Norðri - 24.11.1908, Blaðsíða 2

Norðri - 24.11.1908, Blaðsíða 2
182 NORÐRI. NR. 46 Ekki inniimun. — Sundrun ríkisins. Á fulltrúafundi hægrimanna í Höfn, 20. f. m., fórust fyrverandi kennslumála- ráðherra Scavenius þannig orð um“sam- bandslagafrumvarpið: «Tillögur nefndarinnar ganga mjög langt. Ákvæðið um fæðingjarétt er al- gerlega gagnstætt grundvallarlögunum. Breytingar þær, sem frumvarpið gerir ráð fyrir að geti orðið að 25 árum Iiðnum eru þannig vaxnar, ef þær ná fram að ganga, að þær hafa sundrun rikisins í förmeðsér.» — [Nationaltid.] Pessi gáfaði og að mörgu leyti frjáls- lyndi hægrimaður lítur nokkuð öðru- vfsi á frumv. sambandslaganefndarinnar en föðurlandsvinirnir íslenzku, sem æpa í kór: „Jnnlimun! Innlimunl* þangað til þeir eru búnir að æra fólkið og sjálfir farnir að trúa því að þeir fari með sannleika, og séu guðs útvöldu til þess að verja þetta land og berja á föðurlandssvikurunum, «danska flokkn- um ■>, sem er að selia fósturjörðina fyr- ir «soðnar linsur» — trúir því, að allir þeir, sem telja varhugavert að hafna frumvarpi nefndarinnar, ef ekki fæst ann- að betra, séu «bandittar» og »skriðdýr» «nýánetjaðir vildarvinir ráðherrans!» o. s. frv. HveHær skyldu mennirnir ranka við sér? Vonandi'þegar þeir hafanáðí völdin. Bara það verði þá ekki um seinan. / Oheppileg kosningalög. Eftir Bened. dbrm. Einarsson Hdlsi. • _____ Öllum þeim, sem með óbrjálaðri skynsemi, óhlutdrægni og stillingu at- huga stjórnmálaástandið í landinu mun koma saman um það, að þingkosn- ingar á síðastliðnu sumri hafi mjög mis- hepnast. Andstæðingarsambandslagafrumvarps- ins hrósa sigrinum og segja að dómar þjóðarinnar hafi verið greinilegir, en geta þess að engu hvernig sá sigur er feng- inn, eða hvert dómurinn sé samkvæm- ur lögmáli réttvísinnar eða eigi. Rað er eigi tilgangur minn að athuga í þetta sinn nema eina orsök þess, að frumvarpsvinir urðu svo fáliðaðir. f*að eru hin ósanngjörnu kosninga- lög vor, sem geta gefið einum þing- flokki umráð yfir öllum þingsætunum, ef hann hefir eins atkvæðis meiri hluta f hverju kjördæmi. Ressum lögum ætlaði stjórn landsins að breyta á síðasta þingi, og lagði fyrir það frumvarp um hlutfallskosningar og stækkun kjördæmanna, en öllum er kunn afdrif þess í það sinn. Hefði frumvarp þetta verið orðið að Iögum nú, myndu heimastjórnarmenn hafa haft yfir 14 — 15 þingsætum að ráða. Hér skulu færðar allsterkar líkur fyrir því, ef ekki full vissa. Kjördæmum er ekki hægt að skifta, eins og stjórnin gerði, nefnil. að skipta sundur núverandi kjördæmum, því að vegna hinna leynilegu kqsninga eru at- kvæðin í þeim kjöwtæmahlutum eigi kunn. Hér verður því landinu skift í 7 kjördæmi og - hvert þeirra látið kjósa jafnmarga þingmenn og þau nú gera. 1. kjördæmi: Reykjavík, Kjósar og Gullbringu- og Vestmanneyjasýslur. 2. kjördæmi: Borgarfjarðar-, Mýra-, Snæfellsness og Dalasýslur. 3. kjördæmi: Barðastrandar og ísa- fjarðarsýslur ásamt ísafjarðarkaupstað. 4. kjördæmi: Stranda-, Húnavatns-, og Skagafjárðársýslur. 