Norðurland - 16.07.1904, Síða 4
Nl.
168
hingað á sunnudaginn var beint frá Nor-
egi. Það aetlar að stunda síldarveiði hér
við land í sumar með spánnýjum, amerísk-
um veiðarfærum, hringnót (»snuppenot«,
sem Norðmenn kalla). Þessi veiðarfæri er
alveg nýfarið að nota í Norcgi, og skip-
stjórinn á »Albatros« var í Vesturheimi í
vetur um tíma til þess að læra að nota
þau.
Seglskip kom í gær með timbur til
gagnfræðaskólans.
Skýzf þóff skýr sé.
Dr. Valtýr Ouðmundsson hefir ritað um
kvæðakver mitt í síðasta hefti Eimreiðarinn-
ar, skýran og skarplegan ritdóm að sumu
leyti. Eg ætla ekki að þrátta við hann held-
ur en aðra um aðfinslurnar, því að það
mundi að líkindum bera lítinn árangur.
En á eitt atriði verð eg að minnast. Hann
gerir alllangt mál í einum stað út af orð-
inu alfa, sem er ritvilla, eða prentvilla, og
á að vera álfa (álfa vona og óska minna
er á vegum dagrenningar). Ritdómarinn
heldur, að þar hafi eg verið að sletta
grísku ! Eg hafði ekki gætt þess fyr en nú,
að broddinn vantaði yfir a-ið og er það al-
veg yfirgengilegt, að gáfumaðurinn Valtýr
Ouðmundsson skuli flaska á svona augljósu
máli og einföldu. Hvernig gat annars nokk-
urum manni komið í hug, að eg mundi
yrkja á grísku, fyrst eg hefi hvergi slett
dönskunni? Svo lítið kannast eg þó við
dönskuna, að eg hefðí getað »dependerað«
ofurlítið af henni.
Að svo mæltu:
Þökk fyrir lesturinn!
24/6 04. Ouðmnndur Friðjónsson.
Bœjarsfjórnarfundir.
2. júlí.
Frú Ouðnýju Jónsdóttur yfirsetukonu veitt
75 kr. eftirlaun árlega frá nýári með tilliti
til langrar og góðrar þjónustu hér í bænum.
Frk. Maríu Hafliðadóttur veitt 25 kr. þókn-
un fyrir fjórðung þessa árs, ef hún settist
hér að sem yfirsetukona og henni þá lofað
sýslaninni með föstum, lögboðnum launum,
þegar sýslanin losnaði um nýár.
Samþykt að fela bæjarfógeta að taka 4
mánaða víxillán í útibúinu, 600 kr., til að
borga með vegabætur í bænum. Eggert
Laxdal bókaði ágréiningsatkvæði við lántök-
una.
12. júlí.
Hirti Guðmundssyni veitt aðsetursleyfi.
Beiðni um land til erfðafestu frá Tryggva
Jónssyni o. fl. vísað til Eyrarlandsnefndar.
Ákveðið að Ieigja J. Ounnarssyni og S.
Jóhannessyni frá 21. f. m. til 20. júní 1905
norðurhelming lóðar þeirrar, sem þeir hafa
leigt á Torfunefi, fyrir 35 kr. ársleigu.
Samþykt að veita spítalahaldara Einari
Pálssyni 150 kr. launahækkun fyrir yfirstand-
andi ár.
Lögð fram áætlun um og teikning af
skipakví í Oddeyrarbót eftir byggingameist-
ara Olsen.
Endurskoðandi spítalareikninganna kosinn
M. B. Blöndal.
Bæjarfógeta falið fyrir sanngjarna borgun
að undirbúa málshöfðun á hendur bruna-
bótafélaginu Comincrcial Union út af kostn-
aði við að stöðva ddsvoðann 19. des. 1901
og björgun.
Ólafi Jónatanssyni veittar til erfðafestu
5-6 dagsl. vestan við Kotáriæk með venju-
legum kjörum og Jóni Baldvinssyni 6 dagsl.
austan við sama læk með sömu kjörum.
Sigtr. Jónssyni og Davíð Sigurðssyni selt
grjót til gagnfræðaskólans fyrir það, sem
grjótið kostaði bæinn, að viðbættum 5%
frá því, er bærinn borgaði grjótið og þar
til er borgun íer fram, ásamt 1 kr. gjaldi
fyrir hvern ferfaðm.
Effirmæli.
27. síðastl. aprílmán. andaðist á sjúkra-
húsinu á Akureyri óðalsbóndi Guðmundur
Jónsson frá Auðólfsstöðum í Langadal, eins
og stuttlega hefir áður verið getið í Nl.
Hann var sonur merkishjónanna Jóns
Guðmundssonar og Önnu Pétursdóttur, sem
alllengi bjuggu á Móbergi og Strjúgsstöðum
í Langadal og síðast í Hvammi i Laxárdal
fremri. — Þegar Ouðm. sál. var skamt
kominn yfir fermingaraldur misti haun föð-
ur sinn og tók hann þá við bústjórn og
bjó með móður sinni og uppvaxandi syst-
kinum allmörg ár. En árið 1900 keypti hann
Auðólfsstaði og fór að búa þar. Sá hann
berlega hina mörgu kosti jarðar þeirrar og
eins, hve miklum bótum hún gat tekið, ef
þar væri unnið með atorku og hygni, sem
hann hafði hvorttveggja til að bera. En því
miður auðnaðist honum að eins stutta stund
að starfa þar. Því eftir tæpra fjögra ára bú-
skap burtkallaðist hann á bezta skeiði, að
eins 35 ára gamall. Síðastl. sumar (1903)
kvongaðist hann Jónínu Hannesdóttur frá
Fjósum í Svartárdal og eignuðust þau einn
son.
