Lögrétta - 16.11.1918, Page 3
Eggert Claessen
yfirrjettarmálaflutningsmaCur.
Pósthússtræti 17.. Venjulega heiina
kl. 10—11 og 4—5. Talsimi 16.
Þakkarávarp.
Innilegasta hjartans þakklæti vott-
um við þeim hr. Snæbirni Arnljóts-
syni kaupmanni í Reykjavík og frú
hans fyrir staka hjálpsemi, göfug-
lyndi og alúð, er þau sýndu Jóni sál.
Sigurðssyni frá Bægisstöðum í Þist-
ilfiröi í sumar sem leið, er hann lá
banaleguna á Landakotsspítala.
Þórshöfn 22. okt. 1918.
Ekkja og börn hins látna:
Salóme Jónasdóttir. Helga Jónsdóttir.
María Jónsdóttir. Guðrún S. Jónsd.
Jóhann Jónsson.
og Austurland, og muni þar nú verða
dimmur dagur. En vera má þó, aS
aðallega yfir óbygðirnar, fjöllin og
firnindin á þessari leið, og má þess
vænta, ef hæg er áttin og ferðin á
mekkinum. —
24. okt. — Snjóaði og gerði alhvítt
í gær, úr hafi. Snerist svo með kvöld-
inu í rigningu fram á nótt, en þá
fraus, og er nú gráhvít jörð. Loft
er heiðríkt hjer, með hægum norðan
kalda, og sólfar bjart- Mökkurinn
sjest nú mjög skýrt, alveg sami og
í gær, en stefnir nú að sjá í suður-
útsuður.
Þá góðu sögu er nú að segja að
lokum, að óhollusta sú, er brydda
þótti á í skepnum sumstaðar í byrjun
gossins, er nú sögð hverfandi eða
jafnvel engin. —
Sú trú eða von er nú líka farin
að ryðja sjer til rúms, að öskufallið
muni ekki vera óholt að öðru leyti
en því, að það taki fyrir haga, sem
voru sáralitlir undir vegna grasleys-
is. Og jafnvel eru sumir svo bjart-
sýnir, að þeir gera sjer í hugarlund,
að í og með öskufallinu hafi og fall-
ið frjóefni með jökulleðju yfir jörð-
ina. —
óskandi væri og ómetanlega dýr-
mætt, að alt þetta rættist. Færi þá
betur en á horfðist íyr^ og betur
cn cftir Tnörg fyrrt gos.
Niðurl. Ó. T.
HÖrmungar og manndauði.
Tvær síðastl. vikurnar hafa verið
hörmungatímar hjer í bænum, og á
nú margur um sárt að binda. Inflú-
enzusóttin hefur geisað með gríðar-
hraða og á mörgum heimilum lagt
hvert mannsbarn í rúmin, svo að
segja í einu. Síðastl. 10 daga hefur
ekkert blað komið út í bænum, flest-
um búðum hefur verið lokað vegna
íólksleysis, fleiri eða færra daga,
símasamband um hríð af skornum
skamti, læknar margir sjúkir og svo
mikil ös í lyfjabúðinni frá morgni
til kvölds, að afgreiðslan var þar
mjög erfið.
Veikin er nú í rjenun, og þó fjarri
þvi, að enn sje sjeð fyrir allar afleið-
ingar hennar. Manndauði er orðinn
mikill. Er nú sagt, að um 80 sjeu
dánir. Að þessu sinni er ekki hægt
að birta hjer skrá yfir þá. En meðal
þeirra eru:
Frú Torfhildur Hólm, skáldkona.
Frú Þóra Hermannsson, kona Odds
Hermannssonar skrifstofustjóra.kjör-
dóttir Jóns Magnússonar forsætis-
ráðherra-
Frú Elín Laxdal, kona Jóns kaup-
manns Laxdals, dóttir sjera Matth.
Jochumssonar skálds. '
Jón Kristjánsson prófessor og kona
hans Þórdís Benediktsdóttir Þórarins-
sonar kaupmanns.
