Norðri - 14.01.1908, Side 2

Norðri - 14.01.1908, Side 2
6 NORÐRI. NR. 2 NORÐR/ Gefinn út af hiutafélagi. Ritstjórí: Jón Stefánsson. Skrifstofa Hafnarstrœti 3. Prenísmiðja B. Jónssonar. og skæðadrífu út á meðal landsmanna, bæði frumsömdu og þýddu. Öllum eða mest öllurn þessum leirburði hæla svo sum blöðin og ginna með því fólkið til að kaupa það og lesa Eg tel víst, að sumir kunni að segja, að þetta sé misskilningur minn. Ressar gullfallegu skáldsögur, sem lýsi svo vel trygð og trúfesti hjónabandsins; og þá ekki síður dugnaði og drenglyndi sýslu- manna, hjálpfýsi og skyldurækni lækna, hreinlyndi og manngæzku prestanna o, s. frv. Retta séu gimsteinar, sem lands- sjóður geti ekki sóma sins vegna geng- ið framhjá með að veita verðlai n!' Eg skal ekki um þetta þrátta. Rað getur verið að eg missktlji og eg sé tnisskil- inn, en eg vil minna menn á, að þó við eigum stjórn með ráðherra, þá eig- um við líka þingmenn og þing. Eg vil og biðja menn að fletta upp á þing- tíðindunum og sjá með sínum eigin augum, ekki einasta fjárhaginn, heldur og líka hvernig með afurðir landsbús- ins er farið. í Pingtíðindunum gefur að líta fjár- lagafrumvarp það sem stjórnin lagði fyrir þíngið og líka það sem komst í gegnum þingið. Ef menn nú vilja gæta þess, að stjórn- in verður að nokkru leiti að sníða fjár- lagafrumvörp sín eftir fyrri þinga fjár- lögum, og að þingnienn hafa frjálsar hendur til að breyta eins og þeim gott þykir, og beri menn svo saman bæði frumvörpin, þá getið þið fyrst lesendur góðir dæmt um sekt stjórnarinnar. Ef þið nú rækið þetta ráð, og lesíð vel öll þingtíðindin, þá verður það ykk- ur hollara, en allir reikningar hinna and- stæðu flokka. Rað er ekki síður í þessu en öðru að málshátturinn rætist: «SjáIfs er höndin hollust. Regar eg nú athuga fjárhagsmálið frá þessari hlið, þá kemur í Ijós, að út- gjöldin hafa mikið hækkað i fjárlögun- um frá þinginu, frá því sem þær voru í fjárlagafrumvarpi stjórnarinnar. Hækkun sú nemur að mér virðist 158 þús. kr. Nú verða menn að gæta að í hverju þessi hækkun á útgjöldunum Iýgur. Því væri því varið til nauðsynlegra fyrir- tækja, sem landsjóði bæri að styrkja, þá væri ekkert nema gott um það að segja, en um það geta vel orðið skiftar skoð anir, og er því bezt að það sé athugað nánar. Mest er hækkunin á 15. og 16. grein fjárlaganna. Sú hækkun nemur 75 þús. kr. Retta eru líka þær greinar, sem vanalega geymakjarnan úrgjörðum sumra þingmanna. Önnurmikil hækkun hjáþing- inu er til gufuskipa eða um 40 þús- kr. Retta samtals nemur 115 þús kr. Aftur hefir þingið fært niður útgjöld ti! ritsíma og talsíma um nær þvf 10 þúsund kr, og til vegagjörðar um 5. þús. kr. samtals 15. þús. kr. Eftir er 100 þús. kr. Hvert þessi breyting hefir verið ó- hjákvæmilega nauðsynleg, tll heilla og hagsældar þjóðinni, til að Iyfta hinni gömlu armæddu móðir okkar, með »brjóstin visin og fölvar kinnar», khærra upp á menningarbrautina, getið þið les- endur góðir dæmt um þegar þ'ð hafið kynt ykkur vel þingtíðindin. Mín skoðun er, þó ekki hefði verið gott, að spara 100 þús, kr. á þessum gjaldagreinum, sem hér er áminst, þá hefði þó þing og stjórn getað sparað altað lOOþús.kr. af útgjöldum hinna um- ræddu fjárlaga, þjóðinni alveg að skað- lausu. Retta