Norðurland - 01.07.1905, Qupperneq 1
NORÐURLAND.
Ritstjóri: Sigurður Hjörleifsson, læknir.
42. blað.
Akureyri, 1. júlí 1905.
IV. ár.
Hér með kunngerist ætt-
ingjum og vinum, að föður-
bróðir minn, Magnús Jóns-
son úrsmiður andaðis 24.
júní s. 1. Jarðarförin fer fram
föstudaginn 7. júlí kl. 12 á
hádegi frá heimili hins látna.
Hólinfríður Jónsdóttir.
||M ...............
Prestafundur á Akureyri.
Árið 1905, föstudaginn 23. júní, var fund-
ur presta í hinu forna Hólastifti settur og
haldinn á Akureyri. Hófst hann með guðs-
þjónustugerð í kirkjunni og prédikaði síra
I-Iálfdán Guðjónsson.
Þessir prestar mættu á fundinum:
Úr Húnavatnssýslu: Síra Hálfdán Guðjónss.
— Skagafjarðarsýslu: SíraBjörn L. Blöndal.
— Eyjafjarðarsýslu: Síra Bjarni Þorsteinss.
— — — StefánKristinsson.
— — — Geir Sæmundsson.
— — — Jakob Björnsson.
— Þingeyjarsýslu: Síra Björn Björnsson.
— — — HelgiHjálmarsson.
— Norður-Múlasýslu: Síra Sig. P. Sívertsen.
Þessi síðasttaldi fundarmaður var í einu
hljóði tekinn inn í félagið eftir ósk hans.
Forseti félagsins, síra Zophonías Plall-
dórsson var ekki mættur á fundinum.
Gekst því varaforseti, síra Hálfdán Guð-
jónsson fyrir kosningu fundarstjóra og
var kosinn síra Geir Sæmundsson.
Skrifarar voru kosnir, síra Bjarni Þor-
steinsson og síra Björn L. Blöndal.
Þessi mál vonu tekin til meðferðar á
fundinum:
1. Hversvegna vitna eg um Krist? Frum-
mælandi í því máli var síra Stefán Krist-
insson á Völlum. Gerðu fundarmenn hinn
bezta róm að máli hans. Tóku margir þátt
í umræðunum, og voru frummælanda í
öllum atriðum gersamlega samdóma.
2. Predikun utan kirkna. Frummælandi í
því máli var síra Sig. P. Sívertsen. Taldi
haun nauðsynlegt, að prestar prédikuðu
fagnaðarerindið víðar en í kirkjunum, og
mætti gera það á þrennan hátt. t. d. með
því að flytja guðsþjónustur í afskektum
hlutum sóknanna, eða meðal þess fólks,
sem á örðugt með að sækja kirkju, með
kristilegu samtali á hinum einstöku heim-
ilum, einkum í sambandi við húsvitjanir,
eða með viðtali við einstaka menn.
3. Þá flutti síra Björn Björnsson í Lauf-
ási alllangt erindi um alvöruleysi og áhuga-
leysi í trúarejnum. Veik hann að ýmsu, er
honum þótti valda þessu alvöruleysi og
þessum kulda, og mintist á margt, er af-
laga færi og lagfæra þyrfti, bæði að því
er snerti kristindómsfræðslu barna, um-
ferðarkennara, húslestra og húslestrarbæk-
ur og fleira. Þökkuðu fundarmenn honum
erindi þetta, og spunnust út af því tölu-
verðar umræður. Sérstaklega voru allir
fundarmenn sammála um það, að tilfinn-
anlegur skortur væri á góðri kvöldlestrar-
bók hjá oss, og var í því mál tekin á-
kvörðun til framkvæmdar innan félags, og
hún falin þéim síra Zophoníasi Halldórs-
syni í Viðvík, síra Birni Jónssyni á Mikla-
bæ og síra Stefáni Kristinssyni á Völlum.
4. Þá talaði síra Sigurður P. Sívertsen
nokkur orð um sjá\f-kommunion presta, eða
þann sið, sem tíðkast í Svíþjóð og víðar,
að prestar útdeili sjálfum sér altarissakra-
mentinu. Spunnust út af því töluverðar
umræður einkum um orsakirnar til hinnar
miklu fækkunar altarisgesta hjá oss, og
um helztu ráðin til að bæta úr henni.
I sambandi við þetta áleit fundurinn
æskilegt, þar sem því yrði viðkomið, að
kirkjurnar fengju kaleika líka þeim, sem
tíðkast í útlöndum og sem engin sóttnæm-
ishætta stafar af.
