Lögrétta


Lögrétta - 26.10.1926, Síða 1

Lögrétta - 26.10.1926, Síða 1
fnoheimttt og afgreiðsla f Þingholtsstræti 1 Simi 185. Útgefandi og ritstjór' Þorsteinn Oíslason Þingholt8Stræti 17. Sími 178. XXI. ár. tteykjavík, þriðjudaginn 26. október lí)26. Evrópu-samband. Samband eða afstaða Evrópu- ríkjanna er sífelt umræðuefni hugsandi manna, sem friði unna, en leita vilja nýrra leiða út úr ógöngum núv. ástands, sem ýms- ir telja að leitt geti til ófriðar ægilegri en áður hafi þekst. Ein þeirra hreyfinga, lem vinna að nýrri stefnu í þessum efnum, er Pan-Evrópu skoðunin svonefnda. Einhver helsti maður hennar er Condenhave greifi. Meðal þeirra manna norrænna, sem hneigst hafa í sömu átt, er Sigurd Ibsen, sem lesendum Lög- rjettu er kunnur af ýmsum skrif- um hans um þjóðfjelags- og stjórnarfarsmál, sem hún hefur áður sagt frá. Hann hefur nýlega skrifað greinaflokk, sem hann kallar Pan-Evropa og hjer verð- ur rakinn nokkuð. Heimsstyrjöldin breytti á margan hátt ríkjaskipun Evrópu. 1 stað 26 ríkja, sem voru þar fyr- ir ófriðinn, eru komin 33. Eitt stórveldi, Austurríki, hefur liðið undir lok, en ýms miðlungsríki aukist allmikið og setja hvað meit svip sin á milliríkjastjórn- mál álfunnar. Ýms ranglát og heimskuleg ákvæði Versalafriðar- ins hafa ennfremur aukið á hættu þá, sem hin nýja ríkjaskipun hafði í för með sjer. Það kemur fyrst og fremst fram á Þýska- landi, sem ekki mun una þeirri meðferð, sem á því var höfð, þegar því vex aftur fiskur um hrygg. Austurríki ber einnig vott þessu sama ranglæti, þar sem því er meinað sameiningarinnar við Þýskaland. Ungverjar munu held- ur ekki gleyma meðferðinni á sinni þjóð og ríki. Loks er Italía undirniðri sárreið bandamönnum sínum fyrir það, að þeir sviku hana að ýmsu leyti í skipun þjóðabandalagsins. Fólksmergð þjóðarinnar og skortur á hráefn- um og vilji hennar til valda mun einnig knýja hana til þess að afla sjer nýrra áhrifa og landa, jafnvel þó það kosti óvináttu við nágrannana. Loks er allískyggi- leg afstaða Rússlands og nýju ríkjanna, sem myndast hafa í útjöðrum þess svæðis, sem rúss- neska ríkið náði áður yfir. Tilraun sú mistókst, sem til þess var gerð með þjóðabanda- laginu að skapa jafnvægi í álf- unni, hvað svo sem annars má gott um það segja. Öfriðurinn hafði skapað nýjan hugsunar- hátt, í svipinn að minsta kosti, og hann krafðist ummyndunar á samlífi ríkjanna og myndunar einhvers sambands, sem trygt gæti varanlegan frið. Þessi hugs- unarháttur eignaðist leiðtoga í manni, sem þá naut enn mikillar virðingar. En þó þessi hugsunar- háttur ætti rót sína í hagnýtu lífi þjóðanna, — en ekki aðeins í hugsjónum einstakra manna, eins og t. d. hið heilaga samband Al- exanders keisara, — þá var Wil- son því miður ekki æfður og hag- sýnn stjórnmálamaður á sama hátt og þeir Evrópumenn, sem hann átti að vinna með. Þess vegna urðu samsteypu og milli- bilsskoðanir ofan á við friðar- gerðina og þessvegna mishepnað- ist hún. Upphaflega hafði Wilson hugsað sjer þjóðabandalagið reist á tveimur meginlögmálum. Annað var einkarjettur, s«m úti- lokaði sjersambönd milli einstakra þjóða í bandalaginu. Hitt var það, að til væri svo máttugt vald í bandaiaginu sjálfu, að eng- in samtök gætu boðið því birg- inn. Af þessum meginkröfum varð önnur óuppfylt og iiin brot- in af Wilson sjálfum. Þjóðabanda- lagið sjálft hefur ekkert vald til framkvæmda. Og varla var það stofnað þegar sjersambandi var komið á milli Frakklands, Bret- lands og Bandaríkjanna. Slíkt