munu nú þykja þung orð og þungar sakagiftir, en ekki er við að dyljast. Rað munu æði margir, afþeim mönnum, sem kynt hafa sér þingtíðind- in og og fjárlagafrumvarpið hugsa eitt- hvað líkt þessu. Ef nú þetta er rétt álitið, þá er hér um auðsæa fjáreyðslu að ræða, en sú fjáreyðsla, mun af ölltim þeim, sem hlutdrægnislaust vilja dæma, álítast meira þinginu, að kenna, en stjórninni. Vitan- lega eru í stjórninni syndugir menn sem " að sjálfsögðu getur yfir séðst en þær yfirsjónir gengur fólkinu ekki betur að sjá í gegnum það mold- ryk, af lofi og lasti, sem þyrlað er upp í kring um hana heldur einmitt vér. Sannleikurinn er sagna beztur í hverju máli, sem er. Rað er fullkomin sannfæring mín að heppilegra hefði verið, að eyða þessum umræddu 100 þús. kr. jef þingið hefði fundið sig knúð til að eyða þeim. Til þess að koma upp svo sem 10 myndarlegum unglingaskólum, og upp- örfa þannig og glæða áhuga þjóðarinn- ar, á aukinni alþýðumentun, eða ef ekki það, þá að verja þeim, til að græða upp nokkrar dagsláttur, af uppblásinni jörð, fósturfoldarinnar. Jörð sem plæja þarf til sáningu, jörð sem gæfi góða uppskeru ef í hann væri sáð landsjóðs- ins glitfagra fræi, með hyggindum og dugnaði. Eins og menn vita, eru nú í undir- búningi skattalög á þjóðina. Er því nauð- synlegt, að gera ser glögga grcin fyrir hvað hin rétta og sanna þjóðareign er mikil, svo þar af verði að nokkru ráðið gjaldþol þjóðarinnar, þvíekkiværi heppi- legt, að demba svo miklum gjöldum á hana, að ekki væri hægt undir að rísa. Menn meiga ekki einblína á þörf- ina. Rað verður líka að gæta þess hvað menn eru megnugir að geta afkastað. Rað þarf því að athuga vel hinar sönnu og réttu þarfir, sem búast má við, sem alt af fari vaxandi, en strika yf- ir ýmislegar nauðsynlegar fjárveitingar sem nú á dögum eru kallaðar þarfir, í trausti til þess, að með vaxandi ment- un og drenglyndum hugsunarhætti, fækki þeim landslýð, sem vilja lifa á því að tína upp molana, sem detta af með- aumkunarsemi þingmanna, af borði lands- sjóðs. Rá þarf síðast en ekki sízt, að leita eftir réttum og heppilegum grundvelli, sem skattaálögurnar byggjast á. Jafnfrdmt því að athuga gjaldþolið, verður og líka hafa það hugfast, að leita að því á hvern hátt, að þjóðinni, er heppi- legast, að bera gjöldin. Rað er bæði ósk mín og von, að þjóðinni gefist kostur, á að kynna sér, það mikla og vandasama verk milli- þinganefndarinnar í þessu máli. áður en það verður lagt fyrir þing, til endilegra úrslita. Stefán Bergsson. # # # # * # # ¥? # Eg vona að hinn háttvirti höf. mis- virði ekki við mig, að eg set hér nokkr- ar athugasemdir um grein hans og nokkr- ar skýringar um efni hennar. Það skal strax tekið fram, að um- mæli hans um »gyllingar,» er hann seg- ir að stjórnarvinir beri fram, er þeir tala um hag landssjóðsins, þarf Norðri alls ejgj að taka að sér, og mun ekki gera, nema höf. færi rök fyrir máli sírm. Rað hefir hann ekki gert, og ætla eg að honum reynist það torvelt, ekki síður en öðr- um, er við það hafa verið að glíma að undanförnu. Og eg skal um leið leyfa mér að benda honum á, að ekki má í þessum umræðum blanda saman hag landssjóðs, sem sérstakrar stofnun- ar, og hag landsmanna. Eg tel víst, að okkur Stefáni Bergssyni mundi