Norðri - 17.10.1912, Blaðsíða 1
1912,
VII., 33.
X^alblic^Aalie^aíiealeaíie^
4 Júlíus Havsteen "
yfirréttarmálaflutningsmaður
J? er til viðtals í Strandgötu 37
” kl. 10-11 f. h.t 2-3
og 5 —6 e. h.
Ýmislegt frá útlöndum.
Kaupmannahöfn 23. sept.
Flugvélar í hernaði.
Pað eru horfur á því að flugvélarn-
ar, sem stöðugt taka stórstígum fram-
förum og sem nú eru brúkaðar við
nær því alla stærstu hera heimsins ætti
að kollvarpa öllum heræfingum bæði á
Iandi og sjó.
A friðartímunum halda stórveldin oft
heræfingar, skipa stórum herflokkum
hvorum á móti öðrum eins og í vanalegri
orustu. Par er notað stórskotalið og
skotið af virkilegum fallbyssum en
bara púðri. Af þessum æfingum má
svo oftast sjá hverjir mundu hafa sigr-
að,
Nú hafa Englendingar nýlega haft
eina slíka heræfing. 60,000 hermönnum
var skift í tvo flokka 30,000 í hverjum.
Annar flokkurinn nefndist sá rauði, hinn
sá blái. Sá rauði skyldi verja London
hinn skyldi sækja á. 7 flugvélar fylgdu
hvorum flokki. En endirinn varð sá að
hætta mátti án þess að séð yrði hver
sigra mundi. f hvert skifti sem einhver
deild úr rauða flokknum ætlaði að koma
hinum að óvörum mætti hún öðrum
flokki jafnsterkum. Flngvélarnar sem
voru á sveimi yfir herfylkingunum höfðu
á svipstundu séð hvað óvinurinn ætlaði
sér og þá sent loftskeyti niður til sfns
flokks til þess að láta hann vita það.
Á Iíkan hátt fór með mótflokkinn. Hver
einasta hreifing sem flokknrinn gerði
var á sama augnabliki símuð niðuri, svo
endirinn var sá að báðir flokkarnir stóðu
hnífjafnt að vígi. Pegar þessu hafði
farið fram um hríð sáu foringjarnir sig
að síðustu neydda til að hætta.
Á líkan hátt gekk einnig í sumar við
sjóliðsæfingarnar.
Petta hefur vakið mikla eftirtekt um
heiminn. Máske flugvélarnar geri orust-
urnar ómögulegar að lokum.
Sendiherra Pjóðverja
í London v. Bieberstein er látinn.
Hann var af gömlum þýskum greifa-
ættum og var mikill ættjarðarvinur.
Hann hafði um dagana gengt mörgum
embættum þar á meðal var hann sendi-
herra þjóðverja í Konstantínopel, en
var tekinn frá því enibætti nú fyrir
skömmu til þess að takast þá vanda-
sömu stöðu að vera fulltrúi Pjóðverja
í London. Pví eins og kunnugt er,
er grunt á því góðamilli Pjóðverja og
Englendinga. Pann tíma sem hann hafði
verið á Englandi hafði hann unnið sér
hylli Englendinga og stuðlað að frið
milli þjóðanna.
N0RÐRI
Cv
Akureyri, 17. október.
Fellibylur
hefur ætt yfir Japan og valdið stór-
kostlegu tjóni. í fleiri daga var ekki
hægt að komast til Tokio höfuðborg-
arinnar vegna óveðursins. Mörg flutn-
ingsskip hafa farist upp við strendurn-
ar, þar á meðal nokkur frá Evrópu.
Á landi voru þó ennþá meiri brögð
að tjóninu. í einum bæ Æsoka, eru
20,000 hús jfallin og 262 manns létu
lífið fyrir utan fjölda særða. í öðrum
bæ Najoga eru einnig hérumbil öll hús-
in fokin um koll.
Skaðinn er metinn 40 miljónir.
Kaupmannahöfn 26. sept.
