Norðri - 22.07.1909, Side 3
NR. 29
NORÐRI.
115
ókleyft að bera þau útgjöld, sem það
hefði í för með sér. En það er hin
mesta fjarstæða að halda því fram, að
sjúkrasamlögin baki alþýðu ný útgjöld,
Munurinn eraðeins sá, aðútgjöldin koma
þá jafnara niður á allafélagsmenn, í stað
þess, að þeir, sem verða fyrir slysum
eða veikindum, verða nú að bera all-
an kostnaðinn sjálfir, en hver maður á
veikindin yfir höfði sér. Nei, flestir hafa
efni á því að gjalda 3—10 kr, tillag á
ári til sjúkrasamlaga, en f á i r hafa efni á
því að liggja veikir svo mánuðum eða
árum skiftir — þá fara þeir á sveitina
— ef þeir eru ekki í sjúkrasamlögum.
Pess vegna klífa fátæklingar í öðrum
löndum þrítugan hamarinn til þess að
komast í sjúkrasamlag og standa í skil-
um við það.
Það er ekki því að kenna, að vér
íslendingar höfum minni sómatilfinningu
en aðrar þjóðir, að vér höfum ekki kom-
ið á fót sjúkrasamlögum, heldur því,
að alþýðu hefir skort þekkinguá »þess-
ari miklu og merku veraldarnýung.*
Fari svo, að einhverjir vilji koma á
fót sjúkrasamlagi með nútíðarsniði, þá
mega þeir snúa sér að OdcMellow-fé-
laginu í Reykjavík. Rað hefir nú að
undanförnu haft þetta mál í huga og
afráðið að láta sér vera ant um, að sjúkra-
samlög séu sett á stofn. Fyrirspurnum
um sjúkrasamlög geta menn því beint til
mín,eðastjórnendaOddfeIlow-deildarinn-
ar í Reykjavík, Kl. Jónssonar, landritara,
og Jóns Rorlákssonar fræðslumálastjóra.
Fyrirlestur þessi er nú nýprentaður í
2. hefti »Skírnis» þ. á., og viljum vér
ráða öllum til að lesa hann með at-
hygli.
Innbrotsþjófnaður
á Siglufirði.
Aðfaranótt sunnudagsins er var, var
brotist inn í hús Hans Jónssonar á
Siglufirði, á þann hátt, að gluggi var
tekinn úr að utan og laumast inn í her-
bergi, er einn maður svaf í, og var
stolið úri hans og axlaböndum og öllu,
sem nýtilegt var í vösum hans. Maðurinn
vaknaði ekki fyr en þjófarnir voru að
bisa við að koma glugganum í aftur.
Klæddi hann sig þá í snatri, fór út og
hitti nálægt húsinu kunningja sinn, er
veitt hafði athygli tveimur mönnum, er
þar höfðu verið á sveimi. Fóru þeir að
leita þeirra og fundu bráðlega tvo menn
menn vio hús Qísla Jónassonar; höfðu
þeir náð þar út glugga, reist hann upp
að veggnum og voru að skríða inn. Lenti
þar þegar í snörpum bardaga, er end-
aði með því, að þjófarnir, er voru
norskir, komust undan.
Annan þeirra treysta mennirnir sér
þó til að þekkja aftur. En ógripnir
voru þeir báðir síðast er fréttist.
Ferðamenn:
Guðm. Björnsson landlæknir kom
hingað 17. þ. m. og dvaldi hér til 20.
G. Magnússon læknir var hér líka á ferð
með «Flóru» ásamt frú sinni. Rau voru,
að sögn, á skemtiför með skipinu til
Húsavíkur og ætla að ferðast um Ring-
eyjarsýslu. Ólafur Dan Daníelsson kenn-
ari og frú hans komu hingað 20. þ. m.
landveg að sunnan. Frú Anna Thor-
oddsen kom hingað með Vestu 10. þ.
m. og dvelur hér um tíma hjá tengda-
syni sínum, Steingr. lækni og frú hans.
Ferðafólk það að sunnan, sem getið er
um í 27. tbl. Norðra, fór flest austur
um Þingeyjarsýslu og hélt svo heim-
leiðis suður sveitir f síðastl. viku.
Útlendar fréttir.
Reykjavík 17. júlí 1909.
Kanslaraskifti á Þýzkalandi.
Bethmann Hollweg innanríkis-
ráðherra orðinn kanslari Pýska-
lands í stað Bulows fursta.
