Lögrétta - 08.06.1927, Page 3
LÖGRJETTA
«
Bændaskólinn a Hólum.
Með þvi að það er ákveSið, að bygt verði á Hólum í stað húss-
ins sem brann í haust, tilkynnist, að skólinn staríar að vetri eins og
að undanfömu.
Jaínframt tilkynnist að alt sumarið milli skólavetranna geta
nokkrir piltar fengið tækifœri til að stunda verklegt nám við nýyrkju
eingöngu.
Páll Zóphóníasson.
Jacobsen orðinn umsjónarmaður
þeesara skóla.
Við að athuga starf skólans
kemur í ljós að aðalnámsgreinin
er smíðar. Hvert kvöld byrjar
með smíðum, og endar með smíð-
um, og þar inn á milli koma svo
kinar boklegu fræðigreinar, t. d.
teiknun, reikningur og danska.
Nemendumir smíða allir eitt
kerfi sem heitir „herbergið mitt“.
Það eru ýms herbergisgögn, sem
kægt er að nota í eins manns
kerbergi, t. d. skrifborð með á-
köldum, stóll, bókahylla o. s. frv.
Að smíða þetta kerfi tekur
hjer um bil 2 vetur í slíkum
kvöldskóla, sem stendur 3 tíma
i senn 2 kvöld í viku. En svo á
nemandinn líka þessa hluti, sem
hann hefur smíðað sjálfur í tóm-
stundum sínum. Áður en hlutur-
hm er smíðaður verður hver
nemandi að teikna mynd af hon-
um. Eftir þessari mynd smíðar
nemandinn svo hlutinn. 1 sam-
bandi við þetta eru svo fundin
reikningsdæmi og stflsefni.
Þegar nemandinn hefur lokið
við að smíða þetta kerfi, „her-
bergið mitt“, þá gefur skólinn
honum nýtt verkefni. Þá gengur
nemandinn inn í aðra deild „hins
hagkvæma unglingaskóla" með
„garðyrkju sem aðalnámsgrein“
(Havebrug som Centralfag). Þá
fær nemandinn dálítinn reit að
rækta í „nýlendugarði unga
mannsins“ (Den unge Mands
Kolonihave). Þessir smágarðar
liggja í útjaðri bæjarins og eru
sem oftast hreppseign. Þar eru
bygð lítil hús, svo unglingamir
geta búið þar saman tveir og
tveir, þegar þeir eru þar úti.
Húsgögnin í herbergið eiga þeir
sjálfir, og svo byrja þeir á þessu
nýja starfi, og hver fær vissan
reit til ræktunar.
1 þessum görðum eru ræktaðar
matjurtir, ýms blóm og trjáteg-
undir. Fræið og plöntumar kaupa
nemendumir sjálfir og svo eiga
þeir sjálfir uppskeruna, sem þeir
annaðhvort selja eða flytja heim.
Er starfið byrjað að vorinu, er
byrjað með að gera nákvæma
teikningu af reitnum. Hver nem-
andi verður svo að halda ná-
kvæman reikning yfir tekjur og
gjöld. 1 þessum nýlendugarði
starfa svo unglingamir hálfan
dag í hverri viku. Þeir koma
þangað stundum síðdegis á laug-
ardögum, sofa svo í húsinu yfir
nóttina og dvelja þar svo yfir
sunnudaginn.Á þann hátt kynnast
þeir starfsgleðinni sem fylgir
ræktunarstarfinu, og lifa glöðu
sumar- og fjelagslífi. Að lokum
fá þeir verðlaun, sem best hafa
hirt sinn reit, og því er kepni um
að gæta reitanna sem best.
Þessi deild með „garðyrkju
sem aðalnámsgrein“ var stofn-
sett 1922, með 1 slíkum nýlendu-
garði með 15 nemendum. Nú
starfa 8 slíkir nýlendugarðar með
160 nemendum.
Hið þriðja námsskeið, sem
skólinn gefur kost á, er hirðing
lítilla húsdýra (smaa Husdyre-
bmg som Centralfag). Þar læra
nemendurnir að umgangast ýms
dýr, t. d.: hæns, endur, kanínur
o. s. frv. Þessi deild var stofnuð
1923 og hefur nú í ár 18 nem-
endur.
