Lögrétta

Eksemplar

Lögrétta - 08.05.1918, Side 1

Lögrétta - 08.05.1918, Side 1
Ritstjóri: ÞORST. GÍSLASON. Þingholtsstræti iy. Talsími 178. LOGRJETTA AfgreiSslu- og innheimtum.: ÞÓR. B. ÞORLÁKSSON. Bankastræti 11. Talsími 359. Nr. 20 Bækur, innlendar og erlendar, pappír og alls- konar ritföng, kaupa allir í likHirilmi SiBlínr [ymufldinnar. Lárus Fjeldsteð, yfirrjettarmálafærslumaður Lækjargata 2. Venjulega heima kl. 4—7 síðd. Radíumsjóður íslands stofnaður. Thor jensen framkvæmdastjóri gefur til hans 20 jms. kr. Eins og áSur hefur veriö getiö í blööunum, beittust Oddfjelagar fyrir því i vor, aö koma radium-málinu i framkvæmd, meö því aö gangast fyr- ir fjársöfnun til Radíum-stofnunar. Áöur en Oddfjelagar tóku málið aö sjer, voru komnar nokkrar stórgjafir til fyrirtækisins frá Fiskiveiðahluta- íjelaginu „Iiaukur", Geo Copland, L. Kaaber o. fl., og hefur þeirra áöur veriö getiö hjer í blaðinu. Oddfjelagar kusu sín á meðal níu manna nefnd, er unnið hefur síöan að fjársöfnun og undirtektir verið svo ágætar, aö hægt var á laugardaginn að stofna hjer Radíumfjelag: „Radíumsjóð Islands“. lands“. Á stofnfundinum reifaði Jón Lax- dal kaupmaður málið fyrir hönd nefndar Oddfjelaga. Gat hann þess, að nú væri alls safnað í innborguðu fje og loforðum um 150,000 krónur. Höfðu Oddfjelagar sett sjer það mark, að ná saman þeirri upphæð, og er fengin voru 130 þús., sagði Thor Jensen framkvæmdastjóri, að liann skyldi bæta viö því, s,em á vantáði, eða 20 þús. kr. Sá maður mun eiga fáa sína líka að höfðings- skap og er það orðinn stór auður, ef saman væri talið, sem hann hefur gefið til ýmsra þarfra fyrirtækja og við ýms tækifæri, er þörf hefur ver- ið á fjárframlögum. Hr, Jón Laxdal skýrði frá, að auk 25,000 kr-, sem safnast höfðu áður en Oddfjelagar tóku málið að sjer, væru komin loforð fyrir um 40,000 kr. gjöf frá Oddfjelögum og 83,000 kr. frá öðrum fjelögum og einstök- um mönnum. Hæstu gefendurnir, ut- an Oddfjelaga og þeirra, sem nefnd- ir eru hjer á undan, eru „Bragi“ með 3000, Elías Stefánsson með 2500 kr. °g ýmsir með 1000 kr., 500 kr. og minni upphæðir. Stjórnir í nokkrum fjelögum hafa lofað álitlegum fjár- tipphæðuni, að áskildu samþykki að- alfunda. Þar næst voru samþykt lög fyrir Radíumsjóðinn, en samkvæmt þeim getur hver sá orðið fjelagi \ sjóðn- um, sem leggur fram loo króna til- lag. Hver fjelagi heftir eitt atkvæði án tillits til þess hvað hann hefur lagt fram. t stjórn voru kosnír þessif niertn ng hafa skift þannig með sjer verk- rtm: Tlior Jensen stórkaupm. (for- maður), TTalldór Daníelsson (vara- formaður), Sveinn Björnsson yfir- dómslögmaöur (ritari), Jón Laxdal stórkaupmaður (gjalkeri) og Sæm Bjarnhjeðinsson prófessor, Varamað- ur í stjórnina var kjörinn Eggert Claessen yfirrjettarmálaflutningsm-, endurskoðendur Jón Pálsson banka- gjaldkeri og Morten Hansen skóla- stjóri, til vara Matthías Einarsson læknir. Það er tilætlunin, að vinda eins bráðan bug og hægt er að því að koma Radíumstofnuninni á fót og getur hún væntanlega tekið til starfa einhvern tíma á þessu ári. Fjáraflamönnum þessa bæjar er það sómi, hve