Lögrétta - 30.11.1927, Qupperneq 3
LOGBjbtta
8
Ný bók.
„Alfagullið“ heitir æfintýri ný-
komið á markaðinn. Höfundur
þess er Bjami M. Jónsson, skóla-
stjóri í Grindavík. „Kóngsdóttir-
in fagra“ kom út eftir hann í
fyrra. Hefir það æfintýri orðið
vinsælt.
Tryggvi Magnússon hstamaður
hefir prýtt Álfagullið með mörg-
um prýðisvel gerðum ■ myndum.
Pappírinn er góður, ytri umbún-
aður laglegur. Prentið er stórt og
sjerlega gott til lestrar fyrir böm.
Galli er það á rjettritun, að é
er notað fyrir je, sem er lögboð-
in skólarjettritun. Allar bækur
bama skyldu þannig ritaðar með-
an svo er ákveðið.
Enginn viðvaningsbragur er á
máli, stíl og meðferð efnis. Og
stígandi frásagnarinnar er þann-
ig, að eftirtektin hefir nóg að
gera. Tökin eru fastari og leikn-
in meiri en í fyrra.
Aðalpersónur æfintýrisins þjóna
sinni lund og stefna sínar götur.
Launin verða ólík, en eftir verð-
leikum uppskeran. Þetta er und-
irstraumur æfintýrsins. Það er
leitast við að greiða úr gátunni
um álfagullið, sem lætur steina
fyrir steina, tómlæti og myrkur
fyrir kaldar undirtektir, en gefur
gull fyrir góðverk.
Andstæður eigast við, en það
góða hefir öll tök og heillar hug-
ann.
Fyrrum vom myrkravöldin
máttug og grimm. Hjer hafa þau
felt fjaðrir sínar.
„Álfamóðirin alvísa“ heyrir
ekki hróp Bjamar, því að: „móð-
ir vor heyrir andardrátt blóm-
anna og skóhljóð dags og nætur.
En hún heyrir ekki hróp þeirra
hjartna, sem mæla af grimd“,
segir í Álfagullinu.
Það er ekki með öllu vanda-
laust að fara svo með efni æfin-
týra, að það verði ekki annað-
hvort hjegómlegt og væmið eða
útþynning annara þynninga. Og
það er ekki minni vandi að taka
mátulega mikið og margt, en
hugsa ekki um að tæma alt. Þyk-
ir mjer höf. hafa leyst þenna
vanda vel.
Það er einkenni æfintýra, að
þau eru auðug af myndum og
dautt og lifandi, dýr og menn
mælast við eins og maður við
mann. Þetta dillar ímyndun og
eyrum og er því einkum hugnæmt
bömum. En bamagullin tákna
jafnan eitthvað úr heimi þeirra
vöxnu, frá veröld alvörunnar.
Þannig er það líka um vel gerð
æfintýri, þessi bamagull bók-
mentanna. Alvaran býr á bak við
gullin. Og „álfagullið" verður
nokkuð þann veg, sem hver vill.
Sje efnið klætt úr og krufið til
mergjar, koma löngum í ljós
sannindi, sem öllum má verða
gagn í að heyra, bæði vaxandi og
vöxnum.
Þannig hygg jeg að verða mum
um þetta nýkomna æfintýri. Og
það virðist í engu bregðast þeim
vonum, er menn gerðu sjer um
höf. í fyrra, þegar „Kóngsdótt-
irin fagra“ kom út.
Þetta er jólaæfintýri. Mun
mörgu baminu þykja jólakertin
brenna óþarflega ört við lestur
þess. ísak Jónsson.
----o--
! In memoriam.
í ____
Vilhjálmur Hjálmarsson á Brekku
1850—1927.
I.
Þeirra skyldi hæsta hrósið
og heiður eftir lífsins dag,
best sem hafa borið ljósið
með birtu yfir þjóðarhag.
Þeirra’ er gáfu dæmin dým
dygða’ og starfa öðrum lýð;
i göfgis deildu gulh skím, —
gjöfum bestu hverri tíð.
Vænlegra* yrði um vinatrygðir,
vit og iðju’ og hjartans ment,
ættu landsins breiðu bygðir
bragna marga’ er ljetu kent
fólki’ að iðka fræðin góðu,
fægðan . skjöld að bera hátt,
unna’ og meta andans sjóðu,
eyða stríði, græða sátt.
