Lögrétta - 14.01.1920, Blaðsíða 4
4
LOGRJETYA
f. iimskipafelag Islands
Umboð.
Þeir hlutafjársafnendur og aSrir, sem kynni aS vanta eyðublöS fyrir
umboö til þess aiS sækja a'Salfund félagsins 26. júní þ. á., eru beönir
aö gera aSalskrifstofu félagsins i Reykjavík aðvart, og tiltaka hversu
mörg eySublöð þeir giska á aS þeir þurfi.
Hf. Eimskipafélag hlands.
Det kgfl. octr. Söassurance-Compagfm
tekur að sjer allskonar sjóvAtryjarginga.r*.
Umboösmenn úti um land:
\
á ísafirSi: Ólafur DavíSsson kaupmaöur
4 Sauðárkróki: Kristján Gíslason kaupmaöur
á Akureyri: Pjetur Pjetursson kaupmaður
á SeySisfiröi: Jón bókhaldari Jónsson í Firði.
Aðalumboðsmaður fyrir Island
Eggert Claessen, hæstarj.má.laflutningsmaður.
hana niöur hjá honum. Aö þessu gerir
nú Þ. líka mikiö gabb, en þar 'kem-
or strákur Tumi illa upp um sjálfan
sig, því aö þetta sýnir aö hann hef-
ur dagaö uppi, eins og nátttrölliö, fyr-
ir 10—20 árum, svo að hann hefur
r;ú ekki hugmynd um þær stórmiklu
framfarir, er orðið hafa á því sviöi
síðan.
Þegar þeir Breuer og Freud í Vín-
arborg gáfu út bók sína: Studien
iiber Hysterie, áriö 1895(2. útg. 1909)
táknaði þaö stórmikiö spor í áttina
til þess að öðlast rjettan skilning á
e.öli móöursýkinnar; og ekki var hitt
minna um vert, að þeir fundu nýja að-
íerö, hina svonefndu sálargrenslan
(psycho-anaíyse), til þess a'S lækna
bæöi þennan og aöra líka sálarkvilla.
Aðferð þessi hefur oröiö þúsundum
manna að liði.
Þeir fundu, að móðursýkin stafaði
af sálarklofningi, þannig aö bæði til-
efniö til veiklunarinnar og hin ákafa
geöshræring, sem maðurinn komst í
við það, aö hann fjekk ekki full-
nægt einhverri hvöt sinni eða löng-
un, gleymdist og hvarf úr yfirvitund
mannsins niöur í óminniö, í undirvit-
undina, en kom eftir það að eins í
ljós í köstunum eða einhverjumósjálf-
ráðum kækjum eða hreyfingum. En
tf það lánaðist að slæða þessi
gleymdu atvik aftur upp úr hugar-
djúpinu og setja þau í samband við
aðalvitund mannsins, þannig að þau
fengju eðlilega útrás, þá var klofn-
ingurinn horfinn og þar með öll
sjúkdómseinkennin og maðurinn á
samri stundu alheill.
Freud hefur nú viljað halda því
fram síðan, að flestar tegundir móð-
ursýki stöfuðu af niðurbældri eða ó-
iullnægðri ástahvöt. En þar hefur
hann lent i öfgum, þótt liklegast flest
ástabrjálsemi sje af þeim rótum
runnin. Jung hefur aftur á móti sýnt
fram 4, að ýmsar aðrar hvatir, eins
og t. d. sjálfsbjargarfýsn manna og
metnaður gætu valdið sturlun. Þann-
ig stafaði svonefnd upphefðar-sturl-
un og ofsókna-brjálsemi af hnektum
siálfsmetnaði. Og loks hafa þeir Eng-
lendingarnirTrotter ogHart sýntfram
á, að starfræn brjálsemi yfirl. stafaði
af einhvers konar baráttu milli ham-
ingjuhvata mannsins á annan bóginn
cg félagshvata hans (herd-instinct)
cða siðferðishvata á hinn bóginn.
Um alt þetta getur Þórður fræðst í
þeirri litlu bók, sem jeg nefndi:
Hart’s Psychology of Insanity og
síðan gert gabb að sjálfum sjer og
fávitsku sinni um það, hversu and-
stæðar hvatir geta valdið ýmis kon-
ar brjálsemi. En fyrir þá, sem geta
ekki náð í bókina, skal jeg þýða
þessa grein úr niðurlagi hennar, bls.
