Lögrétta

Eksemplar

Lögrétta - 08.06.1927, Side 3

Lögrétta - 08.06.1927, Side 3
LÖGRJETTA « Bændaskólinn a Hólum. Með þvi að það er ákveSið, að bygt verði á Hólum í stað húss- ins sem brann í haust, tilkynnist, að skólinn staríar að vetri eins og að undanfömu. Jaínframt tilkynnist að alt sumarið milli skólavetranna geta nokkrir piltar fengið tækifœri til að stunda verklegt nám við nýyrkju eingöngu. Páll Zóphóníasson. Jacobsen orðinn umsjónarmaður þeesara skóla. Við að athuga starf skólans kemur í ljós að aðalnámsgreinin er smíðar. Hvert kvöld byrjar með smíðum, og endar með smíð- um, og þar inn á milli koma svo kinar boklegu fræðigreinar, t. d. teiknun, reikningur og danska. Nemendumir smíða allir eitt kerfi sem heitir „herbergið mitt“. Það eru ýms herbergisgögn, sem kægt er að nota í eins manns kerbergi, t. d. skrifborð með á- köldum, stóll, bókahylla o. s. frv. Að smíða þetta kerfi tekur hjer um bil 2 vetur í slíkum kvöldskóla, sem stendur 3 tíma i senn 2 kvöld í viku. En svo á nemandinn líka þessa hluti, sem hann hefur smíðað sjálfur í tóm- stundum sínum. Áður en hlutur- hm er smíðaður verður hver nemandi að teikna mynd af hon- um. Eftir þessari mynd smíðar nemandinn svo hlutinn. 1 sam- bandi við þetta eru svo fundin reikningsdæmi og stflsefni. Þegar nemandinn hefur lokið við að smíða þetta kerfi, „her- bergið mitt“, þá gefur skólinn honum nýtt verkefni. Þá gengur nemandinn inn í aðra deild „hins hagkvæma unglingaskóla" með „garðyrkju sem aðalnámsgrein“ (Havebrug som Centralfag). Þá fær nemandinn dálítinn reit að rækta í „nýlendugarði unga mannsins“ (Den unge Mands Kolonihave). Þessir smágarðar liggja í útjaðri bæjarins og eru sem oftast hreppseign. Þar eru bygð lítil hús, svo unglingamir geta búið þar saman tveir og tveir, þegar þeir eru þar úti. Húsgögnin í herbergið eiga þeir sjálfir, og svo byrja þeir á þessu nýja starfi, og hver fær vissan reit til ræktunar. 1 þessum görðum eru ræktaðar matjurtir, ýms blóm og trjáteg- undir. Fræið og plöntumar kaupa nemendumir sjálfir og svo eiga þeir sjálfir uppskeruna, sem þeir annaðhvort selja eða flytja heim. Er starfið byrjað að vorinu, er byrjað með að gera nákvæma teikningu af reitnum. Hver nem- andi verður svo að halda ná- kvæman reikning yfir tekjur og gjöld. 1 þessum nýlendugarði starfa svo unglingamir hálfan dag í hverri viku. Þeir koma þangað stundum síðdegis á laug- ardögum, sofa svo í húsinu yfir nóttina og dvelja þar svo yfir sunnudaginn.Á þann hátt kynnast þeir starfsgleðinni sem fylgir ræktunarstarfinu, og lifa glöðu sumar- og fjelagslífi. Að lokum fá þeir verðlaun, sem best hafa hirt sinn reit, og því er kepni um að gæta reitanna sem best. Þessi deild með „garðyrkju sem aðalnámsgrein“ var stofn- sett 1922, með 1 slíkum nýlendu- garði með 15 nemendum. Nú starfa 8 slíkir nýlendugarðar með 160 nemendum. Hið þriðja námsskeið, sem skólinn gefur kost á, er hirðing lítilla húsdýra (smaa Husdyre- bmg som Centralfag). Þar læra nemendurnir að umgangast ýms dýr, t. d.: hæns, endur, kanínur o. s. frv. Þessi deild var stofnuð 1923 og hefur nú í ár 18 nem- endur. Á þessum 8 árum hefur „hinn hagkvæmi unglingaskóli" þróast