Jóhann Kristjánsson ættfræðingur.
Páll Matthíasson skipstjóri.
Frú Guðrún Sigurðardóttir, kona
Jónatans kaupmanns Þorsteinssonar.
Kristján Hall bakari og kona hans.
Jón Sigurðsson umboðssali, sonur
Sigurðar heitins Jónssonar fanga-
varðar.
Frú Stefanía Guðmundsdóttir, kona
Páls kaupm- í Kaupangi.
Frú Halldóra kona Guðmundar
múrara í Ingólfsstræti 18.
Jón kaupmaður Jónsson frá Vað-
nesi, dó í morgun.
LÖGRJETTA
183
RanaHdka á ösku
tír Köt u.
Að tilhlutun BúnaÖarfjelags ís-
lands var askan úr Kötlu 1918
rannsökuð, til þess að komast að
raun um, hver efni væru í henni
og eru aðalefnin sem hjer segir.
Askan úr Kötlu er dökk á litinn,
mjög smágerð, en ekki mjög þung
í sjer. Mestur hluti öskunnar er
kísilúr efnasamsteypa, auk þess er
i henni nokkuð af járni, alumin-
ium, kalki, magnium, brennisteini,
klóri og fósfór. Járnið er í svo-
nefndu f e r r o s a m b a n d i, en
þannig er járnið skaðvænt öllum
jurtagróði. þegar askan viðrast,
breytist þetta skaðvæna járnsam-
band í óskaðvæna efnasamsteypu
(ferrisamband). Járnið i öskunni
getur því að eins dregið úr gras-
vexti á meðan það er að viðrast,
en það tekur tiltölulega skamman
tíma. Brennisteinninn í öskunni er
mestmegnis sameinaður magnium.
Sú efnasamsteypa rennur í vatni
og hripar því á skömmum tíma
niður í jarðveginn. Brennisteinn
ætti því ekki að valda verulegum
grasbresti. Fosfórinn i öskunni er
að miklu leyti sameinaður kalk-
inu, en sú efnasamsteypa rennur
treglega, en er fremur hagstæð
jurtagróðri. Aluminium greiðir
ekki fyrir grasvexti, en magnium
má telja hagstætt efni.
Eftir þessari efnagreiningu að
dæma, verður ekki sagt, að nein
þau efni sjeu í öskunni, sem veru-
lega geti valdið grasbresti, síst til
lengdar. Hitt er augljóst, að hlað-
ist mikið á af ösku, þá kæfir hún
gróðurinn, því eins og áður er
tekið fram, er askan mestmegnis
kísilsúr efnasamsteypa, en hún
rennur ekki í vatni og sekkur því
seint í jarðveginn.
þau efni i öskunni, sem kynnu
að vera búpeningi saknæm, eru
fosfór og magnium. Magnium er
í brennisteinssúru sambandi og
gæti því valdið skitu í fjenaði.
Raunar telur Magnús Einarson
dýralæknir ekki neina verulega
hættu stafa af þessu, því að tæp-
lega væri svo mikið af því efni, að
verulegra áhrifa gætti á fjenaði.
Hitt telur hann líklegra, að fosfór-
inn geti ef til vill valdið kvilla, t.
d. tannlosi eða ofvexti í beinurn.
— Eftir tilmælum dýralæknisins
reyndi jeg að kanna fosfórsýru og
reyndist hún að vera mest 1,6%,
en það var í ösku að austan. í ösk-
unni hjeðan úr bænum var mikið
minna af fosfór.
Askan var athuguð í smásjá
til þess, að liægt væri að komast
að raun um, hvort vart yrði við
glerkenda straungla, er sært gætu
innyflin, en ekki varð vart við neitt.
þessháttar svo teljandi sje.
Loks má geta þess, að askan var
rannsökuð eftir að hún var nýfall-
in, en til þess að vita á hvern hátt
hún breytist við úrkomur og áhrif
loftsins, var tekið dálitið af sama
öskusýnishorni og rannsakað var
og verður það látið viðrast fram
eftir vetrinum, áður en þáð verð-
ur rannsakað.
