Óðinn - 01.07.1913, Blaðsíða 1
OÐINN
4. BLAl)
JULÍ 1913.
IX. AR
ÍYir Yestur-íslendingar.
I. Porsteinn Oddsson fasteignakaupm.
er Þingeyingur að ætt. Kominn af myndarfólki;
en þó voru foreldrar hans fátækir, Naut hann
als engrar mentun-
ar í æsku annarar
en algengrar trúar-
fræðslu unglinga,
eins og víðast hvar
var siður á þeim
árum og allvíða er
enn. Fór úr for-
eldrahúsum á ung-
lingsaldri, til að
vinna fyrir sjer.
Lærði síðan smíð-
ar af sjálfum sjer,
og þólti góður
smiður. Var í
vinnumensku hin
fyrstu fullorðinsár
sín. Kvæntist ung-
ur núverandi konu
sinni Rakel Sigfús-
dóltur. Tókst þó
aldrei á hendur
búskap heima; en
var húsmaður og
hafði ofan af fyrir
sjer með smíðum.
Fluttist þá og
skömmu síðar
liingað til lands
(1888) tæplega
liálfþrítugur. Sett-
ist hann að í Sel-
kirk-bæ, og vann
þar fyrir sjer með smíðum fyrst um sinn. Eftir
nokkur ár rjeðst hann í að setja þar upp almenna
vöruverslun, og gekk það vel um sinn. En vegna
vanskila landa hans annars vegar og efnaskorts
hins vegar varð hann að leggja verslunina niður
Porstt'inn Odclsson
að fám árum liðnum. Þá fluttist hann stuttu seinna
til Winnipeg. Fjekst við tryggingasölu um tíma; en
sneri svo inn á þá braut, sem hann liefur haldið rak-
leitt síðan. Á öðru ári eftir aldamótin fór hann að
fást við fasleignasölu, og var þá í byrjun mjög fje-
lítill; honum hepn-
aðist vel, enda á-
gætt í ári. Jókst
honum efnamáttur
fljótt, svo að ári
liðnu fór hann að
byggja liús til sölu.
Rak þá úr því eitt
fyrirlækið annað
og eitt landkaupið
annað. Hefur lion-
um blessast svo
vel atvinna sín, að
nú, rjettum áratug
frá því að hann hóf
hana, á hann orð-
ið mörg stórhýsi
til og frá um borg-
ina, sem gefa af sjer
of fjár í leigu. Auk
þess hefur hann
bygt fjölda húsa á
eignarlandi sínu,
nokkru fyrir vest-
an borgina, og
lagt fram mikið
liugvit og kostnað
við að koma þar
fyrir innanborgar-
þægindum. Síðar
hefur hann selt
mörg þeirra, en á
mörg eftir, flest á
Ieigu. Spildu hefur liann og nýlega selt þar fyrir
of fjár, en á mikið land óselt, sem hækkar árlega
í verði. Svo er talið, að eignir Þorsteins Odds-
sonar muni nú nema nær þrem fjórðu hlutum
miljónar i dollurum talið, eða sem næst þrem