Friður
virðist nú að vera að komast í milli
ftala og Tyrkja. Báðir málsaðilar hafa
að minsta kosti lagt niður vopnin um
stundarsakir. Pað eru aðeins skilmálarnir
sem þeir geta ekki komið sér saman
um. ftalir heimta skilyrðislaust að þeir
fái opinberlega viðurkent vald yfir Tri-
pólis og Kyrenaika, en Tyrkir vilja að-
eins gefa þeim hermannavald yfir land-
inu þaunig að þeirværu í orðikveðnu látn-
ir hafa yfirráðin, ekki ólíkt eins og nú á
sér stað í Egyftalandi, þar sem Tyrkir
halda að nafninu til yfirráðunum, en
Englendingar ráða öllu í raun og veru.
Menn halda að ítalir muni því slaka
til í kröfum sínum, því ófriðurinn hefur
þegar kostað þá geysifé og það sem
þeir hafa áunnið í orustum er hverf-
andi. Mestur hluti Tripólis er énnþá í
höndum Tyrkja.
Ofriðarhorfur
eru aftur allmiklar á milli Tyrkja og
nábúaríkjanna Búlgaríu, Serbíu og Mont-
enegró og jafnvel Qrikklands. Pað lítur
helst út fyrir að öll þessi ríki séu kom-
in í samband til þess að nota nú tæki-
færið meðan Tyrkir standa í ófriði við
ítali — og ná sér niðri á þeirra forna
erfðafjanda Tyrklandi. Öll þessi ríki
hervæðast nú sem óðast og herflokkar
eru þegar farnir að streyma til landa-
mæra Tyrklands. Tyrkir búast aftur til
varnar. Ófriðurinn við ítali hefur alls
ekkert lamað þrek þeirra. Þeir hafa
mesian hluta heis síns heima fyrir og
eru vígbúnir til að mæta óvinunum.
Til Trípólis gátu þeir aldrei komið neinu
liði. Vörnin í Trípólis hefur verið háð
af heimafæddum Aröbufn sem játa Mú-
hamedstrú og lúta Tyrklandi.
Rússnesku herskipin.
Ofar á myndinni sjást sum skipin fram undan Kaupmannahöfn. En neðar er for-
ingaskipið Rurik,
Hið norræna skotfélag í Danmörku hafði nýlega samkomu og æfing í Khofn.
A myndinni hér að ofan sézt fyrst konungur á tali við forsætisráðherrann Berent-
sen sem lengi hefir verið formaður félagsins. I öðru iagi sézt konungur með
byssuna í sigti kominn að því að skjóta. Hann er talinn einhver bezta skytta í
Danmörku.
Menn búast alment við, stórtíðindum
frá Balkanskaga von bráðar.
Stórþjófnaður
var nýlega framinn hér í Höfn. Stol-
ið var málverkum sem vátryggð voru
fyrir 125 þúsundum. Pau voru eign
Cordosa nokkurs sem nýlega varð upp-
vís að fjárdrætti og sat því hneftur í
fangelsi.
Brotist hafði verið inn í húsið um
hábjartan dag og myndirnar teknar úr
römmunum og látnar í kofort sem þar
stóð í myndasalnum og síðan fluttar
burt eins og hver annar ferðamanna-
flutningur. Pjófarnir höfðu farið sér að
engu óðslega. Vindlastubbar fundust á
víð og dreif um gólfið og hálftæmd
vínflaska stóð á borðinu ásamt fjórum
glösum. Menn hafa komist að, að þjóf-
arnir hafa tafarlaust flúið til Pýskalauds.
En ekki hefur hafst upp á þeim enn-
þá.
Rússneski Eystrasaltsflotinn
er nú sem stendur hér í Höfn. Kom
strax eftir að sá enski fór, það eru sam-
tals 50 herskip. Vináttumál á milli
Rússa og Dana.
Húsbrunar.
Nýlega hefir brunnið allstórt íbúðar-
hús á Eskifirði eign stórkaupmanns Thor
E. Tuliniusar í Kaupmannahöfn. Sýslu-
maður Sunnmýlinga Guðm. Eggerz bjó
í húsinu, hann var ekki heima þegar
brunann bar að höndum.
Á Húsavík kom eldur upp í húsi er
Benedikt kennari Björnsson bjó í, brann
húsið alt að ofan, þá varð eldurinn
slöktur, en lítilsvirði er það talið sem
eftir stendur.
Á Siglufirði brann brauðgerðarhús
Olgeirs Júlíussonar. Var það lítið hús
með litlum bökunarofni. Húsið var ekki
vátryggt, en mjöl og fleira innanstokks
var vátryggt.