Uppreist í Persíu. 41
Uppreist í höfuðborginni Te-
heran. Shainn flúinn á náðir rúss-
neska sendiherrans þar í borg-
inni.
Landvarnamál Dana.
Christensenósveigjanlegur í land-
varnarmálinu. Landvarnarnefnd-
in fimmklofin. Ráðalaus.
(Austri)
Mannalát
meðal Vestur-Islendinga.
Frá Narrows er skrifað: Rann 14.
þ. m. andaðist 'nér í bygð úr innvortis-
meinsemd Benedikt Pálsson Vatnsdal, 58
ára gamall, ættáður úr Vatnsdal í Húna-
vatnssýslu. Hann lætur eftir sig konu
en engin börn.
Hinn 18. maí s. 1. lézt að Qrund í
Mikley Davíð Jónsson, 82 ára gamall,
fyrrum bóndi í Barkarsstöðum ogjReýn-
hólum í Miðfirði í Húnavatnsýslu. Davíð
sál. lá rúmfastur tvö árin síðustu.
Á hvítasunnudag s. I. andaðist í
Winnipeg Kristín Jónsdóttir, kona Jóns
Sigurðssonar, ættuð úr Laxárdal í Þing-
eyjarsýslu. Hún var mesta myndarkona
og vel látin. Pau hjón bjuggu þangað
til fyrir fáum árum nál. Hnausum í
Nýja íslandi, var því lík Kristínar flutt
þangað og jarðsett þar 4. þ. m.
«Lögberg« 24. júní.
Verzlunarerindisreki í Hamborg
er Bjarni Jónsson frá Vogi skipaður
frá 1. ágúst n. k. með 12000 kr. laun-
nm. Auk hans sóttu: Qunnar Einarsson,
Einar Markússon og Páll Stefánsson.
Samsöng
héldu þau systkin Gunnar Matthías-
son og Elín Matthíasdóttir hér í Good-
Templarahúsinu s. I. laugardagskvöld.
Var hann vel sóttur og þótti hin bezta
skemtun.
Gjalddagi Norbra var 1 júlí.
ALL GALD,
som mitt mannskap pá-
dragar sig hár, betalas
ej af mig.
A. Berntsson
föret af skonnert Anni.
Bréfkafli úrAustur Húnavatnssýslu
(Skagaströnd)
3. júlí.
Tíðin hefir verið afarhlý og stilt en þurk-
ar til baga. Er gras í harðlendum túnum
og harðvelli mjög rýrt, en fremur gott á
mýrum og votri jörð. Sláttur alstaðar byr-
jaður og að byrja. í gær og í dag ernorð-
an kuldi og úrfelli. Sú væta hefði átt að
koma fyrri. Afli er hér afar rýr, svo að menn
fara ekki á sjó, nema til þess að fá sér ! soðið.
Síld hefir aflast nokkur, en alt kemur að einu;
fiskurinn virðist ekki vera til, enda sést ekki
hér í flóanum dugga né trollari eða neitt
þessháttar, og stingur allmjög í stúf, þvíað
þegar eg var drengur hér, þá sáust daglega
-40 — 5o duggur héðan alt miðbik sumars-
ins.
Skip.
»Flóra» kom 9. þ. m. frá »Noregi»; fór
áleiðis til Reykjavíkur þ. 10. Með henni til
fóru til Reykjavíkur Ben. Sveinsson alþm.
og Pétur Brynjólfsson kgl. hirð ljósmyndari,
er báðir hafa dvalið hér nyrða um tíma.
Einnig frú Anna Stephensen o. fl.
»Vesta« kom þ. 10. frá Reykjavík; fór þ.
11. áleiðis til útl. Meðal farþega: frú Anna
Thoroddsen, Quðm. Tómasson læknir, nokkr-
ir enskir ferðamenn, skólapiltar af almenna
mentaskólanum o. fl.
»>FIóra kom þ. 19. frá R.vík; fór um
nóttina áleiðis til Noregs. Meðal farþega:
Guðm. Magnússon, læknir, frú hans o. fl.
»Hólar» komu 14. þ. m.; fóru 18.
»Vendsyssel«; aukaskip sam. gufuskipa-
fél., kom frá Rvík 20. og tók hér vörur; —
fór samdægurs til Vopnafjarðar og Seyðis-
fjarðar og þaðan beint til Kaupmannahafnar.
