Alþýðublaðið - 25.08.1963, Page 4
i BLÖÐ og útvarp hafa sagt
, okkur frá liinni óvenjufegu
I stjórnarkreppu í Noregi, eins
i og þeirra er vandi um mikil og
óvænt tíoindi. Þó hef ég ekki
heyrt þess getið hér heima,
J sem var hvað óvenjulegast við
þessa stórpólitísku viðburði.
; Það var sjónvarpið, sem flutti
atburðina í Stórþinginu í Osló
I inn á svo tii hvert heimili í
Noresi.
' Norðmenn hafa haft sjón-
) varp um nokkurra ára skeið.
Þar í landi eru kúltúrsnobb-
arnir ekki eins áhrifamiklir og
hér á-íslandi, og norska þjóð-
in því ekki notið þeirrar „menn
ingarverndar“ að vefa í\jón-
varpstaus, eins og við.
Norðmenn ákváðu um 1950-,
I að þeir skyldu koma upp sjón-
• varpi, og þeir byrjuðu hóflega.
\ Var málið vandlega undirbúið
og tilraunasendingar gerðar í
? 2-3 ár, áður en þeir hófu reglu-.
i legt sjónvarp. Hafa þeir, sem
1 berjast fyrir íslenzku sjón-
i varpi, kynnt sér þróun máis-
\ ins í Noregi og lagt til, að hér
iá yrði að ýmsu leyti fariu svipuð
= Icið og Norðmenn völdu.
Norska sjónvarpið sendir 2-3
- klukkustunda efni á dag. Þegar
sýniiegt varð, að King’s Bay
málið mundi verða að stórmáli
■\ í þinginu, að það var gert að
tilefni til vantrauststillögu á
ríkisstjórnina, var ákveðið að
sjónvarpa umræðunum u.n
málið í heild.
Ýmsir voru mótfallnir þess-
ari ákvörðun og töldu, að þing-
menn mundu ekki þola þetta
og hefja einhvers konar leik-
araskap fyrir sjónvarpsnotend-
ur í stað þess að ræða málið
á eðlilegan hátt. Sem betur fer
reyndist þetta óþarffeg svart-
sýni. Sumir þingmenn létu að
vísu klippa sig vegna sjónvarps
ins, en það þótti yfirleitt vera
til bóta. Reynslan varð sú, að
mikill hluti þjóðarinnar fylgt-
ist með umræðunum eða eia-
hverjum hluta þeirra, og þótti
ýmsum kaffaskipfi í lýðræði
Noregs, þegar þjóðin komst í
slíka snertingu við þingið.
Stórþjóðir telja slíkt útvarp
beint frá þjóðþingi vafasamt
og leyfa sér það yfirleitt ekki.
Hins vegar hefur þetta gefizt
vel hjá smærri þjóðum, og hér
á íslandi mundi þetta án efa
reynast prýðilega. Við erum
enn á því stigi, að við viljum
láta frambjóðendur halda l'anga
umræðufundi, og hér er mikiö
hlustað á útvarpsumræður. Er
ástæða til að ætla, að sjónvarp
á umræðum um stórmál beint
úr þingsal mundi verða veiga-
mikil viðbót við hið persónu-
lega stjórnarkerfi, sem við bú-
um við.
Framboðsfundir, þar sem til-
vonandi þingmenn eigast við
í áugsýn kjósenda, eru mikils-
verður íiður í lýðræði okkar.
Að vísu hefur þessi siður verið
afnuminn í þéttbýlinu — því
mlöur — en útvarpsumræður
hafa komið í staðinn. Þótt ýms-
um leiðist slíkar umræður,
hafa athuganir leltt í Ijós, að
mjög stór hluti þjóðarinnar
hlustar á þær. Vafalaust mundi
sjónvarp gefa þeim aukið gildi
þar sem ræðumenn og aðrir
þingmenn mundu sjást um leið.
Þetta er að vísu aðeins ein
af mörgum ástæðum til þess,
að við ættum að vera byrjaðir
á íslenzku sjónvarpi.
Sjónvarpsnotendum hér hefir
fjölgað stöðugt í vor og sumar,
og eru þeir nú vafalaust hátt
á annað þúsund. Allt þetta
fóík horfir á hermannasjón-
varpið frá Keflavik og eru á-
hrif þess að verða svo mikil, að
íslendingar geta ekki við unað.
Sjálfsagt er, að varnarliðs-
menn, sem eru innilokaðir á
Keflavíkurvelli hafi sjónvarp
sér til dægrastyttingar, en það
er engin ástæða til að láta
þetta sjónvarp ríkja á hverju
íslenzku heimili, af því að við
þurfum endilega að vera eina
þjóðin í Evrópu fyrir utan
Grikki, sem er nógu menningar
lega þroskuð til að hafa ekki
sjónvarp!
