Óðinn - 01.02.1914, Blaðsíða 1

Óðinn - 01.02.1914, Blaðsíða 1
OÐINN 11. BLAl) Jón Þórarinsson fræðslumálastjóri. Hann er sextugur 24. þ. m., fæddur á Mel í Miðfirði 24. febrúar 1854. Foreldrar hans voru þórarinn prófastur Böðvarsson og kona hans Þórunn .Tóns- dóttir. Síra Þórarni var veittur Vatnsfjörð- ur veturinn 1854, og fluttist hann þangað vorið eftir. Ólst Jón þar upp með foreldr- um sínum þangað til 1868. Þá fjekk faðir hans Garða á Álftanesi og fluttist þangan. Úr latínuskólanum útskrif- aðist Jón vorið 1877, og sigldi þá um sum- arið til háskólans í Khöfn. Þar stundaði hann guðfræðisnám, en lauk því eigi, og livarf heim aftur til íslands árið 1882. Gerðist þá forstöðumaður Flens- borgarskólans, er kom- inn var á stofn fyrir fjárframlag foreldra hans. Síðan hefur höfuðstarf Jóns snúist að kenslu og alþýðu- fræðslumálum, og mun ekki ofmælt, að enginn einn maður hafi lijer á landi á síðustu áratugum þokað þeim jafnlangt áleiðis og hann. Þegar Jón kom að Flensborgarskóla, var skól- inn nýlega stofnaður og átti fremur erfitt uppdrátt- ar. Var eigi laust við, að ýmsir hefðu horn í síðu skólans þá, og framan af skólastjórnarárum j IX. ÁR Jóns. Bera bæði alþingistíðindin og nokkrar blaða- greinar frá þeim árum vott um það. Þótti mönn- um þá slík stofnun lítt nauðsynleg, og eigi miklu fje til hennar kostandi. En smátt og smátt breytt- ist þetta, og var það ekki síst því að þakka, hve sýnt Jóni var um skólastjórnina og skólahaldið alt. Var svo komið, þegar hann ljet af skóla- stjórn og tók við yfir- umsjón kenslumál- anna, 1908, að skólinn var orðinn vinsæll lijá landsmönnum og svo fjölsóttur sem húsrúm frekast leyfði. En það liafði stórum aukist og batnað frá því Jón kom að skólanum, einkum við það, að bygt var allstórt kenslu- hús rjett hjá gamla skólahúsinu, en hægt var að taka það alt til heimilisvista og fyrir skólastjóraíbúð. Hefur sá, er þetta ritar, ný- lega fengið brjef frá einum af nemendum Flensborgarskólans frá tíð J. Þ., og lýkur hann þar miklu lofsorði á skólastjórn hans. í gjafabrjefi þeirra hjóna, sira Þórarins og konu hans, var það tekið fram, að tilætlun- in væri, að Flensborgarskóli skyldi, jafnframt því, sem hann væri unglingaskóli, líka vera kennara- skóli. En eigi varð því þó við komið sökum Qár- skorts, að koma á sjerstakri kennarakenslu við skólann, fyr en 1891, oghöfðu þeir feðgar þó leit- ast við að fá því framgengt fyrri. Fyrst í stað fór þessi kennarafræðsla fram að vorinu, eftir að FKBRUAB 11*1-1. Jón Þórarinsson fraíöslumálastjóri.

x

Óðinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.