svo hratt, að nú hefur hann um 800 nemendur. Alt er þetta undir umsjón Folke Jacobsens. Auk þess er haldið námsskeið hvert haust í öllum námsgreinum, þar sem nemendur velja um greinar. Á þessum námsskeiðum era 1200 nemendur, einnig undir stjóm Folke Jacobsens. — Skólar í svip- uðu formi hafa verið reyndir á nokkrum stöðum víðsvegar um Danmörku á síðustu árum, með þessa skóla sem fyrirmynd. Vöxtur skólans virðist benda á : að Folke Jacobsen sje hjer á rjettri leið. En hinsvegar hafa þessir skólar mætt harðri mót- stöðu annarsstaðar frá. Og jeg býst við að eftir þeirri merkingu sem fólk alment legigur í orðið „skóli“, þyki þessi skóli nokkuð efniskendur. En orðið „skóli“ merkir nú ekki annað en tóm- stund. Og eftir því, hvemig nem- endumir verja þessari tómstund, verður skólinn að dæmast. „Hinn hagkvæmi unglingaskóli“ hefur valið smíðar sem aðalnáms- grein af þeirri ástæðu, að ár frá ári skilja menn betur og betur rjett þeirra í skólanum. Smíðar era nú hjer í Danmörku jafnrjett- háar sem aðrar skólanámsgreinar, og ryðja sjer óðum til rúms. Að gera tilraun til þess að bera þessa skóla saman við lýðháskól- ana, er óhugsandi, af þeirri ástæðu, að þeir hafa aðra nem- endur og á öðra þroska- og ald- ursskeiði. Og þó að allir skólar hafi sama þyngdarpunkt, mega þeir þó haga hinu ytra formi eft- ir umhverfi og hlutaðeigandi nem- endum. Eigi er það heldur ætlun mín að þetta skólakerfi mundi vera vel til fallið á íslandi. En jeg hef við nánari kynningu af þessum skólum — og þó einkum af per- sónulegri viðkynningu við Folke Jacobsen — fundið verðmæti, sem mundi vel eiga heima í ís- lenskum unglingaskólum. — Það er hin uppeldisfræðislega hlið handavinnunnar, sem án efa vekur betur sjálfsathuganir, og bindur sterkari bönd milli orða og verka, en nokkur bókleg grein getur gert. — Auk þess að nemend- urnir læra að nota ýms verkfæri. — Handavinnan gefur því æfing- ar og hagkvæma þekkingu, — hún talar því einkum tiL vitsins, en lætur aðra hluti sálarlífsins — trúarlíf og tilfinningar — að mestu óáreitt. — Þó hygg jeg nú að mjer sje óhætt að fullyrða, að hver og einn kennari, sem hefur eitthvað að segja til nemenda sinna, geti í hvaða skóla sem er, valdið andlegum áhrifum. En vandinn verður því í hverjum skóla, að velja hin rjettu hlut- föll milli vits og tilfinninga, þekk- ingar og trúar*). Og hverigi verð- ur eins erfitt að finna þessi hlut- föll, eins og einmitt í unglinga- skólunum. Það kemur af því að skólatíminn er þar svo stuttur, að enginn tími má missast til ónýtis. En auðvitað er það með þetta atriði, sem margt annað, að erfitt mun vera að setja hjer nokkrar fastar reglur. Þó krefst þetta íhugunar eftir því sem þjóðin fær fleiri alþýðu- og ung- lingaskóla. Ávextir þeirra verða því eðlileg afleiðing þess, hvort þeir leggja stund á að allar hlið- ar sálarlífsins geti þroskast eðli- lega, — eða hvort þeir eru ein- hliða og stara aðeins á þekking- una, eins og skólarnir hafa haft tilhneigingu til að gera frá önd- verðu og upp til okkar daga. Kennaraskólanum í Khöfn. Eiríkur Sigurðsson. ----o--- Grænlandsmálin. Grænlandsmálin hafa eins og kunnugt er verið mikið rædd