fljótt og vel hefur gengið að koma þessu fyrirtæki á laggirnar. Utanríkisverslun Þjóðverja. Eftir G. Funk, verkfræðing. (Niðurl.) Um tíma unnu menn að eins að þvi að auka járnbrautanetið, en ljetu vatnavegina sitja á hakanum, en á síðari timum tóku menn aftur að leggja rækt við þá. Að vísu er flutn- ingur á fljótum og skurðum mjög seinlegur, en hann er miklu ódýrari og því ágætlega fallinn fyrir þunga- vöru, svo sem kol, sement, tígulstein og kornvöru. Hversu þýðingarmiklir vatnávegirnir eru fyrir Þýskaland, sjest á því, að skip þau, er halda uppi siglingum á Rín, eru að smálestatölu jöfn öllum norska verslunarflotanum. Flest af hinum stærri fljótum Þýska- lands, nefnilega Rín, Weser, Elbe, Oder og Weichsel, eru nú tengd sam- an með skurðum, sem eru nægilega stórir fyrir skip með 600 smálesta burðarmagni. Einkum nú, meðan á stríðinu stendur, og tilfinnanlegur skortur er á kolum, eru vatnavegirnir mjög mikið notaðir og þykir leitt, að þetta net skuli ekki hafa verið stærra. Vatnavegir og járnbrautir urðu á stríðstímunum að halda við samband- inu milli hinna innilokuðu ríkja í Miðevrópu. Og þýðing þeirra varð enn þá meiri við það járnbrautaleiðin var hin eina er tengdi Þýskaland við bandamenn þeirra í Tyrklandi. Þess vegna var einnig bandalagið við Búlg- aríu og sigurinn yfir Serbíu, árið 1915, svo afarmikils virði, því við það varð leiðin loks algerlega opin, Nú gat Þýskaland fyrst verulega stutt Tyrkland með hergögnum og Tyrkland látið Miðveldin njóta góðs af hráefnum sínum. Einnig jukust nú mjög siglingar á Dóná, því þann veg gat Þýskaland fengið korn og stein- oliú frá Rúmeníu á ódýran hátt. Þegar við byrjun ófriðarins höfðu bandamenn yfirráðin á hafinu og þar með var Þýskaland án sambands við fjórar heimsálfur. Að eins hin til- tölulega litla verslun við hin hlut- lausu nábúalönd, sem vjer höfum þeg- ar minst á, þar sem talað var um gengi þýskrar myntar, var enn við líði. Þýskaland fjekk nú í fullum mæli að kenna á erfiðleikum þeim, sem ó- friður hefur í för með sjer fyrir land, sem hefur mikla utanríkisverslun, en hefur ekki yfirráðinu á sjónum. Raun- ar hepnaöist með sparsemi og reglu- bundnu fyrirkomulagi að sigrast á hættunni, sem stafaði af aðflutninga- leysisins. En af stöðvun útflutningsins stafaði einnig mikið tjón. Margar verksíniðjur urðu að hætta vinnu af því, að þær gátu ekki selt vörur sínar á útlendum markaði. Verkamenn töp- uðu kaupi sínu og kaupmenn verslun- arágóða sínum. En bandamenn ljetu sjer ekki nægja hafnbannið, þeir hófu einnig reglu- lega herför gegn verslun Þýskalattds. „W ar on German Trad e“, var orðtæki þeirra. í löndum þeirra voru allir þýskir fjárttlunir, jarðeignir, verslanir og verksmiðjur, teknar af tíkinu og seldar fyrir gjafverð. En Þjoðverjar, sem þar voru, og fjöl- skyldur þeirra voru geymdir í fattga- búðtun. Með þessu vonuðust menn eftir að verða lausir við þýsku sam- kepnina eftir striðið. Svo langt var tneira að segja gengið, að á sama Reykjavík, 8. mai 1918. XIII. árg. hátt var farið með Þjóðverja, sem heima áttu í þýskum nýlendum, með öðrum orðum í þýsku