Óðinn - 01.08.1913, Blaðsíða 1

Óðinn - 01.08.1913, Blaðsíða 1
OÐINN Pike Ward fiskikaupmaður. P. Ward fiskikaupmaður, sem Jijer fylgir mynd af, er nafnkunnur maður lijer á landi. Hann hef- ur nú starfað hjer í full tuttugu ár og unnið ís- lenskum sjávarútvegi mikið gagn. Hann er fæddur í Teignmouth, skamt frá Newcastle, í Englandi 2. nóv. 1856. Skólanámi hætti liann 1872 og gekk inn í starfsemi föður síns, sem verslaði með Newfoundlandsfisk og var útgerðarmaður. Faðir hans dó 1881, og tók P. Ward þá við versluninni og atvinnu- rekstrinum. 1890 keypti hann nokkuð af íslenskum fiski frá Seyðisfirði, af Pattersons- bræðrum, er störfuðu lijer á þeim árum og margir kann- ast við. Þótlist Ward sjá, að útvega mætti markað fyrir þann fisk á Vestur-Englandi, ef rjett væri að farið, og kom hingað til lands árið 1893 til þess að gera tilraun í þá ált, að kaupa hjer smáfisk. Hann fór þá kring um land með »Thyru« gömlu," en varð að snúa aftur til Englands án þess að gera hjer nokkur kaup. Hafði hann átt tal um málið við Sigfús heitinn Ey- mundsson, og tókst Sigt'úsi síðan að koma á samningum við fiskimenn á Akranesi um fiskikaupin, og var Finnbogi Lárus- son formaður þeirra. Ritaði þá Sigfús P. Ward, að hann skyldi koma aftur sama ár með 100 tonn af salti, og mundu menn þá hafa til handa hon- um 50 tonn af fiski. Kom Ward þá aftur hingað í september, keypti hjer fiskinn og ílutti hann út á lítilli danskri skonnortu, sem »Maria« hjet. Þann- ig byrjuðu hjer fiskkaup hans, er síðan liafa'hald- ið áfram alt til þessa. Vorið 1904 kom hann aftur hingað til lands og kendi þá fiskimönnum á Akranesi, í Garði og á Seltjarnarnesi að fletja fisk með Lahradorlaginu til sölu á Veslur-Englandi. Flutti liann þá út 170 tonn. 1905 fór hann til ísafjarðar og kendi mönn- um einnig þar að fletja fiskinn og verka hann. Gekk svo ár eftir ár, með meiri eða minni hepni, og var nú smáfiskurinn, sem áður liafði verið lítils virði, orðinn að verðmætri verslunarvöru, ef hann var flattur og verkaður á þann hátt, sem Ward vildi, og gekk sá fiskur um alt land undir nafninu »Wardsfiskur«. 1899 kom Ward til Hafn- arfjarðar með eimbotnvörp- unginn »Útopía«, og vaFjþað fyrsti botnvörpungurinn, sem skráseltur var bjer á landi. Þetta varð ekki gróðrafyrir- tæki og kennir Ward um drykkjuskap skipshafnarinn- ar. Varð hann að hætta við þá útgerð með miklu tapi. Nú var svo komið, að aðr- ir kaupmenn fóru að leggja sig eftir smáfiski, sem verk- aður var með »Wards«-að- ferðinni, til sölu á Ítalíu. Er framleiðsla á honum orðin mikil og það mikið fje, senr fyrir hann fæst, þótt áður þætti hann lítils virði. Og þetta er P. Ward að þakka, er kent liefur fiskimönnunum hvernig eigi að verka smáfiskinn til þess að gera hann að út- gengilegri verslunarvöru. P. Ward kvæntist 1896, en misti konu sína 1901 og er siðan ekkjumaður. Þau eiga einn son, sem Edward lieitir og nú er 16 ára gamall. Allir þeir, sem kynst hafa P. Ward hjer á Pike Ward.

x

Óðinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.