19. júní - 01.10.1923, Side 1

19. júní - 01.10.1923, Side 1
19. JUNI YI. árg. Reykjavík, okt. — des. 1923. 12. tbl. Frú Christophine Bjarnhéðínsson. í haust 1. október voru 25 ár lið- in frá því að holdsveikisspítalinn í Laugarnesi tók til starfa. Sama dag voru og 25 ár frá þvi, er frú Bjarn- héðinsson hóf starfsemi sína hér á landi, Því hún var ráðin hingað sem hjúkrunar- kona holdsveikraspítal- ans, en hafði dvalið hér frá því um mitt sumar til að kynnast íslenskum staðháttum og máli. Það mun oftast nær eiga við, að upphafið er erfitt — og því erfiðara er það, sem meira er í ráðist. Og það var sann- arlega enginn leikur, sem beiðl hinnar útlendu hjúkrunarkonu, fyrstu lærðu hjúkrunarkonunn- ar, sem fast starf hefir haft hér á landi. Spítalinn var nýr, en nógir voru sjúklingarnir sem biðu þess að hann opnaði dyr sinar fyrir þeim. Sjúklingar af alt öðru tagi, en tekið er á móti á vanalegum sjúkrahúsum. Reir voru sannarlega waumastir allra«, haldnir þeim sjúkdómi, sem vakti viðbjóð flestra og sem fæstir vildu nálægt koma. Litla aðhlynningu höfðu flestir þeirra haft, og ástand þeirra alt var hið hörmulegasta. Það varð verk hjúkrunarkonunnar að taka á móti þessum vesalingu, hreinsa sár þeirra og búa um. Liklega getur eng- inn gert sér fulla hugmynd um hve erfitt það starf hefir verið. Hjálpin sem henni stóð til boða var mjög ófullnægjandi, Sjúkling- arnir komu í hópum, 11 einn daginn. En á móti þeim öllum var tekið með sömu nákvæmni. í 5 ár starfaði frú Bjarnhéðinsson sem hjúkr- unarkona spítalans. Örð- ugustu árin af þeim 25, sem hann hefir starfað. Starf hennar þar verður trauðla metið sem skyldi. Þeir sem nú koma að Laugarnesi og sjá hvernig þar er umhorfs, sjá nú, sem betur fer, lítið af þeirri eymd, er þar átti heima fyrstu ár spítalans. En þótt þetta starf eitt hefði verið hverju meðal-starfsþreki ærið nóg, hafði frú Bjarnhéðinsson þó tíma til að gefa sig að öðru. Þess er fyr get- ið að hún hafi komið bingað nokkru áður en spítalinn tók til starfa, til að kynnast staðháttum vorum. Og hennar glögga auga hefir straks séð

x

19. júní

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/199

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.