Norðri - 29.04.1909, Page 2
66
NORÐRI.
NR. 17
346,740 kr., og allur kenslumálakoítnaðurinn eftir því tiltalslega 232,316 kr. og
512,880 kr., en kostnaður til verklegra fyrirtækja færðist niður að því skapi, í
82,180 kr. og 264,720 kr. Aftur á móti er hreinn kostnaður til samgöngumálanna
hvergi nærri eins mikill og útgjaldaupphæðirnar í framanskráðum yfirlitum greina,
því að þau mál gefa sum landssjóði talsvert í aðra hönd. Þannig er í fjárlaga-
frumvarpi fyrir 1910—1911 landssjóði áætlaðar tekjur
af póstferðum . . . kr. 150,000.00
* ritsímum og talsímum — 155,000.00
« vitagjaldi .... — 40,000.00
Samtals kr. 345,000.00
Hreinn kostnaður til póstmála þau ár er því að réttu lagi aðeins 44,750 kr.,
kostnaður til ritsíma og talsíma, að meðtöldu árgjaldinu til mikla uorræna ritsíma-
félagsins, en að fráskildum kostnaði við nýjar símalagningar aðeins 28,300 kr.,
og vitagjaldið borgar eigi aðeins allan árlegan kostnað við vitana, heldur gefur
að auki um 8000 kr., sem samsvarar 4°/o rentu af 200,000 kr.
Yfirlitin sýna, að gjildaaukningin kemur fram í mjög mörgum gjaidliðum
og stafar ekki svo mjög af óvenjulegum útgjöldum, sem af nýjum lagafyrirmæl-
um og umbótum í helztu velferðarmáium þjóðarinnar, sem sumpart eru um það
leyti að ganga í gildi, Pannig koma á fjárhagstímabilinu 1910—1911 til útgjalda
all.nikil gjöld umfram það, sem talið er á núgildandi fjárlögum fyrir 1908 — 1909,
og skulu hér nefnd nokkur ný gjöld og kostnaður, sem sumpart er óumflýjan-
legur, sumpart mjög nauðsynlegur, umfram það sem nú er veitt:
I. Tveggja ára vextir og afborganir af láni landssjóðs úr ríkis-
sjóði Dana................................................... 89,941 kr.
2. Til fátækramálefna............................... . , . . 6,000 —
3. Viðbót til geðveikrahælis.................................... 13,195 —
4. Til launa handa póstafgreiðslumönnum og bréfhirðingamönn-
um, viðbót.........................................., . . Q,550 —
5. Viðbót til gufubátsferða til Hornafjarðar.................... 12,000 —
6. Til vita á Dyrhólaey, Rifstanga og Langanesi . . , . . 53,500 —
7. Aukinn kostnaður við stjórn og umsjón vitamála .... 4.200 —
8. Aukinn kostnaður við eldri vita, og rekstur hinna nýju vita á
Dalatanga og Siglunesi............................................. 9,320 —
9. Tillag til prestalaunasjóðsins.................................... 48,000 —
10. Til lagaskólans .................................................. 10,950 —
II. Til kennarakenslu ................................................ 14,800 —
12. Til kvennaskóla............................,................. 6,200 —
13. Barnaskólastyrkur ................................................. 9.000 —
14. Farskólastyrkur................................................... 10,000 —
15. Styrkur til byggingar barnaskólahúsa.............................. 28.000 —
16. Umsjón fræðslumála................................................. 3,400 —
17. Kensla heyrnar- og tnálleysingja................................... 1.500 —
18. Lýðskólinn......................................................... 1,000 —
19. Landsbókasafnið og landsskjalasafnið.............................. 11,300 —
20. Fornmenjar og forngripasafn........................................ 2,680 —
21. Bændaskólarnir á Hólum og Hvanneyri ....... 74,600 —
22. Búnaðarfélagið..................................................... 6,000 —
23. Skógrækt........................................................... 6,000 —
24. Verzlunarskólinn................................................... 4,000 —
AIIs 435,136 kr.
Hér er eigi með talinn neinn kostnaður til vegagjörða né til nýrra talsíma-
lagninga, af því sá kostnaður er lægri í frumv. heldur en í núgildandi fjárlögum.
