Norðurland - 24.06.1905, Qupperneq 3
iö3
Nl.
Þann io. maí s. 1. lézt að heimili sínu,
Reykjum í Fnjóskadal, bóndinn Jðnatan
Davíðsson, eftir stutta legu í lungnabólgu,
nær 68 ára gamall.
Jónatan heitinn var lágur maður vexti
en þrekinn vel, geðríkur og ekki við allra
skap, en sannur vinur vina sinna, gest-
risinn mjög og góður heim að sækja.
Hann var fyrirmyndar búhöldur og seinni
ár æfi sinnar ein styrkasta stoð sveitar-
innar. Heimilið var sönn fyrirmynd að
hagleik, stjórnsemi og reglusemi, og bar
alt vott um það jafnt utan húss sem inn-
an, að þar stýrðu hagar og þróttmiklar
hendur.
Eru slík heimili sómi og prýði sveitar
og lands.
Riddarar
af dbr. urðu þessir í síðustu utanför ráð-
gjafans: Ditlev Thomsen konsúll, Thor E.
Tulinius stórkaupm., Sigurður Jóhannesson
stórkaupm. í Khöfn og Thostrup, f. kaupm.
á Seyðisfirði.
Lögfrœðispróf
fyrri hlutann hafa þessir íslenzkir stú-
dentar tekið. Einar Arnórsson (70 st.),
Magnús Sigurðsson (66 st.), Páll Jónsson
(62 st.), Björn Þorl. Johnson (50 st.) og
Stefán Stefánsson (46 st.).
Hér með er skorað á allc
þá, er bækur hafa að láni
af Bókasafni Norður-
amtsins, að skiia þeim á safnið
fyrir 10. júlí n. k. — Jafnframt til-
kynnist að bækur verða ekki lán-
aðar af safninu frá 10. júlí til 15.
ágúst þ. á.
Akureyri, 24. júní 1905.
Sigurður Sigurðsson,
bókavörður.
Nvtf 1 bó*caverz,un Prb-
g—tL— Steinssonar:
1. Ljóðmæli eftir Þorstein Qísla-
son..............0.50 og 0.90
2. Upphaf kristninnareftirÁgúst
Bjarnason.................0.25
3. Quo Vadis? Hvert ætlarðu? 3.50
áhrifamikil skáldsaga frá tíma
Nerós.
4. Sambandviðframliðnamenn,
fyrirlestur...............0.30
5. Strikaðarpappírsbækurhanda
mjólkurbúum .... 2.00 til 3.00
Búfjársýningir)
sem haldin var hér í sambandi við
Raektunarfélagsfund Norðurlands fór
að öllu leyti vel fram, en æskilegt
hefði verið að hluttaka bænda hefði
verið meiri, en raun varð á. Einkum
var sauðféð fátt, en það reyndar af
mjög eðlilegum orsökum, tíminn ekki
heppilegur til þess að sýna sauðfé.
Fyrir hross fekk Jónas Jónasson á
Stórhamri I. verðlaun fyrir rauðan
graðhest 3 vetra; hæð 53 '/2 þuml.
ummál 59 þ. og Pétur Þorgrímsson
á Akureyri fyrir rauðan fola 2. vetra;
hæð 51 þuml. ummál 57 þ.
2. verðlaun fyrir hross fengu Magnús
Sigurðsson á Grund Sigurgeir Sigurðs-
son á Öngulsstöðum, Þorl. Jónsson í
Grýtu og Jónas Jónasson á Stórhamri.
Fyrir nautgripi fengu 1. verðlaun
Stefán Stefánsson á Möðruvöllum fyr-
ir naut, en Guðmundur Ólafsson á
Eyrarlandi fyrir kú.
2. verðlaun fengu Magnús Sigurðsson
á Grund, Guðmundur á Asláksstöðum,
Sigurgeir í Lögmannshlíð, Sigurgeir
á Öngulsstöðum og Magnús Kristjáns-
kaupm.
Fyrir sauðfé fengu 1. verðlaun
Tryggvi Guðmundsson á Sílistöðum
og Sigurgeir Sigurðsson á Önguls-
stöðum.
2. verðlaun fengu Stefán Jónsson á
Munkaþverá og Sigurgeir Sigurðsson
á Öngulsstöðum.
\
Mjólkurduft.