165:
„En er menn komust dýpra í
grenslanfnni og rannsóknunum var
kornið nógu langt til þess að finna
ö!I upptök sálarástandsins, kom loks
í ljós andstæða (confli,ct), sem er enn
dýpra eðlis. Þessi dýpsta andstæða
íelur í sjer þætti, er að áhrifum sam-
svara afleiðingum þeim, er komið
l.afa í ljós, og hún leiðir oss að jafn-
aði aftur til hinna miklu frumlegu
eðlishvata (the great primary in
stincts), sem eru aðalstarfsöfl sálar-
lífsins. Þá komumst vjer að raun um,
að einhver barátta hefur átt sjer stað,
þar sem einhver af eðlishvötum þess-
um hefur átt í höggi við aðra, eða
þar sem fýsnir þær og tilfinningar,
er spretta upp af slíkum hvötum, hafa
orðið fyrir mótspyrnu og orðið að
lúta í lægra haldi fyrir áhrifum, sem
sjúklingúrinn hefur orðið fyrir af
umhverfi sínu og aðstæðum."
Það er eins og Þórður hafi ein-
hvern óljósan beyg af þessari nýju
aðferð, og það er von. Því sje nokk-
uð það til, sem getur orðið anda-
trúnni reglulega skeinuhætt og skýrt
helstu fyrirbrigði hennar, þá er það
sálargrenslanin. Með því nefnilega
koma mönnum í sama ástand og
þeir voru i, er þeir lifðu spiritistiska
íyrirbrigðið, hvort sem það nú var
svonefnd „vitrun“ eða eitthvað ann-
E.ð, er unt að fá þá sjálfa til þess að
skýra frá því, hvaða þættir úr sál-
arlífi þeirra sjálfra og umhverfisins
hafi runnið saman til þess að mynda
vitrunina. Jeg skal að eins benda á
eitt dæmi þessa, tilraun þá, sem skýrt
tr frá í bók Dr. Morton Prince:
Dissociation (Appendix R, bls. 566
—571), þar sem kona þykist sjá
mann sinn dauðann og hún heyrir
hann mæla. En í leiðslunni runnu
saman orð eins vinar hennar, er hann
hafði talað við hana fyrir nokkru, 0g
cndurkast af mynd, sem hjekk á
veggnum, og var af manni hennar.
Þessu komst Dr. Prince að með þvi
bð dáleiða konuna.
1
III. Persónuslitur eða raunverulegar
persónur?
Þá kemur að síðasta atriðinu, hvort
persónur þær, er koma í ljós í per-
sónuskiftunum, sjeu að eins persónu-
slitur úr hinni upprunalegu persónu
og því persónugervingar hennar, eða ,
íaunverulegar persónur, og í þessu
lalli, hvort persónugervingar Miss B.
hafi verið persónuslitur úr henni
sjálfri, eða að sumu leyti sjálfstæðar
persónur frá öðrum heimi, eins og
t. d. Sally, sem sjálfur Mc. Dougali
v?rðist hafa flaskað á.
Um þetta segir Þórður: „Sannleik-
urinn er sá, að stúlkunni batnaði, en
hvort þessar persónur eða „persónu-
s!itur“ stúlkunnar hafi ,sameinast‘' er
hlutur, sem Á. B. veit ekkert
um. Það er að eins fullyrðing svona
rjett út í bláinn.“ AUðvitað veit jeg
ekkert b e i n t um þetta, fremur en
Þórður, ög þó er þetta ekki mælt út
í bláinn, því að sjálfur læknirinn, Dr.
Prince, gefur það í skyn, hvað eftir
annað í bók sinni, að hann hafi rent
persónuslitrunum saman, og honum
má þó. vera kunnugast um þetta.
Hann er að eins í nokkrum efa um
Sally, af því að hún hverfur fyrir fult
og alt, eins og hún auðvitað á að
gera, þegar stúlkunni er batnað, ef
hún að eins hefir verið persónuslitur
hennar. En “þó segir hann í neðan-
málsgrein, sem jeg tilfæri orði til orðs
í grein minni, að persónuklofriingur •
inn hafi hafist þar, sem Sally í æfi-
sögu sinni segir, að sér hafi fundist
eins og hún væri sjálfri sjer andhverf.
Hvernig vill nú Þórður skilja þetta
öðru vísi en^svo, að Miss B. á því
stigi hafi verið óklofin persóna —
„though in a certain sense opposed
to myself." En þá er það, að lífs-
löngunin og fjörið í mynd og lík-
ingu B. III klofnar frá samviskusem-
inni og beygjuhættinum í BI og þá
verða til úr þessu fyrst tveir og síðan
fleiri persónugervingar, er auðvitað
hverfa, þegar búið er að renna þeim
saman og stúlkan er orðin alheil. Þó
bólar jafnan á þeim aftur og Sally
líka eftir það, nefnilega í hvert skifti,
sem Miss B. er um það bil að komast
út úr sálarjafnvægi sínu.