Gegn þessari miklu hækkun á ýmsum óhjákvæmilegum gjöldum á næsta
fjárhagstímabili kemur að vísu nokkur áætluð tekjuhækkun, þótt tekjurnar séu á-
ætlaðar svo varlega, að t. d. aðflutningsgjaldið er í fjárlagafrumv. sett um 156
þúsund kr. lægraá fjárhagstímabilinu, heldur en búast mætti við eftir meðaltali
þriggja síðast undanfarinna ára. En þrátt fyrir tekjuhækkun þá, sem áætluð er í
fjárlagafrumv., og þótt slept hafi verið að taka til greina allmikið af tillögum
vegaverkfræðingsins og landsfmastjórans um nýjar vegagjörðir og talsímalagning-
ar, og aðrar fjárbeiðslur takmarkaðar að mun, þá nemur hinn áætlaði tekjuhalli
í fjárlagafrv. samt um 348 þús kr., og auk þess er í fjáraukalögum fyrir 1908
og 1909 farið fram á aukafjárveitingar, er nema alt að því 134 þús. kr.
Þegar til þess ketnur að athuga, á hvern hátt eigi að fá, án lántöku, fé það
sem þannig vantar, virðist auðsætt, að til þess er ekki nema ein leið, en það er
bráðabirgðaaukning á aðflutningsgjaldi. Aðflutningsgjaldið er enn, þrátt fyrir toll-
lögin frá 1907, tiltölulega lágt í samanburði við það, sem tíðkast í ýmsum öðr-
um löndum á sömu vörutegundum, og þó að aðflutningsgjald hafi aukist svo
á þeim fáu árum, sem liðin eru af öldinni, að það er varkár áætlun að telja
þáð nú 644 þús. kr. hærra á fjárhagstímabili, heldur en það var áætlað í fjár-
lögunum fyrir 1900 og 1901, þá má þó fullyrða, að sú hækkun hafi eigi verið
almenningi tilfinnanleg, þannig að menn af þeirri ástœðu hafi fundið til þyngri
gjaldabyrðar til landssjóðs, heldur en síðustu árin fyrir aldamótin.
Jafnvel þótt tollurinn á kaffi og sykri sé eigi hár í samanburði við það
sem gjörist sumstaðar annarsstaðar,* og tekjuaukinn bæði fljóttekinn og viss með
því að hækka á þeirn vörutegundum, þar sem hvers eins eyris hækkun á pund-
inu af hvoru um sig mundi gefa um 100 þús. kr. tekjuauka á fjárhagstímabilinu,
þá er þó ekki farið fram á að hreyfa neitt við tollinum á þeim, heldur er lagt
til að hækka eingöngu á þeim tollskyldu vörum, sem enn síður geta talist til
nauðsynja og mönnum því er enn þá meira í sjálfsvald sett, hvort þeir kaupa
og nota eða ekki, sem sé allskonar áfengisdrykkjum og tóbaki, svo og súkkulaði,
btjóstsykri og tegrasi.
* í Noregi er tollurinn í ár (1908) af kaffibaunum óbrendum lægst 30 aurar
hæst 50 aurar á kílógram (2 pd.), af brendu kaffi og kaffibæti 50—75 aura á kg., af sykri
30—40 aurar á kg. Af öllum teg. brennivíns er tollurinn 2 kr. 65 au. — 3 kr. 20 au. á lít-
er, án tillits til styrkleika, ef flutt er á ílátum undir 50 lítra, en2kr. 80 au — 3 kr. 20 au.
miðað við fullan spríttstyrkleika, ef flutt er á stærri ílátum. — Af neftóbaki er tollurinn
3 kr. 80 au. — 5 kr. á kg, en af reyktóbaki og munntóbaki 2 kr. 70 au. — 4. kr á kg.
af vindlum og vindlingum 6—8 kr. á kg. o. s. frv. Alls eru þar yfir 7oo töluliðir af toll-
skyldum varningi. Sé aðflutningsgjaldið af þeim fáu vöruteg., sem tollskyldar eru hér á
landi, og hingað flytjast á einu fjárhagstímabili eftir síðustu ára reynslu, reiknað út efbr
hinum norsku regium (lágmarkinu), þá mundí það nema nálægt hálfri íjórðu miljón á
fJárhargsfímabiÍHiu,
Alþingi
Talsímafréttir til Norðra.
