendiherra þeirra í Buenos Aires.
Sagt er frá sundurlyndi rnilli
stjórnmálaflokkanna í Þýskalandi,
bæði út af afstöðunni til krafa þeirra,
sem gerðar eru til Rússa í friðar-
samningunum, líklega mest snertandi
meðferðina á hinum herteknu lönd-
um austan megin, og svo út af innan-
ríkismálum, einkum kosningalögun-
um nýju í Prússlandi. Stjórnin í Ung-
verjalandi hefur nýlega sagt af sjer,
og í fregn frá 20. þ. m. er sagt, að
jafnaðarmenn í Austurríki vilji fara
að semja við Wilson forseta. Sagt er
að Þjóðverjar sjeu að hleypa af
stokkunum nýrri tegund kafherskipa,
er sjeu stærri en eldri kafbátar þeirra,
alt að 1500 tonn, og hafi meiri hern-
aðarútbúnað og 40—50 manns.
Síðustu fregnir segja frá verkföll-
um og vandræðum í Axisturríki, og
er sagt að Czernin greifi, utanríkis-
málaráðherra, hafi verið kvaddur
heim frá Brest Litovsk, að líkind-
um þeirra vegna. Eitt blað að eins
kvað koma út í Vínarborg, verk-
mannablað, og ekki tala um annað
en friðarmál og vei-kföllin.
Nýlega kom fregn um kolaleysi
í Bandríkjunum, en nú kemur aftur
fregn um, að hlutlausum skipum sje
It'yft að fá þar kol.
Fra Danmörk. í símfregnunum er
sagt, að þingkosningar standi til í
Dannxörk um niiðjan apríl næstk. og
hafa tveir af ráðherrunum, þeir J. C.
Christensen, fulltrúi vinstrimanna í
stjórninni, og Rothböll, fulltrúi
hægrimanna þar, sagt af sjer.
Vesúvíus gýs. Mrg.bl. segir þá
fregn eftir enskum blöðum frá 28.
des., að eldur sje uppi [ honum, og
hraunflóðið velti þar niður snæþakt-
ar hliðarnar.
Tvær yfirlýsingar.
Hr. Olgeir Friðgeirsson hefur sent
Lögr. yfirlýsingar þær, er hjer fara
á eftir:
Með þvi að jeg hafði á hendi, síð-
astliðið ár, að gera reikning urn hag
og rekstur Landsverslunarinnar, frá
því að hún var stofnuð (1914) °S
frarn til aprilmánaðarloka 1917, —
er mjer kunnugt um, að í verkahring
hr. Olgeirs Friðgeirssonar var ekki
annað af bókfærslu verslunarinnar en
það, sem við kom sölunni. Stjórnar-
ráðið hafði með höndurn vörukaup
og skipaleigu, og sá um bókun þeirra
reikninga, en af þeim hafði hr. Ol-
geir Friðgeirsson engin afskifti. Bæk-
ur hans gátu því ekki náð yfir nema
aðra hlið viðskiftanna. Þær áttu ekki
að sýna og gátu ekki sýnt allan hag
verslunarinnar. Útlátnar vörur voru
bókaðar í frumbók, afhendingarbók,
höfuðbók og sjóðbók. Eftir þessurn
beimildum fór jeg við reikningagerð-
ina og varð ekki annars var, en þær
væri ábyggilegar, og ítarlega „færð-
ar“. Fjárgreiðslur allar greinilega
bókaðar og sjóðbók ætið „gerð upp‘
nákvæmlega.
Reykjavík, 3. jan. 1918.
Þórður Sveinsson.
í sambandi við ummæli herra Þórð-
ar Sveinssonar 3. jan. 1918, um bók-
færslu herra Olgeirs Friðgeirssonar
skulum við láta þess getið, að við höf-
um ekki orðið annars varir en að hún
væri ábyggileg það sem hún nær.
En eins og tekið er fram af herra
Þórði Sveinssyni, nær hún að eins
yfir afhendingu og sölu á vörunum
hjer. Það skal og tekið fram, að skýr
grein er gerð fyrir öllum þeim pen-
ingum, er hann hefur tekið á móti, og
eru aldrei nema litlar upphæðir í sjóði
degi lengur hjá honum.
Reykjavík, 10. jan. 1918.
Ólafur Daníelsson. Þói'ður Bjarnason.