En setjum svo, að hjer sje að eins
um sterkar líkur að ræða fyrir því,
að mín tilgáta sje rjett, þá skal jegnú
tiefna annað dæmi enn betra, sem sje
sjálfa Doris Fischer, er anda-
trúarmenn hjer á landi hafa gert svo
mikið úr sem sönnunu fyrir „lang-
varandi áhrifum frá öðrum heimi“,
Rjett skilin er sjúkdómslýsing henn-
ar sönnun fyrir þvi gagnstæða, nefni-
lega að hjer sje að eins um persónu-
slitur, persóngervinga sjálfrar aðal-
persónunnar að ræða. Jeg skrifa ef
til vill síðar itarlegar um þetta til-
felli, sem er svo sálfræðilega merki-
legt, en læt mjer í bili nægja að til-
færa hjer tvo ritstaði úr skýrslu Dr.
Walter Prince. Þar segir t. d. Vöku
Margrjet við Sjúku-Doris: „Úr því
að bæði þú og jeg eigum að hverfa
i n n í Dóris, þá hugsa jeg, að hvor-
ug okkar geti haft neitt á móti því.“
(Sbr. Amer. Proc., Vol. XI, p. 442).
Þarna segir ein aukapersónan, að þær ,
eigi að hverfa inn í aðalpersónuna
cnda varð sú raunin á, eftir læknis-
lýsingunni að dæma; en hvað eru þær
þá annað en slitur eða brot úr henni ?
Og að undirvitund Dórisar, Sofna-
Margrjet, hafi verið sömu skoðunar,
að hjer sje að eins um klofning aðal-
persónunnar að ræða, sjest best á
þessum orðum hennar: „Hin upp-
runalega persónan er æðst, og það er
komið undir skapgerð hennar, hvers
eðlis persónugervingarnir verða. Et
lún upprunalega persóna hefir leiðin-
lega skapsmuni, þá verða persónu-
gervingarnir því verri, því fleiri sem
skaplestirnir eru. Dóris var nú góð-
lynd og samviskusöm stúlka, og því
urðu persónugervingar hennar betri
að innræti o. s. frv., en þeir annars
mundu hafa orðið — þjer skilið hvað
jeg á við.“ Svarið þjer þá til nokk-
urs í heila hennar? spyr W. Prince
-- „Getur verið,“ svarar hún hikandt,
— „en jeg átti nú fremur við Sjúku-
Dóris og Margrjeti." (Þjer hafið þá
liugsað þetta út um persónugerving-
ana, segir W. Prj). „Nei, eg veic
það!“ segir Sofna-Margrjet (Sbr.
sama rit bls. 1096). Sjálf harðneitaði
Sofna-Margrjet því fyrst. framan af
tim sjálfa sig, að hún væri andi, en
eítir að hún hafði lesið brjef frá Hys-
lop, tók hún að halda því fram. Þó
tókst henni ekki betur en svo að leika
*.nda, að sjálfur Hyslop treystist ekki
til að halda því fram, að hún væri
andi. En hvað segir þá Þórður og
hans líkar, sem jafnvel eru farnir að
halda því fram, að öll sturlun stafi
írá öndum? Treystast þeir til að
halda því fram, að „persónur" Dóris
Fischer hafi verið andar frá öðrum
heimi ? Og er ekki nær að halda, skv.
ofanskráðu, eíns og jeg, að þetta sjeu
að eins slitur eða klofningar úr sjálfri
aðalpersónunni ?
Þvaðri Þórðar um mismunandi
,,efni“ í heilabólunum get jeg ekki
verið að svara. Þetta eru dreggjarnar
af efnishyggju Þórðar sjálfs, en á-
hrærir ekkert mínar skoðanir. Við
sem vitum, að sálarlífið er fyrst og
fremst starf, við þykjumst líka mega
ætla, að það breytist með breyttum
starfsháttum heilans, en heilaból eða
beilasvæði kalla jeg ekki annað en
það, sem starfar saman á einn eða
annan hátt að sama eða svipuðu
starfi. Þegar nú aðalstarfskerfi heil-
ans klofnar í tvö eða fleiri smærri
starfskerfi, þá er von, að mismun-
andi persónur eða persónugervingar
komi í ljós. En þetta á ekkert skylt
við efnið í heilanum, nema um ein-
hverja vefræna (organiska) sjúk-
dóma sje að ræða.
