Óðinn - 01.10.1913, Blaðsíða 1
OÐINN
7. HI.Al) OKTOBKR 1013. — j IX. ÁR
Stefán Björnsson
ritstjóri Lögbergs.
Það er mikið starf, og ekki vanda-
laust, að vera ritstjóri »stærsta íslenska
blaðs í lieimi«. Óðinn flytur að þessu
sinni mynd þess manns, sem gegnt hef-
ur því starfi nokkur undanfarin ár. Pað
er Stefán Björnsson, cand. theol., rit-
stjóri Lögbergs. Blaðið Lögberg er gefið
út í Winnipeg, sem kunnugt er. Það er
langstærst allra íslenskra blaða; kemur
út einu sinni í viku og er hvert blað 8
síður. Það var frá upphafi mun stærra
en hjerlend blöð, og hefur þó verið
stækkað oftar en einu sinni — síðast
árið 1911. Þessir voru ritstjórar þess á
undan Stefáni: Einar Hjörleifsson, Jón
Ólafsson, Sigtryggur Jónasson og Magnús
Paulson. Blaðið fylgir stefnu frjálslynda
flokksins í Canada, og eru nokkrir ís-
lendingar í Winnipeg eigendur þess.
Stefán Björnsson er Fæddur á Kol-
freyjustað 14. dag marsmánaðar 1876.
Hann lauk stúdentsprófi í Reykjavík ár-
ið 1900, og embættisprófi við prestaskól-
ann þrem árum síðar. Árið 1904 fór
hann til Vesturheims, og varð ritstjóri
Lögbergs góðu ári síðar. Kona lians er
Helga Jónsdóttir frá Rauðseyjum á
Breiðafirði.
Stefán er af góðu bergi brotinn í
báðar ættir. Faðir lians er merkismað-
urinn Björn bóndi í Dölum í Fáskrúðs-
firði Stefánsson umboðsmanns frá Snartastöðum í
Núpasveit, Jónssonar prests á Helgastöðum, af ætt
Kolbeins á Stóruvöllum, er margt mætra manna
er frá komið. Margrjet móðir Stefáns ritstjóra var
Stefánsdóttir, síðast prests á Kolfreyjustað, Jóns-
sonar Guðmundssonar prests á Hjaltastað, albróð-
ur Benedikts Gröndals assessors og sjera Þórarins
í Múla, en þeir bræður voru synir Jóns prests við
Stefán Björnsson.
Mývatn, Þórarinssonar prests Jónssonar, prests í
Stærra-Árskógi (f 1696), er bæði var skáld og
merkur maður, Guðmundssonar. í móðurætt var
Stefán prestur Jónsson kominn af Sauðanessprest-
um, Schevings-ætt og Reynistaðamönnum, er komnir
eru af Bjarna Halldórssyni sýslumanni á Þingeyr-
um og Páli Vídalin lögmanni.
Jeg kyntist Stefáni lítið eitt í skóla, en erjeg