Norðri - 04.02.1909, Síða 3

Norðri - 04.02.1909, Síða 3
19 NORÐRI. NR. 5 En þessi tilfinning hefir ekli verið nógu sterk og altru rn hjá þjóðinni, og því hefir verksmiðjan orðið að stauza um leið og hún átti að byrja. — En hún verður að komast á stað aftur, mann- anna vegna, st m brotið hafa ísinn. bæj- arins vegna, og síðast en ekki sízt þjóðarinnar vegna og landsins vegna —. En hér eru góð ráð dýr. Mikið á annað hundrað þúsund króita er kc.mið í hús og vélar. Mjög litið vantar til, að áhöld séu næg til þess að verksmiðian 'geti starfað af fu!l- um krafti. Geti hún ekki tekið til starfa, er megnið a.f Jjessu fé tapað rneð öllu. Fáist starfsfé, er Bílu borgið. Og þetta fé þarf að útvega. Verði það ekki hægt með öðru móti, á bærinn, sýslufélagið og landið að hlaupa undir bagga. Hér getur að sjálfsögðu ekki verið um annað að ræða, en ábyrgð eða for- réttishlutabréf í fyrirtækinu, gegn nægi- legri tryggingu. Hjálpin á að vera falin í lánstraustsaukning aðallega, en engum beinum styrk eða gjöfum. Með öðrtim orðum, bærinn og land- íð á að hjálpa til að koma fyrirtækinu á stað, þá er því borgið ef stjórn er góð og fyrir því á bærinn og land- ið að geta séð. Eg treysti því, að bæjarstjórnin taki þetta mál til alvarlegrar íhugunar og tel líklegt, að allir góðir borgarar þessa bæjarsjái, að hér er um mikilvægt mál að ræða, er snertir þá alla, annað hvort beint eða óbeint. Pá niðurstöðu, sern bæjarstjórnin kann að komast að, ætti að bera undir al- tnennan borgarafund. . Retta mál ætti ekki að verða að deilu- efni, úr því að jafnvel Norðri og Norð- uriand geta verið á sama máli um það. Bœjarmaður. Svar íil M. j. Undir mjög svo viðeigandi fyrirsögn skrifar Matth. Jochumssou í síðasta tbl. «Norðra« um trúmáladeiluna á meðal Vestur-íslendinga. Rekst hann líka á trú- boðana hér heima, og býður okkur upp í Surtshelli til sín, þar eð hann ímynd- ar sér, að vér séum eins hræddir við Ijósið og liani': er sjálfur. Hann veit þó, að eg, fyrir mitt leyti, hefi einlægt verið að keppast við að fá menn til að ransaka ritninguna og að íáta sem mest ljós leika á hana og öll trúarmál. Enn hann er svo hræddur. utn, að menn fari að atlmga málið með einlægni, að hann sleppir engu tækifæri til þess að iasta rithinguna og þá, sem fara með kenningu hetinar, í þeirri von að menn muni ekki taka eftir Ijósinu, sem geislar út frá henni, til að fegra manniífið, göfga manneðlið og eíla mannkostina eins og það hefir alstaðar gert, þar sem það hefir hrifið menn og bent þeim til 'Guðs fyrir Jesúm Krist. Enginn er fær um að dænia um trú- arkenningar nema líf hans sé hreint og mannorð hans óflekkað. Fleiri skilyrði eru til, en þetta er aðalskilyrðið. Því vér höfum ekkert að gera með tómar kenningar, ef að þær hafa ekki góð á- jirif á lífrð, og maðurinn, sem framber kenninguiia, á að sýna ágæti hennar í sínu daglega Iffi, annars er haim hræsn- ari. M. J. segist ekki skilja Opinberunar- bókina. Það er ekki furðanlegt, því þar í stendur skrifað: > Hér ríður á speki. ■ Vér erum nú orðnir vanir við að heyra um þessa > beztu kennimenn í löndunum sem eru M. J. samdóma. Rað er blekking oían á blekkingu. Hver er þessi Dr. Jamcs Robertson? Eg hefi ransakað seinustu útgáfuna af »Yearbook of the Churches,« (árbók kirknamia) Nýjar kvöldvökur, mánaöarrit fyrir sögur, kvæði, bókmentir o. fl., heldur áfram að koma út á Akureyri. 