Yfirlýsingar þessar eru fram
komnar út af endurteknum tilraunum
blaðsins „Tírninn" til þess að gefa
hr. O. Fr. sök á göllum þeim, sem
voru á bókfærslu landsverslunarinnar
meðan verslunin og bókfærslan að
nokkru leyti var í höndum stjórnar-
íáðsins sjálfs. Eru yfirlýsingarnar að
öllu leyti í samræmi við það, sem áður
hefur verið sagt í Lögr. um þetta
efni, og þurfa engra skýringa við,
en „Tíminn" hefur neitað að birta
þær í heilu lagi.
Frjettir.
xipp á Kjalarnes. Þá var gengið út [
i Viðey. En í gærmorgun var auður |
sjór rnilli Engeyjar og Kjalarness,
en lagt sundið frá Rvík til Engeyjar
í dag er það autt Engeyjarmegin.
Skerjafjörður hefur lengi verið lagð- j
ur ísi. — Kenslu í Barnaskólanum
hjer var hætt um tíma frá þvi á
mánud. vegna frostsins.
Á mánud.kvöld var 30 stiga frost
á Seyðisfirði, en i gærkvöld 1 stig.
Skipaferðir. Það er nú ákveðið, að
„Gullfoss" fari vestur til New-York
nú nálægt mánaðamótunum næstu, en
þó mun enn ekki fengið útflutnings-
leyfi vestra fyrir vörurn í harrn. —
„Botnía“ lagði út frá Seyðisfirði í
gær, og eftir því að dæma hefur ís-
inn losnað eitthvað sundur fyrir Aust-
urlandinu; hún kemur hingað og fer
síðan til Noregs með kjöt, og þaðan
til Khafnar. — „Sterling" fór fram
hjá Bergen á leið til Kristjaníu 19.
þ. m. og hafði gengið ferðin vel.
— „Lagarfoss“ komst til Norðfjai-ðar
frá Seyðisfirði í gær.
Afli er sagður mjög góður i Vest-
mannaeyjum.
Bjargarskortur á fsafirði. Þaðan
fjekk stjórnarráðið símskeyti 21. þ.
m. með þeirn frjettum, að þar i bæn-
um væru 300 fjölskyldur algerlega
matarlausar og hafi ekkert heldur
fyrir að kaupa. Er því skoi-að á land-
stjórnina að hlaupa undir bagga og
hjálpa.
Mrg.bl. segir svo frá eftir frjetta-
ritara sinum á ísafirði: „Nýlega fór
fram rannsókn á efnahag manna hjer
i kaupstaðnum. Kom þá i ljós, að 374
heimili voru atvinnulaus, og heimilis-
fólk þeirra 1268. Það er búist við
því, að 66 heimilanna, 780 manns,
komist af hjálparlaust, en 308 heimili,
með 988 manns, þarfnast hjálpar.
Hvert þeirra þarf að minsta kosti 3
skippund af kolum og um 300 krón-
ur í peningum, til þess að geta keypt
aðrar nauðsynjar. Hjer á staðnum eru
til nú sem stendur að eins 30 smálest-
ir af kolum. Það er eigi hægt að reka
surtarbrandsnámuna í Bolungarvík,
vegna skoi-ts á spi-engiefnum, sem
eru nauðsynleg við námurgöftinn. Og
það litla, sem unt hefur verið að ná
úr námunni, er ekki unt að flytja
hingað vegna hafiss. Skólunum var
lokað 15. des.“
„Næstu harðindin" hjet flokkur af
greinum, sem G. Björnson landlæknir
skrifaði í Lögr. fyrir nokkrum árum.
og brýndi hann þar fyrir mönnum, að
þeir skyldu reyna að vera sem best
við þvi búnir, að bráðlega fengju
þeir að kenna á harðari vetrarveðr-
áttu en lengi að undanförnu. Greinar
þessar voru síðar sjerprentaðar og
komu út í litlu kveri, sem mun fást
hjá öllum bóksölum og kostar 40 au.
— Væri nú ekki ófróðlegt fyrir menn
að líta í það.
Tíðin. Vikuna nú að undanförnu
hefur frost orðið enn hærra en áður
á þessum vetri, hæst á mánudaginn
21. þ. m., þá var það 25 st. C. hjer,
26 st. á Seyðisfirði, 28 á ísafirði, 33,5
á Akureyri, 36 á Grímsstöðum, en
ekki nema 12 í Vestmannaeyjum.