Á þessum 8 árum hefur „hinn
hagkvæmi unglingaskóli" þróast
svo hratt, að nú hefur hann um
800 nemendur. Alt er þetta undir
umsjón Folke Jacobsens. Auk
þess er haldið námsskeið hvert
haust í öllum námsgreinum, þar
sem nemendur velja um greinar.
Á þessum námsskeiðum era 1200
nemendur, einnig undir stjóm
Folke Jacobsens. — Skólar í svip-
uðu formi hafa verið reyndir á
nokkrum stöðum víðsvegar um
Danmörku á síðustu árum, með
þessa skóla sem fyrirmynd.
Vöxtur skólans virðist benda á
: að Folke Jacobsen sje hjer á
rjettri leið. En hinsvegar hafa
þessir skólar mætt harðri mót-
stöðu annarsstaðar frá. Og jeg
býst við að eftir þeirri merkingu
sem fólk alment legigur í orðið
„skóli“, þyki þessi skóli nokkuð
efniskendur. En orðið „skóli“
merkir nú ekki annað en tóm-
stund. Og eftir því, hvemig nem-
endumir verja þessari tómstund,
verður skólinn að dæmast.
„Hinn hagkvæmi unglingaskóli“
hefur valið smíðar sem aðalnáms-
grein af þeirri ástæðu, að ár frá
ári skilja menn betur og betur
rjett þeirra í skólanum. Smíðar
era nú hjer í Danmörku jafnrjett-
háar sem aðrar skólanámsgreinar,
og ryðja sjer óðum til rúms.
Að gera tilraun til þess að bera
þessa skóla saman við lýðháskól-
ana, er óhugsandi, af þeirri
ástæðu, að þeir hafa aðra nem-
endur og á öðra þroska- og ald-
ursskeiði. Og þó að allir skólar
hafi sama þyngdarpunkt, mega
þeir þó haga hinu ytra formi eft-
ir umhverfi og hlutaðeigandi nem-
endum.
Eigi er það heldur ætlun mín
að þetta skólakerfi mundi vera
vel til fallið á íslandi. En jeg hef
við nánari kynningu af þessum
skólum — og þó einkum af per-
sónulegri viðkynningu við Folke
Jacobsen — fundið verðmæti,
sem mundi vel eiga heima í ís-
lenskum unglingaskólum. — Það
er hin uppeldisfræðislega hlið
handavinnunnar, sem án efa vekur
betur sjálfsathuganir, og bindur
sterkari bönd milli orða og verka,
en nokkur bókleg grein getur
gert. — Auk þess að nemend-
urnir læra að nota ýms verkfæri.
— Handavinnan gefur því æfing-
ar og hagkvæma þekkingu, —
hún talar því einkum tiL vitsins,
en lætur aðra hluti sálarlífsins —
trúarlíf og tilfinningar — að
mestu óáreitt. — Þó hygg jeg nú
að mjer sje óhætt að fullyrða, að
hver og einn kennari, sem hefur
eitthvað að segja til nemenda
sinna, geti í hvaða skóla sem er,
valdið andlegum áhrifum. En
vandinn verður því í hverjum
skóla, að velja hin rjettu hlut-
föll milli vits og tilfinninga, þekk-
ingar og trúar*). Og hverigi verð-
ur eins erfitt að finna þessi hlut-
föll, eins og einmitt í unglinga-
skólunum. Það kemur af því að
skólatíminn er þar svo stuttur,
að enginn tími má missast til
ónýtis. En auðvitað er það með
þetta atriði, sem margt annað, að
erfitt mun vera að setja hjer
nokkrar fastar reglur. Þó krefst
þetta íhugunar eftir því sem
þjóðin fær fleiri alþýðu- og ung-
lingaskóla. Ávextir þeirra verða
því eðlileg afleiðing þess, hvort
þeir leggja stund á að allar hlið-
ar sálarlífsins geti þroskast eðli-
lega, — eða hvort þeir eru ein-
hliða og stara aðeins á þekking-
una, eins og skólarnir hafa haft
tilhneigingu til að gera frá önd-
verðu og upp til okkar daga.
Kennaraskólanum í Khöfn.
Eiríkur Sigurðsson.
----o---
Grænlandsmálin.