5. kjördæmi: Eyjafjarðar- og Ping- eyjarsýslur ásamt Akureyrarkaupstað. 6. kjördæmi: Suður-Múla- Norður- Múla- og Austur-Skaftafellssýsla ásamt Seyðisfjarðarkaupstað. 7. kjördæmi Vestur-Skaftafells- Rang- árvalla- og Árnessýslur. íeinu kjördæmi Norður-ísafjarðarsýslu fór engin kosning fram og vefrður þó að gera ráð fyrir atkvæðum þaðan, sem svarar hlutfallstölunni í því kjördæmi. Alla frumvarpsvini tel eg á A-lista, en andstæðinga á B-lista. í tveggjamanna kjördæmum er tekið meðaltal af atkvæð- um bæði þeirra, sem eru með og móti frumvarpinu. Kjósendur Stefáns skóla- meistara eru hér allir taldir með frumv. því andstæðingar höfðu aðra tvo að velja. Nokkuð öðru máli er að skifta með kosningu Kr. H. Benjamínssonar í Eyjafirði. Telja má sjálfsagt, að and- stæðingar hefðu.viljað hindra þingsetu Hafsteins ráðherra og því eigi kosið hann en það gerðu að eins 36 kjósend- ur. Vafi leíkur því á um skpðanir 70 kjósenda. enda er.þeim skift jafnt á milli flokka. Atkvæði Dr. Valtýs teljast á •B-lista. Kosningaskýrslan lítur þannig út: Atkv. Alisti Atkv. B listi A- fær B- fær iista þm. lista þm. 1. kjördæmi 5 þingmenn. Hlutfallstala 344 601 2 1117 3 2. kjördæmi 4 þingmenn. Hlutfallstala 289. 447 2 708 2 3. kjördæmi 4 þingmenn. Hlutfallstala 284. 247 1 888* 3 4. kjördæmi: 5 þingmenn. Hlutfallstala 200. n ■ 411 2 591 3 5. kjördæmi: 5 þingmenn. Hlutfallstala 243. 775 ■ 3 439 2 6 kjördæmi: 6 þingmenn, Hlutfallstala 174. 480 3 567 3 7. kjördæmi: 5 þingmenn. Hlutfallstala 222. 572 2 639 3 Samtals 3433 15 4949j 19 Eins og þessi skýrsla sýnir, fá frumvarps- vinir 15 þingsæti, en frumvarpsandstæð- ingar 19. Væri landið alt eitt kjördæmi hefðu andstæðingar fengið 20\þingsæti því hlutfallstalan er 247. En alveg rétt hlutfall gæti fengist á annan hátt, þótt kjördæmin væru 7. Eigi þarf annað en að enginn listi hefði fulltrúarétt þégar kosning færi fram nema hann fengi svo mörg atkvæði, sem hiutfallstölunni nem- ur. Öllum afgangs atkvæðum sé svo safnað saman á einn stað og þeim svo deilt með tölu þeirra þingmanna, sem þá eru ókosnir, kemur þá út hlut- fallstala fyrir alt landið. Afgangsatkvæð- um hvers stjórnmálaflokks sé svo deilt með hlutfallstölunni og kemur þá bezt í Ijós hvernig flokkarnir verða skipaðir. Að vísu getur það komið fyrir, að eitt kjördæmi fái einum fulltrúa færra en vca átti, en annað einum fleira, eftir því hve vel menn sækja kjörfundinn. Retta má sýna með dæmi, samkvæmt skýrslunni hér að framan: Afgangur Afgangur á á A-lista B-lista kjördæmi 257 95 kjördæmi 158 130 kjördæmi 247 37 kjördæmi 11 191 kjördæmi 46 196 kjördæmi 122 45 kjördæmi 28 195 Samtals 869 889 Alls eru atkvæðin 1758 og 7 þing- menn ókosnir; hlutfallstalan er 251, er því auðséð, að BMistinn fær 4 fulltrúa. en A-listinn 3.