Rvík 28. apríl.
Breytingartillögur
minni hluta sambandslaganefndarinnar,
þeirra Jóh. Jóhannessonar, Jóns Magnús-
sonar og Jóns Olafssonar, eru þessar.
1. Við 1. gr. Upphaf greinarinnar
orðist þannig:
«ísland er frjálst og sjálfstætt ríki.»
2. Við 1. gr., orðin: »Danmörk og
ísland . . . veldi Danakonungs,* falli
burt.
3. Við 3. gr., 2. lið, í stað orðanna:
«er ísland varðar sérstaklega, skal þó
gilda» komi: er snertir íslenzk mál, þau
er ekki eru talin með sem sameiginleg,
samkvæmt lögum þessum.«
4. Við 3. gr.. 2. lið.í stað orðanna:
«nema rétt íslenzk stjórnarvöld sam-
þykki» komi: »án samþykkis réttra ís-
lenzkra stjórnarvalda.*
5. Við 3. gr., 4. lið. Aftan við orð-
in: «eftir samkomulagi við Danmörku®
bætist »um nánari tilhögun á því eftir-
liti.»
6. Við 3. gr., 4. lið. í stað orðanna:
«við ísland» komi: «á landhelgissvæði
íslands.»
7. Við 5. gr. Á eftir orðinu: »jafn-
réttis« bætist við «að öðru jöfnu.«
8. Við 6. gr. Á eftir orðunum: «3.
gr.» bætist við: «og 9. gr.»
9. Við 7. gr. í stað orðanna: »legg-
ur ísland» komi: «Ieggur ríkissjóður ís-
lands.»
10. Við 7. gr. í staðorðsins: «Iands-
sjóði» komi »ríkissjóði».
11. Við 8. gr. Á eftir orðunum:
«séu sameiginleg eða eigi« bætist við
»samkvæmt 3. gr.«
12. Við 9. gr. Aftan við greinina
bætist: «Alt samkvæmt tillögu þeirri
sem fram er komin, eða, ef tillögur eru
framkomnar frá þingum beggja ríkj-
anna, þá samkvæmt þeim sem lengra fer».
Atþs.
Breytingartillögur þessar fara, eins og
menn hljóta að sjá, í þá átt að skýra
og breyta oss í hag þeim ákvæðum í
sambandslagafrumvarpinu, sem hinum
nýja stjórnarflokki hefir þótt orka tvt-
mœtis. Mætti því ætla að ýmsir hinna
óháðari þingmanna í þeim flokki hefðu
látið sér þær nægja, en svo hefir ekki
reynst. enda munu þeir nú allir vera
orðnir rígbundnir við breytingartillögur
meiri hluta nefndarinnar.
Reykjavík 28. apríl kl. 7 e. h.
Sambandsmálið er til annarar um-
ræðu í neðri deild í dag. — Af ræðu
hins nýja ráðherra mátti skilja, að fyrir-
ætlan meiri hlutans væri að samþykkja
frumv. með þeim breytingum, sem meiri-
hlutinn vill hafa fram og afgreiða það
sem lög frá þinginu. Retta þykir samt
fremur ósennilegt, þar sem telja má
víst, að staðfesting fáist ekki, en þá
hlyti ráðherrann að falla. —
Háskólamálið. Lög um það afgreidd
frá þinginu í dag.
„ Thorefélags-tilboðið. N. d. feldi frv.
með 12 atkv. gegn 11. Samþykti »rök-
studda dagskrá», er Skúli Thoroddsen
flutti. Hann hafði gefið út aukablað af
«þjóðviljanum« daginn áður en málið
kom fyrir þingið og mælt kröftuglega
ámóti þeirri vitleysu.
Aðflutningsbann. Útlit fyrir, að lög
um það nái samþykki þingsins, en mjög
breytt frá hinu upphaflega frumv., sölu-
heimild til 1915, bannaður aðflutningur
1912, ákvæðið um húsransókn, sem fór
í bága við stjórnarskrána, eins og nýi
ráðherrann fJutti það felt burtu o. s. frv.