Grænlandsmálin hafa eins og
kunnugt er verið mikið rædd
undanfarið. Hafa ýmsir Danir
krafist þess, að landið yrði opn-
að og einokunin afnumin, en því
hefur ekki fengist framgengt.
M. a. hafa Færeyingar lagt all-
ríka áherslu á það, að fá að hag-
nýta þar fiskimiðin og afstaða
Islands í því sambandi hefur
einnig verið rædd. Nú er einnig
að því komið að Kragh innanrík-
isráðherra hefur borið fram frv.
í danska þinginu, sem heimilar
slíkar fiskiveiðar, þó með ýms-
um takmörkunum, t. d. banni
gegn botnvörpuveiðum. Inni I
fjörðum mega einnig Grænlend-
ingar einir vera að veiðum.
Skipulag þetta á fyrst um sinn
aðeins að gilda um takmarkaðan
tírna, en hið svonefnda suður-
grænlenska landsráð á að segja
álit sitt um þetta áður en því
verður endanlega ráðið til lykta.
*) Orðið trú er hjer notað í viðari i
mcrkingu en alment gerist, auk I
hinnar venjulegu merkingu: trú á
mannlifið og störf sin — hinn innri
drífandi mátt. Höf. i
Lagafyrirmæli era einnig á ferð-
inni, sem heimila grænlenskum
sýslunefndum að gefa jarðir og
lönd einstökum möxmum til æfin-
legrar eignar endurgjaldslaust (1
því skyni að koma fótum undir
búskap). Þetta ákvæði hefur
vakið allmikil andmæli, einkumi
frá radikala flokknum, þar sem
ákvæðið um fiskiveiðamar er
hinsvegar stutt af öllum flokk-
um. 1 sambandi við þetta hefur
verið sagt frá því í dönskum
blöðum, að Hauge fyrv. innan-
ríkisráðherra hafi á sínum tíma
gefið einstökum manni alla
Brattahlíð. En nánari skýringar
era ekki á þessu, enda telja ýms
dönsk blöð að slíkt mundi vera
heimildarlaust.
Frv. innanríkisráðherrans eru,
hvað sem deilum líður um einstök
atriði, alment talið fyrsta alvar-
lega si>orið í áttina til afnáms
grænlensku einokunarinnar. Radi-
kali flokkurinn heimtar einnig
algert afnám hennar og segir að
það sje fjarstæða að ætla lengur
að halda landinu lokuðu, enda sje
það eina leiðin til þess að halda
því áfram sem dönsku landi, að
þar sjáist árangur danskrar
vinnu og danskrar framtaksseml
---o----
Snmarósk
til Hjálmars listskera Lárussonar
Loks jeg heilsa Hjálmars niðja.
— Hann skal óskadísin styðja,
ljetta þrenging þrauta-viðja.
Upp af svölu sóttar-ibóli
sól þig leiði að heilla-stóli,
feli þig í friðar-skjóli.
Sá, sem stóð í stríðum vanda,
(styrkist glóð, er hríðar granda)
fæðir bróður- blíðan -anda.
List þjer enn þá leiki í mundum,
lífgi þig á gleði-stundum,
svífi um þig á sumar-grundum.
Haltu snilli alt til elli.
Ekkert villi-spor þig felli.
Frón þig hylli á frægðar-velli.
23. maí 1924. Þ. B.
Bækur um trúmál.
Undanfarið hefur verið allmik-
ið fjör í umræðum um ýms
kristindómsmáL Nýlega hefur
einnig bætst við sjerstakt tíma-
rit, sem um mál þessi fjallar,
Straumar, gefið út af ýmsum á-
hugasömum ungum guðfræðing-
um, sem hallast að nýrri guð-
fræði og mun því þykja óviðeig-
andi að Bjarmi sje einn um hit-
una. Ritstjórnina annast aðall.
Einar Magnússon kennari, en
einna mest skrifar Benjamín
Kristjánsson í ritið af útgefend-
unum. — Þá hefur allmikið
j verið um fyrirlestra um þessi mál
I síðastl. vetur. Einkum voru vel
sóttir fyrirlestrar próf. Ág. H.
Bjarnason, í háskólanum, um trú
I og vísindi. Fyrirlestrar vora einn-