landi* f. Þýsk verslunarhús í hlutlausum löndum var aftur á móti reynt að skaða með hin- um alþektu „sv-örtu listum“. Þetta varð til þess að. vekja í Þýskalandi hið hræðilega hatur til Englands’ sem oft og tíðum kom alt of mjög i ljós í blöðum og bókum. Menn gengu jafnvel svo langt, að skoða allan ófriðinn sem atrennu til að eyðileggja þýsku utanríkisverslun- ma. Menn vitnuðu til fortíðarinnar og mintu á það, að þegar árið 1887 hafði England ákveðið, að á allar innflutt- ar vörur skyldi stimplað í hvaða landi þær væru tilbúnir. Þýskar vörur áttu að vera auðkendar sem slíkar, svo kaupendur skyldu forðast þær. Það- an stafar hið alkunna „Made in Ger- many“, sem þó ekki náði tilgangi sín- um. — Menn vitnuðu til orða mikils- megandi manna og gamalla blaða- greina. Einkum var það ein grein úr „Saturday Rewiev,* sem gekk aftur í hverju þýsku blaði. í óíriðaræsing- unni gerðu menn ef til vill of mikið úr þessum orðum blaðanna og ein- stakra manna, en vafalaust hefur, auk pólitískra atriða, hinn fljóti viðgang- ur þýskrar utanríkisverslunar átt af- armikinn þátt i að auka ríginn milli Þýskalands og Englands. Og Þýska- land varð bersýnilega, einkum á allra síðustu árum, mjög hættulegur keppi- nautur- Þannig hefur það á síðustu 10 árum ekki að eins náð Englandi í útflutningi á vjelum, heldur einnig komist framar, og hafði þó England áður fullkomið heimsveldi á því sviði.* Þetta varð auðvitað ekki til þess að gera ensku verksmiðjueig- endurna vinveittari Þýskalandi. Og vil jeg jafnvel leyfa mjer að ganga lengra og skoða þýsku versl- unina sem orsök mikils hluta óvildar þeirrar gegn Þýskalandi, sem komið hefur í ljós hjá ýmsum hlutlausum ríkjum meðan stríðið hefur staðið. í alþjóðaviðskiftum hefur sem sje sá sem hefur á boðstólum matvörur og hráefni næstum verið skoðaður sem hjálparhella, en aftur á móti hinn, sem hafði á boðstólum fullgerðar iðn- aðarvörur, sem óþægilegur keppi- nautur, hættulegur fyrir landsins eig- in iðnað, og því álitið að hann yrði að útiloka með verndartollum og öðr- um ráðum. En Þýskaland var svo illa sett, að það hafði mikið af iðn- aðarvörum, sem það varð að selja í öðrum löndum, og þess vegna áttu þýskir kaupmenn í sifeldri baráttu við kaupmenn annara landa heims- ins, einkum Englands, Frakklands og Bandarikjanna, um markaðinn i Suður-Ameríku, Kína og jafnvel í þessum löndum sjálfum og nýlendum þeirra. Og árangurinn, sem þeir báru úr býtum, bætti heldur ekki um vin- sældirnar. Það, að þjóðarbúskapur Þjóðverja var bygður á utanríkisversluninni, varð einnig til að marka stefnu rikis- ins i stjórnmálum- Hagkvæmast hefði það verið fyrir Þýskaland að ná í meiri nýlendur, fá þaðan hráefni og geta selt þar iðnaðarvörur sínar og * Ef Þýskaland hefði hjer viljað gjalda líku líkt, þá hefði það átt að gera kolanámurnar í Norður-Frakk- landi upptækar og selja þær Þjóð- verjuml * í „Saturday Rewiev“ stóð, árið ^97) þessi klausa: „If Germany were extinguished to-morrow the day after to-morrow, there is not an Englishman in the world who fought for years over a cityor arihgt of succession; must they not fight for 250 million pounds of yearly commerce.