Norðurland - 07.01.1911, Qupperneq 4
Nl.
' 4
Um Einar Jónsson.
Grein í »Illusfrirfe Zeifung*.
Um Einar Jónsson, niyndhöggvara
ritar íslandsvinurinn, dr. phil, Max
Gruner í Halensee við Berlín, langa
grein og rækilega í stærsta myndablað
Þýzkalands, „Illustrirte Zeitung“. Eru
þar birtar ágætar myndir af þessum
12 verkum Einars: I. »Útilegumaður-
inn«, 2. »Forneskjan« o. fl. úr vinnu-
stofu hans, 3. »Maður og kona«, 4.
»Dagsbrún«, 5. »Skýstrókur«, 6. »Árs-
tíðirnar«, 7. »Móðir náttúra«, 8. »Hcnd
in«, 9. »Akkerið«, 10. »Kristján IX.«,
11. »Ingólfur« og 12. lágmyndin
»Frelsið«.
Grein þessi er ítarlegur æfiferill
Einars og lýsing á list hans, en eink-
um skýrðar myndir þær, sem birtar
eru. Upprunalega hafði dr. Gruner sent
blaðinu fáeinar myndir, en blaðinu leizt
þegar svo vel á þær, að það sendi
mann til Einars í Berlín til þess að
fá hjá honum myndir af öllum verkum
hans. Síðan valdi blaðið úr þessar 12.
Þess skal getið, að blaðið »Illustrirte
Zeitung« flytur eigi myndir né grein-
ar — allrasízt svo stórar sem þessa —
um útlenda listamenn og verk þeirra,
nema mennirnir séu frægir og fram-
úrskarandi. Viljum vér því óska Einari
til hamingju með þessa miklu viður-
kenningu. Nafn hans verður nú kunn-
ugt víðsvegar, því að rit þetta er les-
ið um allan heim.
(Eftir ísafold.)
X
Deilan um þá konungkjörnu.
Þær eru broslegar kenningar heima-
stjórnarblaðanna um þessar mundir,
um rétt hinna konungkjörnu til að sitja
á næsta alþingi, og sýna vel siðferðis-
hliðina á þeim mönnum, sem halda
þessum villukenningum að þjóðinni.
Ákvæði stjórnarskrárinnar um það
atriði, sem gert hefir verið að deilu-
efni, eru fyrir mínum augum svo skýr,
að þau geta ekki orðið misskilin
nema vísvitandi.
Til að sanna þessi ummæli mín, vil
eg benda á, að alstaðar þar sem stjórn-
arskráin talar um ár t. d. í 5. 7. 8.
14. 19. 25. 26. gr. og víðar, er það
almanaksárið — árið frá I. jan. til
31 des. — sem þar er átt við, nema
ef gerð er bein undantekning frá aðal-
reglunni. það er því engum vafa undir-
orpið, að kjörtímabil konungkjörinna
þingmanna nær yfir sex almanaksár, og
var þar af leiðandi útrunnið 3 i.des 1910
— nema því aðeins, að kjörbréfin sjálf
tiltaki annað sex ára tímabil. —
Á meðan heimastjórnarhöfðingjarnir
ekki sanna með kjörbréfum hinna kon-
ungkjörnu, að þau gildi tram á árið
1911, álykta eg að alt þeirra fimbul-
famb um þá konungkjörnu, hafi frá
upphafi ekkert verið annað en vísvit-
andi tilraun til þess að brjóta stjórn-
arskrána, með það eitt fyrir augum,
að bola núverandi stjórn frá völdum,
í þeirri veiku von, að þeirra flokkur
kynni að ná yfirtökunum á næsta þingi
og komast til valda.
Sennilega man þjóðin eftir þeim
leiðtogum sínum við næstu kosningar.
2/i 1911.
Bóndi.
X
BæjarstjórnarKosning.
Kosning fór hér fram á 4 tulltrúum
til bæjarstjórnar 4 þ. m. Kosninga-
viðbúnaður mun hafa verið með meira
móti. Kvenþjóðin safnaði liði til þess
að koma konu í bæjarstjórn og heima-
stjórnarmenn sendu út langt prentað
ávarp til Oddeyringa, um að kjósa
Björn Líndal. Sjö voru listarnir alls
og hlutu þessir kosningu.
Otto Tulinius konsúll . (107 atkv.)
Kristfn Eggertsdóttir
sjúkrahússtýra ( 79 —
Björn Líndal málfærslu-
maður................(74 — )
Guðmundur Olafsson
timburmeistari . . (71 — )
Næst fékk Pétur Pétursson verzlun-
arstjóri 60 atkvæði.
Greidd voru alls 472 atkvæði af á
8. hundraði á kjörskrá.
X
Úr forOabúri heimskunnar.
I Norðra er það talin sönnun fyrir
rétti konungkjörnu þingmannanna okk-
ar til þess að sitja á næsta þingi, að
búið sé að »rannsaka skipunarbréf
þeirra«. Eins og það að þeir hafi áður
átt rétt til þingsetu, sé nokkur sönn-
un fyrir því að þeir hafi rétt til að
sitja á næsta þingi.