Mörg fekk blómgast bygðin fríða
| best, af gerðum einstaks manns.
; Menning óx í lífi lýða
| af láni, viti’ og drengskap hans.
í Hann rjeð hugsa, horfa’ og vaka,
i hann rjeð starfa dag sem nátt;
heimsku’ og lygð frá stafni stjaka,
stýra af snild á allan hátt.
Hvað er fólksins ment og menning
móti’ ei hugsjón líf og strit?
Stoðar lítið starf og kenning
stýri’ ei iðju framsýnt vit.
Baráttu’ eiga brautryðjendur
byrgði stór þeim valin er.
Sá í þrekraun sífelt stendur,
sem að merkið fremstur ber.
Ejöldinn best sjer famast lætur
forsjá studdur göfugs manns.
Flestur verður maður mætur
merki undir höfðingjans.
Hver ein sveit er sára döpur
sje þar hvergi rausnarból,
líkt og auðn, er næðir nöpur
norðri mót, og fjærri sól.
II.
Þú varst hinn fremsti’ að þreki’
og dáðum
þú hefur vaxtað mikið pund.
Hygginn að viti, heill í ráðum,
höfðingi’ að rausn og skörungs-
lund.
Öllum var hús þitt athvarf
hlýjast
að því bar margan þreyttan gest.
Orðtakið það er elst og nýjast,
að auðurinn hjartans vegur mest.
Vinátta þín var sviklaus sjóður,
soralaust hjartað, hvergi tál.
Það var ei stopull góugróður,
sem greri’ í þinni hlýju sál.
Það var æ bjart 1 þínu geði,
þar var ei skuggi ofstopans.
Fögur er ætíð góðs manns gleði,
gott er að dvelja í návist hans.
Þú hefur elskað, þráð og lifað,
þú hefur glaður beðið hel.
Þú hefur miklu bjargi bifað
úr brautinni niðja. — Farðu vel!
III.
Við helfregn er oft eins og húmi
af nótt
og hveini strengir, er sundur
hrukku
Yfir dauða þínum er dagskin rótt
og dýrðarómur af jólaklukku.
I nóv. 1927.
Þorst. Krístjánsson.
----o-----
Tðframagn helgisiða.
Eftir Jón Árnason.
------- Nl.
Djáknavígslan er sú lægsta af
hinum hærri vígslum kirkjunnar
og lyftir þeim, sem hana fær, á
hærra stig og gerir hann mót-
tækilegan fyrir sjerstaka orku-
tegund. Hann má því vinna á-
kveðin verk í kirkjunni.
Prestsvigslan er að mun hærri
og voldugri og veitir meiri rjett
og meira vald, eins og sjest á
því, að hann má miklu meira
gera en djákninn.
Loks er biskups vígslan
hæst þeirra allra og veitir alt
það vald og hæfileika, sem til
þess útheimtast að fara með all-
ar athafnir kirkjunnar, eins og
áður hefur verið minst á.
Að maðurinn verður þannig
opnaður og gerður farvegur fyr-
ir æðri öfl, er meðal annars fyr-
ir þá sök, að hann er á því stigi
í heildarkerfi náttúrunnar, sem
eru takmörkin á milli hins lægra
og æðra. Hann hefur hægri fót-
inn í hinum æðri heimum, heim-
um, sem eru fyrir ofan hina
mannlegu þróun, en sá vinstri er
í heimum lægri þróunar. Dýrin j
hafa eigi þessa stöðu, og því er i
eigi unt að gera þau að stöðug- !
um farvegi fyrir æðri öfl.
Sjö aflstöðvar eru í mannin-
um og eru þær meðal annars
þessi sambandsliður. Aflstöðvar :
þessar víkka við vígslumar og !
fer því miklu meiri orka í gegn-
um þann mann, sem vígslu hefur
þegið, en hinn, sem enga vígslu
hefur.