5. Þá innleiddi síra Hálfdán Guðjónsson
umræður um kristindóminn og bókmentir
síðustu tíma hér á landi; töluverðar um-
ræður urðu um málið, og töldu allir þeir,
er töluðu, það nauðsynlegt, að prestar
gerðu sitt til að vara söfnuði sína, eink-
um ungmennin, við þeim bókum og blöð-
um, sem væru andvígkristindóminum, eða
gætu haft siðspillandi áhrif, en jafnframt
benda söfnuðum sínum á þær bækur og
rit, sem búast má við að hafi bætandi á-
hrrf á hugarfar manna og siðferði og stuðla
að útbreiðslu þeirra, en hefta útbreiðslu
hinna fyrst töldu.
Þá er hér var komið var dagur að
kveldi kominn og fundinum því frestað
til næsta dags.
6. Þá mætti past. emer. Síra Matthías
Jochumsson á fundinum og skýrði fund-
armönnum með mörgum vel völdum orð-
um frá bók nokkurri: »Afhandlinger om
Religions Filosofi* eftir franskan höfund
Auguste Sabatiéré, og sem nú er komin
út á sænsku (og jafnvel á dönsku). Skýrði
hann frá höfuðinntaki hennar og hvatti
fundarmenn til þess að eignast hana og
lesa.
7. Þá hóf síra Sigurður P. Sívertsen
umræður um lestur heilagrar ritningar.
Kvað hann þess hina mestu þörf, að
prestar stuðluðu að því eftir mætti, að
heilög ritning væri meira lesin og betur
lesin í söfnuðunum, ekki að eins af börn-
um og unglingum, heldur sér í Iagi af
fullorðnu fólki, og að prestarnir leiðbeindu
fólkinu, sem mest þeir mættu, við slíkan
lestur, og við réttan skilning hinna ein-
stöku rita. Spunnust nokkurar umræður
út af þessu efni, og voru þeir, sem töl-
uðu, frummælanda sammála um nauðsyn
þessa máls, þótt allir könnuðust við erf-
iðleikana við það, að koma því í fram-
kvæmd.
Undir umræðunum kom fram óánægja
fundarmanna yfir því, hve erfitt, eða jafn-
vel ómögulegt, væri nú orðið að fá bibh'-
una keypta, og óskaði fundurinn, að kirkju-
stjórnin reyndi að ráða bót á því hið
fyrsta.
8. Skólamál. Frummælandi í því máli
var síra Sig. P Sívertsen. Fór hann nokk-
urum orðum um hina lægri skóla og um
alþýðumcntunina yfir höfuð, og taldi það
höfuðatriði, að öll mentun alþýðunnar væri
bygð á kristilegum grundvelli. Bæði hann
og aðrir þeir, er töluðu í málinu, voru
því hlyntir, að hætt væri sem fyrst hinni
ófullkomnu umferðarkenslu, en betri og
fullkomnari skólar teknir upp í hennar
stað, en voru hinsvegar á því, að alls-
endis ófært væri, að ætla einum manni
að hafa alt að því 40 börn til kenslu og
umsjónar í einum og sama tíma.
9. Þá talaði síra Jakob Björnsson nokk-
ur orð um kristindómsfrœðslu ungmenna.
Meðal annars taldi hann æskilegt, að
barnalærdómurinn væri kendur þannig,
að hver einstök grein og hver einstök
Iexía væri sem bezt útskýrð fyrir barn-
inu með samtali áður en barnið væri
látið lesa hana. Engin ályktun var gerð
í þessu efni sérstaklega, en töluverðar
umræður urðu um málið.
10. Þá innleiddi síra Helgi Hjálmars-
son umræður um það, hvort utanfarir séu
prestum heppilegar, og pá til hverra landa.
Urðu miklar umræður um þetta mál, og
að þeim Ioknum, samþyktu fundarmenn
í einu hljóði svohljóðandi ályktun:
»Fundurinn telur það vafalaust til efl-
ingar kristilegu kirkjulx'fi í landinu, að
efnilegir og áhugasamir prestar fengju
styrk af Iandsfé til að fara til útlanda,
til þess þar að kynna sér þær aðferðir,
sem þar eru notaðar kristindóminum til
eflingar, og þær stofnanir, sem starfa í
sömu átt. Fé þetta ætti að vera undir
umráðum kirkjustjórnarinnar, og veitast
eftir tillögum prestafélagsins í hinu forna
Hólastifti og Synodusar.c
P'ormanni félagsins var falið að bera
þessa beiðni fram fyrir alþingi.