sjersamband stríddi á móti grund- vaiiarhugsun bandalagsins. En eins og sakir stóðu virtist þetta vera eina leiðin til þess, að ein- hver kraítur yrði í bandalaginu. Því það var augljóst, að án ein- hvers slíks miðdepils mundi bandalagið verða ósamstæð og gagnslítil hjörð. Fimmtíu ólík ríki gátu ekki haldist saman á siðferöilegri saimgirni og þrótti einu saman. Til þess þurfti eitt- hvað áþreifanlegra og það varð vald þriggja höfuðlandanna. Þjóðabandalagshugsjónin veiktist þó ennþá meira, þegar Banda- ríkin risu öndverð gegn skoðun- um forseta síns og neituðu þátt- töku. Þrátt íyrir alt þetta verður þó að telja svo, að í þjóðabanda- laginu sje fólgin nokkur framför frá því ástandi sem ríkti fyrir 1914. Það hefur gert ýmislegt gagn í heilbrigðismálum og sið- gæðismálum, það hefur endur- reist fjárhag Austurríkis og Ung- verjalands, það hefur dregið ýms þrætumál þjóðanna undir valds- svið góðra dómstóla. En aðal- hlutverk sitt, að tryggja friðinn í Evrópu, hefur það ekki getað leyst af hendi. Allir, sem eitthvað kunna í mannkynssögu vita það samt, að það hefur tekið langan tíma að koma á þeim samböndum, sem nú eru til, bæði í Bandaríkjunum og í Sviss. Þessi sambönd eru þó ekki sambærileg við Evrópusam- band, því þau voru kiíúð fram meðal annai’S af legu landanna. En alt um það eru þeir margir, sem trúa á möguleika einhvers Evrópu-sambands, og það ein- mitt meira eftir að þjóðabanda- lagið hefur starfað en áður. Það hefur sýnt, að heimsbandalag mistekst. Það hefur í rauninni aðeins orðið Evrópubandalag. I því formi ætti það að geta starf- að og gert mikið gagn. Þó slíkt alment Evrópu-samband sigrandi og sigraðra þjóða hafi verið ókleift þegay þjóðabandalagið var stofnað, er því ekki svo varið lengur. Árin, sem síðan eru lið- in hafa jafnað ýms deilumál og dregið úr ofsanum og sýnt þjóð- unum það svart á hvítu að sam- vinnan er nauðsynleg. Það eru ekki aðeins bóklærðir menn og hugsjónamenn svonefnd- ir, sem hallast að þessu Evrópu- sambandi. Hagsýnir, starfandi stjórnmálamenn eru einnig fram- arlega í hreyfingunni. I Frakk- landi er t. d. Herriot forseti Pan Evrópufjelagsins. En slík fjelög eru nú til í ýmsum löndum og fyrsta sambandsþing þeirra er haldið í þessum mánuði í Vínar- borg. Grundvallarkenningar þessara fjelaga eru þessi: 1. bindandi gerðardómar, 2. afnám allra stjórnmálasjersamninga, en einn allsherjarsamningur milli allra Evrópuríkja, 3. samevrópeisk verndun minnihluta þjóðema í hverju ríki, allsherjarsamkomu- lag um nýlendur og atvinnumála samvinna sem stefnir að tollsam- bandi. Með slíku skipulagi ætti að vera eytt þeim landamæravand- ræðum, sem nú eitra pólitískt andrúmsloft álfunnar, og mörg- um öðrum þrætuefnum. Að vísu mundi Pan-Evrópa ekki fyllilega svara til nafns síns, því líklega tækju hvorki Rússland nje Bret- land þátt í sambandinu. En samt sem áður væri mikil framför að því. Það væri landfræðilega heppi- legt flæmi þar sem búsettar væru yfir 300 miljónir af duglegasta fólki jarðarinnar. Það mundi ekki þurfa að eyða nema litlum hluta þess erfiðis og útgjalda sem nú fara til hermála til þess að vemda friðinn á miklu árangurs- betri hátt en þjóðabandalagið getur nú gert. En augljós skynsemin í slíku Evrópusambandi er þó ekki næg trygging fyrir framkvæmd þess. Því stjórnmálum stýrir ekki skynsemi ein. Þeim ræður hvorki hin æðri skynsemi, sem kemur fram í hugsjónum, eða jafnvel ekki að jafnaði hin lægri skyn- semi sem kemur fram í hagsmun- um. Þeim