FUNDI FÉLAGSMÁLA-
RÁÐHERRANNA LOKIÐ
DAGANA 22.-23. ágúst 1963 var
norrænn ráðherrafundur um fé-
lagsmál haldinn í Bifröst.
Fundinn sátu eftírtaldir ráðherr-
ar:
Frá Danmörku: Lars P. Jensen
innanríkisráðherra.
Frá Finnlandi: Verner Korsback
ráðherra og Omni Nárvanen sam-
göngu og verkamálaráðherra.
Frá Svíþjóð: Sven Aspling, fé-
lagsmálaráðherra.
Frá íslandl: Emil Jónsson fé-
lagsmálaráðhérra.
Auk ráðherranna sátu fundinn
28 embættismemr frá Danmörku,
Finnlandi, Noregi, Svíþjóð og ís-
iandi.
Á fundinum voru þessi mál
rædd:
1. Laun og dagpeningar í sjúk-
dómsforföllum (ísl. framsaga).
2. Sambandið á milli ellilífeyris
og dvalartíma (norsk frams.)
3. Verkþ.iálfun og starfsfræðsla
i launþega (dönsk frams.).
4. Húsnæðismál og heimilishjálp
aldraðs fólks (finnsk og sænsk
framsaga).
Skýrslur frá félagsmálaráðu-
neytum þátttökulandanna og frá
nefndum, sem starfa á milli funda
lágu fyrir fundinum.
Fundur var haldinn með níu
manna félagsmálanefnd Norður-
landaráðsins.
Danski ráðherrann Lars P. Jen-
sen bauð til næsta fundar í Dan-
mörku á árinu 1965.
Fundinum lauk kl. 12 á hádegi
í dag. ; ,
Félagmálaráðuneytið
23. ágúst 1963.
Sæmdir stórkrossi hinnar
brazilísku orðu
Við virðulega athöfn á heimili
ræðismanns Brazilíu, Bergs G.
Gíslasonar, fimmtudaginn 22. á-
gúst 1963, sæmdi sendiherra Brazi
líu á íslandi, herra Francisco
d’Alamo Lousada, forsætisráð-
herra Ólaf Thors og utanríkisváð
herra Guðmund í. Guðmundssn
stórkrossi hinnar brazilísku orðu
„Ordem Nacional' do Cruzeiro do
Sul;“. Við það tækifæri sæmdi
sendaherra Brazilíu einnig Berg
G. Gíslason ræðismann riddara-
krossi þessarar sömu orðu.
Við athöfn þessa lagði sendi-
heira Brazilíu áherzlu á hið góða
samband sem ríkti milli ríkis-
stjórna íslands og Brazilíu og
kvaðst sendiherrann vera þess full
viss að samstarf landanna ætti eft
ir að blómgast og þróast báðum
löndum til góðs.
Sendiherrann minntist þess að
nú væri starfandi ungur íslenzk-
ur prófessor við háskólann í Sao
Paulo og kenndi þar haffræði með
áhuga og helgaði þjónustu sína
landinu, sem hann starfaði fyrir.
Herra Lousada er um það bil.
að ljúka starfi, sem sendiherra
lands síns á íslandi og Noregi, og
lýsti ánægju sinni og þakklæti fyr
ir virðingu og fyrirgreiðslu, sejn
liann hefur ætíð notið hér.
DOTTUR-
SONUR .
KRÚSA
Ekki eiga öll börn jafn glæsi
legra leiktækja völ og snáðinn
hér á myndinni. Þessi piltur
er átta ára gamall og heitir
Aleksei Adjoubei. Bíllinn, sem
hann er að leika sér í, er ekki
leikfang í venjulcgum skiln-
ingi, því þetta er alvörubíll
knúinn litlum benzínmótor og
á gúmmíhjólbörðum. Að öllu
léyti smækkuð útgáfa af venju
Iegum bíl.
Ef þið viljið vita deili á pilt-
inum, þá er hann dóttursonur
Krústjovs, og er faðir hans
einn af ritstjórum Izvestia.
Hann keypti þennan forláta bíi
handa syni sínum í Bandaríkj-
unum, því leikföng af þessn
tagi munu heldur sjaldgæf £
Sovét og ekki á færi allra sovét
borgara að eignast slíkt. '
Sjötugur
Hallghmur
Gu&mundsson
Sjötugur verður á morgun, 26.
ágúst, Hallgrímur Guðmundsson,
verkamaður, Stangarholti 28,
Reykjavík. Hallgrímur hefur alla
tíð verið áhugasamur baráttumað-
ur vérkalýðshreyfingarinnar óg
Alþýðuflokksins. Alþýðublaðið
sendir honum hugheilar afmælis-
óskir á sjötugsafmælinu.
4 25. ágúst 1963 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