Óðinn - 01.09.1912, Qupperneq 4

Óðinn - 01.09.1912, Qupperneq 4
44 ÓÐINN Háeyrardrápa.0 Guðmundur heitir garpurinn frægi úti á gamla Eyrar-bakka. Ef hans er kuggur kyrr í lægi, þorir enginn við Unnir makka. Vaskra formanna foringi er hann, þeirra er ýta frá Eyrar-bakka. Eins og höfðingi af þeim ber hann. Fjölmargir honum fjör sitt þakka. Helblind eru sker og hár hver boði úti fyrir Eyrar-bakka. Þegar sjó brimar er búinn voði, ef lagt er fleyi leið skakka. Það var á vetrar- vertíð einni, árdagur fagur og útlitsgóður; vermönnum þótti venju seinni Guðmundur til, að greiða róður. Hann í allar áttir starir, snýr svo breiðu baki að sandi: 1) Veturinn 1910 var verið að tala um pað, að danskur skipstjóri hefði fengið heiðurspening úr gulli frá konunginum fyrir pað, að bjarga tveimur strákhvolpum upp úr sjón- um inni á höín hjer við land, en Guðmundur gamli á Háeyri—hann fengi ekki neitt fyrir sín afreksverk. Þá var petta kveðið. Gslr. »Einráðir skuluð um ykkar farir, en jeg mun í dag drolla í landú'. Hjala vermenn: »Ei var hann bleyða, en nú er gengið garpi hraustum«. Bjart var loft og ládeyða. Skipin, tuttugu, skriðu’ úr naustum. Guðmundar eru’ ei getur viltar: A miðjum degi dimmir á Bakka;. Kallar hann þá: »Komið, piltar, verið fljótir í verstakka«. Segir liann hvast við sveina horska: »Við förum eigi færi að greiða; í dag á ekki að draga þorska; nú skal á mið til mannveiða«. Teinæringinn út hann setur. Byrstast hvítar brúnir á Ægi. Guðmundur öllum öðrum betur kann í sundum að sæta lagi. Skaint l'yrir utan sker og boða íuttugu ferjur lljóla’ á bárum, ætla sjer búinn beinan voða, fáráðar, líkt og fuglar í sárum. En þegar gamla garpinn sjá þeir renna skeið úr skerja-greipum, kviknar liugur, krafta fá þeir, óhræddir fyrir öðru en sneypum. Aldrei gerast orðmargar hetju-ræður, en hnífi jafnar: »Við Eyrar er boði, sem bleyðum farga stefnum því til Þorlákshafnar«. Segl hann þenur og sjónhending hleypir þráðbeina til Þorláksliafnar. Þa r er i stormum þrauta-lending, víkin aðdjúp og varir jafnar. Formenn tuttugu fara á eftir, eins og svani ungar fylgja, hreppa lendingu hart að kreptir. Sleppifeng varð fár-bylgja. Ef þið komið á Eyrar-bakka, kvikur er enn í karli dreyri. En leitið ekki um lága slakka. Hetjan býr á Há-eyri. Manna er hann mestur á velli, herði-breiður og brúna-þungur, kominn langt á leið til elli, sífelt þó í sinni ungur.

x

Óðinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.