Undanfarna daga hafði frost verið
hjer um 20 stig á morgnana, en
nokkru lægra um miðja daga. Alla
þá daga hefur verið logn. En í gær-
morgun var lítill andvari á austan
og frostið að eins 8 stig., og í gær-
dag komst það í 5 stig. í dag eftir há-
d. frostlaust. — Fregn frá Seyðisfirði
frá 21. þ. m. sagði hafis landfastan
frá Melrakkasljettu til Gerpis, Vopna-
fjörð fullan af ísi og á Seyðisfirði
einstöku jaka og þykkan lagís. —
Frjetst hefur að 4 ísbirnir hafi ver-
ið drepnir á Melrakkasljettu, einn í
Fljótum og einn á Skagaströnd.
Skrokkurinn af honum flegnum hafði
vegið 300 pund. Á Látraströnd náðust
90 höfrungar í vök og kvað kjötið
af þeim vera selt á 11 au. pundið.
— 2 hvalir hafa verið drepnir í vök
á Húnaflóa. —■ Sunnan úr Hraunum
á Reykjanesi er sagt að rjúpur sjeu
að falla þar vegna harðinda, finnist
dauðar til og frá. Einn mesta frosta-
daginn frusu 3 álftir fastar í vök á
Skerjafirði. — Frá ísafirði er sagt,
aí5 póstur hafi verið fluttur þangað
a ísum beina leið frá Arngerðareyri.
Fyrir nokkru tók alveg fyrir vatns-
leiðsluna í ísafjarðarkaupstað vegna
frosta. — Hjeðan frá Rvík að sjá
virtist á mánudaginn vera ís alla leið
Andvaka heitir nýtt tímarit, sem
Bjarni docent Jónsson frá Vogi er
farinn, að gefa út, og er komið út
1. hefti, mestmegnis um fánamálið,
ræður, sem hjer hafa verið fluttar
um það nú í vetur, kvæði um fán-
ann og Fjallkonuna og smærri grein-
ar um sama efni. Lag eftir Árna
Thorsteinssonn við kvæðið: Til ís-
lands, eftir A. Hovden, norska skáld-
iö. Kvæðin eru eftir Þork. Þor-
kelsson stúdent, B. J. frá Vogi og
Sig. Grímsson stúdent, en ræðurnar
eftir alþm. Ben. Sveinsson og Bjarna
frá Vogi. Á titilsíðunni er mynd eftir
Ríkarð Jónsson: Nýi tíminn í drengs-
gervi, með lafandi vængi en lúður
við munn, blásandi fánalagið.
Blaðið „Vestri“ á ísafirði er hætt
að koma út um hríð vegna pappírs-
skorts.
Bæjarstjórnarkosninganiar. Tveir
listar eru komnir fram, annar frá
fjelaginu „Sjálfstjórn" og á honum:
Sveinn Björnsson yfird.lögm., frk.
Inga Lára Lárusdóttir, Guðm. Ás-
bjarnarson kaupm., Jón Ólafsson
skipstjóri, Jón Ófeigsson kennari,
Guðm. Eiríksson trjesmiður og Jón
Kristjánsson prófessor. — Frk. I. L.
L. er valin á listann af kvenfjelögum
i bænum, er tekið hafa höndum sam-
an við fjelagið „Sjálfstjórn“ í kosn-
ingunum.
Hinn listinn er frá Verkmannafje-
laginu „Dagrbún" og þeim fjelögum,
sem með því standa, og á honum:
lijáMöðin þjóðfræg'u
með fílsmerkinu og B. H. B.-stimplimim, sem er áreiðanlegt einkenni
um óbrigðult bit, veröa þrátt fyrir margvíslega örðugleika, að því er
alla útvegun snertir, aftur fáanleg i á í verslun undirritaðs.
Þar sem salan á blöðum þessum eykst stórum með ári hverju, þá væri
það heppilegast, ef sem flestir þeir sem á ljáblöðum þurfa að halda,
sendu hingað pantanir sínar sem allra fyrst, því langan tíma mun þurfa
til nýrra útvegana.
Verslunin hefur sömuleiðis fest kaup á talsverðum birgðum af ljábrýn-
um „Indian Pond Stone“, sem menn gætu pantað jafnhliða blöðunum.
Versl. B. H. Bjarnason.
Þorv. Þorvarðsson prentsmiðjustj.,
ólafur Friðriksson ritstjóri, Jón
Baldvinsson prentari, Kjartan Ólafs-
son verkam., Guðm. Davíðsson kenn-
ari og Jónbjörn Gíslason verkstjri.