1. hefti 3. árg. er komið út og er í því byr- jun á nýustu skáldsögu Jóns Trausta. Skáldsaga þessi kemur öll út í 3. árg. og verður nálægt 10 arkir að stærð. í þessum árg. verður og endir á hinni ágætu sögu »Á ferð og flugi«. Er þessi ferðasaga ein hin skemtilegasta saga, ersnarað hefir verið á íslenzku. í öðrum árg. var byrjunin á henni. NÝJAR KVÖLDVÖKUR eru helzta sögutímarit landsins, og sögurnar í þeim verða miklu ódýrari, heldur en ef þær væru sérprentaðar. Sagan »Ben Húr« kostar sérprentuð 3 kr. en í öðrum árgangi Kvöldvaka kostar hún ekki meira en eina krónu, með því að hún er eigi nema í þriðjungi árgangsins. m, a. æfiágrip 560 af hinum helztu kennimönnum í öllum flokkuni, (og líka í nýju guðfræðinni»), cn ekki finst e ít orð uin þenr a Robvrtso >. Ei M. J. gerir hann að einum hinna beztu kennimanna í löndunum. Um deiluna í Vestuiheinri er það að segja, að maður, sem fær laun síi: fyr- ir að kenna lúterskar kreddur, á að kenna þær sarovizkusamlega. Ef hann gelur ekki gert það, á hann, sem heiðarlegur maður, að segja upp starfi sínu. Ef maður hcfir ástæðu til þess að trúa, að kenningin, sem hann fer með geti verið náunga lians til upp; byggingar, og gefið honum krafí til að sigra freistingar sínar, þá er honum ó- hætt að kenna þæróháður öllum flokka- takmörkum; en ekki má hann halda á- fram að lifa í svikum og taka borgun fyrir að kenna það, sem hann ekki kenn- ir, og getur ekki kennt. Loks þarf eg að minnast, með hrygð á ákæruna, í grein M. J. um, að vor kenning um Jesúm Krist, <setji Alföð- urinn bak við tjaldið«. Allir, sem hafa heyrt vora kenningu, munu játa, að þetta séu ósannindi. M. J. hefir átt kost á að lesa öll ritin, sem eg hefi gefið út og og hefir oftar en einu sinni heyrt mig prédika um Krist og því nefni eg það ósannindi, móti betri vitund. Jesús kom einmitt til þess að leiða oss til Föð- ursins. Hann sagði: »Eg leita ekki míns vilja, heldur viljaföðursins,semsendimig,» (Jóh, 5. 30), og bað að Faðirinn mundi gera sig dýrðlegan, aðeins til þess «að Scmirinn einnig gerði Föðurinn dýrð- legan® (Jóh. 17. 1). En það höfum vér kent, og mun- uni kenna, sem Jesús segir: Hver sem ekki heiðrar Soninn, sá heiðrar ekki Föðurinn, sem sendi hann.« (Jóh.5. 25). Því að hann vitnar: «Eg og Faðirinn, við erum eitt«, (Jóh. 10. 30).— ARTHUR OOOK. Talsími til Siglufjarðar. Sýslufundur Skagfirðinga hefir nú veitt 2000 þús. kr. úr sýslusjóði til símalínu frá Vatnsleysu út Höfðaströnd til Siglu- fjarðar. Aætlað er að lína þessi muni kosta 30,000 kr. og hefir verið ætlazt til að héröðin, sem línan á að liggja um, legðu til 10.000 en landssjóður 20,000 kr. Líklegt má telja að Eyjafjarðarsýsla leggi eitthvað af mörkum*þótt> sfður sé ástæða til þess nú,“enjgáður en Ólafsfjarðarlínan var lögð,|því að Siglu- fjarðarlínan mun óefað rýra tekjurnar af þeirri línu. Hreppafélög þau 6, er línan á að liggja um, munu að sjálfsögðu eitthvað til línunnar leggja, einkum Hvanneyrar- hreppur (Siglufjörður), enda er honum mest nauðsyn á línunni. Vonandi er að allir, er hér eiga hlut að máli, sýni þann dugnað að koma þessu þarfamáli í framkvæmd, Askorun til alþingis. Undirskrifaðir alþingismanna kjósend- ur í Akureyrarbæ, leyfutn oss hérmeð, virðingarfylst að skora á bæstvirt al- þingi íslendinga, sem saman á að koma í Reykjavík, þ. 15. febrúar næstkom- and, að samþykkja frumvarp til sam bandslaga milli Danmerkur og íslands, sem væntanlega verður lagt fyrir þing- ið af stjórninni eða millilandanefndar- þingmönnunum, fari það frumvarp í engtt skemmra í réttindakröfum Islandi til handa en frumvarpsuppkast millilanda- nefndarinnar, er út kom á næstliðnu vori. Vér lýsum yfir fullu