Ouðm.sál. var öllum harmdauði, sem þektu
hann, því hann var vinsæll maður og virt-
ur vel, stiltur og staðfastur og staklega hjáip-
samur og velviljaður, auk þess, sem sveitar-
félagið misti þar einn sinn nýtasta meðlim,
sakir atorku hans og göfugmensku.
Landbúnaðarnefndin
tekur til starfa um þessa helgi. Nefndar-
mennirnir norðlenzku, Pétur Jónsson og
Hermann Jónasson komu hingað til bæjar-
ins í gærkvöldi.
Nýjasta málþráðarskeyti frá Japan.
Tokio 16. júlí kl. 2 f. h.
Eftir stóran sigur, sein Japanar
unnu á Rússum í gær, ákvað Mica-
doinn í Japan að eftirleiðis skyldi
æðsti generalinn útbýta til hraustra
hermanna í japanska hernum liinum
nýju, ágætu vindlum Dolly og Ora-
ciella frá vindlaverksmiðju Ó. G. Eyj-
ólfssonar á Akureyri, sem einnig fást
nú eftir nokkura daga í flestum búð-
um á Akureyri og Oddeyri.
Háttvirtir kaupendur
Norðurlands, sem
eru í skuld fyrir
blaðið, geri svo vel
að hafa pað hugfast, að síðasti
gjalddagi að 3. árg. er fyrir miðj-
an júlí.
Margarine
er altid den bedste
E
x
5-
*o
>
M-H
03
03
>
U*
O
JX
B
<L>
cn
B
x
c
x
N
i—«
<L>
>
B
x
o
tn
W
U—i
■®
Cakið ejtir.
!
Verzlun Stefáns Sigurðssonar & Einars Gunnarssonar er vel birg af mat-
vörum og nylenduvörum og hefir með s/s »Vesta« og s/s »Modesta« fengið
margt, sem vert er að sjá og kaupa.
Komið og skoðið varninginn og verzlið með ull, prjónles, smjör og pen-
inga, sem alt er borgað vel.
Fljót afgreiðsla og ódýr vara.
»Reynið á hurðir Flosa!«
Akureyri, sh 1904.
Stefán Sigurðsson.
G V Hillevaag 0 4
Ullai c rverksmi 5 ” - ' ðjur i>
taka enn sem fyr á móti ull, sem og ull og tuskum, til tóskapar og biðja
þess getið, að til umboðsmanna séu nú komin ný og falleg sýnishorn af
alls konar fata- og kjólatauum.
Þar sem pað er margra manna reynsla að þessar verksmiðjur vinna
fult eins vel, fljótt og ódýrt, eins og nokkur hinna, ættu menn, sem ætla
að senda ull til tóskapar, að snúa sér til umboðsmanna verksmiðjanna,
sem munu gefa mönnum allar nánari upplýsingar.
Umboðsmenn eru:
I Reykjavík herra bókhaldari Ólafur Runólfsson.
Á Bíldudal — — Ármann Björnsson.
- ísafirði — kaupmaður Árni Sveinsson.
verzlunarm. A. Sæmundssen.
bókhaldari H. Gunnlaugsson.
verzlunarm. Ó. P. Blöndal.
kaupmaður Metúsalem Jóhannsson.
— Stefán Sigurðsson.
verzlunarm. Jóh. Sigurðsson.
- Blönduósi —
- Skagaströnd —
- Sauðárkrók —
- Oddeyri —
- Akureyri —
- Seyðisfirði —
Aðalumboðsmaður á íslandi
Rolf Johansen,
Akureyri.
Með því að ýmsir bændur
hafa spurst fyrir um
það, hvort þeir eigi
að baða í vetur eða á
annan hátt lækna fé sitt
af óþrifakláða, verð eg að áminna
menn um það alvarlega, að enginn
ætti að fást við slíkar lækningar á
fé sínu fyr en full vissa er fyrir
því, að fjárkláða sé alveg útrýmt;
því að annars getur það vel fyrir
komið, að menn villist á öðrum ó-
verulegum húðsjúkdómum og kláða.
Ef reglulegur fjárkláði skyldi enn
vera eftir, mundi honum á þennan
hátt verða haldið niðri um stund,
og svo verða hæítara við, að hann
breiddist út eftir á, til stórtjóns fyrir
menn.
Ö. Myklectad.
AAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAY
slenzk frímerki
TTTTTTTTTTTTVVVTTTTyTJ
kaupir utidirskrifaður með
hæsta verði. Peningar sendir strax
eftir að frímerkin eru móttekin.
Julius Ruberj,
Frederiksborggade 14, Köbenhavn, K-
q JCans 5jeyno/ds q
heldur
FYRIRLESTUR
í Goodtemplarahúsinu
. um
J'Ioreg og norsK málefni
(5 to g~7 o é) Q)
sunnudaginn 17. júlíkl. 8'h e. li.
* * *
Fimmtíu ágætar myndir -e§=-
verða sýndar
(rneð lanterna magica, á vegg).
* * *
Inniranicseyrir 50 aurar fyrlr fullorðna,
25 aurar fyrír börn.
„NorQurland" kemur út á hverjum laugardegi.
52 blöð um árið. Verð árg. 3 kr. á fslandi, 4 kr. i
öðrum Norðurálfulöndum, IV2 dollar í Vesturheimi.
Gjalddagi fyrir miðjan júlí að minsta kosti (erlendis
fyrir frain).
Uppsögn sé skrifleg og bundin við árgangamót;
ógild nema komin sé til ritstjóra fyrir 1. júlí.
Auglýsingar teknar í blaðið eftir samningi við rit-
stjóra. Afsláttur mikill fyrir þá, er auglýsa mikið.
Prentsmiðja Norðurlands,