Norðurland - 29.07.1905, Qupperneq 1
Ritstjóri: Sigurður Hjörleifsson, læknir.
46. blað.
Akureyri, 29. júlí 1905.
IV. ár.
JMorðurland
Háttvirtir kaupendur blaðsins
áminnast um að síðasti gjald-
dagi 4. árs var
fyrir miðjan júlí.
JCýjar bækur.
i.
Qvo vadis? (hvert ætlarðu),
saga frá tímum Nerós.
Eftir Henryk Sienkiewicz.
Þorsteinn Gíslason þýddi.
Reykjavík. 1905. 520 bls.
80. 3.50 kr.
Eg hefi oft lesið þessa sögu áður
enn hún kom út á íslenzku í vor, og
alténd endað með því að óska þess
að við ættum hana á okkar máli. Og
nú er svo komið — og meir að segja,
útgáfan er vönduð að prentun og
pappír, og þýðingin er ágæt, og er
það meira en sagt verður um ýmislegt,
sem út kemur af því tagi. Sagan er
frumrituð á pólsku nálægt 1895, en
að 2—3 árum liðnum var búið að
þýða hana á 22 tungumál, og margar
þýðingar eru til, t. d. á þýzku, og
margar útgáfur af hverri. Höfundur-
inn er annar af tveimur skáldsagna-
höfundum, sem nú eru lesnir jafnt
um heim allan. Hinn er enskur og heit-
ir Rudyard Kipling.
Sagan fer fram á dögum Neróns
keisara, og gerist öll í Róm; aðalefn-
ið er að lýsa baráttu þeirri er boðun
kristindómsins kom af stað í hugum
manna og hjörtum, og því, hve mik-
ið sigurmagn var fólgið í kristninni,
hvernig hin heiðna, rómverska lífs-
skoðun annaðhvort varð að bogna eða
brotna fyrir þessu ofurvaldi að aust-
an, sem sigraði hjörtu mannanna. Post-
ularnir Pétur og Páll koma mikið við
söguna. Þar eru meistaralegar lýsing-
ar á því, þegar Neró brendi Róma-
borg, til þess að geta gert sér Tróju-
brennu í hugarlund, og svo á hinum
geigvænlegu leikum í pallaleikhúsinu
mikla,þarsem kristnum mönnum var snar-
að fyrir villidýr, og leikgleðin var fólg-
in í blóði og dauða. En allar þessar ógnir
sigrar trúarkraftur hinna fyrstu kristnu
manna, og jafnvel varmenskuna og þý-
lyndið sigrar hann í Kíló, óþokkanum
í sögunni.
II.
Æfintýrí og sögur eftir H. C.
Andersen. Stgr. Thorsteinsson
þýddi. Reykjavík. 1904. 320
bls. 80. 3.00 kr.
Einstakar af sögnm H. C. Ander-
sens hafa við og við sézt á íslenzku,
en hér er nú komið út vandað úrval
af þeim í ágætri þýðingu. Sögurnar
eru 27, og eru prýddar 30 góðum
myndum. Ennfremur fylgir bókinni góð
andlitsmynd höfundarins og fallegt æfi-
ágrip eftir þýðandann. Æfintýri Ander-
sens eru fræg um heim allan. Þau eru
svo snildarlega samin, að þau eru yndi
og eftirlæti barnanna, og gefa þó þeim
fullorðu nóg umhugsunarefni. Ander-
sen er altaf barnslegur, og talar við
börnin eins og barn, það skilja þau,
og elska sögurnar hans ; en hann
hefir eigi að síður lag á að fela stór
og djúp siðferðisleg sannindi f þeim,
sem fullorðnum er ætlað að finna.
Enga bók veit eg hentugri enn þá á
íslenzku fyrir lestrarbók í hærri bekkj-
um barnaskóla, að lesa þau þar við
og við, ef kennarinn útskýrir efnið vel
með börnunum um leið. Bókin er og
sjálfkjörin verðlaunabók á barnaskól-
um, ef hún fengist .1' snotru bandi til
þess.
Enga skemtibók geta foreldrar gef-
ið barni sínu á 10.—12. ári betri en
Andersens æfintýri. En unglingi eftir
fermingu mundi eg hiklaust velja Qvo
vadis, ef eg ætti að velja honum fal-
lega og góða skemtisögu að gjöf.
III.