Reykjavík, 21. okt. 1918.
Gísli Guðmundsson.
Strídid.
Tyrkir gefast upp.
Vopnahljessamningar voru undir-
skrifaðir milli bandamanna og Tyrkja
kvöldiS 31. f. m. og skyldu ganga í
gildi um hádegi 1. þ. m., segir fregn
frá Lundúnum. HöfSu Tyrkir geng-
iS aS öllum þeim skilyrSum, sem
bandamenn settu þeirn,, en hver þau
sjeu, er enn ekki uppi látið, nema
það, að flota bandamanna sje leyf'ö
umferö um sundin inn í Svartahaf.
og öll vigi viS Dardanellasund eigi
aS afhendast þeim. Ennfremur, að
þeir skili bandamönnum nú þegar
öllum herföngum.
Áður en þetta gerðist hjá Tyrkjum
höfSu þeir eftir 6 daga orustu austur
viS Tigris, skamt fyrir sunnan Mosul,
beðið ósigur fyrir Englendingum og
herliS þeirra þar gefist upp. Tyrkir
sendu enska hershöföingjann Towns-
end, sem veriö hefur fangi þeirra
frá því er hann gafst upp í Kut-el-
Amara, meS vopnahljesbeiönina til
herstjórnar Englendinga. Samning-
arnir voru undirskrifaSir í Mudros á
Lemnosey, en þar hafa bandamenn
haft megin stöSvar í sókninni gegn
Tyrkjum frá byrjun stríSsins-
Austurríki-Ungverjaland gefst upp.
ÁstandiS þar viröist meira og meira
vera aS likjast þvi ástandi, sem vac
í Rússlandi eftir byltinguna þar.
Einhver mikilhæfasti stjórnmála-
maSur Ungverja, Stephan Tisza
greifi, var skotinn á götu i Buda-
Pest, segir Berlinarfregn frá 1. þ.
m. Hann var á gangi meö frændkonu
sinni og særSist hún mikið, en hann
beið þegar bana. Svo nefnt „ÞjóSráS1*
hefur tekiö aS sjer yfirstjórn lands-
ins. Hefur Joseph erkihertogi og
sonur hans, Joseph Franz, svar-
iS því svohljóöandi eiö: „Jeg
lofa því, og legg þar viö æru mína,
aö hlíöa skilyröislaust öllum skipun-
um ÞjóSráösins og styöja þaö og
styrkja í öllum þess athöfnum." -—
Einnig hafa ráöherrarnir unniö Þjóö-
ráöinu trúnaðareiða og hafa þeir á
höndum framkvæmdavald og stjórn-
arvald rikisins undir eftirliti þest.
Andrassy greifi, sem fyrir skömmu
tók viö stjórn utanríkismálanna af
Burian, hefur sagt af sjer, og er
hann i ónáö þjóðráðsins, eftir fregn-
unum aö dæma. Ráðaneytið, sem hjer
hefur verið talað um, viröist hafa
veriö myndað af Karoly greifa.
Fregnir um þetta eru frá Berlín, og
segir þar enn fremur, aö verkmanna-
ráð hafi verið myndað í Buda-Pest,
og hafi það falið neínd, sem skipuö
sje 3 mönnum úr þjóðráðinu, verk-
mannaráöinu og hermannaráöinu, alt
framkvæmdarvald i borginni.
Lundúnafregn segir, að floti Aust-
urríkismanna í Adríahafi sje afhent-
ur stjórnarvöldum Suöur-Slava. Þar
er sagt frá því, aö herstjórn Austur-
ríkismanna hafi 29. f. m. beðiö ítali
um vopnahlje og sje nú verið aö ræða
um þá samninga, en her Austurríkis-
manna sje á undanhaldi á öllum vig-
stöövnnum og riddaraliS ítala nálg-
ist nú Tagliamento-ána; Italir hafi
tekið 700 fallbyssur og fangatalan
fari síhækkandi. Fregn frá 4. þ. m.
segir Karl keisara hafa lýst yfir, eftir
samkomulagi við ráöaneytiö og
flokksforingjana, aS hann segöi af
sjer og færi til Sviss. Parísarfregn
segir, aö stjórnarvöld Checko-Slo-
vaka sjeu aö taka viö stjóminni í öll-
um hjeruöum í Böhmen og Máhren.