undanfarið. Hafa ýmsir Danir krafist þess, að landið yrði opn- að og einokunin afnumin, en því hefur ekki fengist framgengt. M. a. hafa Færeyingar lagt all- ríka áherslu á það, að fá að hag- nýta þar fiskimiðin og afstaða Islands í því sambandi hefur einnig verið rædd. Nú er einnig að því komið að Kragh innanrík- isráðherra hefur borið fram frv. í danska þinginu, sem heimilar slíkar fiskiveiðar, þó með ýms- um takmörkunum, t. d. banni gegn botnvörpuveiðum. Inni I fjörðum mega einnig Grænlend- ingar einir vera að veiðum. Skipulag þetta á fyrst um sinn aðeins að gilda um takmarkaðan tírna, en hið svonefnda suður- grænlenska landsráð á að segja álit sitt um þetta áður en því verður endanlega ráðið til lykta. *) Orðið trú er hjer notað í viðari i mcrkingu en alment gerist, auk I hinnar venjulegu merkingu: trú á mannlifið og störf sin — hinn innri drífandi mátt. Höf. i Lagafyrirmæli era einnig á ferð- inni, sem heimila grænlenskum sýslunefndum að gefa jarðir og lönd einstökum möxmum til æfin- legrar eignar endurgjaldslaust (1 því skyni að koma fótum undir búskap). Þetta ákvæði hefur vakið allmikil andmæli, einkumi frá radikala flokknum, þar sem ákvæðið um fiskiveiðamar er hinsvegar stutt af öllum flokk- um. 1 sambandi við þetta hefur verið sagt frá því í dönskum blöðum, að Hauge fyrv. innan- ríkisráðherra hafi á sínum tíma gefið einstökum manni alla Brattahlíð. En nánari skýringar era ekki á þessu, enda telja ýms dönsk blöð að slíkt mundi vera heimildarlaust. Frv. innanríkisráðherrans eru, hvað sem deilum líður um einstök atriði, alment talið fyrsta alvar- lega si>orið í áttina til afnáms grænlensku einokunarinnar. Radi- kali flokkurinn heimtar einnig algert afnám hennar og segir að það sje fjarstæða að ætla lengur að halda landinu lokuðu, enda sje það eina leiðin til þess að halda því áfram sem dönsku landi, að þar sjáist árangur danskrar vinnu og danskrar framtaksseml ---o---- Snmarósk til Hjálmars listskera Lárussonar Loks jeg heilsa Hjálmars niðja. — Hann skal óskadísin styðja, ljetta þrenging þrauta-viðja. Upp af svölu sóttar-ibóli sól þig leiði að heilla-stóli, feli þig í friðar-skjóli. Sá, sem stóð í stríðum vanda, (styrkist glóð, er hríðar granda) fæðir bróður- blíðan -anda. List þjer enn þá leiki í mundum, lífgi þig á gleði-stundum, svífi um þig á sumar-grundum. Haltu snilli alt til elli. Ekkert villi-spor þig felli. Frón þig hylli á frægðar-velli. 23. maí 1924. Þ. B. Bækur um trúmál. Undanfarið hefur verið allmik- ið fjör í umræðum um ýms kristindómsmáL Nýlega hefur einnig bætst við sjerstakt tíma- rit, sem um mál þessi fjallar, Straumar, gefið út af ýmsum á- hugasömum ungum guðfræðing- um, sem hallast að nýrri guð- fræði og mun því þykja óviðeig- andi að Bjarmi sje einn um hit- una. Ritstjórnina annast aðall. Einar Magnússon kennari, en einna mest skrifar Benjamín Kristjánsson í ritið af útgefend- unum. — Þá hefur allmikið j verið um fyrirlestra um þessi mál I síðastl. vetur. Einkum voru vel sóttir fyrirlestrar próf. Ág. H. Bjarnason, í háskólanum, um trú I og vísindi. Fyrirlestrar vora einn-

x

Lögrétta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.