Norðri - 24.11.1909, Page 1
• IV. 47,
Ritstjóri Björn Líndal Brekkugata 19,
Akureyri, miðvikudaginn 24. nóvember.
1909.
Til minnis.
Bæjarfógetaskrifstofan opin kl. 10—2, 4—7
Bæjarsjóður, Lækjargötu 2, mánud. mið-
vikud. og laugardaga kl. 4—.7
Ritsímastöðin virka daga 8 f. h. til 9 e. h.
helga daga 8—11 og 4—ö
Bókasafnið, þriðjud.. fimtud. og Iaugard.
5—8. Sunnudögum 10—11 og 4—8.
l’ósthúsið hvern virkan dag 9—2og4—7.
helgid. 10—11 f. h,
Utbú Islandsbanka 11 —2
Utbú Landsbankans 11 — 12
Stúkan Akureyri fundard.þriðjud.kv. kl. 8.
Brynja iniðvikudagskvöld ki. 8.
Isafold Fjallkonan sunnudagskv. kl. 4.
Trúföst mánudagskv. kl. 8.
Landsbanka-
hneykslið.
Fregnmiði
„Norðra”
Reykjavík22.nóv. 1909 kl. 2 e. m.
Ráðherrann hefir í dag
vikið allri landsbanka-
stjórninni frá, þeim T rygg-
vaGunnarssyni, Kristjáni
Jónssyni og Eiríki Briem.
Peim er gefin að sök
mesta óregla og skeyt-
ingarleysi um hag bank-
ans. Björn Kristjánssonn
tekur við bankastjóra-
stöðunni í dag. Gæslu-
stjórar eru skipaðir þeir
Magnús Sigurðsson yfir-
réttarmálafærslumaðurog
Karl Einarssonsýslumað-
ur í Vestmannaeyjum.
Pessi stórtíðindi, er fregnmiðinn flutti
út um bæinn skömmu eftir að fregnin
var símuð blaðinu frá Reykjavík, kom
flestum svo óvænt að benni var naum-
ast trúað, þótt eigi verði sagt, að hún
liafi komið sem bruma úr heiðskýru
lofti. Svo mikið skýjafar hefir verið á
hinu pólitíska lofti hér í landi þetta síð-
asta missiri, að enginn glöggskygn mað-
ur á pólitískt veðráttufar gat verið því
með öllu óviðbúinn að syrta mundi að
entl ttisirá, og að allra veðra væri von
nema góðveðurs. En við pólitisku mann-
drápvseðri voru flestir óviðbúnir. —
Einni stundu áður en fregnin var
símuð Norðra var fest upp á götunum
í Reykjavík «tiIkynning-> frá stjórnarráð-
inu, og seinna um daginn símuð orð-
rétt ti! allra helztu símstöðva í landinu
með fyrirmælum um að birta hana op-
inberlega. Retta merkilega skial hljóðar
orðrétt þannig:
Tilkynning
frá stjórnarráðinu.
Lan dsbanka-stjórninni
allri vikið frá sökum marg
vís/egrar, megnrar, óafsak-
anlegrar öreglu og frá-
munalega lélegs eftirlits
meðbankanum.Björn Krist-
jánsson settur framkvæmd-
arstjóri, en Karl Einars-
son og Magnús Sigurðsson
gæzlustjórar / bráðina,
nokkurar vikur, vegna sér-
staks kunnugleika þeirra á
högum bankans.
Prátt fyrir þessa nauð-
synlegu og óumflýanlegu
ráðstöfun, eftir niðurstöðu
ransóknarnefndarinnar,
heldurbankinn áfram störf-
um sínum; styður lands-
stjórnin hann að sfálfsögðu
með skil við alla skuld-
heimtumenn. Ráðstafanir
gerðar innanlands og ut-
an til þarf/egrar aðstoðar
til þess að kippa bankan-
um í rétt horf.
Stjórnarráð íslands 22. nóvember 1909.
Bj'örn Jónsson.
Jón Hermannsson,
Getur nokkur maður varist því að
fyllast hryllingi og skelfingu við slíkar
voðafréttir? Slíktilkynning frá æðstu stjórn
landsins og þær sakir, sem í henni eru
bornar á þrjá af merkustu og nafnkend-
ustu mönnum þjóðarinnar, hlýtur að
grípa alla hugsandi menn heljartökum
ótta og örvæntingar um menningar og
siðferðisástand hinnar íslenzku þjóðar,
framtíð hentiar og forlög.
Hvort sem stjórnin hefir lögmætar
og réttmætar ástæður til þessarar ráð-
stöfunar og ásakana eða ekki, bá er
' þetta mál í raun og vcru jafn alvarlegt.
Annaðhvort er þá æðsta stjórn landsins
í höndum vitfirrings eða algerlega sam-
vizkulauss og blygðunarlauss harðstjóra
og varmennis, er ekki svífist þess að
brenniliterkja beztu ttietin þjóðarlntiat*
Dettifoss til sölu.
Hálf jörðin Svinadalur í Kelduneshreppi í NorðurTingeyjarsýslu
er til sölu, með öllum tilheyrandi fossum, þar á meðal
hinn heimsfrægi Dettifoss, aflmesti og arðvænleg-
asti foss á öllu Islandi.
Verðið tiltölulega mjög lágt.
Undirritaður annast um söluna fyrir eigandans hönd og gefur
allar upplýsingar víðvíkjandi kaupunum.