Eftir að þetta var skrifaö, hefur
komið fregn, Berlínarskeyti frá 4. þ.
m., er segir vopnahlje samiö milli
Austurríkis og Italíu, en skilyröin
sjeu 111. a. þessi:
Aö ófriöi sje þegar hætt á landi*
sjó og í lofti, aS gjörvallur her Aust-
urríkis-Ungverjalands leggi þegar
niöur vopn, aö kallaðar veröi heim
allar þær austurrísku hersveitir, sem
berjast á vígvellinum frá Norðursjó
aS landamærum Svisslands, aö undir
vopnum verSi haldið í mesta lagi
20 herdeildum í landinu sjálfu, svo
sem á friðartímum, aö látinn verði
af hendi helmingur allra þeirra her-
gagna, sem Austurríkismenn hafa nú,
i þeim hjeruðum, sem þeir yfirgefa,
aö Austurríkismenn hverfi þegar í
staö burt úr öllum þeim löndum, er
þeir hafa tekið hervaldi, og dragi
liðiS inn fyrir fastákveSna línu.
Bandamenn fái rjett til þess, aö
flytja herliö sitt á öllum vatnsvegum
Austurríkis og nota þaö sem þeir
vilja af flutningatækjum Austurríkis.
aö setjast að hvar sem þeím sýnist
í Austurríki-Ungverjalandi$,vo lengi
sem þeim sýnist, hvort hefeur er til
þess að búa þar eöa til þess aö halda
þar uppi reglu, aö fá afhentar nauð-
synjar handa bandamannahernum
gegn borgun, aö allir þýskir hermenn
veröi sendir frá Austurríki irinan 15
daga, en allir þýskir hermenn, sem
finnast kynnu í Austurriki eftir þann
tíma, skuli teknir höndum. Austur-
ríki skili þegar i stað öllum hertekn-
um mönnum og öllum kyrsettum
þegnum bandamanna. Allar hernaö-
arráðstafanir hætti þegar í stað og
Austurríki láti uppi nákvæmlega hvar
skip þeirra eru nú. Austurriki láti af
hendi 15 kafbáta, sem eru i heima-
höfum Austurríkis eöa kunna aö
koma þangað, en allir aörir kafbátar
sjeu þegar i staö afvopnaðir, enda
sjeu þeir undir umsjón bandamanna.
Austurríki láti af hendi 3 bryndreka,
3 ljettibeitiskip, 9 tundurspilla, 1
tundurduflaskip, 6 turnbáta með öll-
um útbúnaöi. Öll önnur herskip skal
þegar afvopna, enda sjeu þau undir
umsjón bandamanna.
Frjálsar skulu allar siglingar
bandamanna og samherja þeirra i
landhelgi Adriahafs, á Doná og þver-
ám þeim, innan Austurrikis og ung-
verjalands, sem í hana renna. Banda-
menn hafa rjett til að taka öll tund-
urdufl og eyðileggja duflagirðingai
og skal þeim sagt til um, hvar þau
sjeu. Til þess aö tryggja fult sigl-
ingafrelsi á Doná, mega bandamenn
hvort heldur þeir vilja setja hervörð
i eða eyðileggja öll vígi og varnar-
virki við ána. Hafnbann bandamanna
helst með sömu tilhögun og nú er.