11. Síra Sigurður P. Sívertsen hóf um-
ræður um hitun kirkna. Urðu töluverðar
umræður um það mál og hölluðust ræður
fundarmanna eindregið að því, að það
væri mjög æskilegt og óumflýjanlegt, þar
sem því verður við komið, að ofnar séu
settir í kirkjurnar sem fyrst, og muni það
mikið auka kirkjurækni fólks að vetrinum,
auk þess sem ofnleysið getur verið hættu-
legt heilsu manna.
12. Síra Björn L. Blöndal innleiddi um-
ræðu um lestrarfélagsskap presta. innan
prestafélagsins. Fundarmenn álitu slíkan
félagsskap æskilegan, en könnuðust jafn-
framt við, að reynslan hefði sýnt, að örð-
ugt væri að koma honum á, og enn örð-
ugra að halda honum við. Taldi fundur-
inn æskilegast, að prestar settu sig sem
bezt í samband við amtsbókasafnið á Ak-
ureyri, með pantanir og útlán þeirra bóka,
er þeir helzt æskja eftir að fá til lesturs.
Þá var ákveðið að halda næsta fund
prestafélagsins að sumri á Sauðárkrók, en
fundartími ekki nánar tiltekinn. Prófastur
síra Zophonías Halldórsson í Viðvík var
í einu hljóði endurkosinn formaður félags-
ins, og sira Hálfdán Guðjónsson varafor-
maður.
Viðstaddir félagsmenn borguðu árstil-
lög sín, og einnig var borgað árstillag
fyrir síra Davíð Guðmundsson á Hofi og
síra Sigtrygg Guðlaugsson á Þóroddsstað.
Að síðustu kvaddi fundarstjóri síra Geir
Sæmundsson fundarmenn með nokkurum
vel völdum og hjartnæmum orðum, og
sagði svo
fundi slitið.
Geir Sœmundsson. B. Þorsteinsson.
Björn L Blöndal.
«
JMoregurogSvíþjóð.
Úaðan eru nú komnar dálitlar
fréttir, er ná til 24. júní.
Þingi Svía hafði verið stefnt saman
til aukaþings og hafði þing þetta sam-
þykt áskorun til stjórnarinnar og kon-
ungsins, um að leggja fyrir næsta
reglulegt þing tillögu um sam-
bandsmál Svía og Norðmanna.
Af þessu er auðsætt að þing Svía
vill ekki að stofnað sé til ófriðar við
Norðmenn að svo stöddu, og von-
andi er að ekkert ilt búi hér undir
t. d. það að Svíar þykist ekki við-
búnir að svo stöddu, en kjósi að
draga málið um sinn.
Jafnframt fréttist önnur saga, sem
þó er óvíst hvað satt er í:
Um það leyti sem Óskar kon-
ungur neitaði að samþykkja konsúla-
lög Svía var sonur hans, krónprinsinn, í
Berlínarborg. Átti hann að hafa leit-
að ráða Vilhjálms keisara um það
hvað konungur ætti að gera, hvort
hann ætti að samþykkja iögin. Vil-
hjálmur keisari á að hafa sagt að
það ætti hann að gera fyrir hvern
mun. Hafði þá krónprinsinn sent
föður sínum hraðfrétt um þetta, en
þegar sú hraðfrétt kom, var kon-
ungur búinn að neita um staðfest-
ingu sína á lögunum.
X
*
lCtlendar fréttir.
Frá fréttaritara Norðurlands.
Kh. 18. júní.
Frakkland.
Það er helzt í frásögur færandi að
utanríkisráðherra, Delcassé, sagði af
sér 6. þ. m. Hann hefir gengt þessu
embætti síðan 1898. Hann hefir á
þeim tíma unnið margt í þarfir Frakk-
lands og kept að því að tengja Eng-
land og Frakkland vinaböndum; hann
hefir einnig komið á fót gerðarsamn-
ingum við ýms erlend ríki. Menn halda
að aðal-orsökin til þess að hann vík-
ur úr sæti sínu sé framkoma hans í
Marokkómálinu og láta frönsk blöð
illa yfir afskiftum hans f því máli,
það er líka skoðun manna, að ósam-
lyndi það, sem átt hefir sér stað milli
hans og forsætisráðherrans Rouvier
hafi flýtt fyrir brottför hans.
Rouvier gegnir utanríkisráðherra -
störfum í stað Delcassé.
Balkanskagi.
Um þessar mundir kvað vera ó-
eirðasamt á Balkanskaga.
Menn segja, að Tyrkir og Svart-
fellingar hafi barist á takmörkum Tyrk-
lands og Montenegró (Svartfjallalands)
síðan 4. júní.
Baráttan um Norðurpólinn.
Amerískur maður Robert E. Peary
að nafni leggur af stað í Norðurpóls-
leiðangur 4. júlí í sumar. Maður þessi
er ingeniör við sjóherinn og hefir