Alþýðublaðið - 04.09.1963, Qupperneq 2

Alþýðublaðið - 04.09.1963, Qupperneq 2
Bitstjórar: Gísli J. Ástþórsson (at>) og Benedikt Gröndal.—Aðstoðarritstjóri Björgvin Guðmundsson. — Fréttastjóri: Sigvaldi Hjálmarsson. — Símar 14 900 — 14 902 — 14 903. Auglýsingasími: 14:906 — Aðsetur: Alþýðuliúsið. — Prentsmiðja Alþýðublaðains, Hverfisgötu 8-10. — Áskriftargjald kl. 65.00 6 mánuði. í lausasölu kl. 4 00 eint. Útgefandi: Alþýðuflokkurinn. HRINGLANDI • ' SKRIF TÍMANS um Hvalfjarðarmálið gefa ærið tilefni til spuminga um, hver sé stefna Fram- sóknarflokksins 1 utanríkismálum. Hefur flokkur inn sveiflazt öfga á milli, allt frá sálufélagi við kommúnista yfir til Varðbergs eftir því hvernig vindur hefur blásið hverju sinni. í rauninni virðast framsóknarmenn vera með öllu skoðanalausir á utanríkismálum, en taka af- stöðu hverju sinni eftir því, hvort þeir eru í stjórn <eða utan stjórnar. Þegar þeir éru í ríkisstjóm eru þeir hörðustu NATO-menn, en utan stjómar breyt ast þeir skjótlega í þjóðvarnar-kommúnista. í lok síðasta ófriðar voru framsóknarmenn ut- an ríkisstjómar. Þá voru þeir svo mglaðir, áð flest ir þingmanna þeirra voru á móti þátttöku íslands í Sameinuðu þjóðunum! Nokkru síðar var gerður Keflavíkursamning- ur við Bandaríkin. Má nærri geta, að framsóknar- menn voru á móti honum. Þegar málið var komið á lokastig í þinginu breytti Eysteinn Jónsson skyndi- lega urn skoðun og með honum stór hópur fram- sóknarþingmanna. Gerðust þeir stuðningsmenn samningsins, enda var þess ekki langt að biða, að Framsókn gerðist aðili að stjóm og Eysteinn yrði ráðherra. Árabilið 1950—56 voru framsóknarmenn í stjórn og hinir mestu fylgismenn Atlantshafs" 'bandalagsins og landvarna á íslandi. Þeim þótti fyrirtækið Sameinaðir verktakar of þröngt í snið- um og börðust með góðum árangri fyrir víðtækari félagsskap um hermangið. Tókst þeim að koma hlutafélaginu Regin h.f. að jötunni og leigja Ame- ríkumönnum Hvalfjarðartanka. Þegar Hermann Jónasson sleit samstarfi við sjálfstæðismenn 1956, var tekin upp önnur stefna í utanríkismálum og brottför hersins veifað fram- an í landsmenn, meðan á kosningum stóð. Nokkr- um mánuðum síðar, þegar framsóknarmenn voru komnir í ráðherrastól á nýjan leik, var því máli sleppt og ekki á það minnzt, fyrr en Framsókn lenti aftur í stjórnarandstöðu. Þessi ferill framsóknarmanna er ekki fagur. Hann gefur til kynna, að þeir braski með utanrík- ismál eftir því, hvað hentar þeim sjálfum hverju sinni — og hvað er nauðsynlegt fyrir þau fyrir- tæki, sem þeir hafa á sinni könnu. Þegar athugaður er ferill framsóknarmanna undanfama tvo árátugi, kemur í ljós stefnuleysi þeirra og hrossakaup í utanríkismálum. í því ljósi verða skrif Tímans um Hvalfjarðarmálið harla lít ils virði. 2 4. sept. 1963 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ PRESTCOL Kæliskápar tyrir Veitingafiús Verzianir Barnaheimili Hótel Sjúkrahús H eima vistarskóla HAGKVÆMIR GREIÐSLUSKILMÁLAR H 178 cm. Br. 112 cm. D. 69 cm. Verð kr. 2Í.