Norðri - 24.11.1909, Blaðsíða 1

Norðri - 24.11.1909, Blaðsíða 1
• IV. 47, Ritstjóri Björn Líndal Brekkugata 19, Akureyri, miðvikudaginn 24. nóvember. 1909. Til minnis. Bæjarfógetaskrifstofan opin kl. 10—2, 4—7 Bæjarsjóður, Lækjargötu 2, mánud. mið- vikud. og laugardaga kl. 4—.7 Ritsímastöðin virka daga 8 f. h. til 9 e. h. helga daga 8—11 og 4—ö Bókasafnið, þriðjud.. fimtud. og Iaugard. 5—8. Sunnudögum 10—11 og 4—8. l’ósthúsið hvern virkan dag 9—2og4—7. helgid. 10—11 f. h, Utbú Islandsbanka 11 —2 Utbú Landsbankans 11 — 12 Stúkan Akureyri fundard.þriðjud.kv. kl. 8. Brynja iniðvikudagskvöld ki. 8. Isafold Fjallkonan sunnudagskv. kl. 4. Trúföst mánudagskv. kl. 8. Landsbanka- hneykslið. Fregnmiði „Norðra” Reykjavík22.nóv. 1909 kl. 2 e. m. Ráðherrann hefir í dag vikið allri landsbanka- stjórninni frá, þeim T rygg- vaGunnarssyni, Kristjáni Jónssyni og Eiríki Briem. Peim er gefin að sök mesta óregla og skeyt- ingarleysi um hag bank- ans. Björn Kristjánssonn tekur við bankastjóra- stöðunni í dag. Gæslu- stjórar eru skipaðir þeir Magnús Sigurðsson yfir- réttarmálafærslumaðurog Karl Einarssonsýslumað- ur í Vestmannaeyjum. Pessi stórtíðindi, er fregnmiðinn flutti út um bæinn skömmu eftir að fregnin var símuð blaðinu frá Reykjavík, kom flestum svo óvænt að benni var naum- ast trúað, þótt eigi verði sagt, að hún liafi komið sem bruma úr heiðskýru lofti. Svo mikið skýjafar hefir verið á hinu pólitíska lofti hér í landi þetta síð- asta missiri, að enginn glöggskygn mað- ur á pólitískt veðráttufar gat verið því með öllu óviðbúinn að syrta mundi að entl ttisirá, og að allra veðra væri von nema góðveðurs. En við pólitisku mann- drápvseðri voru flestir óviðbúnir. — Einni stundu áður en fregnin var símuð Norðra var fest upp á götunum í Reykjavík «tiIkynning-> frá stjórnarráð- inu, og seinna um daginn símuð orð- rétt ti! allra helztu símstöðva í landinu með fyrirmælum um að birta hana op- inberlega. Retta merkilega skial hljóðar orðrétt þannig: Tilkynning frá stjórnarráðinu. Lan dsbanka-stjórninni allri vikið frá sökum marg vís/egrar, megnrar, óafsak- anlegrar öreglu og frá- munalega lélegs eftirlits meðbankanum.Björn Krist- jánsson settur framkvæmd- arstjóri, en Karl Einars- son og Magnús Sigurðsson gæzlustjórar / bráðina, nokkurar vikur, vegna sér- staks kunnugleika þeirra á högum bankans. Prátt fyrir þessa nauð- synlegu og óumflýanlegu ráðstöfun, eftir niðurstöðu ransóknarnefndarinnar, heldurbankinn áfram störf- um sínum; styður lands- stjórnin hann að sfálfsögðu með skil við alla skuld- heimtumenn. Ráðstafanir gerðar innanlands og ut- an til þarf/egrar aðstoðar til þess að kippa bankan- um í rétt horf. Stjórnarráð íslands 22. nóvember 1909. Bj'örn Jónsson. Jón Hermannsson, Getur nokkur maður varist því að fyllast hryllingi og skelfingu við slíkar voðafréttir? Slíktilkynning frá æðstu stjórn landsins og þær sakir, sem í henni eru bornar á þrjá af merkustu og nafnkend- ustu mönnum þjóðarinnar, hlýtur að grípa alla hugsandi menn heljartökum ótta og örvæntingar um menningar og siðferðisástand hinnar íslenzku þjóðar, framtíð hentiar og forlög. Hvort sem stjórnin hefir lögmætar og réttmætar ástæður til þessarar ráð- stöfunar og ásakana eða ekki, bá er ' þetta mál í raun og vcru jafn alvarlegt. Annaðhvort er þá æðsta stjórn landsins í höndum vitfirrings eða algerlega sam- vizkulauss og blygðunarlauss harðstjóra og varmennis, er ekki svífist þess að brenniliterkja beztu ttietin þjóðarlntiat* Dettifoss til sölu. Hálf jörðin Svinadalur í Kelduneshreppi í NorðurTingeyjarsýslu er til sölu, með öllum tilheyrandi fossum, þar á meðal hinn heimsfrægi Dettifoss, aflmesti og arðvænleg- asti foss á öllu Islandi. Verðið tiltölulega mjög lágt. Undirritaður annast um söluna fyrir eigandans hönd og gefur allar upplýsingar víðvíkjandi kaupunum. Björn Líndal. yfirréttarmálafærslumaður Brekkugötu 19. Akureyri og um leið hana sjálfa með glæpamanna og skrílsmerki, til þess að svala hatri og hefndargirni sjálfs sín á pólitískum andstæðingum