— 2. kjördæmi fær þvf 2 fulltrúana, einum fleira en því bar sam- kv. lögunum, en 6.kjördæmi fær engan. Fá þau þá öll 5 fulltrúa nema 3. kjör- dæmi. Retta þykir ef til vill ranglátt gagn- vart 6. kjördæmi, en ef betur er aðgætt þá sézt það að 2. kjördæmi hefir greitt 1155 atkv. en 6. kjördæmi 1047 atkv. svo eðlilegt er að þau fái jafnmarga fulltrúa. Stundum gæti það komið fyrir, að eitt- hvert kjördæmi sækti svo illa kjörfundiað það misti einn fulltrúa fyiir þá sök, og væri það aðeins réttlát hegning fyrir áhugaleysið. En jafnframt því að þessi aðferð yrði tekin upp, ætti að skylda þingmannaefni að bjóða sig fram sem ákveðna flokksmenn eða flokkleysingja, sem svo fylgdust að á listunum; þetta gerði kjósendur ákveðnari í að velja um hverjum flokki þeir skyldu fylgja. Einn gallinn á núgildandi kosningar- lögum er það að kjördagurinn er 10. sept. því þá eru margir kjósendur að fiskiveiðum ’og flestir að öðru leyti önnum hlaðnir við heyskap o. fl. Ann- ar gallinn er sá, að sumir landsmenn geta stutt 2 menn til þingfarar en aðrir ekki nema 1. í fámorðum sagt: var frum- varp stjórnarinnar ágætlega úr garði gert og allar ástæður, sem færðar voru á möti því einskis virði 'nema sú, að kjördæmin skiftust sumstaðar ekki á sýslu- takmörkum. Konungkjörna liðið bætir dálítið úr því skakkafalli sem frumvarpsvinir urðu fyrir við þessa síðustu þingkosningu, en þó eigi fullkomlega Margir vilja afnema stjórnarkosning- arnar og láta þjóðina kjósa alla sína full- trúa en það má telja ógerlegt, nema um leið sé lögleidd hlutfallskosning. Sigurður Kristjánsson bóksati. Fjórðungsaldar-afmœli. Fáir munu þeir Islendingar vera, er ekki hafa heyrt nefndan Sigurð bók- sala og bókaútgefanda Kristjánsson í Reykjavík, og fáir eru einnig þeir menn, sem þarfari hafa verið landi sínu og samtíðarmönnum en einmitt hann. Hinn 20. oktbr. voru 25 ár liðin frá því er Sigurður Kristjánsson byrjaði að reka bókaverzlun í Reykjavík. Var hon- um þá haldið samsæti í heiðursskyni, og tóku margir þátt í því. Pá gaf hann og «Sjúkrasjóði prentara» 1000 kr. með þeim ummælum að hann gæfi féð í minningu þess að þá væru, «liðin 25 ár frá því eg skifti um vist í musteri mentagyðjunnar, gerðist 'bókaútgefandi og bóksali í stað þess að eg var áður prentari.* Það er mikið starf, sem eftir Sigurð liggur sem bókaútgefanda. Hann hefir eins og flestum er kunnugt, gefið út allar íslendingasögur í handhægri og afaródýrri útgafu, og gert löndum sín- um á þann veg, greiðan aðgang að ein- um hinum dyrasta fjársjóði þjóðar sinn ar. Eddurnar hefir hann einnig gefið út og nú er hann byrjaður að gefa út Sturl- ungu. Yfirleitt hefir hann sýnt það í öllu, að hann er mjög þjóðrækinn mað- ur, og bækur hans bera vott um, að honum er sérstaklega hugarhaldið um að gefa út þær bækur, er geti haft góð áhrif á þjóð sína, og einnig glætt þjóð- ræknina. Á hann því skilið virðingar- fullar þ3kkir allra sanna íslendinga, og vonast Norðri að þeir njóti, sem lengst ósérplægni hans. Slys. Einn af yngstu nemendum gagnfræðaskólans handleggsbrotnaðiísíð- ustu viku, Björn sonur Odds prentsmiðju- eiganda Björnssonar hér í bæ. Hjúskapur. Jónas Guðlaugsson skáld (áður ritstjóri) og ungfrú Þorbjörg Schöyen (norsk að ætterni) giftust í Reykjavík 27. okt. Séra Sigurður Guðmundsson, áð- ur aðstoðarprestur í Olafsvík, var