Nefnd skipuð af ráðherra, sem efílr
því sem í skipunarbréfinu stóð, átti að
ransaka hag Landsbankans, verðbréf,
seðlafúlgu, bæði nýrra seðla og gam-
alla, er eyðileggjast eiga, víxla, peninga-
forða og jafnvel bréfaskifti. Út af þessu
varð uppþot talsvert bæði utanlands og
innan, hætt við lánstraustsspjöllum og
fl. en í morgun skýrði ráðherra frá, að
meiningin með nefndarskipun þessari
væri aðeins sú, að »taka út» bankann
við sljórnarskiftin. Nefndin væri sett til
eftirlits og yfirskoðunar við það, af
hálfu stjórnarinnar, en hún væri alls
ekki sett til höfuðs bankanum eða »gamla
Tryggva.« Ráðgerð fyrirspurn í efri d.
Vegur ráðherra ekki talinn að hafa vax-
ið við þetta mál enn þá.
Gufuskipaferðum býðst «sam. gufu-
skipafélagið* til að halda uppil910og
1911: 25 ferðir á ári, til strandferða
»Hólar» og «SkálhoIt« og auk þess
þriðji strandferðabátur, er gangi fyrir
Suðurlandi. Hólar eiga ennfremur að
fara 4 ferðir á sumri hvoru kringum
land á 5 dögum hverja ferð og koma
aðeins við í kaupstöðunum. »Botnia»
komi í stað »Lauru», hún hefirkælirúmi
á að fara 2 ferðir norður fyrir land
hvert ár.
Tillag áskilið 60,000 kr. á ári.
Sennilegt. að þingið gangi að þess-
um tilboðum.
Þingtíminn lengdur til 8. maí.
Tekjuhallinn á fjárlögunum líklega nær
300,000 kr. Rau eru til einnar um-
ræðu í n. d. Eiga þá eftir að ganga í
gegnum eina umræðu í efri deild og
sameinað þing.
Viðskiftaer indrekar. Á aukafjárlög-
um eru veittar 10,000 kr. til að launa
viðskiftaerindsrekum fyrir ísland erleud-
is. Á fjárlögumlm verður að líkindum
veitt til þessa kr. 12,000 hvort árið.
Ráðherrann hafði sagt, að skeð gæti, að
einn erindreki yrði skipaður í sumar,
og hefir fjárveiting þessi því verið sett
á aukafjárlög.
Útlendar fréttir.
Símfrétt frá Reykjavík.
28. apríl kl. 8.’/« e. m
Ungtyrkir hafa sigrað, tekið
Konstantinópel, og sett soldán
af; mikið mannfall,
Síðustu vikurnar hafa verið allmiklar
óeirðir á Tyrklandi og andróður gegn
Ungtyrkjum, leikur sá orðrómur á, að
soldán hafi róið þar undir.
Skeyti þetta ber það með sér, að
endalokin hafi orðið þau, að komið
hefir til vopnaviðskifta, og hafa Ung-
tyrkir borið hærri hlut; verður fióð-
legt að heyra ljósari fregnir af þessum
atburðum.
Úrslit
. Balkanskagaþrætunnar.
Öll stórveldin nema Rússland höfðu
einróma lagt það til, að Serbía skyldi
friðmælast við Austurríki og hætta víg-
búnaði. Serbar sáu sér því ekki annað
fært en að hlýta ráðum þeirra.
Úrslitinurðu þvíþau, að 31. marzafhenti
sendiherra Serba í Vínarborg utanríkis-
ráðherra Austurríkismanna Aehrenthal,
stjórnarskeyti það, er krafist hafði verið.
Efni skeytisins er þetta:
Til þess að eyða öllum misskilningi
hefir sendiherra Serba verið boðið að
gefa utanríkisráðatíeyti Austurríkismanna
þessar upplýsingar: Serbí*? viðurkennir,
að með innlimun Bosníu hafi eigi ver-
ið brotinn réttur á sér, og að hún f
samræmi við þetta muni hlýta þeim
ályktunum, sem stórveldin gjöra með
hliðsfðn af 25. grein Berlínarááttmálans.