Jeg þykist nú hafa svarað öllum
athugasemdum Þórðar og útúrsnún-
ingum. Og vildi jeg nú ráða honum
til þess að lesa rit þau, sem jeg hef
bent honum á, áður en hann fer aftui
vf stað. Yfirleitt hygg jeg, að það
væri hollara, bæði fyrir hann og sjúk-
llnga hans, að hann læsi meira af
fræðiritum um ýmis konar geðveiki
og sálarsýki en spíritista rit. Annars
má hann gera ráð fyrir, að aðrir verði
fróðari um þau efni en sjálfur hann
H. f. Eimskipafélag
r
Islands
Aðallundvir
Aðalfundur Hlutafélagsins Eimskipafélag Islands, verður haldinn í
Iðnaðarmannahúsinu í Reykjavík, laugardaginn 26. júní 1920, og hefst
kl. I e. h.
D a g s k r á:
I. Stjórn félagsins skýrir frá hag þess og framkvæmdum á liðnu starfs-
ári, og frá starfstilhöguninni á yfirstandandi ári, og ástæðum fyrir
henni, og leggur fram til úrskurðar endurskoðaða rekstrarreikninga
til 31- desember 1919 og efnahagsreikning með athugasemdum end-
urskoðenda, svörum stjórnarinnar og tillögum til úrskurðar frá end •
urskoðendunum.
2. Tekin ákvörðun um tillögur stjórnarinnar um skiftingu ársarðsins.
3- Kosning fjögra manna í stjórn félagsins í stað þeirra sem úr ganga
samkv. félagslögunum.
4. Kosning eins endurskoðanda í stað þess er frá fer, og eins vara ■
endurskoðanda.
5. Umræður og atkvæðagreiðsla um önnur mál, sem upp kunna að
verða borin.
Þeir einir geta sótt fundinn, sem hafa aðgöngumiða. Aðgöngumiðar
að fundinum verða afhentir hluthöfum og umboðsmönnum hluthafa á
skrifstofu félagsins í Reykjavík, eða öðrum stað sem auglýstur verður
síðar, dagana 22.—24. júní að báðum dögum meðtöldum. Menn geta
fengið eyðublöð fyrir umboð til þess að sækja fundinn hjá hlutafjár
söfnurum félagsins um alt land og afgreiðslumönnum þess, svo og á
aðalskrifstofu félagsins í Reykjavík. Óskað er eftir að ný umboð og
afturkallanir eldri umboða séu komin félagsstjórninni i hendur til skrá-
setningar ef unt er 10 dögurn fyrir fundinn.
Reykjavík, 5. janúar 1920.
Stjórnin.
H.f. Eimskipafélag
Islands.
Eins og kunnugt er, brann hluth i faskrá Hf. Eimskipafélags íslands
i april-mánuði 1915. Hefir að mestu tekist að koma henni í samt lag
aftur á þessum tíma, sem liðinn er frá því að hún brann, en samt sem
áður vantar oss enn þá nöfn og heimilisfang eigenda eftirfarandi hluta
bréfa:
A - f 1 0 k : k u r :
257 265 302 1046 1053 1677 4003 4752 4808
258 297 303 1047 1054 1821 4004 4753 4809
260 298 304 1048 1590 3940 4068 4756 4815
262 299 305 1049 1670 3997 4069 4757 4818
263 300 455 1051 1671 3998 4748 4793 4959
264 3°í i [045 1052 1676 4001 4751 4800
B - flok k u r:
58 964 966 980 1083 1190 1219
960 05 970 1082 1188 I2IÖ
C- f 1 0 k k u r:
1005 1116 1117
Er því hér með skorað á eigendur ofangreindra hlutabréfa, að gefa
sig fram hið allra fyrsta, skriflega eða munnlega, á skifstofu félagsins
í Reykjavík.
Stjórnin.
fiimskipafélag Islands.
Arðnr iyrir árið 1915.
Hérmeð skal vakin athygli þeirra hluthafa félagsins, sem eigi hafa
fengið greiddan arð af hlutabréfum sínum fyrir árið 1915, á því, að
samkvæmt 5. gr. félagslaganna eru arðmiðar ógildir, ef ekki hefir verið
krafist greiðslu á þeim áður en 4 ár eru liðin frá gjalddaga þeirra. Eru
menn þvi aðvaraðir um að vitja arðsins fyrir 1915 í síðasta lagi fyrir
23. júrií þ. á„ þar eð hann fæst eigi greiddur eftir þann tíma.
Stjörnin.
Fjelagsprentsmiðjan.