ráða einnig tilfinning- ar, rótgrónir hleypidómar eða ofsi, sem blossar upp í svip. Bæði þjóðernisstefna og ríkisdýrkun hamla á móti og það því fremur, sem báðar þessar stefnur koma saman í þjóðernisríkinu, sem er viðurkendur grundvöllur ríkis nú á tímum í Evrópu. Þessi þjóðernisstefna í núver- andi merkingu var óþekt þegar Kant reit bækling sinn um hinn eilífa frið. Þó menn ættu ást til heimkynna sinna og föðurlands, myndaðist þjóðernisstefnan sjálf ekki fyr en á 19. öld. 1 þróun þjóðernisstefnanna mitt inni í þeirri menningu sem meira en dæmi eru til áður, hefur að vissu leyti gert allan heiminn að einu sambandi, er merkilegur tvískinn- ungur. Því menningarlega sjeð eru allar þjóðir nú þegar eitt samband. Allar miklar hreyfing- ar þjóðfjelagsmála og heimspeki ná til allra menningarlanda án tillits til landamæra ríkja og stjórnarfars. Verkamannahreyf- ingin hefur gripið öreiga allra landa. Og þá er andstæða henn- ar, auðvaldið, ekki síður alþjóð- legt, það notar auðæfi þar sem það best borgar sig. Ríki og þjóð- ir missa fleiri og fleiri sjerkenni sín eftir því sem auknar sam- göngur gera gagnkvæm áhrif auð- veldari. Þrátt fyrir allar þjóðem- isstefnur verða þjóðirnar hver annari líkari í siðum og háttum, lögum og skipulagi. Auknar þarf- ir nútímamanna hafa einnig gert nauðsynlega aukna samvinnu. Al- þjóðasamtök, eins og póstsam- bandið og verndun höfundarjett- ar í bókmentum, listum og iðnaði benda út fyrir takmörk ríkisins og fela í sjer nokkura viðurkenn- ingu þess, að ríkið eitt sje ekki ávalt nægileg eining. Margt bend- ir því í áttina til stærri og stærri ríkjasambanda. Eins og fyr segir eru í Evrópu 33 ríki. En af þeim eru 6 kotríki, sem ekki koma þessu máli við. Nú eru mestu ráðandi í heimin- um þrjú heimsveldi, sem í raun og veru eru ríkjasambönd: Bret- land, Bandaríkin og Rússland. Myndun Evrópusambands, sem yrði hið fjórða heimsveldi, mundi verða nýtt spor í áttina til skipu- lags, sem ef til vill gæti orðið einrátt. Stjórnarskipunarkerfi jarðarinnar ætti þá að mega gera einfalt á þann hátt að öll ríki veraldarinnar gengju inn í 5—6 sambönd. Máske gætu þessháttar stjómmálahringir rutt heims- friðnum braut, eins og hinir miklu atvinnuhringir benda í áttina til meira reglubundinnar framieiðslu, en á sjer stað í þeim glundroða, sem nú ríkir. ( Annars er það svo að hug- myndin um samvinnu milli þjóð- anna á atvinnu- og fjármálasvið- inu hefur átt hlutfallslega erfitt uppdráttar, jafnvel hjá þeim, sem hlyntir eru slíkri samvinnu á ýmsum öðrum sviðum. Þjóðernis- stefnan hefur haft í för með sjer verndartollastefnuna. Á dögum Cobdens og Napoleons III. trúðu menn um stund á frjálsa verslun. En þjóðernisstefnan kom . aftur upp þeirri gömlu villu, að vel- gengni einnar þjóðar gæti aðeins orðið á kostnað annarar. En einmitt á sviði atvinnu- og fjármála er samvinnunauðsynin mjög brýn. Það er eðlilegt hinni vaxandi menningu, að auka kröf- urnar til veraldlegra gæða og það er lýðræðinu eðlilegt, að krefjast þess, að slík gæði hlotnist sem allra fiestum. Af þessu leiðir það, að öreigahreyfing og alríkishreyf- ing (imperialismi) hefur hlotið að fylgjast að. Vaxtar- og valda- kröfur ríkjanna eiga að miklu leyti rót sína að rekja í nauðsyn þess að fullnægja vaxandi þörf- um lýðsins. Alstaðar knýja lág- stjettirnar á og láta ekki bjóða sjer það, að kjörin versni, en munu þvert á móti auka kröfur sínar. Úrlausnarefnið er því það, hvernig kröfunum verði fullnægt og