7 bæjarfulltrúar verða kosnir, en
ekki 8, því stjórnarráðið hefur úr-
skurðað, að Ben. Sveinsson alþm.
skuli eiga sæti í bæjarstjórn áfram,en
hann átti annars að víkja eftir hlut-
kesti um hann og Jón Magnússon for-
sætisráðherra.
Kyrsettir farþegar. Tveir af far-
þegunum, sem ætluðu með „Sterling“
um daginn, voru kyrsettir af þvi, að
á þeim fundust brjef, sem þeir höfðu
tekið til flutnings til Khafnar, en
enska stjórnin hafði leyft farþega-
flutning með skipinu, en bannað póst-
flutning, og farþegarnir höfðu allir
skrifað undir skuldbindingu um, að
flytja ekki brjef.
Um þjóðarbúskap Þjóðverja flutti
þýski verkfræðingurinn Funk fyrir-
lestur siðastl. sunnudag fyrir Alþýðu-
fræðslu stúlentafelagsins. Hann tal-
aði á íslensku, hefur numið málið
svo. Fyrirlesturinn mun bráðlega
birtast á prenti.
Laust prestakall. Breiðabólsstaðar-
prestakall á Skógarströnd er auglýst
laust. Heimatekjur kr. 208,80. Veit-
ist frá fardögum 1918. Umsóknar-
frestur til 15. mars.
Yfirkjörstjórnaroddviti i Austur-
Skaftafellssýslu er sjera Pjetur Jóns-
son á Kálfafellsstað skipaður í stað
sjera Jóns Jónssonar á Stafafelli, er
sótt hafði um lausn.
Prentsmiðjusala. Nú um áramótin
var prentsmiðjan „Rún“, ásamt hinu
r.ýja steinhúsi við Ingólfsstræti, seld
eigendum „Fjelagsprentsmiðjunnar“.
og ætla þeir síðar að slá prentsmiðj-
unum saman í „Rúnar“-húsinu. Þar
hefur til þessa verið eina setjara-
vjelin, sem notuð hefur verið á þessu
landi. En nýju eigendurnir bæta þar
nú bráðlega annari við, svo að þarna
íús upp stór prentsmiðja.
Hafnarstjórastaðan. Það er rangt,
sem segir í siðasta tbl., að hr. Hjalti
Jónsson skipstjóri sje meðal umsækj-
endanna um hana.
Listamannastyrkurinn. Úr tölu
þeirra, sem hann fengu nú, hefur fall-
ið í síðasta tbl. Br. Þórðarson málari.
Hann fjekk 500 kr.
Bæjarstjórnarmál. Á síðasta fundi
bæjarstjórnar var skýrt frá, að dýr-
tíðarvinnu hjá bænum stunduðu nú
235 menn og fyllilega eins margir
hjá landsjóði. Frá nýju frv. um bæj-
argjöld er sagt á öðrum stað í blað-
inu. Mjólkursölubúðir voru löggiltar
á þremur stöðum, hjá Davíð Ólafs-
syni bakara á Hverfisgötu, frú Kr.
Símonarson í Vallarstræti og Sveini
Hjartarsyni bakara á Bræðraborgar-
stíg. Beiðni frá Páli Níelssyni, um lóð
fyrir fiskisölu var visað til hafnar-
nefndar. Lesin var tilkynning til bæj-
arfógeta frá stjórnarráðinu um að
dýrtíðarlán til bæja- og sveitafjelaga
)7rði ekki veitt samkv. ákvæðum lag-
anna frá síðasta þingi, heldur að eins
bráðabirgðarlán gegn rentum og
endurgreiðslu. Kæra kom fram frá
nokkrum bæjarbúum út af því, að
allmargir kjósendur höfðu verið
strykaðir út af kjörskrá til bæjar-
stjórnarkosninga, vegna þess að þeir
höfðu ekkert goldið upp í bæjargjöld
sin siðastl. ár. Var deilt um það í
bæjarstj. hvort þetta væri leyfilegt
að lögum, og meðal lögfræðinganna
eru skiftar skoðanir um það. En í
bæjarstjórninni er málið enn óútkljáð.
Mannalát. 17. þ. m. andaðist á Ak-
ureyri Snorri kaupm. Jónsson, einn
af merkustu borgurum þar í bæn-
um. Hafði legið sjúkur frá því fyrir
jól og talið, að hann muni hafa dáið
úr Krabbameini.
