Óðinn - 01.11.1912, Side 1

Óðinn - 01.11.1912, Side 1
OÐINN NÓVKMBER 1»1S. VIII. ÁR Vestur-íslenskir framamenn. iy. Sigtryggur Jónasson er einn þeirra manna, sem rnest hefur að kveðið af íslenskum landnámsmönn- um vestra. Hann er fæddur 8. febr. 1852 og er Eyfirð- ingur að uppruna, fæddur á Bakka í Öxnadal. Ólst hann að öllu leyti upp hjá foreldrum sínum fram yfir fermingaraldur, en fór eftir það til P. Haf- steins amtmanns á Möðru völlum. Naut hann þar mentunar og var við rit- arastörf á amtsskrifstof- unni. Árið 1872 fluttist liann til Vesturheims, tvítugur að aldri. Þó hann hefði ekki gengið skólaveginn heima, hafði hann náð mikilli þekk- ingu á enskri tungu og ritaði íslensku eins vel og nokkur skólagenginn maður. Frá því árið 1872, að hann kom vest- ur um haf, og til ársins 1875 átti liann lieima í ýmsum stöðum í austur- bygðum Kanada, aðal- lega í Ontaríófylki. Á þeim tíma undu íslend- ingar þar fremur illa hag sínum og var þá ráðist í að senda nefnd manna alla leið vestur til Mani- tóba, til að velja þar hæfilegra landnámssvæði fyrir landa vora þar, og aðra, er síðar kynnu að koma. Sigtryggur var einn í þeirri nefnd, og hefur síðan verið einhver allra helsti forkólfur fjelagsmála þar vestra. Árangur farar nefndarinnar var stofnun nýlendunnar Nýja íslands á vesturströnd Winni- pegvatns. Sigtryggur settist sjálfur að í Nýja-íslandi og bjó þar sem hóndi um nokkur ár að Möðruvöll- um við íslendingafljót. Stýrði liann á þeim árum öllum öðrum fremur málum nýlendunnar, og rjeðst þá í það stórræði að gefa út fyrsta íslenska tíma- ritið, sem komið hefur út í Ameríku, »Framfara« að nafni. Árið 1880 flutti Sigtryggur sig burt úr Nýja-íslandi og setlist að í Selkiik; hafði hann þá gengið í fjelag með Friðjóni Friðrikssj'ni kaup- manni og hjelt úti ásamt honum gufubátnum »Victoria« á Winnipeg- vatni, og siðar öðrum stærri gufubát, »Aurora« að nafni. Enn fremur ráku þeir fjelagar ogfleiri timburverslun. Síðan ílutti Sigtryggur lieimili sitt til Winnipeg og brautst þá í því að stofna þar blaðið »Lögberg«, sem Einar Hjörleifsson varð þá ritstjóii að. Árið 1894 tók Sigtryggur við ritstjórn »Lögbergs« og liafði hana á hendi þang- að til um sumarið 1901. í janúar 1896 bauð Sigtryggur sig fram til þingmensku í St. An- drew’s kjördæmi, sem Nýja ísland var þá einn hluti af. Var hann kos- inn þar með 78 atkv. meirihluta á móti B. L. Baldvinsson. Varð hann þannig fyrsti íslendingur, er sæti átli á þingmanna- bekkjum í Kanada. Síðan hefur B. L. Baldvins- son orðið hlutskarpari þar í kjördæminu og er nú þingmaður þess. Eftir að Sigtryggur lagði niður ritstjórn »Lög- bergs«, varð hann eftirlitsmaður með heimilis- rjettarlöndum Kanadastjórnar, og því embætti gegndi hann þangað til í maí 1906. Haustið 1906 gekst hann ásamt öðrum fyrir því, að stofna gripaverslunarfjelag í Winnpeg og hefur fjelagið nú

x

Óðinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.