jafnaður sá jafnvægisskortur sem er milli þess sem krafist er og hins, sem í raun og veru er tii, jafnvel hjá þeim þjóðum sem teljast ríkar. Fram úr þessu væri hægt að ráða, annaðhvort með því að hver þjóð um sig reyni að auðgast á kostnað hinna, eða með því að ríkin vinni saman að sam- eiginlegum hagsmunum. Fyrri leiðin er alkunn og venjuleg og margvíslegt ófriðarefni. Síðari leiðin hefur aldrei verið reynd. Bandaríkin í Ameríku sýna það þó nokkuð að hverju er stefnt. Þar hafa 48 ríki myndað atvinnu- og tollmálasamband. Milli þeirra inn á við ganga viðskiftin hindr- unarlaust, þó þau hafi tolla sam- an gagnvart öðrum ríkjum út á við. Hinn mikli sameiginlegi heimamarkaður hefur einnig gert mögulega hina amerísku stór- framleiðslu, en það er hin hagan- legasta framleiðsla. 1 Evrópu er þessu öllu öðruvísi varið. Þar eru um 3.0 sjerstök tollsvæði með tollmúrum og alls- konar hindrunum á milli. Ýmsar tillögur hafa komið fram á ýms- um tímum til bóta á þessu. Pan- Evrópustefnan vill stefna í áttina til tollfrelsis og tollsambands milli Evrópuríkjanna, þó hún játi það, að erfiðleikar sjeu á fram- kvæmdum í þessa átt. En á þessu máli veltur meira en á flestum Jðrum framtíð álfunnar. En eru þá horfur á því, að Evrópu-samband geti komist í framkvæmd? Rökrjett hugsun ját ar því. En rökrjett hugsun og stjórnmál þarf ekki að vera eitt og hið sama. Það er því erfitt að spá nokkru um slíka hluti. En það, hvað stjómmálin eru óút- reiknanleg, gefur mörgum mögu- leikum rúm, m. a. jafnvel þeim, að skynsemin geti sigrað. 45. tbl. Til Dr. Helga Pjeturss Snillingurinn snjalli! snjöll þín eru köllin, hylli ei þó allir öll þau guðaspjöllin. Hamför himindrauma heima ljet þig dreyma sambands-st j örnustrauma streyma um alla geima. Spekingurinn spakW — spök eru hugartökin — tekur í andartaki tökum dýpstu rökin. Sannleik æðri inna annir þjer ei banna, kanna hnatta hinna hrannir ógrynnanna. Óþekt, — öminn frái eygir lönd á vegi. Þó að nautsku þrái þegi og höfuð reigi, stefnir beint af stafni. Stifnar fjaðrir lifna efna af sannleiks safni, svifna andans hrifna. Jötunandi ítur athygðinni ei glatar. Fjötur fordóms slítur, fatast ei og ratar. Landið loks gatst fundið, — landið furðustranda andaheimi hrundið, handrið aðeins standa. Nýja’ er í neitun snúið nú, því sem var trúað, því, með þrekið knúið, þú hefur rúmið brúað. Undra vunnið vanda, vindaköst þó dyndu, fundið heim fyrir handan hindurvitna blindu. Listamennið mærsta! meistarinn, sem leysti fyrstur flækju stærsta, freista er neinn sjer treysti. Vel þjer tókst að telja tilgang lífs og skilja hvel, þars dánir dvelja, dylja er firðar vilja. Sannar sigur kunnrar svinnrar vitsku þinnar, annarshugar unnar innstreymið að finna, — drauma í huldu heimum hamskifting er framin, saumuð sálum tveimum samvitundin tamin. Sástu á hugstöð hæstu, hlesta magnan bestu ástar geislan glæstu, gleggst þar rökskil fekstu, að hver öfl því styðja æðra lífkyn fæða, það er guð og gyðja glæða og efni klæða. Aldrei móðurmoldin milda, — fróðleiks snildar gjaldasjóð fekk goldinn gildari þjóð til fylgdar inn á sviðið annað enn, sem Nýals kenning. Sinn fái’ hún boðskap sannað, senn þá breytist menning. Þá hlær þrjótskan eigi, þá munu verk þín fáguð, á þeim drottins degi dáuð verða og jáuð. Ofar efans kröfum yfir nafn þitt skrifað lof, sem í leiftrastöfum lifir, er neitt fær bifað. (Hkr.). Þorskabítur. ----o----

x

Lögrétta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.