Jarpskjóttur hestur
mark sneiðrifað fr. vaglskora a. hægra; al-
járnaður, hefir tapast úr bæjarlandi Akureyr-
ar fyrir skömmu. Menn eru beðnir að greiða
fyrir hon,um og senda undirrituðuni upplýs-
ingar.
Qróðrarstöðinni á Akureyri.
Sig. Sigurðsson
skólastjóri.
SMIÐUR óskar eftir síldaratvinnu.
Prentsmiðjan hér vísar á.
ÁGÆTT PEYSUFATAKLÆÐI
hjá
J. Ounnarssyni.
Bezt og ódýrast
Margarine
hjá J. GUNNARSSYNI.
CHOCOLADE
afarödýrt eftir gæðum hjá
J. Gunnarssyni.
Fyrir ei^na krónu
fæst blaðið INGÓLFUR (frá 24.
júní til ársloka) í bókaverzlun
Kr. Guðmundssonar.
Munið eftir, að
varzlunj. V. HAVSTEENs Oddeyri
gefur
12 aura fyrir pundið aj
af hákarlalýsi.
Kaupendur Norða
í Arnarnesshreppi utan við Hof, vitji
blaðsins í sumar á póstafgreiðsluna á
Hjalteyri. Pangað verður það sent með
öllum ferðum, er falla.
88
»Par að auki er það gamall siður, að bjóða
Knndsensfólkinu,« sagði Kröger.
»Ágætt,< sagði frú Steiner, «þá kemur líka hann
vinur þinn — Júlía — sá langi, rauðhærði!*
»Nei, hafðu mig afsakaða,» sagði Júlía ofurlítið
byrst, «það ert sannarlega þú, Lúlla, sem ert hrifin
af honum!«
»Pað varst þú sem uppgötvaðir hann — Júlía;
»Umhvern er kvenfólkið að tala? spurði Kröger.
«Um hann, þenna stóra nýja, — hjá henni frú
Knudsen — «
«Hann! — sveitastrákinn, fúlmennið!« orgaði
Kröger og spratt á fætur. »Þið eruð bat a að spauga
til þess að stríða mér«
Alls ekki, herra Kröger! Júlíu finst hann vera
ágætur.
»Það ert þú, sem hefir fundið upp á þvt —
Lúlla —!»
«Flýttu þér, Soffía! Hér er svo dimt, að eg
get ekki séð, hvort þær eru að draga dár að mér,»
sagði Gustav Kröger gramur.
En þegar Soffía frænka var lengi búin að rjáia
við hengilampann og loksins búin að kveikja og frú
Steiner framvegis fullvissaði unt, að bæði hún sjálf
og Jfllfa værii ttijög hriftiar áf herra Wold, þá varð
85
og Lulla, sem hafði reynt þetta hræðilega: að vera
gipt slíkum manni, og hún sem með slíkum hetju-
móð hafði veitt hreinleikanum liðveizlu, að hún með
sinni dýrkeyptu reynslu, um karlmannanna hóflausu ó-
siðsemi, skyldi stöðugt eins og áður vera að hring-
sóla innan um þessa menn — eða að minnsta kosti
lét þá hringsóla um sig.
Ekki svo að skilja að hún tæki á þeim með
silkihönskum. Þeir fengu skýr svör. Hún þekti þá
út í ystu æsar, og það fengu þeir að heyra —
En þeir hlóu bara og komu aftur. Þeir hóp-
uðust í kringum hana, rétt eins og þá langaði ein-
mitt til að verða almennilega húðflettir og fá þokka-
lega ofanígjöf fyrir eymd sína.
Skemtilegt var það, það var enginn vafi á því.
En það truflaði Júlíu. Hún þráði málarastofu Lúllu
en sat þó og hrylti um leið við, að hún skyldi
koma. Því frú Steiner hafði breytt bústað sínum í
nýtýsku málarastofu, alveg eins og þær eiga að vera.
Og allir féllu í stafi af aðdáun, sem fengu að koma
þar inn: þessi hálfmyrku svið, með skyndilegum
ljósbreytingum. Alstaðar tjöld og dyratjöld, fortjöld
og falltjöld og ófeilnar og naktar dráttmyndir, mál-
verk, sem voru eftir frúna sjélfa, og með svo ein-
arðlegtmi Ifhlm, að þær stmigu í stöf við hlð vana-