Aðfaranótt 21. þ. m. andaðist hjer í
bænum Gunnar Björnsson, skósmið-
ur, faðir Pjeturs Þ. J. Gunnarssonar
kaupmanns, Steindórs prentsmiðju-
stjóra og þeirra systkina.
Nýlega er dáin á Einarsstöðum
í Kaldaðarnéshverfi í Árnessýslu hús-
frú Jakobína Björnsdóttir, ekkja Ein-
ar Ingimundarsonar umboðsmanns í
Kaldaðarnesi, 83 ára gömul, fædd 16.
apríl 1834.
Guðmundur Olsen kaupmaður and-
aðist hjer i bænum 21. þ. m., varð
bi'áðkvaddur nál. kl. 6 um daginn, og
var þá í verslunarbúð sinni. Hann
var á sjötugsaldri, alþektur maður
hjer í bænum, og verður hans nánar
getið síðar.
Slys af reyk. Laugardagsmorgun-
inn 17. þ. m. fundust hjónin á Krögg-
ólfsstöðum í Ölfusi meðvitundarlaus
i rúmum sinum. Segja sumir, að ofn
hafi rokið svo mjög í herbergi þeirra
um nóttina, en aðrir segja ljósreyk or-
sökina. Gísli læknir Pjetursson á
Eyrarbakka var þegar sóttur, og
tókst honum að lífga konuna en ekki
manninn. Á sunnudaginn fór Konráð
læknir Konráðsson hjeðan á stað
austur i bíl,og var þá enn talið tvísýnt
um lif bóndans. En bíllinn komst
ekki nema nokkuð hjer upp fyrir,
vegna skafla á véginum. Bóndinn
andaðist kl. 4 á mánudaginn. Hann
hjet Engilbert Sigurðsson og konan
heitir Sigþrúður Eggertsdóttir. Eng-
ilbert var bróðir þeirra Ögmundar
skólastjóra í Flensborg og Kristjáns
áður ritstjóra „Lögbergs“, var odd-
viti í Ölfushreppi, dugnaðar- og
myndarmaður.
Leikara-afmælin. I síðasta tbl. var
getið um, að þau Helgi Helgason
verslunarstj. og frú Stefanía Guð-
mundsdóttir ættu 25 ára leikafmæli
í þessum mánuði. En Friðfinnur Guð-
jónsson prentari á það líka, byrjaði
að leika hjer sama dag og frú Stefan-
ia, 30. jan. 1893. Hafði reyndar kom-
ið fram á leiksviði, í litlu hlutverki,
tæpum 3 árum áður á Akureyri.
Hjálpræðisherinn. Fyrir jólin safn-
aði hann gjöfum handa fátækum í
jólapotta og á annan hátt, eins og
venja er til, og fjekk inn kr. 718,67.
Fyrir þetta hjelt hann jólaskemtanir
fyrir 150 gamalmenni, 184 börn og
70 sjómenn, þar af marga útlend-
inga, sem sátu hjer og biðu skipa-
ferða. Enn fremur var útbýtt til fá-
tækra heimila 25 sauðarlærum, 25
bögglum af kaffi og sykri og 25 jóla-
kökum. Á jólaskemtununum var veitt
súkkulaði með jólakökum. Matvör-
urnar, sem keyptar voru, námu kr.
27l-25< kostnaður við jólaveitslurnar
kr. 283.96, en 80 kr. var útbýtt í
peningum. Afgangur, sem notast
seinna, varð kr. 83.46. Af upphæö-
inni, sem nefnd er hjer á undan, gaf
G. Copland kaupm. 200 kr. J. Bjerg
kaupm., eða Vöruhúsið, gaf 50 kr. í
ullarvörum til útbýtingar meðal fá-
tæklinga.
Einar Jochumsson kvað, er hann
kom út morguninn 13. þ. m.:
Grimdarharka um borg og bý
blöskrar manna kyni;
gott frýs samt ei orð guðs í
Einari Jo.chumssyni.
Um Einar Jochumsson kvað kona
hjer í bænum nýlega:
Einar þótt ei flytji fjöll
fær í orðaglímum,
er hann mesta andans tröll
okkar nú á tímum.
Sá ei felur merginn máls,
myrkra verk er lasta.
Hans er andi hreinn og frjáls,
hneykslum vill því kasta.