Lögrétta - 01.07.1935, Qupperneq 43
L ÖGRJETTA
182
181
lítilla vatns og vinds raforkuvera, sem virð-
ast viðráðanleg að stofnkostnaði þeim er lít-
il fjárráð hafa. Virðist mjer það mega vel
skipast, að hinar út úr skotnari bygðir eign-
ist hagsmuni vegna þessa gjalds, því ljóst
er, að þar sem rafmagn er þegar starfbund-
ið til ljósframleiðslu, eða verður það í ná-
inni framtíð, þar skerðist greint innflutnings-
gjald að miklum mun.
Mjer virðist hæfilegt að tveim ölgerðar-
húsum verði um ákveðið árabil leyft að fram-
leiða hið þolgóða öl gegn því að þau, að
fyrsta starfsári undanskildu, greiði fyrir leyf-
ið 500 krónur á mánuði hvort. Hygg jeg sann-
gjarnt, einkum ef ölgerðarstofnun sú, sem
nú starfar í Reykjavík, hefur þegar lagt fram
mikið fje til bygginga og áhalda, auk stórra
gjalda upphæða til ríkis og bæjar, þá gangi
hún að sínum þætti og öðru jöfnu fyrir nýj-
um samtökum um leyfi til að framleiða hið
sterkara öl.
Jeg tel hæfa að leyfa öllum veitingamönn-
um og matvöruverslunum að selja hið greinda
öl helst með ákveðnum hámarkshagnaði.
Væntanlega mun æskilegt að stefna að
því, að greindar ölgerðir mættu færast á
afvikna staði dálítið frá Reykjavík, en yrðu
þó nálægt ágætri vatnsuppsprettu og raf-
magnsleiðslu. Mikilli ölframleiðslu fylgja vafa-
laust úrgangsefni, er geyma allmikil fóður-
efni handa fuglum og öðrum eldisdýrum. En
hentugt mun að komast hjá að þurka, geyma
og flytja affallsefnin langt.
Það er ljóst að góðar öltegundir, sem inni-
halda dálítið af vínanda, geymast vel og eiga
öruggar söluhorfur. Ö1 þetta mun talið holt
og nærandi, aðallega pó á þann hátt að
styðja að göðri meltingu annara fæðutegunda.
Kunnugt er að alt öl inniheldur ofurlítið
af vínanda, En ef það er eins lítið eins og
bindindismenn gera kröfur til, þá skemmist
eða eyðilegst ölið við langa geymslu. Það
mun því ekki hæft til flutnings landa í mill-
um nema vandlega umbúið í flöskum og þó
trauðla um langar siglingaleiðir.
Það mun skoðun fróðra manna, bygð á rann-
sókn, að vjer eigum úrvals hentugt vatn til
gosdrykkja- og ölframleiðslu. Virðast líkur
til, með því að heimila tilbúning og sölu
hinna styrkari öltegunda, að oss kynni að
verða fært með nokkrum árangri, að keppa
við aðrar þjóðir um framleiðslu og sölu á 1.
flokks öltegundum og gosdrykkjum til ann-
ara þjóða. Væri ánægjulegt ef það mætti
verða iðnaði vorum, siglingum og verslun
stuðningur að framleiða, flytja og selja öl,
e. t. v. til þeirra þjóða, er láta oss í tje hin
svonefndu Spánarvín, salt kol o. fl. Aðal
framleiðsluvara vor, saltfiskurinn, er nú, sem
kunnugt er, seldur í hinum hlýju löndum
suður við Miðjarðarhaf. En þar sem veður-
sæld er og hitar mun minna (erfiðara) um
heilnæmt drykkjarvatn. Virðist eðlilegt að
greind aðstaða auki eftirspurn og þörf fyrir
heilnæmar hitavarðar ölteguridir. Og starf-
rækt umfangsmikil viðskifti virðast að nokkru
greiða söluhorfur fleiri vörutegunda heldur
en saltfisks vors.
III.
Árangur áfengisliafta óálitlegur.
Það veit jeg að fjöldi landsmanna álítur
nauðsynlegt að afmá alla þá drykki í landi
voru, sem blandaðir eru vínandaefnum, og
verja það fyrir innflutniugi tjeðra drykkja.
Vjer höfum nú búið við bannlög og bann-
höft um alllangt árabil. Og einnig berast
frjettir af reynslu annara þjóða um bannlög-
gjöfina.
Þegar bannlögin komu til framkvæmda í
landinu, virtist mjer nautn áfengra drykkja
mjög að minka, og að því er flesta unga
menn snerti, að hverfa. Undantekningarlítið
fylgdi uppvaxandi kynslóðin, jafnt karlar
sem konur, hinni frjálsu útrýmingu áfengis.
Lítt nauðsynlegar munaðarvörur virðast
nærgöngular sæmilegu menningarlífi. Því
miður tel jeg nú komið í ljós, að bannlögin
eru ekki fær um að vinna það göfuga hlut-
verk, sem þeim var hugað. Vjer Islendingar
höfum eigi, fremur en aðrar þjóðir, þolað —
og þ(-lum ekki ennþá — þær þrekraunir, að
neita oss að öllu leyti um drykki blandaða vín-
anda. Reynsla bendir til, að það er ófram-
kvæmanlegt að varna oss þess, að láta hönd-
ur fara um þá áfenga drykki, sem flestar þjóðir
nota til viðurværis og hressingar. Er ljóst, að
drykki blandaða vínandavökva (Öl) aæmir
best að framreiða með mat og til hressingar
og glaðningar í skiftum fyrir kafíi, sem mun