Við sjerhverja athöfn, sem
framkvæmd er, kemur nýtt yf-
irstreymi andlegrar orku og fell-
ur flóð þetta yfir kirkjuna og
söfnuðinn og hefur áhrif á stóru
svæði umhverfis. Verður hið
innra líf allra þeirra er búa á
staðnum fyrir meirí og minni á-
hrifum frá töframagni þessu,
vekur þá og tendrar ljós með
þeim og lyftir þeim smátt og
smátt í áttina til hinnar innri
og æðri vitundar.
Kornloftið.
Tilgangur og töframagn siðaat-
hafna er að opna leiðir fyrir sjer-
stakar tegundir andlegrar orku og
leiða hana niður til vor, sem á
jarðríki búum. Gerist það með
þeim hætti, sem að framan getur.
Orku þessari er stöðugt veitt
um hin æðri svið tilveru, en hún
nær eigi að komast niður í jafn-
ríkum mæli og í því ástandi að
við getum notið hennar. Þess
vegna þarf að gera farvegi fyrir
hana.
Fyr meir var það siður kaup-
manna að geyma kombirgðir
uppi á lofti í vöruhúsum sínum.
Var komið látið í afmarkaða bása
eða stíur. Trjepípur, víðar nokkuð,
lágu í gegnum loftið niður í búð-
ina og þurfti eigi annað en að
draga frá rennilok, þá streymdi
komið niður. Settu menn svo
poka undir og ljetu renna í hann.
Hinum æðri sviðum mætti líkja
við komforðabúr, þar sem upp
væri safnað andlegri orku mann-
kyni til aðstoðar og blessunnar,
en kirkjan sem helgisiðakerfi er
einskonar pípa, sem kraftur þessi
flýtur um til allra þeirra, sem
setja poka sinn undir og láta fylla
hann. Við þetta niðurstreymi fá
menn tækifæri til þess að styrkja
hið innra líf sitt og veita því
ætíð nýja næringu, því sakra-
mentin, náðarmeðölin, hafa verið
gefin öllum án tillits til ytri að-
stöðu. Einungis traust, hollusta
og einlægni ætti að vera skilyrði
fyrir viðtöku þeirra.
Slík forðabúr em til og þau
j eru notuð 1 þarfir mannkyns og
| þeir, sem vinna óeigingjamt,
þeir, sem vilja fóma hæfileikum
sínum, þekkingu, efnum og lífi
í þjónustu mannkyns, þeim eru
opnaðar þessar voldugu upp-
sprettur afls og orku, því þeir
eru orðnir miðlar, en eigi eig-
endur.
Þegar einhver stofnun hefur
orðið fyrir því óhappi, að sjálfs-
elskan, valdafýknin og eigingirn-
in era setstar í hásæti hennar,
jafnvel þó að hún hafi ráð á
náðarmeðölum, þá smáþomar
hún upp og verður loks hismið
eitt, andlaust og skorpið. En
meðan fómin, þjónustan, hinn
sanni miðlari situr á veldisstóli,
þá streyma stöðugt um hana
endumýjunarstraumar, — hún er
síung.
Niðurlag.
I framanskráðum línum hef jeg
gert tilraun til að lýsa nokkrum
þeim atriðum, er standa í sam-
bandi við helgisiði og ætlunarverk
þeirra. Jeg hef ýmislegt sagt, sem
eigi er sannað, og haldið fram
því, sem jeg eigi hef rökstutt.
Hef jeg orðið að gera það, því
eins og gefur að skilja, er hjer
um dulspekileg atriði að ræða.
Mjer hefur virtst nauðsynlegt
að taka þetta mál lítillega til at-
hugunar, því nú gera menn meiri
kröfur til helgiathafna en áður.
Því er eigi úr vegi að gera stutt
yfirlit yfir aðalatriðin í þessu
máli, sem að minni hyggju er
bæði beinlínis og óbeinlínis svo
mikilsvarðandi fyrir framtíðar-
þroska manna. Helgisiðimir era
einn öflugasti þátturinn í heims-
rásinni.
----o----
Milliþinganefndin í búnaðar-
málum er nú fyrir nokkra tekin
! til starfa hjer, en í henni sitja
Jör. Brynjólfsson, Þór. Jónsson
og Bemharð Stefánsson. Ekki
mun hún ljúka öllum störfum sín-
um í vetur, en þau eru marg-
þætt.