Óðinn - 01.03.1909, Side 5

Óðinn - 01.03.1909, Side 5
Ó Ð I N N 9.'i »Island. Das Land und seine Bewohner«, og aíl- aði »ísa-eynni« nýrra vina, en meðal hinna áhuga- nrestu af þeim var barón dr. Hans von Jaden, er reyndar hafði áður litið hýrum augum lil »Fja 11 - konunnar«. Þótt lögfræðingur væri, hafði hann frá námsárunum haft lifandi áliuga á fagurfræði i Kaupmannaliöfn, og í ágúst 1899 kvæntist hann henni og hafði hana heim með sjer. Árið 1902 ferðuðust þau til íslands og fóru þá á heimleið- inni kringum landið frá Reykjavík, að norðan, alt til Eskifjarðar. í fjelagslífinu í Vínarborg þótti það eigi aðeins hin mesta nýung, er vakti forvitni, að IUi 1 Hans barón og Ásta bamnessa von Jaden á lieiinili sínu. og 1897 kom úl eftir hann allmerkilegt rit um jiýska skáldið Theodor Körner (»Th. Körner und seine Braut«). En nú snerist hugur hans að menningu íslands, bókmentum jiess og þjóðháttum, og varð hann brátt gagntekinn af ósigrandi þrá eftir því, að kynnast jiessu landi af eigin sjón. Hann ferðaðist til íslands sumarið 1897. Þegar hann sneri heim aftur, hafði eigi aðeins ást hans á íslandi orðið enn heitari en áður, heldur stóð líka hjarta hans í björtu báli, en það hafði tendr- að ein inndæl íslensk mey af góðum ættum, er hann kyntist þar á þjóðhátíð. í desember sama ár trúlofaðist hann henni, ungfrú Ástu Pjetursson, fá að kynnast íslenskri konu, heldur undruðust menn einnig fegurð, yndisjjokka, látprýði og ment- un þessarar gullhærðu Islandsdóttur. Barón von Jaden, sem er einn hinna áhugamestu í því staríi, að vekja eftirtekt á tengda-föðurlandi sínu, hefur til þessa haldið 14 fyrirlestra í Vín og í Neðra- Austurríki. Á »íslandskvöldi«, er Poestion gekst fyrir í fjelaginu fyrir aukna kvenmentun, talaði barón von Jaden um hlutdeild íslenskra kvenna í bókmentum föðurlands þeirra, og á eftir þeirri ræðu kom Ásta barónessa fram i íslenskum hátíðabún- ingi og las upp nokkur íslensk kvæði. Daginn eftir stóð í stærsta og helsta blaði Vínarborgar:

x

Óðinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.