Óðinn - 01.05.1913, Blaðsíða 1
OÐINN
«. BLAU i MAÍ 1013. J IX. ÁR
Asgeir G. Asgeirsson etatsráð.
14. ágúst síðastl. sumar andaðist á heimili
sínu í Khöfn, úr hjartaslagi, Ásgeir G. Ásgeirsson
elatsráð, þá nýkominn heim þangað úr ferð hing-
að til lands.
Hann var fæddur á ísafirði 8. sept. 1856,
sonur Ásgeirs Ásgeirssonar
kaupmanns þar og Sigríðar
Jensdóttur kaupmanns Sand-
liolts. Hafði Ásgeir eldri byrj-
að verslun á ísafirði 1852, en
áður lengi verið skipsljóri á
hákarlaskipi. Hann var dugn-
aðarmaður mesti, og græddisl
lionum vel fje. Oft var hann
í förum milli Khafnar og ís-
lands, en síðari æfiár sín var
liann búseltur í Khöfn og
andaðist þar 1877, tæplega
sextugur að aldri. Eru þeir
Jón Sigurðsson forseti sagðir
liafa verið miklir mátar. Til
skamms tíma lifði ekkja Ás-
geirs eldra, frú Sigríður, há-
öldruð. Syni áttu þau ekki
íleiri en Ásgeir etatsráð, en
fjórar dætur. Ein þeirra var
Lovísa (d. 1882), fyrri kona
Árna Jónssonar, er lengi var
forstjóri verslunar Ásgeirs heit-
ins á ísafirði, en hefur nú
tekið við starfi hans í Khöfn
og flutst þangað; önnur Guðrún, kona Jóns heit-
ins kaupmanns Magnússonar frá Grenjaðarstað, er
verslun ralc á Eskifirði (d. 1911); þriðja María,
kona J. M. Riis verslunarfulltrúa; fjórða Anika,
er dó ung.
Ásgeir yngri ólst upp lijá foreldrum sínum, var
í æsku við verslun föður síns á ísafirði á sumrum,
en á skrifstofu hans í Khöfn á vetrum. Eftir lát
föður síns hafði hann stjórn verslunarinnar á hendi
ytra, en Árni Jónsson mágur hans hafði forstöðu
hennar á ísafirði, eins og þegar er sagt. Jókst
verslunin mjög undir stjórn þeirra og hefur nú
útibú á fimm stöðum vestanlands: Flateyri, Súg-
andafirði, Rolungarvík, Arngerðareyri og Hesteyri.
Var fiskiútgerð mikil rekin af versluninni þar vest-
anlands. Einnig reisti Ásgeir hvalveiðastöð á Seyð-
isfirði vestra, en flutti hana síðan til Eskifjarðar
og rak þaðan hvalveiðar. 1890
keypti hann gufubát, er hann
kallaði »Ásgeir litla«, og hóf
hann fyrst póstferðir um ísa-
fjarðardjúp 1891. Síðar kejrpti
hann stórt gufuskip, á stærð
við milliferðaskip Sam. gufu-
sk.fjel., og nefndi það »Ásgeir
Ásgeirsson«; hefur það verið
í förum fyrir verslunina síð-
an. — Eru alt þetta meiri
framkvæmdir og stórstígari
en hjá flestum mönnum öðr-
um lijerlendis á sama tíma.
Af kunnugum manni er
Ásgeiri etatsráði svo lýst:
Hann var gildur meðalmaður
á hæð, þrekvaxinn og vel á
sig kominn. Hann var bráð-
lyndur nokkuð, en hreinskil-
inn, og sagði afdráttarlaust
það, sem honum bjó í brjósti.
Og þó mönnum fyndist liann
nokkuð hranalegur stundum,
var hann einlægur við þá,
sem hann gaf sig að og hafði
mök við, tryggur og vinfastur. Dómum almenn-
ings skeytti hann lítið og var líka fáskiftinn um
annara hagi. Hinsvegar var hann gleðimaður,
þegar því var að skifta, og risnumaður. Duglegur
var hann og ósjerhlífinn við störf sín, þegar hann
gekk að þeim, og vildi að aðrir ynnu af kappi. —
Hann var tvíkvæntur. Fyrri kona hans var
Laura dóttir Hóhns verslunarstjóra á ísafirði. Þau
giftust 10. ág. 1880, en hún andaðist 12. febr. 1904.
Ásgeir (1. Ásgeirsson etnlsráð.