trausti á nú- verandi ráðherra íslands i sambands- málinu, og álítum hann allra núlifandi íslendinga færastan um að útvega landi voru hagfeld sambandslög við Dan- tnörku. Akureyri, í janúar 1909. (Nöfn 200 kjósenda) Húsnæði handa 3-4 fjölskyldum til leigu hjá /. Gunnarssyni. J.VLHA VSTEÉNs VERZLUN Á ODDEYRI KAUPIR NÝTT SMJÖR OQ HÆNUEGG MEÐ HÆSTA VERÐl MÓT PEN- ÍNGUM OG VÖRUM. —- Guðmundur Scheving Bjarnason, héraðslæknir í Steingrímsfjarðarhéraði, bróðir Páls sýslumanns Bjarnasonar á Sauðárkrók og Brynjólfs bónda í Pver- árdal, dó að heimili sínu í Hólmavík 24, f. m. eftir 2 mán. legu. Hann var fæddur 27. júlí 1861 Helztu æfiatriða hans verður getið síðar hér í blaðinu. »Heimastjórnarfélag Akureyrar« liélt skemtisamkomu 1. febr., að vanda, allfjölmenna. Par flutti skáldið Matthías Jochumsson kvæði það, fyrir minni ráð- herrans, er prentað er á fyrstu síðu hér í blaðinu. Tilefni þess geta menn séð í síðasta blaði Norðra, í ágripi af ræðu Stefáns skólameistara Stefánssonar 8 ir aftan ‘steininn, en Törres stóð agndofa og reyndi að jafna sig, þótt blóðið væri órótt, og inigur hans væri svo gagntekinn af hinum glæsilegu draumum, að hann kallaði hátt — svo að hinir skyldu heyra það á bak við steininn. < Eg býð 50 aura í ferjutoll til stöðvarinnar. Pað hljómaði þvílíkur hlátur yfir lágdeyðu vatnsins, að Törres þóttist aldrei hafa lieyrt slíkan, því það var kaupstaðar hlátur, —ertandi, yfirlætislegur og frjálsleg- ur. Og svo var kallað: «Komdu hingað! fram með manninn með 50 aurana! látum okkur skoða gull- fuglinn.» Tvö rauðleit og gletnisleg andlit gægðust upp til þess að sjá haítn, og Törres vék sér svo til, að hann kom auga á þrjá kaupstaðarbúa, sem lágu í grasinu í skjóli við stóra steininn, þeir höfðu með sér. veiðarfæri, og höfðti breitt hvítau dúkámilli sín sem var þakinn flöskum og glösum, með gulum og rnuðuin drykkjum, smjör íglerskál, fínt kaupstaðarbrauð, (>pnar blikkdósir og pappírsvafðir hænuungar. — Törres sá þetta alt í einni svipan, án þess að gera sér grein fyrir nokkru öðru en því, að alt þetta hlyti að vera ákaflega dýrt, og homim fanst einhvern veginn, eins og það yrði svo óendanlega lítið úr sér. drei hafði hug til að fara, þegar aðrir fóru í kaup- staðinn; hann sem altaf hafði nurlað saman til kaup- staðarferðarinnar, en hafði aldrei nógu tnikið, nú var hann tilbúinn alt í einu, og héldu honum engin bönd. Nú var hann kominn á leið, fótgangandi í síð- degissólskininu, með alla sína aura í smáströngum hingað og þangað á sér, niðttr eftir veginum ofan að vatninu, sem hann ætlaði að láta ferja sig yfir um á bát, til járnbrautarstöðvanna fyrir handan. Honum var kunnugt um, hvað það kostaði að komast til bæjarins, það var afskaplega mikið. En það var ómögulegt að fara hálfa aðra dagleið fót- gangandi, eins og honutn lá á að komast áfrani. Hann hafði hugsað sér að ferjutollurinn niundi nema 25 aurum. En þegar hann var kominn svo langt, að hann sá stóra steiminn við vatnið, þar sem hann vissi að báturinn mttndi liggja, tók hann að brjóta heil- an um það, að Anders eigandi bátsins mundi ef til vildi ekki vera viðstaddur, og þá gæti hann fengið bátinn lánaðan, og ferjað sig sjálfur yfir uni. Pað kostaði ekkert, því hingað mundi hann aldrei koma framar. Heimilisfólkið hafði ekki skipt sér mikið af því, þegar Törres ætlaði að heiman. Hattn hafði alt af

x

Norðri

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðri
https://timarit.is/publication/201

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.