koma saman um það, að fjárhagur of margra manna er nú alt annað en álitlegur, en eg vænti líka hins, að hann geti sannfærst um, að það sem við höfum sagt um fjárhag landssjóðsins í Norðra eru eríg- ar gyllingar, heldur blátt áfram sá sann- leikur, er öllum ætti að vera til gleði, að hagur landssjóðsins er góður, og svo glöggur maður, sem St. B. er, ætti að geta þreifað á þessu. St. B. lítur svo á, sem þingið hafi eytt allmiklu fé að óþörfu, og telst hon- um svo til, að 100.000 kr. hefði mátt spara að ósekju, eða verja til annars, en gert hefir verið. Nefnir hann þar einkum til unglingaskóla og jarðrækt. Rað liggur næst að ætla, að hann telji þingið hafa vanrækt það hvoru- tveggja. En að svo sé alls ekki, mun eg sýna bráðum. Þingið hækkaði útgjöldin á 15. og 16. grein um nál. 75000 kr. eins og St. B. segir, og það er svo að sjá, að það sé einkum sú útgjaldahækkun, sem hann telur miður þarfa. Við skulum nú átta okkur á, til hvers þessum 75000 skal einkum varið. Útgjöldin á 15. gr. hækkaði þingið um rúmar 44000 kr. En af þessari upp- hæð er mestur hlutinn, 38000 kr., »til skápa og innanstokksmuna í hina nýju safnabyggingu.» Rað er alls ekki kyn- legt, þótt mörgum þyki þetta allstórfeld fjárveiting. En það var eigi hægt að spara hana nú; hún er bein og sjálfsögð afleiðing af því, að húsið var bygt; en það var þingið 1905, sem réði því, og mun varla vera unt að neita því með rökum, að til þess væri orðin full þörf. Um hin önnur aukin útgjöld á 15. gr. er hægt að deila fram og aftur. Rau eru að miklu fólgin í styrkveitingum til einstakra manna. Rað er auðséð, að St. B. hneykslast einkum á fjárveiting til skáldsagnahöfundanna. það eru nú ekki nema 2400 kr., svo að áhrif þess á fjárhaginn eru ekki svo mikil, að um það verði eiginlega deilt. En þess skal eg geta, að fyrir mitt leyti er eg á gagnstæðri skoðun við St. B. í þessu efni. En 38000 krónurnar var elcki hægt að spara, og eru þá eftir 62000 af því, er St. B. telur eitt að ó- þórfu. Rá komum við að 16. gr. Útgjöld hennar hækkaði þingið um 30600 kr. frá því sem var í stjórnarfrumvarpinu. Auk þess ber þess að gæta, að þingið færði niður tillögur stjórnarinnar í sömu grein, um fjárveiting til skógræktar og sandgræðslu, um meira en 20000 kr. Ringið hafði þannig yfir 50000 kr. úr að spila til verklegra fyrirtækja um fram það, er stjórnin hafði áætlað. Og hvað gerði svo þingið með þessar 50000 kr.? Fyrst skal þess geta, að lögboðið gjald til fiskiveiðasjóðsins, sem stjórn- in hafði ekki sett á frumv. sitt, er 12 þúsund krónur. Ekki var hægt að spara þá upphæð. 9000 kr. eru ætlaðar sem styrkur til bryggjugerða á tveim ^töð- um. Og það er víst, að þeir, er þar eiga hlut að máli, munu ekki telja því fé varið til óþarfa. Og svo eru 22700 kr., sem þingið hækkaði fjárveitinguna til landbúnaðarins. Rað sundurliðast þannig: Til aukinnar kenslu og verkl. kenslu á búnaðarskólum . . . 