Skip Austurrikismanna og Ungverja
er hittast á siglingu, verða tekin her-
skildi. Austurrikismenn og Ungverj-
ar veröi burt af allri ströndinni og
úr hafnarborgum utan landa sinna
og láti af hendi öll skip og skipa-
gögn, hjúkrunaráhöld og siglinga-
nauðsynjar, hverju nafni sem nefn-
ast. Bandamenn taka á sitt vald öll
varnarvirki á sjó og landi, þar á meö-
al eyjavígin viö Pola, svo og skipa-
smiðastöðvar og skotfærageymslu-
skála. Skilaö skal aftur öllum versl-
unarskipum þeim, sem tekin hafa ver-
iö frá bandamönnum. Sömuleiðis sje
skilaö aftur öllum föngum banda-
manna, sem vera kynnu á valdi Aust-
urríkismanna og Ungverja, án þess
að bandamenn sjeu skyldir til jaö
gjalda í sömu mynt.
Þaö skal tekið fram, aö framan-
skráö skilyrði fyrir vopnahljei mega
eigi skiljast sem fordæmi fyrir vænt-
anlegum friöarsamningum- Þaö vai
enn fremur tekiö fram, aö skilmál-
ana bæri eigi aö skilja svo, að óvina-
her heföi opna leið til aö ráöast á
Þýskaland. Færi svo að Bandamenn
tæku eigi tillit til þessa, mun því
verða öfluglega mótmælt.
Þaö, sem hjer er á undan, var skrif-
aö fyrir 6. þ. m. og átti aö koma
í blaðinu þann dag. Síðan hafa gerst
stórviðburðir hjá ófriöarþjóöunum,
en fregnir þær, sem af þeim haia
borist hingað, meðal alt lá í lama-
sessi vegna veikindanna, hafa veriö
mjög slitróttar. Stríðinu mikla mun
nú vera lokið, og er komiö á
Vopnahlje milli Þjóðverja og
bandamanna.
Frá þessu er sagt í fregn frá 6. þ.
m. á þessa leið:
„Bandamenn lýsa því yfir yfir, að
þeir sjeu fúsir aö semja frið við Þjóð-
verja og leggja friöarskilmála Wil-
sons forseta í ræðu 8- janúar 1918 og
síðari ræðum, til grundvallar, með
þessum skýringum: 1. Bandamenn
áskilja sjer fullan rjett til, aö ákveöa
nánar hvaö „siglingafrelsi" þýon,
því þaö hefur verið skilið á ýmsa
vegu, sem þeir geta ekki gengiö aö.
2. í ræðunni 8. janúar sagöi Wilson
aö Þjóðverjar yrðu að veröa á burt
úr öllum herteknum löndum og end-
urreisa þau, en það ber aö skilja þann-
ig, að Þjóðverjar verða aö bæta öH
spell sem þeir hafa gert á mönnum
og eignum einstakra manna i löndum
bandamanna, hvort sem þau hafa ver-
iö gerö á landi, sjó eöa úr lofti. —
Wilson tjáir sig samþykkan þessum
skýringum. — Foch marskálkur hef-
ur veriö skipaður af stjórn Banda-
ríkjanna og stjórnum bandamanna til
að semja viö sendimenn Þjóðverja.
Fregn frá ii. þ. m. segir opinber-
lega tilkynt aö vopnahljeið hafi kom-
ist á kl. 11 þá um morguninn og hafi
þaö verið tilkynt í París meö miklum
fagnaðarlátum. Fregn frá 13. þ- m.
segir, aö Þjóðverjar hafi tjáð Wií-
son, að þeir vilja flýta sem mest friö-
arsamningum vegna yfirvofandi
hungursneyðar í landinu.
Uppreisn í Þýskalandi.
Fregn frá 11. þ. m. segir alt í upp-
námi í Þýskalandi. Þá hafa uppreisn-
armenn tekiö yfirráö í mörgum borg-
um á Norður-Þýskalandi og myndað
,,hermanna og verkmannaráö", á
sama hátt og Rússar, er þeir hófu
stjórnarbyltinguna. Fregn frá 13. þ.
m. segir jafnaðarmannaflokkana
þýsku hafa tekiö völdin i sínar hend-
ur og eru þeir Haase og Scheide-
mann báöir i stjórninni- Fyrsta verk
þessarar bráöabirgöastjórnar var, aö
samþykkja vopnahljessamningana.