“ * Verð útfluttra vjela í milj. kr.: Landsbókasafnið. Samkv. 11. gr. í reglum um afnot Landsbókasafnsins, eru allir lán- takendur ámintir um að skila öllum þeim bókum, er þeir hafa að láni úr safninu, fyrir 14. d. maímán. næstk., og verður engin bók lánuð það- an, meðan á innheimtu bókanna stendur (1.—14. maí). Skilatími kl. 1— 3 síðdegis- Landsbókas. 29. d. aprílmán. 1918. Jón Jacobaon. Þýska- Stórabret- Banda- land. land, ríkin. 1902 . •‘• ±33 342 208 1905 •• .. 197 410 279 1908 . ... 320 511 313 1911 . • *• 485 497 462 !9*3 • ... 605 600 54Ó til þess aö veita svigrúm þeim, sem ofaukið var í landinu sjálfu þegar fólkinu fjölgaði. En mestur hluti heimsins var þegar kominn í þær hendur, að það lá ekki laust fyrir. Einkum England, Rússland og Frakkland áttu þegar stórkostlegar nýlendur og þeim tókst einnig á síð- ari árum að auka þær mikið, eins og þegar England lagði undir sig Búa- lýðveldin og Egiftaland, og Frakk- land Marokkó.* En Þýskaland gekk jafnan tómhent frá þessari skiftingu heimsins. Þá reyndi það að finna nýtt verksvið fyrir framtakssemi versl- unarstjettar sinnar i þeim löndum, sem enn voru sjálfstæð, Tyrklandi, Kína og Persíu. Það byrjaði með því að stofna þar til járnbrautalagninga, námugraftar og verksmiðjuiðnaðar. En hin stórveldin höfðu einnig feng- ið augastað á þessum löndum og á- litu viðleitni Þjóðverja koma í bág við sína hagsmuni. Þau reyndu með ölum ráðum að hindra starfsemi þýsku kaupmannanna og iðnrekendr anna. Þannig komst Þýskaland í hnippingar við næstum öll stórveldi heimsins og þessar eilífu verslunar- erjur áttu mikinn þátt í því að skapa þá óvild milli ríkjanna í Evrópu, er að lokum leiddi af sjer heimsstyrjöld- ina. Ósjálfrátt verður manni að spyrja, hvort ófriðurinn muni geta bundið enda á þessar erjur. En því miður lítur eiginlega, út fyrir, að einmitt það gagnstæða muni eiga sjer stað, að þær muni verða enn meiri en áður. Fyrst og fremst er óvild sú á milli þjóðanna, sem ófriðurinn vekur, ekki þessleg, að hún muni bæta verslunar- viðskifti þeirra á milli, auk þess hafa bandamenn beint lýst því yfir, að það sje eitt markmið þeirra, að berj- ast með öllum meðulum á móti þýsku utanrikisversluninni. Þess vegna voru í september 1916 fulltrúar frá.banda- mannaríkjunum kallaðir á sjerstaka láðstefnu til Parísar til þess að taka ákvarðanir um baráttu'na gegn þýsku utanríkisversluninni eftir stríðið. Til- ætlunin er ekki að eins að útiloka þýskar vörur með öllum ráðum frá þessum löndum, heldur á einnig að hindra hráefnaflutning þann, sem hingað til hefur átt sjer stað frá ný- lendum Englands, Frakklands og Bandaríkjanna til Þýskalands, svo að heilar iðnaðargreinar verði algerlega lamaðar. Enn fremur átti landið ekki að eins að missa Elsass og Lothrin- gen og nýlendur sínar, heldur átti einnig að skilja Rínarlöndin frá þýska ríkinu og gera úr þeim sjálf- stætt riki.