Textaútgáfu af Krákumálum, og rit-
gerð um þau hefir próf. Finnur Jóns-
son nýlega gefið út í ritum hins danska
vísindafélags. Niðurstaða útgefanda er
sú, að kvæðið sé ekki eldra en frá
því um 1200, og sé orkt hér á ís-
Iandi. Virðist hann færa góð og gild
rök að þessari skoðun sinni.
/•/•
\
ÍCtlendar fréttir.
Frá fréttaritara Norðurlands.
Kaupmannahöfn 13/7 ’05.
Danmörk.
Hér í landi hafa verið almenn verk-
föll meðal vefara. Þeir krefjast hærri
launa, en vinnuveitendur vilja ekki upp-
fylla kröfur vinnumanna sinna.
Hroðalegt slys vildi til 26. þ. m.
skamt héðan frá borginni.
Skólaskipið >Georg Stage« kom frá
átokkhólmi aðfaranótt 26. júní, á leið
hingað til Hafnar. Þegar skipið var
komið í svo kallað HoIIendingasund,
skamt frá Amager, þá sá skipstjórinn
gufuskip sigla beint á móti >Georg
Stage«, sem er seglskip og átti því
gufuskipið að víkja úr vegi, en gerði
ei fyr en um seinan. Það sigldi á
»Georg Stage« miðjan og klauf hann
í tvent. Þá ruddist grængolandi sjór-
inn inn og eftir 11/2 mínútu var skipið
sokkið.
A því voru 80 manns, fiest ung hers-
höfðingjaefni. Margir voru háttaðir og
sukku því með skipinu; 22 druknuðu
og hafa kafarar að eins getað fundið
14 h'k, hin mun straumurinn, sem er
mjög stríður hér f sundinu, hafa borið
burt. Sænskt skip, sem kom að í sömu
svifum sem skipin sigldust á, bjargaði
flestum þeim er af komust.
Gufuskipið sem sigldi á »Georg
Stage« er enskt vöruskip og kallast
»Ancona«; það beið því nær ekkert
tjón. Nú bíður það hér dóms síns.
Slys þetta hefir vakið hér almenna
hrygð og hluttekningu.
Hér í borginni hefir verið haldin
stór dýrasýning. Sýning þéssi stóð yfir
frá 6. þ. m. til 9. Það er í fyrsta
skifti að þessháttar sýning hefir verið
haldin hér í Höfn. Hér hefir því verið
saman kominn múgur og margmenni,
bændur og búalið utan af landinu. í
sýningu þessari tóku helzt þátt íbú-
arnir á Sjálandi. Þar mátti sjá margan
fallegan grip; þar voru sýnd allskon-
ar húsdýr og þar að auki ýms verk-
færi og iðnaður sem að landbúnaði
Iýtur.
A sýningu þessari voru sýndir nokk-
urir gripir frá Svíþjóð, einkar fallegir
hestar og góðar mjólkurkýr.
Einum af ráðunautum búnaðarfélags-
ins íslenzka, Guðjóni Guðmundssyni,
hafði hugkvæmst það snjallræði að
koma hingað með nokkura vel valda
íslenzka hesta. Hestar þeir sem Guð-
jón sýndi voru 21 að tölu. A þeim
var riðin veðreið síðasta daginn og
þótti mönnum það góð skemtun. Dan-
ir dást að því hvað íslenzku hestarnir
eru snotrir, þótt smáir séu í saman-
burði við dönsku hestana, eins og
dönsku nautin eru líka helmingi stærri
en íslenzk naut.
Menn töluðu mikið um það hvað
hestarnir gátu hlaupið mikið. Hestar
þessir voru seldir á uppboði; einn fór
fyrir 420 kr. fallegur rauður skeiðhest-
ur úr Rvík hinir allir voru seldir fyrir
minna verð; lægsta verð var hundrað
áttatíu og fimm krónur.
Nokkurir landar hafa tekið próf við
háskólann hér í júní, þar á meðal frök-
en Elinborg Jakobssen, sem tók fyrri-
hluta læknaprófs og hlaut þriðju einkunn.
Ari Jónsson hefir tekið próf í lögum
með annari einkunn.
Þrfr nemendur hafa tekið fyrrihluta
lagaprófs, eftir nýja laginu:
Bogi Brynjólfsson með fyrstu eink-
unn (50 stig).
Guðm. H. L. Hannesson með fyrstu
einkunn (52 stig).
Vigfús Einarsson einnig með fyrstu
einkunn (49 stig).