Hún hefur svo lýst yfir, eða mál-
gögn hennar, aö Bolsjevíkakenning-
arnar rússnesku eigi enga fylgismenn
í þýsku stjórninni eða i landinu yfir
höfuð. Um Vilhjálm keisara er það
sagt, að hann hafi ásamt drotningu
sinni flúið til Hollands. Fregn kom
um, aö krónprinsinn hefði verið skot-
inn, en hún hefur veriö borin til baka
og þá sagt, að ókunnugt sje um, hvað
af honum hafi orðið.
Atkyæðagreiðsia
um s&mbandNináiið.
Nú er atkvæðatala komin úr öllum
kjördæmum landsins, vantar að eins
úr þeim hreppum Vestur-Skaftafells-
sýslu, sem eru austan Mýrdalssands.
1 Rvík er og eftir aö úrskuröa um
nál. 40 atkv. utanbæjarmanna, sem
hjer greiddu atkv.
í síðustu atkvæðaskrá hjer í blað-
inu voru rangt talin atkv. i Baröa-
strandarsýslu, átti að vera 373 já, en
voru þar talin 337. Hækkar við það
tala já-anna, sem þar voru komin, úr
11919 upp í 11955.
í N.-Múlas. voru 383 já, 2 nei
Áður talin ..... 11955 — 987 —
Samtals .... 12338 já, 989 nei
Ógildir atkvæðaseðlar og auðir
hafa verið alls 228. Nei-in eru tæpl.
7jú af hundraði.
Úrslitin mega heita góð, og hefur
atkvæðagreiðslan verið betur sótt til-
tölulega i sveitunum en í bæjunum.
Yfirleitt er það sagt, að kvenfölk hafi
sótt ver en karlmenn.
Frjettir.
Úr ellistyrktarsjóði hefur verið út-
hlutað hjer i bænum 11,010 kr. til
393 umsækjanda, en talað um aö veita
til viðbótar jafnmikla upphæð úr
bæjarsjóði.
Dáinn er nýlega í Khöfn Karl
Magnússon bókbindari, sonur Magn-
úsar Gunnarssonar, dyravarðar Al-
þingis, ungur maður, efnilegur, sem
fór til Khafnar siðastl. vor.
Lausn frá embætti hefur sjera Jens
V. Hjaltalín á Setbergi nýlega fengiö
og er hann háaldraður maður.
Reglugerð um verðframfærslu á
vörum í heildsölu er nýkomin út frá
landsstjórninni. Þar er ákveðið, að
hámark verðframfærslu á ýmsum til-
greindum vörutegundum skuli vera
5, 7/4 og 10%, en á öllum vörum,
sem ekki eru taldar í þessum 3 flokk-
um, I2j4%. Brot gegn þessu varða
alt að 10 þús. kr. sektum.
Nýtt ættamafn. Börn Þorvarðs
Bergþórssonar hreppstjóra á Leik-
skálum hafa tekið sjer ættarnafnið
Skjaldberg.
Botnía fór frá Khöfn 14. þ- m.
Bráðabirgðalög eru komin út til
viðbótar við húsaleigulögin fyrirRvk,
og heimila bæjarstj. að taka til sinna
umráða auðar ibúðir og ráðstafa þeim
til afnota handa húsnæðislausu fólki,
cg sömuleiðis getur bæjarstj. tekið
ónotuð hús og útbúið’ til íbúðar.
Dýrtíðarvinna í Rvík. Bæjarstj.
hefur samþykt að leita til landstjórn-
arinnar um 100 þús. króna lánveit-
ingu handa bænum til dýrtíðarvinnu,
Tíðin hefur verið góö aö undan-
förriu og hefur það veriö ekki lítil
bót í máli meðan veikindin hafa
geysað.
Þetta blað átti að koma út 6. þ.
m., en útkoman hefur dregist vegna
inflúenzuveikinganna.
Sambandslögin áttu aö takast til
umræöu í Ríkisþinginu danska 13.
þ. m. '