Óðinn - 01.12.1912, Blaðsíða 7
ÓÐINN
71
lil rúms síðar, en þá oftast verið öðrum þaskað.
Eitt af því, sem Björn hefur tekið sjer fyrir
hendur, er að vekja upp aftur beitarþol og harð-
fengi sauðfjár, sem honum þótti helst til lingert
orðið fyrir innigjöf og kveifaralega meðferð. Hefur
hann nú komið sjer upp hraustum fjárstofni. Er
orð á gert, hve vel fje hans þolir vetrarbeit og
kemst flesta vetur vel af án gjafar.
Pað hefur farið með Björn eins og aðra menn
flesta, er hæfileika hafa umfram almenning, að
hlaðist hafa á hann störf í þarfir þjóðfjelagsins.
Hreppsnefndarmaður hefur liann verið tvö tíma-
bil, sýslunefndarmaður og hreppstjóri um mörg
ár. Um eitt skeið hjeraðsfundarmaður. í stjórn
sveitabúnaðarfjelaga nær 30 ár. Nú er hann for-
maður Búnaðarsambands Kjalarnesþings. Endur-
skoðari reikninga i mörgum fjelögum, t. d. Bún-
aðarfjelagi íslands lengi, svo og sýslu- og hreppa-
reikninga síðan hannvarð sýslunefndarmaður ogflest
önnur trúnaðarstörf sýslunefndar hefur hann haft.
Öftast skrifari á fundum, i nefndum og við önnur
tækifæri, þar sem hann er staddur. Búnaðarþings-
fulltrúi er hann. Þrisvar hefur hann verið for-
maður í dómnefnd um sláttuvjelar, í dómnefnd um
búpeningshús o. fi.
Hann gerði ilesta samninga um símaefnisflutn-
ing á aðallandsímalínunum árin 1905—6 og átti
þátt í að velja símaleiðir. Má óhætt fullyrða að
honum er manna fremst að þakka að efnisflutn-
ingurinn ekki varð miklu dýrari en áætlað var og
að fyrsta símalínan varð gerð á ákveðnum tíma.
Talsvert hefur hann átt við samvinnufjelags-
skap í verslun, þar á meðal stofnun Sláturfjelags
Suðurlands. Hefur hann ferðast um flestar sveitir
fjelagssvæðisins og haldið fyrirlestra til þess að
skýra fjelagsskaparhugmyndina. Verið i stjórn og
framkvæmdarnefnd þess fjelags frá upphafi, sjeð
um byggingu sláturhúsanna og gert alla samninga
þar að lútandi.
Talsverðan þátt liefur Björn takið í stjórnmál-
um. Tvisvar verið kosinn alþingismaður (fyrir
Borgarfjarðarsýslu) og oftar verið í kjöri, en fallið
við kosningar, enda alt af átt við atkvæðamikla
menn að keppa. Þingvallafundarfulltrúi var hann
einu sinni.
Fjöldi greina og ritgerða liggja eftir Björn i
blöðum og tímaritum; þykir hann ekki auðsóttur
í ritdeilum.
Heiðursmerki dbrm. var liann sæmdur 1907.
Björn kvæntist 15. júní 1884 og er kona hans
Kristrún Eyjólfsdóttir frá Stuðlum i Reyðarfirði.
Börn þeirra eru 7 og auk þess einn fóstursonur.
Þrátt fyrir mikinn kostnað af þungu heimili
og framkvæmdum hefur Björn verið meðal hæðstu
tíundenda og gjaldenda sveitar sinnar.
G.
Nokkur kvæði.
Eftir síra Siggeir Pálssón.
Um hest.
Bokki er baldinn linokki,
blakksefni gott. Jeg hlakka,
þykkvaxinn nær í pykkju
prekkejTs sneypta rekka;
lykkjar lipran makka,
lokkar flaksa í mokki,
stekkur möl, í stykkjum
stakkast mold um bakka.
Sljettubönd.
Fyllir snjórinn græfur, gjár,
grillir ljórann varla.
Hryllir bjórinn kræfur klár,
kvilla-jórar falla.
Hesturiim Skolur.
Reiðheslur Guttorms stúdenls á Arnheiðarstöðum.
Heiða, stirnda himininn
hann er yndi að skoða,
kvik pá linda-leifturin
loftið binda roða.
Pá er fagurt fáka sjá
um fljótið Lagar skjóta
vetrardaga ísi á
ekki raga pjóta.
Sá hjet Skolur söðlamar,
sem að bolinn teygði
á undan folum öllum par,
aldrei poli fleygði.
Eins og tundur fram úr flokk
fór á grundu klaka;
hinir stundu’ i hríðarmokk
hófum undan jaka.
Blá augu.
Augaö, sem mitt hlekkjar hjarta
liiminbláum lit er skreytt.
Pó að fjörugt sje hið svarta,
síður veg pað fær sjer greitt.