Ekki er það óhugsandi að nýleg upp-
fundning, sem gerir auðvelt að flytja ó-
skemda mjólk langar leiðir, fái þýðingu
fyrir oss íslendinga. Með einskonar áhöld-
um (Just Hatmakersvél) hefir það tekist að
breyta mjólkinni í gulleitt, þunt, duft sem
geyma má cndalaust óskemt en breyta aft-
ur í góða mjólk með því að blanda vatni
saman við það. Mjólk, sem þannig er bú-
in til úr mjólkurdufti er að öllu leyti eins
og ný, óskemd mjólk, bragðið nákvæmlega
eins og útlit alt. Að eins hefir slík mjólk
þann mikla kost fram yfir almenna mjólk
að engar lifandi sóttkveykjur finst í henni
Þær drepast allar um leið og mjólkin er
gerð að dufti. aðferðin er innifalin í því
aðallega að mjólkin streymir ofan á stóra
járnsívalninga sem eru hitaðir með gufu
svo að vatnið gufar óðara upp, en mjólk-
urduftið sem eftir situr skefst jafnharðan
utan af sívalningnum og fellur ofan í kassa
við hliðina á honum. Duftið er síðan sent
í loftþéttum málmdósum. Mjólk þessi hef-
ir gefist ágætlega til þess að gefa börnum,
er ólíku handhægari í kaupum og sölum
en almenn mjólk. Auk þessa geymist hún
endalaust, þolir að sendast heimsendanna
á milli og er heilnæmari.
Hver veit nema rjómabú vor stæðu sig
að framleiða mjólkurduft í stað smjörs?
X
Veðurathuganir
4 Möðruvöllum í Hörgárdal. Eftir Sigtr. þorsteinsson
1905. Maí. Um miðjan dag (kl. 2). Minstur h.1 (C) á sólar-j hringnum.j
O — J3e j Hiti (C.) '< a *o *p w 1 S 03 1 8 1 co Úrkoma
Fd. 18. 76.9 10.5 0 9 0.6
Fd. 19. 77.5 8.4 0 10 Þ 6.4
Ld. 20. 77.2 10.o 0 8 4.5
Sd. 21. 77.6 11.7 0 2 4.o
Md.22. 76.8 5.o N 1 10 ÞR 3.9
Þd. 23. 76.8 4.7 N 1 2 — 2.0
Md.24. 76.6 2.i N 1 8 s -r- 2.6
Fd.25. 76.6 6.4 0 10 ■4- 2.2
Fd. 26. 76.3 4.8 0 10 - 1.0
Ld.27. 75.6 11.0 0 10 R — 3.5
Sd. 28. 74.8 10.6 0 10 4.o
Md.29. 74.7 7.o N 1 10 2.o
Þd.30. 75.4 3.6 NV 2 10 0.5
Md.31' 75.8 10.6 0 0 0.5
0. P. Monrad
sá er byrjar í kvöld fyrirlestra sína
hér í bænum, er í ætt við D. G. Mon-
rad, biskupinn og stjórnskörunginn
fræga í Danmörku, en sjálfur er hann
sonur Monrads þess, er var háskóla-
kennara í heimspeki í Krietjaníu og
dáinn er fyrir nokkurum árum. Cally
Monrad heitir dóttir O. P. Monrads
og er talin með merkustu söngkonum
á Norðurlöndum.
Bæjarbruni.
Bærin Víðirnes í Hjaltadal brann
til kaldra kola aðfaranóttina 16. þ. m.
Mannbjörg hafði orðið, en annars litlu
orðið bjargað.
Sigurjón Jónsson
héraðslæknir á Grenivík og frú hans
komu að vestan nú með Skálholti og
og hafði skipið flutt þau til Greni-
víkur.
Hafís
segir Skálholt við Horn og hatði
skipið tafist eitthvað við hann. Þykir
ekki full vissa fyrir að Vesta komist
óhindruð vestanlands til Reykjavíkur.
Gróðrarsföðin á Akureyri.
Hún er nú að skrýðast vorblóma
sínum, hin hreinlegasta og þrifaleg-
asta eins og ætíð áður. 300 piöntur
hafa verið fengnar frá henni á þessu
vori, og sendar út um land.
Mislingabanninu
í Reykjavík átti að létta af 7. þ. m.
Skip og gesfir.
»Vesta«, »Fríðþjófur«, »Kong Inge«,
»EgiIl«, »Hólar« og Skálholt, komu öll
í þessari viku hingað til bæjarins, og
höfðu fjölda farþegja. Af bæjarbúum, sem
heim komu, skulum vér nefna: síra Matt-
hías Jochumsson, Ólaf Eyólfsson kaupm.
°g Sigurð Sigurðsson bókbindara, (komu
báðir af stórstúkuþingi). Frá Kaupmanna-
höfn komu þeir: stórkaupmaður Sörensen
með frú sinni og Chr. Havsteen er dvelja
hér báðir í sumar í verzlunarerindum, og
Sigurður Guðmundsson stud. mag. frá
Mjóadal.
Af gestum, sem verið hafa J bænum,
skulum vér nefna: alþingismennina síra
Einar Þórðarson, Guttorm Vigfússon, síra
Arna Jónsson og Pétur Jónsson. Enn frem-
ur prestana Sigurð Sivertsen á Hofi, Bjarna
Þorsteinsson á Siglufirði, Hálfdán Guðjóns-
son Breiðabólstað, Björn Blöndal Hvammi,
auk ýmsra presta úr nágrenninu.