Í09.00 20,5 sub.ft (581 l.) Raftækjadcild O JOHNSON & KAABER H.F Snorrabraut 38. HANNES Á 3 0 m 71 3ZDj SPANH) er runnið í merg og bein fjöldans. Krafsið er orðið honum eiginlegt. Þetta er aldar- svipur íslenzku þjóðarinnar, en um íeið birtast manni miklar framkvæmdir, stórkostlegar bygg ingar, al'lt á ferð og flugi hvar sem litið er. Togari keyptur fyrir 50 lijón { fyriri nolúí um árum. Seldur fyrir 30 milljónir í dag. DÆMIN ERU við hvert fót- mál. Svipur fólksins er markað- ur þeim, tal ungmenna mengað af því, blöðin ein allsherjarmynd áf aldarandanum fangelsin full vegna þess að glæpir eru bein afleiðing. Það er eins og allir glotti við tönn í blindu æðinu, eins og máð ur sjái grimmdarbros á andlitun- um. Og sögurnar eru óteljandi. Eftirfárandi saga var mér sögð í gær eftir að pistill minn kom út: FYRIR NOKKRU var maður lagður inn á sjúkrahús. Þar var búið um hann og hlúð að honum. Hann átti fyrst að hvílast, síðan átti að taka sjúkdóm hans til rannsóknar. Hann hafði við og við fótavist og gat hringt í síma Leigu bifreiðastjóri kom í heimsókn til hans — og er hann var farinn gerð ist sjúklingurinn ölvaður. Brátt varð hann óviðráðanlegur svo að kalla varð á lögreglu tii þess að fara með hann í fangageymslu. ÉG VEIT EKKI hvort þessi saga er sönn, en hún gæti verið sönn, svo mikið þekki ég af eigin + Hvað er stolt þitt macfur? ^ Enn birt nokkur dæmi. Saga úr sjúkrahúsi. ^ TÁR er réttnefni. iimmmmiimmmmm,,,m,,,,,m,,,,,,,****,,,i,l,l,l,,,,l,,,l,"l,l,,,,,>l,,,,,,,,,,,,,,,,l,,,,,,l,,,,,,,,,,,,,,,,f,I>l,,>,,,ll,ll,» reynslu. Þetta er ein myndin enn af því hve djúpt við erum sokkin. H.J. SKRIFAR: „Einu sinni tóku menn upp á því, að kalla Áfengis- og tóbaksverzlunina TÁR. Það var gott nafn, en mátti ekki haldast. Það hefði kannski dregið úr söl- unni, sem er rekin með slíku ofur kapþi, að tóbakið er lánað í allt að sex mánuði út um land, og er þar handh. og kærkomið rekstrar fé. En hér í borginni mun það ekki lánað lengur en þrjá mánuði. Og svo er verið að betla á götun- um, til að lækna krabbann, sem tóbakið veldur. ÞANGAÐ, SEM ENGIN brenni- | vínssala er, er brennivínið sent í J pó'sti. Ég held að það sé varla lög ] legt, en íslenzku lögin skilur eng inn. Væri ekki nær að sendingarn ar færu til hreppsstjóra, sýslu- manna eða fógeta? Þá væru þær síður misnotaðar. Menn eru að mikla fyrir sér drykkjuslark ungl- inganna, sem eru að leika þá full- orðnu. Við vorum ekkert betri, sem orðin ecu gömul, höfðum bara ekki eins mikil tækifæri. FORELDRAR GETA ekkert gert og bera enga sök á ósómanum. Stórlátir atvinnurekendur biðja um vinnuafl, verkamenn þekkja þeir ekki. Og þá eru börn fátækra fullgóð og fá kaupið greitt. Sam- þykkis foreldranna er ekki Ieitað og foreldrarnir geta ekki flogizt á við börnin, sem langar til að vera eins og fínir félagar þeirra. ÉG IIELD að áfengisgróðinn borgi sig ekki fyrir þjóðfélagið svo margfalt er tjónið í glötuðum vinnustundum og glötuðum manns lífum. Væri ekki nær að draga úr sölunni, t.d. með því að eng- inn fengi keypt áfengi nema hann hefði með sér skattnúmer- ið sitt,- afhent af lögreglunni. Á- fengiskaupin ætti aö skrá og af- henda Skattstofunni. En þeir, sem keyptu óeðlilega mikið magn mán aðarlega væru sektaðir eftir á- fengismagni. Ef þetta væri gert gætu unglingar, áfengisaumingjat og leynivínssalar varla aflað sér áfengis að mun, og ástandið nokkuð lagazt. MENN MUNU SEG.TA, að þá færu menn að smygla í flugvélum og skipum. Þetta er nú gert átölu- Framhald á 12. sfðu.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.