12,700 kr. Til búnaðarfélaga íslands 10,000 — Vill nú St. B. lialda því fram, að þessu fé sé illa varið eða að óþörfu? Eg held varla. Hann mun játa það sem er, að þessar fjárveitingar farn mjög í þá átt að efla ræktun landsins, sem hann með réttu leggur svo mikla áherzlu á. Til vátryggingarfélaga fyrir mótór- báta veitti þingið 6000 kr. Rar er að ræða um stórvaxinn atvinnuveg lands- manna, og vona eg að flestir fallist á, að rétt sé að veita honum þennan styrk. Þarna er þá upptalinn fjáraustur þings- ins á 16. gr. og hvað vilja inenn nú ■? ð sparað hefði verið af þessu? St. B. gefur í skyn, að þingið hafi verið óríft á framlögum til unglinga- skóla og alþýðumentunar. Til þess að sjá og sannfærast um, hvort þetta sé á rökum bygt, verðum við að athuga 11. gr. fjárlaganna. Rar er skjótast af að segja, að útgjöld þeirrar greinar færði þingið upp um 27300 kr. En útgjöldin til alþýðufræðslu, beilínis og óbeinlínis, hækkaði þingið um 30900 kr., eða töluvert meira en allri útgjaldahækkun greinarinnar nam. Rað var nefnilega sparað á öðrum út- gjaldaliðum. Til glöggvunar skal sett hér sundur- liðun þessara 30900 kr sem þingið bætti við til alþýðumentunar. Styrkur til kvennaskóla kr. 4800.00 » barnaskóla — 8000.00 « unglingaskóla — 9600.00 « Flensborgarsk. — 7000.00 « kennaraefna. — 1500.00 Samtals kr. 30900,00 Þetta hefir St. B. víst ekki verið bú- inn að athuga, þegar hann gaf í skyn að þingið hefði vanrækt að styrkja ung- lingaskóla og alþýðumentun. Og eg vona að hann og aðrir kannist við, að þing- ið er ekki svo mjög ásökunarvert í þess- um efnum. St. B. hvetur sem flesta til að kynna sér og athuga fjárlögin, til þess að þeir geti sjálfir dæmt um, hvað rétt er og satt, af því sem um fjárhagsmálið er sagt. Þessu ráði óska eg og vona að margir fylgi. En þess verða menn að gæta, að þótt það sé í alla staði gott og æskilegt, að fundið sé að við þingið ávalt þegar nokkur ástæða er til, þá á þingið fuilan rétt til að ætlast til, að það sé gert með skýrum rökum og að vel yfirveguðu máli. Jón Jónsson. -——— Grísk- rómversk glíma Henry Nielsen er nefndur Dani nokkur, slingur mjög í þsirri íþrótt, en þó bar Jóhannes Jó- sefsson hærra hlut í viðskiftum þeirra er þeir reyndu með sér í sumar og það svo, að auðséð var að Jóhannes hafði mikla yfirburði yfir Nielsen. En nú í haust 27. nóvb., var háð kappglíma í Khöfn og fóru þar svo leikar að Henry Nielsen lagði þar að velli «Evrópumeistarann» Edv Sörensen. Má dæma af því að Nielsen er ekkert smámenni við að eiga og er ánægjulegt fyrir oss íslendinga að vita, að við eigum mann honum fremri þar sem Jóhannes Jósefsson er. Vonum vér að Jóhannes eigi eftir að sigra fleiri útlendinga á líkan hátt og gera með því sæmd landi sínu og þjóð. Rausnarleg gjöf. Jolm D. Rokkefeller hefir nýlega gefið til læknisfræðislegra ran- sókna 2,600,000 dollara. »Jómfrú« eða »frú«. AMmiklar róstur eru um þessar mundir á blaðamannavell- inum í Berlin út af því hvort rétt sé að titla -Maríu mey < jómfrú eða frú. Prestur einn þarlendur gerði fyrirspurn um þetta nauðsynjamál til kirkjustjórnarinnar og stafa umræðurriar af því. Er ekki hægt að segja enn hver ,titillinn‘ hafi meira fylgiþví vel þykir hún að báðum komin. Skírnir. Ritstjóri harjs næsta árverð- ur Einar Hjörleifsson. (Símfrétt.) Taugaveiki mikil í Flensborgarskóla F*ar liggja sem stendurl2 nemendur og eru þungt haldnir, Enginn þó dáið enn þá. (Sínifrétt.)

x

Norðri

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðri
https://timarit.is/publication/201

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.