sínum, eða þá, að þrír þeirra manna er þjóðin hefir til þessa borið bezt traust til, virt og unnað flestum mönnnm fremur, og falið að gegna einum hinum vandasömustu og veglegustu embættisstörfum landsins, eru hvorki meira né minna en stórglæpa- menn. Pví að slíkar ásakanir liggja í þess- ari tilkynningu, sé hún krufin til mergjar. í þessari tilkynning er það ótvírætt gefið í skyn, að bankinn sé á heljar þröminni, sakir athæfis bankastjórnarinn- ar. Reir eiga því að hafa sóað fé bank- ans, að svo miklum mun, að honum sé orðið um megn að standa í skilum við skuldheimtumenn sfna nema land- sjóður hlaupi undir bagga með honum. Samkvænit sfðasta reikningi bankans er fjárhagur hans þannig, að hreinn ágóði af starfsemi hans á árinu 1908ertalinn 31030 kr. 44 aurar, og varasjóður bankans er í lok þess árs 636605 kr. 08 aurar. Ef það er sannleikur, að fjárhagur hans sé nú orðinn jafn eyðilagður og ráða verður af tilkynningunni, þá hlýtur ann- að hvort að vera, að bankastjórnin hafi falsað þessa reikninga, eða hún hafi, síðan reikningarnir voru gerðir, blátt áfram dregið sér stórfé af peningum bankans. Jafn hárri fjárupphæð verð- ur ekki sóað brott, á jafn skömmum tíma nema á glæpsamlegan hátt, Það er því næsta óskiljanlegt, að stjórnin skuli eigi tafarlaust hafa látið varpa slík- um mönnum í varðhald og hefja saka- málsransókn gegn þeim. Allir þeir, sem nokkurn trúnað geta lagt á það, að þessir rnenn hafa gert sig seka um slíkt athæfi og þeir eru ásak- aðir fyrir í tilkynningunni, hljóta því að spyrja um, og heimta svar við þeirri spurningu, hvað þessir menn hafi gert, í hverju glæpur þeirra sé falinn. En þeirri spurningu getur enginn svarað ennþá, nema ráðherrann og bankaransóknarnefndin fræga. Sjálfri bankastjórninni, er frá hefir verið vikið, er etihþá jafii óktitimtgt tttn, hvað hetihi sé gefið að sök, og oss hinum. Hún hefir eigi til þessa fengið að sjá eða heyra eina einustu ákveðna ásökun eða athugasemd rannsóknarnefndarinnar, og þannig verið algerlega varnað þess, að bera nokkra hönd fyrir höfuð sér, eða gefa nokkra skýringu á því, er misskiln- ingi kynni að geta valdið. — Heyrst hefir, að ein af höfuð ásökunum sé sú, að bankastjórnin hafi eigi hlýtt skipun ráðherrans í sumar um það að færa til bókar ástæður fyrir synjunum um lán- veitingar, en sú skipun stríðir þvert á móti lögum og reglugjörð bankans. Einnig eiga nokkrir mjög lítilsháttar formgallar að vera á bankastjórninni, en svo eru þeir þýðingarlausir, að þeir geta alls engin áhrif haft á fjárhag bankans á nokkurn hátt. Kl. 1 e. h. ífyrradag komu þeirKl.Jóns- sou landritari og Jón Hermannnsson skrifstotustjóri, inn í Landsbankann, og inn í skrifstofu bankastjórnarinnar; þar tilkynna þeir bankastjórninni afsetning- una og reka hana út úr bankanum. Slík aðferð er svo gerræðisleg og hrottaleg, að aðeins Rússastjórn og öðrum alræmdum óstjórnum er trúandi til slíks. Hvers vegna er þessum mönn- um ekki gefinn kostur á að bera hönd fyrir höfuð sér. Ef stjórnin hefir lög að mæla og rélt, hvers vegna þorir hún þá ekki að lofa þessum mönnum að reyna að gera grein fyrir gerðum sínum? Hér er farið með borgara þjóð- félagsins eíns og réttlausa þræla. Lótt það reyndist svo, að ástæður stjórnar- innar fyrir afsetningunni og ásökunun- um, væru réttmætar, þá verður það ald- rei varið, að aðferð stjórnarinnar í þessu máli er svo hneikslanleg og við- bjóðsleg, að því verður eigi með orð- um lýst. Kristján Jónsson, háyfirdómari, sem til þessa hefir verið talinn hlyntur stjórn- inni og er einn hinn lærðasti lögfræð- ingur landsins, ritaði ráðherranum í fyrra-kvöld bréf það, er hér fer á eftir. Blaðinu hefir verið símað það orðrétt frá Reykjavík. Er það svo merkilegt að efni og formi að sjálfsagt þótti, vegna kaupenda blaðsins, að fá það símritað, svo að unt væri að birta það í blaðinu þegar í stað.

x

Norðri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðri
https://timarit.is/publication/201

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.