Óðinn - 01.06.1913, Blaðsíða 1
OÐINN
3. BLAU J JUNÍ 1013. j IX. ÁR
Andrjes og Sesselja Fjeldsted.
Gullbrúðkaup 15. júní 1913.
Andrjes Fjeldsted er fæddur á Fróðá á Snæ-
fellsnesi árið 1835 og er sonur Andrjesar sonar
Vigfúsar Fjeldsted og Katrínar dóttur Magnúsar
Ketilssonar sýslu-
manns. Móðir And-
rjesar var Þorbjörg
Þorláksdóttirfrá Hval-
látrum, systir Gríms
Thorláksons liirðtann-
læknis í Kaupmanna-
höfn. Fluttist Andrjes
með föður sínum suð-
ur að Hvítárvöllum
1846, tók við búi eftir
hann 1862 og keypti
þá jörðina með að-
stoð góðra manna.
Segir nokkru nánar
frá því í grein, sem
fylgir mynd af And-
rjesi í »Sunnanfara«
1892. Hafði hann eigi
ætlað að staðnæmast á
Hvítárvöllum eftir lát
föður síns, heldur fara
utan. En Vernharð-
ur prestur Þorkelsson
í Reykholti Qekk tal-
ið hann á að vera
þar lcyrran og kaupa
jörðina; bauð honum,
er Andrjes færðist
undan, að lána hon-
um sjálfur nokkurn hluta kaupverðsins, og varð
þetta þá úr. 15. júní 1863 kvæntist Andrjes Sess-
elju dóttur Kristjáns Sigurðssonar í Geitareyjum
og Margrjetar Jónsdóttur dbrm. Sigurðssonar á
Álftanesi á Mýrum. Sesselja er fædd í Vallnakoti,
sem er partur úr Hvitárvöllum, 1840. Hafa þau
Andrjes og Sesselja átt 11 börn og lifa af þeim 4
synir. Elstur þeirra er Kristján Fjeldsted (K. F.
Andersson), sem lengi hefir verið í Canada og nú
er yfirmaður þar í eftirlitslögregliðinu, kvæntur og
á 3 börn. Þar næstur að aldri er Sigurður Fjeld-
sted bóndi í Ferjukoti, kvæntur Elísabetu Árna-
dóttur, og eiga þau hjón eina dóttur. Þá er And-
rjes Fjeldsted augn-
læknir í Reykjavík,
kvæntur SigriðiBlönd-
ahl, og yngstur Lár-
us Fjeldsted yfirdóms-
lögmaður í Reykjavík,
kvæntur Lovísu Á-
gústdóttur.
Fleslir íslendingar
munu hafa heyrt get-
ið Andrjesar á Hvít-
árvöllum og þeirra
hjóna, enda var bú-
skapur þeirra einhver
hinn rausnarlegasti
hjer á landi meðan
þau bjuggu á Hvítár-
völlum, en jörðina
seldu þau, svo sem
menn muna, Boilleau
baróni og fluttust þá
að Ferjukoti, sem er
beint á móti Hvítár-
völlum, vestanmegin
Hvítár. Sigurður son-
ur þeirra tók svo við
búinu í Ferjukoti, og
fluttust þau hjónin
þá að Ferjubakka og
hafa verið þar síðan.
Allir, sem kunnugir eru, geta verið á eitt sáttir um
það, að Andrjes var á sinni tíð mestur framfara-
og framkvæmdamaður í Borgarfirði, enda sýna
verk hans ljósasta vottinn um það. Á Hvitárvöll-
um bygði hann stórt og vandað steinhús og síðan
timburhús áfast við það. Ennfremur 3 timbur-
Andrjes Fjeldsted,