Það er álíka viturlegt eins og ef
sagt væri um bæjarfulltrúa, að úr því
hann hefði einusinni verið kosinn í þá
stöðu, þá ætti hann þar sæti eins lengi
og honum sjálfum sýndist.
Stœkkun túnanna.
Jón H. Þorbergsson segir svo frá
f »Norðra« að túnið í Löndum í Stöðv-
arfirði hafi gefið af sér 40 hesta þeg-
ar bóndinn þar, Kristján Þorsteinsson,
tók við jörðinni, en gefi nú af sér um
3 hundruð hesta. — Þarna hefir þá
töðufallið áttfaldast eða nær því það, hjá
einum manni. — Er það nokkurt í-
hugunarefni þeim mönnum sem halda
að túnin okkar hljóti ætfð að verða
litlir skæklar kringum bæina.
Eftirlaun héraðslœkna.
Héraðslæknar þeir, er áður voru
aukalæknar, með 1000 kr. launum, hafa
sótt til stjórnarinnar um það að hún
gerði ráðstafanir til að lagfæra það
misrétti er þeir verða fyrir, er til þess
kemur að reikna eftirlaun þeirra.
Óneitanlega er hér að ræða um
mikla sanngirniskröfu, en ekki gott
um að segja hvernig stjórn og þing
líta á málið.
undirrituð finn mig til knúða
að votta öilum þeim mitt
innilegasta hjartans þakklæti,
er aðstoðuðu mig í veikindum mínum
og nauðum þeim er að mér steðjuðu,
öndvert vor og sumar 1908. Get eg
ekki bundist þess, að tilnefna sérstak-
lega herra héraðslækni Gísla Péturs-
son í Húsavík, sakir allrar þeirrar
miklu Iæknishjálpar er hann lét mér í
té, fyrir litla borgun, í minni þungu
legu, og svo fyrir hina mannúðlegu
og drengilegu framkomu hans að öðru
leyti gagnvart mér í bágindum mínum.
»Það sem þér gerðuð einum af þess-
um minstu bræðrum mínum, það hafið
þér mér gert«.
Nesi í okt. 1910.
Steinun Sigurgeirsdóttir
frá Árbót
eir sem ekki hafa að fullu
greitt skuldir sínar hér á
skrifstofunni fyrir 20. p. m.,
fá engan greiðslufrest á tollum
eða öðrum gjöldum petta ár.
Bæjarfógetinn á Akureyri 8. jan. 1911.
Guðl. Guðmundsson.
duglega fiskimenn vantar á skip
frá Patreksfirði.
Ágæt kjör boðin!
Semja má við Jón Bergsveinsson,
Oránufélagsgötu 5.
Kembing í lopa.
KLÆÐAVERKSMIDJAN Á AKUREYRI er nú aftur tekin til
starfa, og tekur pví móti HREINNI ULL og ULLARTUSKUM
til kembingar í lopa og plötur fyrir sömu borgun og áður.
Til sérkembingar í lopa eru tekin minst 5 pd. af ull.
Innan skamms verður einnig farið að spinna ýmislegt band og
byrjað að vinna allskonar dúka o. fl., er síðar verður auglýst.
Þeir, sem senda ull til kembingar, spuna eða í dúka, eru beðnir
að gæta pess að ívisttuskur eða tvistband sé eigi í ullinni, pví
pað skemmir vélarnar og pað sem vinna á úr henni.
Séu ull og tuskur sendar saman til að vinna úr, eru menn
beðnir að hafa petta sitt í hvoru lagi, og bréf á milli •' pokanum.
Vinnan verður fljótt og vel af hendi íayst.
Umboðsmenn verða teknir víðsvegar um land, og eru peir, sem
óska að taka að sér umboðsstörf fyrir félagið, beðnir að senda
skriflega umsókn til
Verksmiðjufélagsins á Akureyri.
Uppboðin
á síldveiðahúsunum verða
á Litlaskógssandi 25. jan. og
í Dældum þriðjudaginn 31. jan.
Eggert Laxdal.
Vaðla um boðsjarðir
lausar frá næstkomandi fardögum 1911.
Ytra-Gil í Hrafnagilshreppi.
’Litlu-Hámundarstaðir í Arnarneshreppi.
Sveinagarðar í Orímseyjarhreppi.
Ytri-Orenivík í sama hreppi.
Syðri-Orenivík í sama hreppi.
Umsóknarfrestur til 1. febr. þ. á.
Umboðsmaður Vaðlaumboðs, Akureyri 4. jan. 1911.
Stephán Stephensen.
Forskriv selv Deres Klœdevarer.
Direkte fra Fabrik. Stor Besparelse. Enhver kan faa tilsendt portofrit mod
Efterkrav 4 Mtr. 130 Ctm. bredt sort, blaa, brun, grön og graa ægte
farvet finulds Klœde til en elegant, solid Kjole eller Spadseredragt
for kun 10 Kr. (2/50 pr. Mtr.). Eller 31/* Mtr. 135 Ctm. bredt sort,
mörkeblaa og graanistret moderne Stof til en solid og smuk Herreklæd-
ning for kun 14 Kr. 50 0.
Er Varerne ikke efter Önske tages de tilbage.
Aarhus, Klædevœveri,
Aarhus. Danmark.
Prentsmiðja Odds Björnssonar.
/