* Slikt tap hlaut að verða þýsku viðskiftalífi til hins mesta tjóns. Framkvæmdir þessara ráða- gerða hlutu að verða til þess, að þýskaland færi fjárhagslega á höf- uðið, þegar þær bættust ofan á fjár- tjónið við ófriðinn. En til allrar hamingju voru þetta * Nýlenduríki nokkurra landa. (I9I3)- t'erkilómetrár. íhúatala. Stórabretlalld 29818000 422869000 Frakkland 10113000 49627000 Þýskaland 2952000 11992000 tlolland 2045000 38106000 * Trotzky birti 25. nóv. 1917 skeyti, sem fariö höfðu milli stjórna Rússlands og Frakklands. Af þeim sjest, að bæði ríkin voru sammála um að setja það sem friðarskilyrði, að hin þýsku hjeruð vestan Rtnar yrðtt hlutlaus ríki. af Sveri 1 L> Havnegade 51, Kbhavn. Sími 11671. Símnefni: Kongenafsverige. Einstök og samliggjandi her- bergi með raflýsingu og öllum nútíð- arþægindum. Sjerstakur veitingasal- ur með innlendum og útlendum blöð- úm, einnig íslenskum. Lágt verð. — Komið og-skoðið, áður en þjer vistið yður annarsstaðar. — Var áður á Is- lendingastöðinni Hotel Scandia. Jeau Iverseu. að eins ráðagerðir, og jafn vel í bandamannalöndunum rjeðu margir mikilsráðandi menn til að fara hóf- lega í sakirnar. í Þýskalandi sáu menn að ástandið var alvarlegt og átti það ekki lítinn þátt í því, að stæla upp vilja þjóðarinnar til áfram- halds. En mönnum duldust heldur ekki erfiðleikarnir á því, að heyja slíkt verslunarstríð. Lönd þau, er áður höfðu selt Þýskalandi hráefni og matvörur, vilja ógjarnan missa það úr tölu viðskiftavina sinna og verða þá að taka þýskar vörur í skiftum. Þetta viðurkendi Rússland og ítalía þegar árið 1916 og var því ekki ljúft að ganga inn á ráðagerð Parísarráð- stefnunnar. England og Þýskaland áttu einnig fyrir ófriðinn mikil skifti saman, og þeir bretskir kaupmenn, sem fyrir ófriðinn græddu á slíkri verslun, munu aö öllum líkindum seil- ast í þann gróða aftur að ófriðnum loknum.* Allar þessar kringumstæður gefa von um að verslunarstríð eftir ófrið- inn muni ekki bera árangur. Jeg vona meira að segja, að slíkt stríð verði alls ekki hafið, því það myndi ekki að eins skaða Þýskaland, heldur einn- ig vera bölvun fyrir allan heiminn, og einnig fyrir bandamannalöndin sjálf. Auk þess myndi það leiða af sjer þá voðalegu hættu að nýr ófriður gæti orðið út úr því. En heimurinn þarf á friði að halda, löngum friði, til þess að ná sjer eftir hið ógurlega tjón, sem hann hefur beðið við þenn- an ófrið. Og ekkert getur betur trygt frið en það að þjóðirnar taki aftur upp friðsamleg vöruskifti, hver þjóð taki af þeim fjársjóðum, er náttúran liefur látið falla henni í skaut, og þjóðir þær, er ríkar eru af hráefnum, miðli öðrum þjóðum af þeim, er van- hagar um þau, en þær gjaldi aftur með vinnuorku sinni, þeð er að segja selji fullgerðar vörur. Slík friðsam- leg viðskifti tryggja betur friðinn í framtíðinni en nokkur alþjóðaráð- stefna, þar sem þó ávalt meirihlutinn myndi kúga minnihlutann engu síður en á þingum hinna einstöku landa. * Verslun Þýskalands við banda- mannaríkin árið 1913 í milj. kr.: Til Frá Þýskalands. Þýsk»landl. Stórabretland .. 780 1280 Frakkland ......... 520 703 Rússland 1267 783 Bandaríkin ..... 1522 635 ítalía 282 341 Öll verslun Þýska- lands ............ 10360 9682

x

Lögrétta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.