Heimspekispróf hefir Oddur Her-
mannsson tekið með ágætiseinkunn.
Noregur og SvíþjóÖ.
Óskar Svíakongur hefir kallað sam-
an meðlimi ríkisþingsins til aukaþings,
til þess að fjalla um deilurnar milli
þessara tveggja ríkja.
Konungur setti þetta aukaþing í
Stokkhólmi 21 þ. m. Þingsetningin fór
fram með hinni mestu viðhöfn og var
múgur og margmenni þar saman komið.
Konungi sárnar mjög tiltæki Norð-
manna; hann gat naumast tára bundist
er hann hélt þingsetningarræðuna og
mintist á aðskilnað Noregs og Sví-
þjóðar; hann flutti samt tölu sfna með
skörungsskap. Af ræðu hans að dæma
og frumvarpi stjórnarinnar, þá mun
Svíastjórn samþykkja gjörðir Norð-
manna.
í stjórnarfrumvapinu er farið fram
á, að stjórninni yrði falið að útkljá
málið við Noreg, en það hefir mætt
töluverðri mótstöðu á ríkisþinginu.
Menn vita enn þá ekki hver endirinn
verður.
Óskar konungur hefir látið í ljós,
að hann mundi ekki fallast á uppá-
stungur Norðmanna um það, að einn
af sonum hans verði Noregskonungur,
en hann hefir jafnframt getið þess, að
hann mundi beygja sig undir vilja
ríkisþingsins í því máli.
Nú bíða menn óþreyjufullir eftit úr-
slitunum, hvort Noregur verði konungs-
rfki eða lýðveldi. Það er mælt að stór-
veldin, að Þýzkalandi undanskildu, reyni
að milda skap Óskars konungs og fá
hann til þess að viðurkenna aðskilnað
Noregs og Svíþjóðar og taka við til-
boðinu um, að einn af hans sonum
verði konungur Norðmanna, sem allra
fyrst; því að þau óttast ella að Þýzka-
Iandskeisari muni trana einhverjum
sinna sona fram.
Sagt er að Norðmenn hafi augastað
á Carli Danaprins sem konungsefni, ef
Óskar neitar tilboðinu.
Ýms afturhaldsblöð í Svíþjóð láta
illa yfir afskiftum stjórnarinnar í þessu
máli og krefjast jafnvel að Noregur
verði kúgaður með vopnum. Þau segja
að þau viti ekki til hvers ríkið kosti
herflota, ef hann eigi ekki að vera not-
aður til þess að reka réttar ríkisins.
Socialistar f Svíþjóð hafa haldið fjöl-
menna samkomu, þar sem þeir hafa
samþykt áskoranir til aukaþingsins og
eru þær þess efnis, að deilurnar við
Noreg verði til lykta leiddar í friði og
bróðerni, þar eð önnur leið væri í
bága við menningu þessara beggja
þjóða og brot á móti ættjörðunni.
Marokkomálið.
Soldáninn í Marokko kom fram með
þá tillögu fyrir nokkuru að efnt yrði
til alþjóðarráðstefnu til þess að ræða
um og skera úr þeim deiluatriðum,
sem þeim báðum þjóðum, er hlut áttu
að máli, bar á milli.
Frakkar voru í fyrstu mjög mótfallnir
þessari uppástungu, en Þjóðverjar sóttu
málið fast og nú skýra síðustu blöð
svo frá, að samningar séu komnir á
milli þessara tveggja ríkja, og alþjóðar-
ráðstefna verði haldin innan skamms til
þess að fjalla um Marokkomálið, sem
hefir vakið mikla eftirtekt manna, um
nokkura hríð, út um heiminn.
Frakkland.
Hinn nýi fjármálaráðherra Frakka er
Pierre Merlow, sem áður var fyrsti skrif-
ari í ráðaneytinu. Hann var upphaflega
læknir og um nokkurn tíma borgmeist-
ari í Jonne. Hann er 58 ára að aldri
og er radikal-sócialisti.
Það hefir vakið mikla eftirtekt, að
stolið hefir verið ýmsum þýðingarmikl-
um skjölum á skrifstofu herstjórnar-
ráðaneytisins.
Þessi skjöl höfðu að geyma ýms
leynileg áform um liðsauka (á landa-
mærum Þýzkalands og Frakklands).
Skjalasafns þess, sem þessi skjöl voru
í, hefir ætíð verið gætt sem gulls.
Einn af vörðunum, Segent Reiprand,