kosinn prestur í Róroddsstaðaprestakalli í f. ni. með nærfelt öllum atkvæðum. Nemendur kennarskólans hafa stofnað «Ungmennafélag kennaraskóla Is- lands« og er það gengið inn I sam- bandsfélagið. í stjórn þess eru kosnir: Kristján Sigurðsson bónda Oddssonar (frá Dagverðareyri í Eyjafjarðarsýslu), Svava Þórhallsdóttir (biskups Bjarnar- sonar) og Guðmundur Benediktsson (bónda Guðmundssonar frá Svíra í Hörg- árdal.) Samsæti var Halldóri Daníelssyni bæjarfógeta í Reykjavík haldið seint f fyrra mánuði í þakklætisskyni fyrfr starf hans, sem oddviti bæjarstjórnar Reykja- víkur. Hann hefir gegnt því yfir 20 ár, enlætnr núafþví. Borgarstjórinn gegn- ir því eftirleiðis. Heiðursg.jafir úr styrktarsjóði Krist- jáns konungs IX. eru veittar Olafi Firms- syni óðalsbónda á Fellsenda í Dala- sýslu og Halldóri Jónssyni kaupm. og umboðsmanni, Vík f Mýrdal, 140 kr. hvorum. Kol segir «Vestri» fundin í Dufans- dal í Barðastrandasýslu nærri sjó, og þar sem dágóð höfn er fram undan. Sigurður Jósúa Björnsson er nú kominn þangað til ransókna. «Bóndinn á Hrauni» hið nýja leikrit Jóhanns skálds Sigurjónssonar er nú komið hér í bókaverzlanir. Rað lýsir ræktarsemi höfundarins við land sitt og tungu að láta það fyrst koma út á íslenzku. Nú verður bráðum farið að leika það á Dagmar-leikhusinu í Höfn, sennilega um mánaðamótin næs(u. t Séra Matthías Jochumsson hefir fengið leiktjöld fyrir sjónleíkinn »Gísla Súrsson«, þau hefir málað hinn frægi leiktjaldamálari Dana, Carl Lund af mikilli list, og selur þau hingað fyrir hálfvirði, að eins vegna vináttu við séra Matthías, er nú gefur Leikfélaginu hér í bænum kost á að eignast tjöldin fyrir sama verð, og ætti það að nota tæki- færið. Rar gaefist bæjarbúum kostur á að sjá áhrifamikinn leik ef «Gísli Súrs- son» væri sýndur hér á leiksviðinu. Leikfé/ag Akureyrar er nú rúmlega ársgamalt, var stofnað 11. okt. í fyrra. — Aðalfund hélt það 22. þ. m. og voru þar lagðir fram reikningar þess fyrir fyrsta reikningsárið, hafði’það kostað talsverðu til, en lítið leikið’, og því ekki haft miklar tekjur. Þó var það skuldlaust, árstillög meðlima þess jafnaði mismuninn. í stjórn félagsins næsta ár voru kosn- ir: Anton Jónsson timburmeistari, Gísli J. Ólafsson ritsímastjóri og EggertStefáns- son símritari, en til vara: Rögnvaldur Snorrason verzlunarstjóri, V. Knudsen kaupmaður og Sigurður Hjörleifsson rit- stjóri. I.eikstjóri til næsta árs var kos- inn Guðmundur Guðlaugsson. Fundurinn gerði Pál Jónsson kennara að heiðursmeðlim félagsins fyrir langa og ósérplægna þjónustu hans, í þarfir leiklistarinnar hér í bænum. Nokkrir ný- ir meðlimir bættust við á fundinum. Ákveðið var að reyna að byrja að sýna leiki hér hið fyrsta, og talað um ,Lavender’ er byrjað var á að æfa í fyrra, en komst þá ekki í framkvæmd. Marg- ir hafa og hug á að reyna að leika hér «Gísla Súrsson« en ekki er það á- kveðið etin.

x

Norðri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðri
https://timarit.is/publication/201

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.