Björn Líndal.
yfirréttarmálafærslumaður
Brekkugötu 19. Akureyri
og um leið hana sjálfa með glæpamanna
og skrílsmerki, til þess að svala hatri
og hefndargirni sjálfs sín á pólitískum
andstæðingum sínum, eða þá, að þrír
þeirra manna er þjóðin hefir til þessa
borið bezt traust til, virt og unnað
flestum mönnnm fremur, og falið að
gegna einum hinum vandasömustu og
veglegustu embættisstörfum landsins, eru
hvorki meira né minna en stórglæpa-
menn.
Pví að slíkar ásakanir liggja í þess-
ari tilkynningu, sé hún krufin til mergjar.
í þessari tilkynning er það ótvírætt
gefið í skyn, að bankinn sé á heljar
þröminni, sakir athæfis bankastjórnarinn-
ar. Reir eiga því að hafa sóað fé bank-
ans, að svo miklum mun, að honum
sé orðið um megn að standa í skilum
við skuldheimtumenn sfna nema land-
sjóður hlaupi undir bagga með honum.
Samkvænit sfðasta reikningi bankans er
fjárhagur hans þannig, að hreinn ágóði
af starfsemi hans á árinu 1908ertalinn
31030 kr. 44 aurar, og varasjóður
bankans er í lok þess árs 636605 kr.
08 aurar.
Ef það er sannleikur, að fjárhagur
hans sé nú orðinn jafn eyðilagður og ráða
verður af tilkynningunni, þá hlýtur ann-
að hvort að vera, að bankastjórnin hafi
falsað þessa reikninga, eða hún hafi,
síðan reikningarnir voru gerðir, blátt
áfram dregið sér stórfé af peningum
bankans. Jafn hárri fjárupphæð verð-
ur ekki sóað brott, á jafn skömmum
tíma nema á glæpsamlegan hátt, Það
er því næsta óskiljanlegt, að stjórnin
skuli eigi tafarlaust hafa látið varpa slík-
um mönnum í varðhald og hefja saka-
málsransókn gegn þeim.
Allir þeir, sem nokkurn trúnað geta
lagt á það, að þessir rnenn hafa gert sig
seka um slíkt athæfi og þeir eru ásak-
aðir fyrir í tilkynningunni, hljóta því að
spyrja um, og heimta svar við þeirri
spurningu, hvað þessir menn hafi gert,
í hverju glæpur þeirra sé falinn.
En þeirri spurningu getur enginn
svarað ennþá, nema ráðherrann og
bankaransóknarnefndin fræga. Sjálfri
bankastjórninni, er frá hefir verið vikið,
er etihþá jafii óktitimtgt tttn, hvað hetihi
sé gefið að sök, og oss hinum. Hún
hefir eigi til þessa fengið að sjá eða
heyra eina einustu ákveðna ásökun eða
athugasemd rannsóknarnefndarinnar, og
þannig verið algerlega varnað þess, að
bera nokkra hönd fyrir höfuð sér, eða
gefa nokkra skýringu á því, er misskiln-
ingi kynni að geta valdið. — Heyrst
hefir, að ein af höfuð ásökunum sé sú,
að bankastjórnin hafi eigi hlýtt skipun
ráðherrans í sumar um það að færa til
bókar ástæður fyrir synjunum um lán-
veitingar, en sú skipun stríðir þvert á
móti lögum og reglugjörð bankans.
Einnig eiga nokkrir mjög lítilsháttar
formgallar að vera á bankastjórninni, en
svo eru þeir þýðingarlausir, að þeir geta
alls engin áhrif haft á fjárhag bankans
á nokkurn hátt.
Kl. 1 e. h. ífyrradag komu þeirKl.Jóns-
sou landritari og Jón Hermannnsson
skrifstotustjóri, inn í Landsbankann, og
inn í skrifstofu bankastjórnarinnar; þar
tilkynna þeir bankastjórninni afsetning-
una og reka hana út úr bankanum.
Slík aðferð er svo gerræðisleg og
hrottaleg, að aðeins Rússastjórn og
öðrum alræmdum óstjórnum er trúandi
til slíks. Hvers vegna er þessum mönn-
um ekki gefinn kostur á að bera hönd
fyrir höfuð sér. Ef stjórnin hefir lög
að mæla og rélt, hvers vegna þorir
hún þá ekki að lofa þessum mönnum
að reyna að gera grein fyrir gerðum
sínum? Hér er farið með borgara þjóð-
félagsins eíns og réttlausa þræla. Lótt
það reyndist svo, að ástæður stjórnar-
innar fyrir afsetningunni og ásökunun-
um, væru réttmætar, þá verður það ald-
rei varið, að aðferð stjórnarinnar í
þessu máli er svo hneikslanleg og við-
bjóðsleg, að því verður eigi með orð-
um lýst.
Kristján Jónsson, háyfirdómari, sem
til þessa hefir verið talinn hlyntur stjórn-
inni og er einn hinn lærðasti lögfræð-
ingur landsins, ritaði ráðherranum í
fyrra-kvöld bréf það, er hér fer á eftir.
Blaðinu hefir verið símað það orðrétt
frá Reykjavík. Er það svo merkilegt að
efni og formi að sjálfsagt þótti, vegna
kaupenda blaðsins, að fá það símritað,
svo að unt væri að birta það í blaðinu
þegar í stað.