Með »Vesta« fóru héðan til Reykja-
víkur alþingismennirnir bæjarfógeti Guð-
laugur Guðmundsson, Stefán Stefánsson á
Möðruvöllum og Magnús Kristjánsson, frú
A. Stephensen, frk. M. Stephensen, O.
Tulinius kaupmaður og frú hans.
Mannaláf.
Orímur bóndi Pórarinsson í Garði
í Kelduhverfi varð bráðdauður fyrir
nokkurum tíma. — »Hann var vel
greindur maður að eðlisfari og ein-
kennilegur eins og flestir af þeirri
ætt (Víkingavatnsætt), fljúgandi hag-
mæltur, svo að hann kvað dýrar vís-
ur nálega af munni fram, þegar hann
var ölhreifur. Mjög var hann við það
heygarðshornið um dagana, var og
veitingamaður í Vopnafirði eittsinn
nokkur ár. Börn hans eru uppkom-
inn.«
Helga Björnsdóttir á Böggverstöðum, kona
Þorsteins Baldvinssonar þar, andaðist á 2.
í hvítasunnu. Hafði Iegið fri því í marz-
mánuði. Hún var einkar myndarleg kona
og mjög vel látinn af öllum.
Ounnlaugur Jónsson á Böggversstaða-
gerði í Svarfaðardal andaðist á hvítasunnu-
dag. Hann var vaskleikamaður hinn mesti
en hafði verið sjúkur (holdsveikur) nú hin
síðari ár.
Nýlega er dáinn hér á sjúkrahúsinu,
Sigurður Jóhannsson bóndi á Selá á Ár-
skógsströnd af innvortis meinsemd. Hafði
verið farinn að heilsu hin síðari ár. Hann
var hinn mesti atorku- og dugnaðarmað-
ur og góður drengur.
ATHUGIÐ.
Áður en þér kaupið ykkur motora í bát-
ana ykkar, þá leitið yður upplýsinga um
hver motorsort sé bezt. Slæmur motor er
verri en vond kona. Skrifið til ísafjarðar þar
sem bezt reynsla er komin lyrir motorunum,
ísfirðiagar munu geta sagt yður hver motor
þeim hafi reynst bezt af þeim þremur teg-
undum, er þeir nota, s. s. „Alpha", „Dan"
og Möllerup.
Alpha-motor er í Onsö hans Hansens í
Krossanesi, Alpha er dæmdur í Norsk Fiske-
tidende, rannsakið þann dóm. Alpha hefir
hvervetna fengið sama dóm.
Alpha-motorinn er beztur.
Aðalumboðsmaður fyrir Eyja- Siglu- og
Skagafjörð er
Ó. G. Eyjólfsson á Akureyri.
Sjúkir og heilbrigðir
eiga daglega að neyta hins ekta KINA-
LÍFS-ELIXÍR frá Waldemar Petersen,
Frederikshavn — Kobenhavn.
Öll efni hans eru nytsamleg fyrir
heilbrigðina og hann styrkir alla starf-
semi líkamans og heldur henni í lagi.
Menn, sem sérstaka þekking hafa á
iyfinu og eins þeir, sem neyta þess,
láta í ljós afdráttarlausa viðurkenning
þess, hve ágætt það sé.
Ekki er unt að gera alþýðu manna
kunnugt í blöðunum nema lítið af þeim
vottorðum, sem verksmsðjueigandanum
eru send daglega.
EKTA KÍNA-LÍFS-ELIXÍR. Á eink-
unarmiðanutn á að vera vörumerkið:
Kfnverji með glas f hendi og með
nafn verksmiðjueigandans: Waldimar
Petersen, Friðrekshavn, Kjöbenhavn,
og sömuleiðis innsiglið í grænu
lakki á flöskustútnum. Fæst hvarvetna
fyrir 2 kr. flaskan.
Kvennaskóli Eyfirðinga á Akureyri
- mmmtmmmmmm
byrjar næsta kennsluár þann 1. okóber 1905.
Heimavist í skólanum geta 20 utanbæjarstúlkur fengið, en þær verða að
leggja sér til sængurföt. - Til þess er ætlast, að þær hafi matreiðslu í
félagi og skifti með sér innanhússstörfuin og matreiðslu undir tilsögn
bústýru, er kenni þeim jafnhliða almennustu hússtjórnarstörf.
Umsóknir um skólavist sendist nefndinni fyrir 15. ág. þ. á.
Bústýran fær 1 herbergi til íbúðar og 250 kr. í laun fyrir skólaárið. -
Umsóknir um það starf sendist nefndinni fyrfr 1. seft. þetta ár.
Akureyri, 18. júní 1905.
Suðl. Suðmundsson.
Xr> N Benjaminsson. Xi'istján Jónsson.